Tíminn - 20.10.1989, Side 13
Föstudagur 20. október 1989
Tíminn 13
ÍSE0NBOGINN
;0Í KVIKMYNDAHÁTÍÐ VERÐUR
FRAMLENGD TIL 20. OKTÓBER.
MYNDIR Á VEGUM HÁTÍÐARINNAR
VERÐA EKKI SÝNDAR EFTIR 20.
OKTÓBER!
ATH. SÍÐASTI SÝNINGARDAGUR
KVIKMYNDAHÁTÍÐAR f REYKJAVÍK!
Salaam Bombay
Magnað meistaraverk frá Indlandi um
undirheima Bombay.
Leikstjóri: Mira Nair
Sýnd kl. 5 og 7
Himinn yfir Berlín
Nýjasta mynd meistarans Wim Wenders
um ástir engils i mannheimum.
Sýnd kl. 9
Geggjuð ást
(Crazy Love)
Vægðarlaus en bráðskemmtileg belgísk
mynd um lífshlaup ólukkunnar pamfíls.
Byggð á sögum Charles Bukowski.
Leikstjóri: Dominique Deruddere
Sýnd kl. 11.15
Bönnuð innan12ára
Píslarganga Judith Hearne
Maggie Smith og Bob Hoskins fara á
kostum í hlutverkum piparmeyjarinnar og
lukkuriddarans.
Leikstjóri: Jack Clayton
Sýnd kl. 5 og 7
Bönnuð innan 14 ára
Fjölskyldan
(La Famiglia)
Ein þekktasta mynd hins vinsæla ítalska
leikstjóra Ettore Scola.
Aðalhlutverk: Vittorio Gassman, Fanny
Ardant
Sýnd kl. 9
Köll úr fjarska, kyrrt líf
(Distant Voices, Still Lives)
Nærgöngul bresk verðlaunamynd um
fjölskyldulíf f heljargreipum.
Leikstjóri: Terence Davies
Sýnd kl. 11.15
Bönnuð innan 12 ára
Liðsforinginn
Snilldarleg stríðslýsing sovéska leikstjórans
Alexandr Askoldov. Myndin beið 20 ár eftir
því að sjá dagsins Ijós.
Sýnd kl. 5 og 7
Ashik Kerib
Allsherjar myndveisla, blanda af táknum og
galdri eftir sovéska snillinginn Sergei
Paradjanov.
Sýnd kl. 9
Eidur í hjarta mínu
(Une flamme dans mon coeur)
Erótískt meistaraverk svissneska
leikstjórans Alain Tanner.
Sýnd kl. 11.15
Bönnuð innan 16 ára
Blóðakrar
Einhver áhrifamesta og glæsilegasta
kvikmynd sem Vesturlöndum hefur borist
frá Kína. Hún hlaut Gullbjörninn í Berlín
1988.
Leikstjóri: Zhang Yimou
Sýnd kl. 5 og 7
Bönnuð innan 12 ára
Vitnisburðurinn
(Testimony)
Stórbrotin bresk mynd um ævi rússneska
tónskáldsins Dimitri Shostakovich með
Óskarsverðlaunahafann Ben Kingsley í
aðalhlutverki.
Sýnd kl. 9
E-salur
Pelle sigurvegari
Sýnd kl. 5 og 9
Miðaverð 350,- kl. 5,9 og 11.15
Miðaverð 250,- kl. 7 og 7.30
Eftir að kvikmyndahátíð Listahátíðar lýkur mun Regnboginn á ný taka
til sýninga kvikmyndirnar Björninn, Dögun, Gestaboð Babettu og
Móður fyrir rétti.
Grindavík
Framsóknarfélag Grindavíkur
heldur aðalfund sunnudaginn
22. október í Festi, litla sal, og
hefst kl. 16.
Dagskrá: Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Kosning fulltrúa á
Kjördæmisþing.
Níels Árni Lund
Níels Árni Lund varaalþingismaður mætir á fundinn ásamt
Ágústi Karlssyni, formanni KFR.
Stjórnin
Sandgerði
Aðalfundur Framsóknarfélags
Miðneshrepps verður haldinn
þriðjudaginn 24. október í
Framsóknarhúsinu, Sand-
gerði, og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Jóhann Einvarðsson alþingismaður mætir á fundinn.
