Tíminn - 20.10.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Föstudagur 20. október 1989
Forsætis-
ráðherra
í Hafnarfirði
Steingrímur
Almennur stjórnmálafundur
veröur haldinn í fundarsal íþróttahússins viö Strandgötu
í Hafnarfirði þriöjudaginn 24. október n.k. kl. 20.30.
Frummælandi: Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráöherra.
Allir velkomnir.
K.F.R.
Umferðarmál
Sunnudaginn 22. október n.k. gengst umferöarnefnd Fulltrúaráös
framsóknarfélaganna í Reykjavík fyrir ráöstefnu um umferðarmál í
Reykjavík, einkum varðandi umferðaröryggi, á Hótel Holiday Inn
(Teigarsal).
Ráöstefnustjóri veröur Sigrún fyiagnúsdóttir.
Dagskrá:
13:00 Finnur Ingólfsson setur ráðstefnuna.
13:05 Skoðunarferð um Reykjavík til glöggvunar á umferðarmann-
virkjum.
14:30 Kaffihlé.
15:00 Erindi:
Framkvæmdir til að auka umferðaröryggi, Þórarinn Hjaltason,
yfirverkfræðingur umferðardeildar borgarverkfræðings.
Hugmyndir um aðgerðir til fækkunar á umferðarslysum, Jón
Baldur Þorbjörnsson bílaverkfræðingur.
16:00 Umræður.
17:00 Ráðstefnuslit.
Allir velkomnir.
Fulltrúaráðið.
Keflavík - Suðurnes
Aðalfundur Bjarkar, félags framsóknarkvenna
í Keflavík og nágrenni, verður haldinn mánu-
daginn 23. okt. n.k. í Iðnsveinahúsinu, Tjarn-
argötu 7, Keflavík, kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi og mun hún ræða um stöðu
Framsóknarflokksins og sveitarstjórnarkosn- '
ingarnar.
Önnur mál.
Kaffiveitingar og allir velkomnir.
Stjórnin. Sigrún Magnúsdóttir
Framsóknarfélag Snæfells-
og Hnappadalssýslu
heldur aðalfund að Lýsuhóli, föstudaginn 20. okt. kl. 20.30. Venjuleg
aðalfundarstörf, kjörnir fulltrúar á kjördæmisþing.
Alþingismennirnir Alexander Stefánsson og Guðni Ágústsson koma
á fundinn.
Kaffiveitingar, allt framsóknarfólk og stuðningsfólk velkomið.
Stjórnin
Vestlendingar
Kjördæmisþingið verður haldið í Hótel Borgarnesi 3. og 4. nóvember.
Haustfagnaður framsóknarmanna á Vesturlandi verður í Hótelinu
föstudagskvöldið 4. nóvember. Nánar auglýst siðar.
Stjórn kjördæmissambandsins
Viðtalstími LFK Guðrún Tryggvadóttir, varaþingmaður fram- sóknarmanna á Austurlandi, verður til viðtals
á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21, miðvikudaginn 25. okt. kl. 10-12. rfi
Stjórn LFK
Guðrún
llllllllllllllll DAGBÓK
Sýning Kristins G. Jóhannssonar
í FÍM-salnum, Garðastræti 6
Kristinn G. Jóhannsson listmálari opn-
ar sýningu í FÍM-salnum, Garðastræti 6,
laugard. 21. október kl. 16:00.
Á sýningunni eru 22 ný olíumálverk,
sem öll fjalla um landslag og náttúru
landsins.
Þetta er 17. einkasýning Kristins, en
hann sýndi síðast að Kjarvalsstöðum fyrir
réttu ár, en nú í haust eru 35 ár liðin síðan
hann hélt sína fyrstu sýningu á Akureyri.
Þá hefur hann tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér heima og erlendis.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 5. nóv-
ember.
Fræðslufundur
Gigtarfélags íslands
Gigtarfélag íslands heldur fræðslufund
laugardaginn 21. október kl. 14:00 í sal
Hjúkrunarfélags íslands að Suðurlandsb-
raut 22, inngangur bakvið (lyfta).
Eggert Jónsson dr. med. bæklunar-
skurðlæknir talar um skurðaðgerðir við
liðagigt í öxlum. Félagsmenn fjölmennið
og takið með ykkur gesti. Kaffiveitingar.
Sfjómin.
