Tíminn - 19.10.1989, Blaðsíða 10
Fimmtudagur 19. október 1989
Fimmtudagur 19. október 1989
10 Tíminn
Tíminn 11
Vart nokkur eölismunur á skjálftanum í Kaliforníu í gær og Suðurlandsskjálfta:
Jarðskjálftanefnd kom saman til
skyndifundar í gær til að ræða jarð-
skjálftana sem urðu í Kaliforníu
skömmu eftir miðnætti í gær að íslensk-
um tíma, en upptök skjálftanna urðu í
70-80 km fjarlægð suð-suðaustur af San
Fransisco á svonefndri San Andreas
sprungu. Á íslandi búast menn við því
að Suðurlandsskjálfti geti orðið hvenær
sem er innan næstu tveggja áratuga.
Upptök hans verða í svipaðri fjarlægð
frá Reykjavík og eðli hans og orsakir um
margt svipaðar og skjálftans við San
Fransisco og að líkindum verður hann
ámóta harður, eða um eða yfir 7 stig.
Jarðskjálftanefndin ákvað því á fund-
inum i gær að leggja til að lítil sendinefnd
sérfróðra manna á sviði jarðskjálfta,
mannvirkjagerðar og almannavarna fari
sem fyrst til Kaliforníu til að kanna
viðbrögð bandarískra almannavarna,
eðli skjálftanna og skemmdir af þeirra
völdum. Að sögn Ragnars Stefánssonar
forstöðumanns j arðeðlisfræðideildar
Veðurstofu íslands er lagt til að farið
verði sem fyrst, eða í byrjun næstu viku
og þess vænst að nefndinni verði tryggðar
bestu aðstæður til verka af hálfu banda-
rískra stjórnvalda.
Rannsókna- og aðvörunarkerfi gagn-
vart jarðskjálftum hafa lengi verið til í
Kaliforníu og hafa safnast mikil gögn um
þá og aðdraganda þeirra í áranna rás.
Nú er unnið að því að setja upp kerfi
af þessu tagi varðandi Suðurlandsskjálft-
ann og er það verk á góðum rekspöl.
Kerfið byggir um margt á reynslu Kali-
forníumanna en margar og merkar nýj-
ungar byggðar á nýjustu tölvutækni fel-
ast í því eins og komið hefur fram hér í
Tímanum áður. Kerfið er þegar tekið að
starfa að hluta til en verður væntanlega
fullbúið á næsta ári. Þess er vænst að það
geti sagt fyrir um skjálfta með einhverra
mínútna fyrirvara en þótt örfárra mín-
útna fyrirvari sé ekki langur þá mun
hann draga stórkostlega úr hugsanlegu
manntjóni.
Óvænt eyðilegging
„Mér sýnist að skemmdir í San Fran-
sisco séu tiltölulega miklar miðað við
hversu upptök skjáiftans eru langt frá
borginni. Eg veit á þessari stundu ekki
mikið um skemmdir en mér sýnist sem
þær hafi einkum orðið í eldri borgar-
hlutanum og á óvanalegum byggingum
og mannvirkjum," sagði Ragnar Stefáns-
son jarðskjálftafræðingur í gær.
Með óvanalegum mannvirkjum á
Ragnar við brýr og ýmis samgöngumann-
virki sem ef til vill hafa nú í fyrsta sinn
fengið eldskírn reynslunnar en reynsla af
því hvernig hanna og byggja á slík
mannvirki til að þau standist jarðskjálfta
er ekki löng.
Að sögn Ragnars eru jarðskjálftar
sem verða við San Fransisco yfirleitt
kenndir við San Andreas sprunguna en
segja má að hún komi á land í grennd
við borgina og Iiggur þaðan til suð-suð-
austurs inn í landið.
