Tíminn - 20.10.1989, Síða 14
14 Tíminn
Föstudagur 20. október 1989
ÚTLÖND
llll'illllllll
llliiilílillllllilll!
II II
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA — Innanríkisráö-
herra Sovétríkjanna réöst aö
róttæklingnum Boris Jeltsin og
sagöi hann lygara sem hafi
komist áfram í stjórnmálum
meö því aö segjast vera fórnar-
lamb pólitískra ofsókna, sem
sé fjarri lagi.
SAN FRANCISCO -
Nokkrir snarpir jarðskjálftar
urðu í Kaliforníu en ekki uröu
nein meiösl á fólki. Eru skjálft-
arnir eölileg eftirköst skjálftans
mikla sem varð á þriðjudaginn
og kostuöu nær 300 manns
lífið. Byggingasérfræöingar
telja aö sú staðreynd aö skýja-
kljúfar San Franciscoborgar
hefðu ekki skemmst þó þeir
sveifluðust fram og til baka í
jarðskjálftanum sýni fram á aö
þeir muni standast „skjálftann
mikla".
JERÚSALEM — Einn
helsti aöstoöarmaður Yitzhak
Shamirs forsaetisráðherra ís-
rael sagöi aö ísraelar myndu
verða á öndveröu meiði viö
Bandaríkjastjórn í málefnum
Miðausturlanda allt þar til
Bandaríkjamenn skyldu það
að ísraelar myndu aldrei nokk-
urn tíma láta undan þrýstingi
og ræöa viö PLO.
DAMASKUS - Saud al
Faisal utanríkisráöherra Saudi
Arabíu hitti Hafez al-Assad
forseta Sýrlands aö máli til
þess að reyna aö fá Sýrlend-
inga til aö lina á afstööu sinni i
Líbanon. Viöræöur múslíma
og kristinna manna í Líbanon
eru í sjálfheldu vegna mein-
ingamunar um þaö hvenær og
hvernig sýrlenskar hersveitir
eigi aö yfirgefa Líbanon.
NÝJA DELHI — Fáirstjórn-
málasérfræðingar á Indlandi
þora að veöja á Rajiv Gandhi
forsætisráðherra í þingkosn-
ingunum sem fram fara í
næsta mánuði. Segja þeireinu
von Gandhis aö stjórnarand-
staðan klofni illilega eftir kosn-
ingarnar og að Gandhi haldi
þannig völdum.
MOSKVA — Hinn íhalds-
sami ritstjóri Prövdu, málgagns
sovéska kommúnistaflokksins
hefur verið rekinn. Skrif Prövdu
hafa aö undanförnu æ meir
sveigst frá stefnu Gorbatsjofs í
átt til gömlu harðlínumann-
anna.
Hinn nýi leiðtogi Austur-Þýskalands segist vilja umbætur, en áframhaldandi sósíalisma:
kirkjunnar
menn
Egon Krenz hinn nýi leiðtogi
Austur-Þýskalands hefur látið
hendur standa fram úr ermum
eftir að hann tók við embætti af
öldungnum Eric Honecker í
fyrradag. Eftir að hann hafði
hreinsað til í stjórnarnefnd
kommúnistaflokksins með því
að reka Gunter Mittag yfirmann
efnahagsmála og Joachim
Herrmann hugmyndafræðing
kommúnistaflokksins úr stjórn-
málaráðinu, þá hélt Krenz
þrumandi ræðu í austurþýska
sjónvarpinu. Þar sagði hann að
austurþýsk stjórnvöld hefðu
brugðist illilega hlutverki sínu
að undanförnu með því að
bregðast silalega við þeirri
megnu óánægju sem ríkir í land-
inu. Lofaði Krenz skjótum úr-
bætum.
í gær hclt Krcnz af stað út í
þjóðfélagið í umbótakrossferð sinni
og ræddi óvænt við lciðtoga kirkj-
unnar um hugsanlegar breytingar.
Kirkjan hefur einmitt tekið virkan
þátt í þcirri mótmælaöldu sem að
undanförnu hcfur riðiö yfir Austur-
Þýskaland og stutt kröfur um um-
bætur. Ræddi Krcnz við Werner
Leich æðsta biskup austurþýsku
kirkjunnar og aðra háttsetta mcnn
innan krikjunnar. Þeirra á meðal var
Manfrcd Stolpe scm haldiö hefur
uppi harkalegri gagnrýni á austur-
þýska stjórnkerfið.
Áður cn Krenz hélt á fund við
hina geistlcgu menn hafði hann rætt
við óbreytta verkamcnn í verkfæra-
Sá gamli og sá nýi. Egon Krenz núverandi leiðtogi Austur-Þýskalands ásamt Eric Honecker sem lét af störfum eftir
tuttugu ára styrka stjórn.
verksmiðju í Austur-Berlín. Krenz
ræddi í fyrstu við almenna verka-
menn í verksmiðjusölunum og síðar
við kjörnar trúnaðarfulltrúa þeirra í
kaffistofu verkamannanna.
