Tíminn - 20.10.1989, Page 9

Tíminn - 20.10.1989, Page 9
 yaam WUKM 11«! 1 *■■■ w »* ; mj flM TT'Wftircáw ! Fastcignamatiö, sem fasteignagjöldin hafa miðast við,tekurmidafþvíadþessihússembyggðcruíReykjavíkscljastgjarnanátvöfalttilþrefalt hærra verði heldur en samsvarandi hús byggð á smærrí stöðum annars staðar á landinu. Endurstofnverð húsa er á aftur á móti hið sama hvar á sveitarstjórnir nota sömu álagningarprósentu. landinu sem þau voru/eru byggð. Þar með verða fasteignagjöldin hin sömu um næstu áramót ef Timamynd Árni Bjarna. Fasteignagjöld framvegis lögð á afskrifaðan byggingarkostnað eigna í stað fasteignamats (verðmætis): Snarhækka f asteignag jöld í dreifbýl i ? Er húseigendum á landsbyggðinni viss- ara að búa sig undir verulega hækkun á fasteignagjöldum um næstu áramót, vegna þeirrar grundvallarbreytingar sem lögleidd var á álagningarstofninum s.l. vor, en virðist hafa farið fram hjá flestum skattgreiðendum? Eða var breytingarinn- ar virkilega þörf vegna þess eins, að fólk áttaði sig ekki á að 0,6% af 500 kr. er lægri upphæð en 0,4% af 1.000 kr. - með öðrum orðum, til þess að „borgarstjórar“ Stór-Reykjavíkur geti ekki endalaust grobbað sig af lægri fasteignagjöldum en aðrir? Þótt í raun séu þau oft séu þau hærri. Nýi skattstofninn verði helmingi til tvöfált hærri heldur en fasteignamat víða á landsbyggðinni, enda framvegis sá sami, t.d. í Súðavík og á Seltjarnarnesi á samsvarandi húsum. Grobbið í Davíð aðalástæðan? „Það hefur farið voðalega fyrir brjóstið á mörgum sveitarstjórnum að Reykjavík gat veifað 10% afslætti af fasteignagjöld- um á sama tíma og þeir þurftu að leggja á með 10 til 15% álagi. Þeir vilja gjarnan geta sagt: „Við gefum 25% afslátt, en hann er aðeins 15% í Reykjavík", sagði Magnús Guðjónsson framkvæmdastj. Sambands ísl. sveitarfélaga m.a. um ástæðu þessarar breytingar. Hið sama kom fram í samtali við Húnboga Þorsteinsson deildarstjóra í félagsmálaráðuneytinu: „Samanburðurinn við Reykjavík hefur farið mjög í taugarnar á sveitarstjórnar- mönnum víða um land. Reykjavík benti á að álagning þar væri aðeins 0,421% þegar aðrir þurftu að leggja á allt upp í 0,625%, sem gaf þó oft lægri tekjur. Og svo báru menn þetta saman í kosninga- baráttu - hvað það væri gott að vera gjaldandi í Reykjavík“, sagði Húnbogi. Áður skattur á verðmæti eigna Fasteignamatið (sem tekur mið af raunverulegu verðmæti eignar m.v. stað- greiðsluverð) hefur verið notað sem stofn til álagningar fasteignaskatta og eigna- skatta bæði hér á iandi og í nágrannalönd- um okkar austan hafs og vestan. Þar sem matið miðast við markaðsverðmæti á hverjum stað er algengt að mat íbúðar- húss í þéttbýli á Iandsbyggðinni sé á bilinu 80% og niður í 55% af mati samsvarandi húsa í Reykjavík. Jafnvel allt niður í 25% af Reykjavíkurmati t.d. á íbúðarhúsum í sveitum, enda söluverð- mæti þeirra oft mjög lágt, þ.e. ef þau eru þá ekki með öllu óseljanleg. Eftir Heiði Helgadóttur Sami skattur í Djúpuvík og Reykjavík? Með samþykkt nýrra tekjustofnalaga er gerð sú meiriháttar stefnubreyting, að fasteignaskattur er ekki lengur lagður á eftir verðmæti eigna, heldur á nýjan skattstofn; svonefnt „afskrifað endur- stofnverð“, þótt útreikningur þess muni að vísu hvergi vera skilgreint í lögum. Endurstofnverð, er mat á því hvað mundi kosta að byggja nýja jafn góða eign. Endurstofnverð tekur því ekkert tillit til markaðsverð, þannig að hús t.d. í Djúpu- vík á Ströndum hefur sama endurstofn- verð og samsvarandi hús í Reykjavík - og þar með sama fasteignaskatt, nema ef sveitarstjóm Árneshrepps ákveður hærri afslátt frá skattprósentunni heldur en borgarstjóm Reykjavíkur. Alagning fasteignaskats hefur miðast við 0,5% af fasteignamati. Sveitarfélög hafa síðan haft heimild til að hækka eða lækka álagninguna um 25% til eða frá, þannig að hún gat verið á bilinu 0,375% upp í 0,625%. Um 90% hækkun á Austurlandi? í nýju lögunum má álagning vera „allt að 0,5%“. Það þýðir að þetta er hámarks- prósenta sem sveitarfélög ráða hvað þau gefa svo mikinn afslátt af. Á eign sem hefur tvöfalt hærra afskrifað endurstofn- verð heldur en fasteignamat verður að lækka álagningarprósentu niður í 0,31% til 0,25% ef skattbyrðin á ekki að þyngjast. I könnun hjá Fasteignamatinu kom t.d. í ljós að nýi skattstofninn hækkar um 70% í sjávarplássi á Vesturlandi og um 75% í sveitahreppi á Suðurlandi. Þá má nefna að fasteignamat allra eigna (ann- arra en útihúsa í sveitum) á Austurlandi var rúmlega 13 milljarðar kr. í árslok 1987 en óafskrifað endurstofnverð hins vegar