„Það er sterkur láréttur þáttur í hreyf-
ingu um sprunguna þannig að barmar
hennar færast í sína hvora áttina. Á öllu
svæðinu er auk þess lóðrétt hreyfing sem
í grundvallaratriðum veldur allri hreyf-
ingu á svæðinu. Hér á ég við að botn
Kyrrahafsins færist stöðugt undir Amer-
íku og þetta á sér stað með allri vestur-
strönd álfunnar en áhrifin eru nokkuð
misjöfn eftir því hvar drepið er niður,“
sagði Ragnar.
Hann sagði að ekki væri skjálftinn í
gær „Stóri skjálftinn" sem búist hefur
verið við. Það hefði hins vegar skjálftinn
verið sem kom árið 1906, en hann var
um 8,3 Richterstig sem er verulega
meira en skjálftinn í gær sem var um 7
stig.
Mestu skjálftar hafa að sögn Ragnars
verið metnir á 8,7-8,9 stig en stærsti
skjálfti sem sögur fara af varð í Kólum-
bíu árið 1906 og var einmitt um 8,9 stig.
íslenskir skjálftar
- En hvað hafa skjálftar á íslandi
Jarðskjálftinn við San Fransisco kom greinilega fram á mæli hjá Veðurstofu íslands.
Ragnar Stefánsson bendir á hvernig skjálftinn sýndi sig.
orðið sterkir? Ragnar Stefánsson sagði
að Suðurlandsskjálftar hefðu verið
metnir á 7-7,1 stig og jarðskjálfti sem
varð fyrir mynni Skagafjarðar árið 1963
var 7 stig og átti upptök sín um 30-40 km
frá landi. Skemmdir í þeim skjálfta urðu
verulegar og t.d. húsveggir sprungu
víða. Þá hefði skjálftinn fundist vel á
Akureyri sem var milli 80 og 90 km frá
upptökunum.
Ragnar sagði að ekki væri eðlismunur
á skjálftum sem verða á San Andreas
sprungunni og Suðurlandsskjálftum, en
báðir yrðu við lárétta hliðrun um
sprungur. Hér væri þó meiri deyfing í
jarðskorpunni. Þá væri Reykjavík í
ámóta fjarlægð frá upptökum Suður-
landsskjálftans og San Fransisco frá
upptökum skjálftans í gær en vegna
deyfingar jarðskorpunnar mætti gera
ráð fyrir heldur minni áhrifum í Reykja-
vík en varð þar. „Við vitum ekki enn
hvers konar mannvirki skemmdust helst
í San Fransisco en svo virðist sem það
hafi einkum verið óvenjuleg mannvirki
sem minni reynsla er fyrir hvernig eigi að
hanna og byggja til að þau standist
jarðskjálfta af þessu tagi,“ sagði Ragnar.
- En hvað gera menn hér heima sem
eru að undirbúa viðbrögð og aðvörunar-
kerfi gagnvart Suðurlandsskjálfta sem
komið getur á hverri stundu innan næstu
20 ára? Væri ekki ráðlegt að menn færu
héðan vestur og könnuðu aðstæður og
reyndu að draga lærdóm af aðstæðum?
„Ég held að ástæða væri að menn með
reynslu á þessu sviði færu héðan til þess
að meta áhrifin og reyna að læra af
þessu. Það fór smá hópur héðan þegar
skjálftinn varð í Mexíkó 1985 og það var
gífurlega lærdómsríkt og hafði mjög
jákvæð áhrif á alla umfjöllun um þessi
mál hér á landi og á vinnubrögð okkar
sem stundum rannsóknir og eftirlit hér-
lendis,“ sagði Ragnar.
Hvernig var?
„Ég varð ekki fyrir umtalsverðum
óþægindum af skjálftanum. Ég var á
ferðinni í bíl og fann að bíllinn kastaðist
til,“ sagði dr. Guðmundur Böðvarsson
prófessor við Berkeleyháskóla í Kali-
forníu. Guðmundur býr í um 40 km
fjarlægð frá upptökum skjálftans og
sagði hann að talsvert hefði gengið á þar
en engar skemmdir hefðu orðið á hans
húsi né í næsta nágrenni. Þó hefði
kviknað í húsi í Berkeley, en það væru
einu raunverulegu skemmdirnar sem
hann hefði sjálfur séð þar um slóðir.