Stjórnin
Jóhann
Eiarn situr þægilega
uggt í barnabílstól.
ið á það skilið!
||UMFERÐAR
' RAÐ
Liz kvaddi Malcolm með kossi í
Marokkó og hélt til Sviss.
Malcolm Forbes var leiður yfir því að ná ekki aftur í Elizabeth, - en haft
er eftir honum: „Úr því að ég gat ekki fengið Liz, hvað þá með Barbra
Streisand? Hún er líka fræg!“ Hér sjást þau Barbra vera að fara út á h'fið,
en það er engu líkara en hún sé ekki mikið að halda sér til fyrir
milljarðamæringnum.
Kærastinn yfirgaf
Elizabeth Taylor
Liz Taylor varð mikið um það
þegar Larry Fortensky, sem hafði
búið með henni í tæpt ár, gekk allt
í einu út af heimili hennar og
yfirgaf hana. Hann tók ekkert með
sér, - ekki fínu fötin sem hún var
að punta hann í né heldur rauða
Pontiac Sunbird-bílinn, sem Liz
hafði gefið honum. Larry fór út í
vinnubuxunum og slitna leðurjakk-
anum sem hann var í þegar hann
kom inn á heimili Liz.
Þau Elizabeth og Larry Forten-
sky hittust fyrst fyrir þremur árum
á hressingarheimili fyrir ofdrykkju-
fólk, og fór vel á með þeim þrátt
fyrir um 20 ára aldursmun, en hann
er 37 ára og Elizabeth 57.
Það sem vinir leikkonunnar settu
helst fyrir sig, - meira en aldurs-
muninn - var að Larry hafði setið
í fangelsi. Hann var sagður
ómenntaður byggingaverkamaður
og þau Eiizabeth ættu ekkert sam-
eiginlegt.
En leikkonan reyndi að hefla
mestu vankantana af vininum. Hún
lét hann kaupa sér föt og fara til
bestu rakara og sömuleiðis tók hún
hann sjálf í taltíma til að kenna
honum betra málfar og framkomu.
En vinirnir segja að hann hafi verið
orðinn hálfleiður á þessari þjálfun
allri.
Svo var það að fyrrv. ástvinur
Elizabethar, auðkýfingurinn Mal-
colm Forbes hélt hið heimsfræga
afmælisboð sitt í Marokkó í tilefni
af 70 ára afmæli sínu. Hann bauð
Elizabeth vinkonu sinni ásamt
miklum fjölda frægra gesta. Larry
bað hana að fara ekki, en Liz
stóðst ekki mátið og hún fór til
veislunnar og var þar aðalboðsgest-
urinn. Afmælisbarnið, Malcolm,
gerði sér mjög títt við hana. Það
var altalað, að hann hefði reynt að
tala um fyrir Elizabeth, og beðið
hana blessaða að fara ekki að
giftast þessum tugthúslim. Þetta
kom m.a.s. í blöðum, og Larry
varð öskureiður út af „afskipta-
seminni í karlinum“, eins og hann
sagði.
En Elizabeth sendi Larry flug-
miða og bað hann að bíða sín í
fjalla„kofa“ hennar í Gstaad í
í Sviss beið Larry Fortensky, sáróánægður með að vera ekki boðin í
afmælið með Liz. Hann tók þó á móti henni á flugvellinum.
Malcolm Forbes vildi vingast á ný við Elizabeth í afmælisveislunni.
Hún naut þess að vera heiðursgestur, en var ekki til í að endurnýja
ástasambandið við Malcolm.
Sviss og hann var þar þegar hún
kom frá Marokkó. En nú gekk
ekki á öðru en rifrildi hjá skötu-
hjúunum, og þau fóru heim til
Ameríku fljótlega í staðinn fyrir
Evrópufríið, sem Elizabeth hafði
hugsað sér.
Enn vildi Liz gera gott úr hlutun-
um, og stakk upp á því að þau
gengju í hjónaband, - en það hafði
Larry sótt fast áður.
Nú var þó svo komið að Larry
Fortensky hafði fengið nóg. Hann
gekk út - og síðast fréttist af
honum þar sem hann var „á puttan-
um“ á hraðbrautinni við Kyrrahaf-
ið að fá sér far inn til Los Angeles.