Neskirkja
- Félagsstarf aldraðra
Samverustund verður á morgun, kl.
15:00, í safnaðarheimili kirkjunnar.
Bingó og upplestur
rkvi\iw»j a Mnr
Steingrímur Jóhann Haukur
Aðalfundur Framsóknarfélags
Kjósarsýslu
verður haldinn að Hlégarði, sunnudaginn 22. október 1989, kl. 17:00.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf og þar með talið kjör fulltrúa á kjördæmis-
þing framsóknarmanna á Reykjanesi sem haldið verður í Kópavogi
sunnudaginn 5. nóv. n.k.
Umræður verða um fyrirhugaða urðun á sorpi að Álfsnesi í
Kjalarneshreppi. Ennfremur á dagskrá komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar.
Að aðalfundi loknum verður gert hlé til skrafs og viðræðna til kl. 19:15,
en þá hefst kvöldverður.
Gestir fundarins verða:
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og frú Edda Guðmunds-
dóttir.
Jóhann Einvarðsson alþingismaður og frú Guðný Gunnarsdóttir.
Haukur Níelsson, fv. hreppsnefndarmaður, og frú Anna Steingríms-
dóttir.
Fólki sem ekki hefur tök á að mæta til aðalfundar er bent á, að það
er velkomið með gesti sína í hlé eftir aðalfund og síðan til
kvöldverðarins.
Vinsamlega hafið samband vegna kvöldverðarins við Gylfa vs.
985-20042, heimas. 666442, og við Helga í vs. 82811, 985-21719,
heimas. 666911, hið fyrsta.
Stjórnin.
Árnesingar
Hin árlega þriggja kvölda félagsvist Framsóknarfélags Árnessýslu
hefst föstudaginn 20. október að Flúðum, föstudaginn 27. október í
Félagslundi og lýkur föstudaginn 10. nóvember á Borg.
Aðalvinningur er ferðavinningur með Samvinnuferðum-Landsýn að
verðmæti kr. 70 þúsund, auk þess vegleg kvöldverðlaun.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Garðabæjar
Boðað er til aðalfundar í Framsóknarfélagi Garðabæjar mánudaginn
23. október n.k. kl. 20.30 að Goðatúni 2.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætum öll!
Stjórnin.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Akraness
Boðað er til aðalfundar í Framsóknarfélagi Akraness mánudaginn 23.
október kl. 20.30 að Sunnubraut 21.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætum öll.
Stjórnin.
Konur Árnessýslu
Aðalfundur Félags framsóknarkvenna í Árnessýslu verður haldinn á
Eyrarvegi 15, Selfossi, mánudagskvöldið 23. október kl. 21.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
önnur mál.
Mætum hressar í upphafi vetrarstarfs. Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Árnessýslu
verður haldinn miðvikudaginn 25. október kl. 21.00 að Eyrarvegi 15,
Selfossi.
Dagskrá: Samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
Ráðstefna
Vísindafélags íslendinga:
íslenskar jarðfræðirannsóknir
Vísindafélag fslendinga gengst fyrir
ráðstefnu um íslenskar jarðfræðirann-
sóknir í Norræna húsinu laugardaginn 21.
október. Ráðstefnan hefst kl. 09:00 og
stendur fram eftir degi. Þar verða flutt 14
erindi, og að þeim loknum yfirlit yfir
framlag ráðstefnunnar, en síðan verða
frjálsar umræður. Ráðstefnan er öllum
opin.
Dagskrá: Kl. 09:00 setur Guðmundur
Eggertsson rástefnuna. 09:10-09:30 Jón
Eiríksson: Árdagar íslenskrar jarðfræði
09:30-09:50 Páll Imsland: Vöxtur jarð-
fræðingastéttarinnar og áherslur í rann-
sóknum íslenskra jarðfræðinga. 09:50-
10:10 Elsa G. Vilmundardóttir: Framlag
leikmanna til jarðfræðilegra rannsókna á
íslandi.
- Kaffihlé -
Kl. 10:30-10:50 Leifur A. Símonarson:
Erlendir jarðfræðileiðangrar til íslands á
þessari öld. 10:50-11:10 Sveinn P. Jakobs-
son: Saga rannsókna á íslensku bergi
1840-1989 11:10-11:30 Leó Kristjánsson:
Tengsl íslenskra jarðvísindamanna við
útlönd. 11:30-11:50 Ingvar B. Friðleifs-
son: Útflutningur á íslenskri jarðfræði-
þekkingu.