Guðmundur sagði að lýst hefði verið
yfir neyðarástandi og þegar hefði verið
heitið af hálfu Kaliforníuríkis milljarðs
dollara neyðarhjálp til fólks sem orðið
hefði illa út. Samgöngur væru í algerum
lamasessi og sagðist hann búast við að
byrjað yrði á að koma þeim í sæmilegt
horf en sem stæði væri einasta færa
samgönguleiðin frá Berkeley og þéttbýl-
inu austan flóans yfir til San Fransisco
eftir að hraðbrautarbrúin eyðilagðist,
með járnbraut sem lægi neðansjávar og
hrysi mörgum hugur við að fara með
henni nú.
Guðmundur, sem bæði er bygginga-
verkfræðingur og jarðeðlisfræðingur
sagði að skjálftinn í gær væri ekki sá
„stóri“ og væntu menn hans enn og væri
búist við að hann yrði miklu harðari en
skjálftinn í gær.
Hann sagði að þær skemmdir sem
urðu á nýlegum mannvirkjum svo langt
frá upptökum skjálftans sem raunin væri
hefðu komið verulega á óvart. „Það
urðu sérstaklega miklar skemmdir í San
Fransisco og sérstaklega miklar
skemmdir á vegakerfinu miðað við
hversu langt er til upptaka skjálftans sem
heldur ekki var svo stór; eða 7 stig. „Það
hlýtur því að vera að tala um hönnunar-
galla, það er útilokað annað vegna þess
að skjálftinn var ekki meiri en þetta og
jafn langt í burtu og raunin er,“ sagði
Guðmundur Böðvarsson í Berkeley.
Svipað gæti gerst hér
„Það er vissulega hægt fyrir okkur að
draga lærdóm af þessum skjálfta. Hann
varð í svipaðri fjarlægð frá San Fransisco
og svokallaðir Suðurlandsskjálftar verða
frá Reykjavík,“ sagði Guðjón Petersen
forstjóri Almannavarna ríkisins.
- Hvað telja menn líklegt að gerist hér
í Reykjavík ef svipaður skjálfti ætti sér
stað. Eru mannvirki hönnuð og byggð
með það fyrir augum að standast jarð-
skjálfta af þessu tagi?
„Eftir því sem mér skilst var Kaliforn-
íustaðallinn notaður til viðmiðunar í
Reykjavík við hönnun mannvirkja allar
götur að því ég held fram til um 1979. Þá
var tekinn upp nýr staðall; svokallaður
ÍST 13 sem er jarðskjálftastaðall og er
mikið .til byggður á Kaliforníustaðli sem
þá var nýr. Ég held því að byggingar á
Islandi séu í svipuðum gæðaflokki hvað
varðar jarðskjálftaáraun og þar og í
Mexíkó þar sem hús eru ágætlega hönn-
uð einnig.
Hins vegar er rétt að geta þess að
verkfræðileg hönnun nútímabygginga
hefur byggt á kenningum - verið teóret-
ísk - og það er ekki fyrr en nú á síðustu
árum að við erum að fá reynslu í
heiminum á þessar byggingar í jarð-
skjálftum, svo sem í Mexíkó, Armeníu
og nú San Fransisco og Los Angeles
1971. Svo virðist sem kenningarnar
standist ekki fyllilega sjálfa reynsluna.“
- Hafa þá forsendur byggingastaðl-
anna ekki staðist og verið rangar?
„Ég held að draga megi þá ályktun að
forsendurnar hafi ekki alltaf staðist en ég
endurtek að reynsla á þessar byggingar
er fyrst að koma nú og hún virðist vera
önnur en ætlað var. Þó heyrist mér á
fréttum að eldri hlutar San Fransisco
hafi farið illa þannig að hafa verður það
í huga.