rúmlega 25 milljarðar kr., eða 91% hærri. Munurinn er allur í byggingunum, því mat á lóðum og löndum breyttist ekki. Breytingin mun hins vegar lítil áhrif hafa í höfuðborginni. Þjónustugjald en ekki eignaskattur? Hver var svo höfuð tilgangurinn með þessari grundvallarbreytingu á skatt- stofninum? „Sveitarstjórnarmenn hafa lengi barist fyrir breytingu og bent á að fasteigna- skatturinn er í raun og veru gjald fyrir veitta þjónustu sveitarfélaganna en ekki eignaskattur. Sveitarstjórnarmenn voru sammála um að miklu eðlilegra sé að gjaldstofninn sé allstaðar sá sami. Því Þórshafnarhreppur hefur t.d. ekkert minni útgjöld í sambandi við eitt hús eða íbúð heldur en Reykjavíkurborg", sagði Húnbogi Þorsteinsson. Hví ekki á haus, eða fermetra? Hefði þá ekki verið einfaldast að leggja visst gjald á hvern íbúa sveitarfélagsins, ellegar fast gjald á hvern fermetra/rúm- metra í byggingum? „Ekki visst gjald á íbúa, því menn vildu tengja þetta þeim sem eiga eignirn- ar. Menn hugleiddu það töluvert að nota stærðir eigna sem álagningargrundvöll. En niðurstaðan varð sú að fyrirliggjandi upplýsingar um stærðir eigna væru ekki nægilega góðar“. Húnbogi kvaðst ekki reikna með að sveitarstjórnir muni í miklum mæli not- færa sér að hækka fasteignagjöldin þótt heimild til þess verði fyrir hendi eftir breytinguna. Markmiðið sé fyrst og fremst að álagningin verði samanburðar- hæf um land allt. Noti sveitarstjórnir tækifærið til skatta- hækkunar sagði hann það koma í ljós í sveitarstjórnarkosningum næsta vor hvort íbúar vilja þá hækkun eða ekki. Kannski hærri - kannski ekki „Það er erfitt að segja um á þessu stigi hvort fasteignagjöldin muni hækka, því það fer allt eftir því hvernig einstakar sveitarstjórnir nýta þessa tekjustofna sína“, segir Magnús Guðjónsson. Á þessu stigi segir hann ógerning að spá um hver niðurstaðan verður. „En við höfum enga ástæðu til að ætla að þetta þýði almennt aukna skattbyrði á gjaldendur umfram það sem verið hefur. Það getur orðið en við vitum það bara ekki fyrr en einstakar sveitarstjórnir hafa ákveðið skattprósentur sínar“. Breytinguna á álagningarstofni segir Magnús fyrst og fremst samræmingar- atriði. „Menn tóku gjarnan dæmi: Hvers vegna ætti t.d. bæjarfógeti á Siglufirði eða Seyðisfirði að þurfa að greiða lægri fasteignagjöld af því hann býr þar heldur en ef hann byggi í Reykjavík eða annars- staðar á höfuðborgarsvæðinu. Viðmiðun- in er fasteignin, en skattinn greiða menn vitanlega af teljum sínum“. Samræmi? Hvort menn líta á þessa breytingu sem samræmingu veltur væntanlega á því hvað þeir telja eðlilegast að bera saman. Eigi að Iíta á fasteignaskattinn sem gjald fyrir þjónustu við íbúana er t.d. til þess að líta að þar vegur gatnagerð þungt og göturnar notaðar jafnt af þeim sem eiga stórt hús, lítið hús og ekkert hús. Leigj- andi í kaupleiguíbúð þarf ekki minni þjónustu en íbúðareigandi. Og er t.d. ekki hætt við að áðurnefndur bæjarfógeti á Siglufirði mundi reka sig á ansi hreint stórt ósamræmi ef hann seldi húsið sitt þar og ætlaði að kaupa annað álíka í Skerjafirði - sem ekki er ólíklegt að reyndist þrefalt dýrara? „Skattviðmiðunin er fasteignin, en skattinn greiða menn vitanlega af tekjum sínum, en ekki horni af húsinu sínu“, sagði Magnús. Máttur f jölmiðlanna? Tekjur sveitarfélaga af fasteignaskatti mátti einnig samræma með því að heimila meiri frávik frá álagningarprósentunni. Ef breyting á skattstofninum er ekki til þess gerð að hækka skattálagninguna verður því ekki betur séð en gripið sé til þessarar grundvallarbreytingar á skatt- stofninum í þeim tilgangi hvað helstum að slá á „áróðursmátt“ „borgarstjóranna" á höfuðborgarsvæðinu. Vegur það atriði virkilega svo þungt að grípa þurfi til lagabreytinga? „Mikil ósköp. Því í áróðrinum - ekki síst í blessuðum fjölmiðlunum - er því slegið upp að þetta sveitarfélag leggi á með álagi meðan hitt veitir afslátt. Svo einfalt er það“, sagði Magnús. Prósentuleikur... Átta ekki flestir sig á að 0,4% skattur af 8 millj.kr. fasteignamati er hærri heldur en 0,6% skattur af 4 millj.kr. fasteignamati? „Með þversíðufyrirtögnum er t.d. oft hægt að draga upp myndir sem litla stoð eiga í raunveruleikanum og þetta er eitt dæmi um það. Menn segja það dynja á sér að þeir nýti álagningarstofninn til fulls á meðan aðrir geti gefið afslátt. Vitanlega er þetta prósentuleikur - en um leið það sem notað er óspart í áróðrinum og umræðunni - og kemur virkilega inn í þetta dæmi“, segir Magnús Guðjónsson. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.