- Matarhlé -
13:30-13:50 Stefán Arnórsson: íslensk-
ar rannsóknarstofnanir sem fást við jarð-
vísindi. 13:50-14:10 Páll Einarsson: Gögn
og gagnasöfnun í jarðfræðirannsóknum á
íslandi. 14:10-14:30 Sigurður R. Gísla-
son: Vanrækt svið í jarðfræðilegum rann-
sóknum á íslandi. 14:30-14:50 Guðmund-
ur Sigvaldason: Mat íslenskra stjórnvalda
á gildi og gagnsemi þekkingar.
-Kaffihlé -
15:10-15:30 Þorleifur Einarsson: Jarð-
fræðin í íslenskri náttúruvernd. 15:30-
15:50 Freysteinn Sigurðsson: Jarðfræði-
kortlagning á íslandi. 15:50-16:10 Birgir
Jónsson: Jarðfræðirannsóknir í sambandi
við virkjanir á Islandi. 16:10-16:30 Svein-
björn Bjömsson: Framlag ráðstefnunnar
saman dregið.
Kl. 16:30 verða frjálsar umræður.
Fundarstjórar verða: Arný Erla Svein-
björnsdóttir og Unnsteinn Stefánsson.
Vetrarfagnaður Félags Snæ*
fellinga og Hnappdæla
í Reykjavík
Félag Snæfellinga og Hnappdæla hefur
starfað í 50 ár og verður þess minnst með
ýmsum hætti á komandi vetri.
Vetrarfagnaður verður 1. vetrardag,
laugardaginn 21. okt. að Hótel Lind,
Rauðarárstíg. Félagsvist hefst stundvís-
lega kl. 20.30. Tríó 88 leikur fyrir dansi.
Fimmtíu ára afmælishóf félagsins verð-
ur í byrjun desember. Nánar tilkynnt
síðar. Félagið hefur fest kaup á húsnæði
í Dugguvogi 15 og er ætlunin að félags-
menn geti átt þaf samastað fyrir starfsemi
sína í eigin húsnæði.
Árshátíð félagsins verður laugardaginn
10. febr. 1990 í Goðheimum, Sigtúni 3.
Stjórn félagins skipa: Bogi Jóh. Bjarna-
son form., Kristján Jóhannsson vara-
form., Karl Torfason gjaldk. Hjördís
Þorsteinsdóttir ritari og Ottó Ragnarsson
meðstjórnandi.
HAFNARB0RG:
Sýning Sigurbjörns Eldons
framlengd
Myndlistasýning Sigurbjörns Eldons
Logasonar í Hafnarborg, Hafnarfirði,
hefur verið framlengd fram á sunnudags-
kvöld 22. október. Sigurbjörn sýnir 20
vatnslitamyndir. Aðsókn að sýningunni
hefur verið góð og margar myndanna
selst.
Sýningin er opin kl. 14:00-19:00 dag-
lega.
Sýning um ALNÆMI
Myndlista- og handíðaskóli Íslands og
Landlæknisembættið stendur fyrir sýn-
ingu á niðurstöðum samstarfsverkefnis
um ALNÆMl í anddyri Borgarspítalans.
Sýningin verður opnuð laugardaginn
21. október kl. 14:00 og stendur til
sunnudags 29. október.
Frá Félagi eldri borgara
Athugið: Danskennslan hefst laugar-
daginn 21. október í Nýja dansskólanum
í Ármúla. Upplýsingar á skrifstofu félags-
ins.
Göngu-Hrólfur hittist næsta laugardag
kl. 11:00 að Nóatúni 17.
KAFFIDAGUR
Eskfirðinga og Reyðfirðinga
Eskfirðingar og Reyðfirðingar í
Reykjavík og nágrenni halda sitt árlega
síðdegiskaffi fyrir eldri sveitunga sunnu-
daginn 22. október
kl. 15:00 í Sóknarsalnum, Skipholti50A.
Sýning Sigurborgar
Sigurborg Stefánsdóttir opnar sýningu
í Ásmundarsal við Freyjugötu laugardag-
inn 7. október kl. 16.00.
Sýningin stendur til 23. október. Hún
er opin daglega kl. 16.00-20.00, en um
helgar kl. 14.00-20.00.