Brýr og háspennulínur
- Hvað með umferðarmannvirki og
háspennulínur á Suðurlandi. Eru þau
líklegtil að standast7stiga jarðskjálfta?
„Brýrnar á þjóðvegi eitt um Suðurland
hafa verið teknar út og Ölfusárbrú kom
reikningslega afar vel út að öðru leyti en
þvf að mjög líklega mun hún brjóta frá
sér við báða brúarsporða en fljótlega má
að líkindum gera við það. Þjórsárbrúin
kom líka ágætlega út. Það fundust að
vísu skemmdir í henni sem voru lagfærð-
ar en hún er ágætlega traust.
Hins vegar kom Rangárbrúin illa út og
hún virðist vera hættuleg. Hún er steypt
bitabrú og á slíkum brúm og stálgrind-
arbrúm og hengibrúm hinsvegar virðist
vera einhver munur. Hvað varðar Óseyr-
arbrú og nýju brúna yfir Sog við Þrastar-
lund þá eru þær báðar hannaðar með
tilliti til jarðskjálftaáraimar. Það var líka
þetta brúarmannvirki við Oakland. Það
átti meira að segja líka að hafa verið
styrkt sérstaklega eftir skjálftann í Los
Angeles og reynsluna sem þar fékkst.
Niðurstaðan er þó þessi.
Hvað varðar orkukerfin þá verð ég,
þrátt fyrir að ég vilji endilega hæla
Landsvirkjun fyrir það hversu gífurlega
mikið hún hefur gert til að styrkja sitt
kerfi gagnvart jarðskjálftum - Þeir hafa
haldið því vel við og reynt að festa öllu
og líta yfir allt, - þá held ég að það sé
staðreynd að orkuveitukerfið muni allt
slá út. Það fer svo eftir því hve skemmdir
á því verða miklar hversu lengi verður
rafmagnslaust.
Kópasker og Suðurland
Við höfum þó, þegar þessi mál eru
hugleidd, allgóða viðmiðun hér heima.
Ef við lítum til baka til 1976 þegar
jarðskjálftinn varð við Kópasker þá var
sá skjálfti 6,3 stig og varð í tíu km
fjarlægð frá þorpinu.
Skjálftinn gerði þorpið algerlega
óbyggilegt og hvert einasta mannsbarn
varð að yfirgefa svæðið. Það varð reynd-
ar hægt að flytja inn í þorpið aftur, en
við getum reynt að yfirfæra reynsluna af
þessu áfalli yfir á Suðurlandið og bæina
þar, en á svæðinu búa um þrettán
þúsund manns.
Ef skjálfti hefði orðið þar í gær hefðu
þrettán þúsund manns að mestu leyti
þurft að taka sig upp og flytja í einhvern
tíma og það eitt þýddi gífurlegt efnahags-
legt tjón fyrir þjóðfélagið fyrir utan
manntjón og slys sem eflaust hefðu fylgt
í kjölfar skjálfta," sagði Guðjón Peter-
sen forstjóri Almannavarna ríkisins.
Guðjón sagðist ennfremur telja að
það gæti orðið góður skóli gagnvart
hugsanlegum hamförum hér ef sér-
fræðingar héðan færu á jarðskjálftasvæð-
ið í Kaliforníu. „Við fórum til Mexíkó
eftir jarðskjálftana þar og það gjör-
breytti skoðunum okkar og opnaði ný
svið fyrir okkur,“ sagði hann að lokum.
Jaroskjalftanefnd kom saman til skyndifundar til að ræða afleiðingar jarðskjálftanna í Kaliforníu í gær með hliðsjón af hugsanlegum Suðurlandsskjálfta. Frá vinstri; Sveinbjöm Bjömsson eðlisfræðingur, Júlíus Sólnes verkfræðingur og ráðherra,
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta fræðingur, Guðjón Petersen forstjóri Almannavarna og Páll Halldórsson jarðeðlisfræðingur. Tímamynd: Árni Rjarna
hérna
Eftir Stefán Ásgrímsson