Þó Krenz hafi heitið umbótum í
austur-þýskalandi þá taka stjórnar-
andstæðingar orðum hans varlega,
enda var Krenz krónprins Honeck-
ersogþekkturharðlínumaður. Enda
sagði Krenz í ræðu sinni að ekki væri
á dagskrá að breyta þjóðfélaginu á
þann hátt að forræði kommúnista-
flokksins yrði skert né nokkuð rask-
að við sósíalismanum. hafa stjórnar-
andstæðingar bent á að Krenz hafi
stutt kínversk stjórnvöld þegar þau
kæfðu lýðræðishreyfingu stúdenta í
blóði á Torgi hins himneska friðar í
vor.
Hins vegar voru sumir stjórnar-
andstæðingar ekki eins harðir og
vildu gefa Krenz tækifæri.
-Krenz verður að dæma á annan
veg nú. Það er munur á því að vera
einungis meðlimur stjórnmálaráðs-
ins eða leiðtogi flokksins, sagði séra
Rainer Eppelmann sem löngum hef-
ur barist fyrir mannréttindum í Aust-
ur-Þýskalani.
Krenz ræðir við
BelgískarF-16
þotur farast
Flugslys í Kákasus
Tvær belgískar F-16 orrustuþotur
fórust í fjalllendi í austurhluta Tyrk-
lands í gær. Flugmenn þotnanna
fórust. Þoturnar voru á leið til Belgíu
eftir að hafa tekið þátt í heræfingum
NATO í Tyrklandi.
Veður var slæmt á þessum
slóðum, hvassviðri og rigning. Ekki
er vitað hvað olli slysinu en rannsókn
er í fullum gangi. Tvær aðrar belg-
ískar F-16 þotur voru í förinni og
lentu þær heilar og höldnu á Balikes-
Jarðskjálftar
í Norður-Kína
Allharðir jarðskjálftar skuku
norðurhluta Kína í fyrrinótt og er
vitað um átján manns er fórust.
Fjöldi manna slasaðist. Talið er að
sexþúsund heimili hafi eyðilagst, en
stærsti skjálftinn mældist 6,1 á
Richter.
Jarðskjálftarnir sem voru sex að
tölu ollu mestu tjóni í Shanxi héraði
sem er 250 km vestur af Peking.
Þorp í dreifbýlinu urðu verst úti en
þó varð tjón í stærri borgum, jafnvel
í úthverfum Peking, þó jarðskjálft-
inn hafi ekki verið harður þar.
ir herflugvellinum þar sem þoturnar
áttu að taka eldsneyti.
Þoturnar tvær fundust 32 km suð-
ur af Balikesir herflugvellinum sem
er 500 km vestur af Ankara.
Formaður norsku Nóbelsverð-
launanefndarinnar sem veitti Dalai
Lama friðarverðlaun Nóbels segir
að viðbrögð kínverskra stjórn-
valda, sem hóta vinslitum við
Norðmenn fái Dalai Lama að
koma til Osló, séu á anda Hitlers.
Hitler beitti Norðmenn hótunum
og bannaði Þjóðverjum að taka við
Nóbelsverðlaunum eftir að blaða-
maðurinn Carl von Ossietzky hlaut
friðarverðlaun Nóbels árið 1935,
þá í þrælkunarbúðum nasista þar
sem hann lést úr harðræði árið
1938. Þess má geta að hundrað ár
eru nú liðin frá fæðingu Ossietskys.
Kínverjar hafa formlega mót-
mælt við norsk stjórnvöld að Dalai
Lama hafi hlotið friðarverðlaun
Nóbels og sagt útnefninguna sam-
Fimmtíu og sjö menn fórust í
flugslysi í Sovétríkjunum í gær þegar
herflutningavél hrapaði í Kákasus-
fjallgarðinum. Vélin á leið með
fallhlífahermenn til óróasvæðanna í
Azerbaijan er hún fórst, en þar áttu
þeir að halda uppi lögum og reglu og
koma í veg fyrir átök milli Azera og
Armena.
Það var sovéska fréttastofan Tass
sem skýrði frá þessu en ekki var
minnst á hvar nákvæmlega vélin
fórst. f frétt Tass var sagt að varn-
særi Vesturlanda til að kljúfa ein-
ingu Kínverja. Þá hafa kínversk
stjórnvöld hótað því að slíta öllum
efnahagstcngslum við norsk fyrir-
tæki fái Dalai Lama að koma til
Osló að taka við verðlaununum.
Kjell Magne Bondevik utanrík-
isráðherra Noregs skýrði frá því í
gær að ekki kæmi til greina að
breyta tilhögun hátíðarhaldanna
er friðarverðlaun Nóbels yrðu
aflient. Sagði hann á hreinu að
fulltrúar ríkisstjórnarinnar yrðu
viðstaddir athöfnina hvað sem hót-
unum Kínverja liði.
Ólafur Noregskonungur, for-
sætisráðherra Noregs og fleiri ráð-
herrar eru að jafnaði viðstaddir
athöfnina.
armálaráðuneytið væri að rannsaka
orsakir slyssins og hefði sent ættingj-
um hermannanna samúðarskeytti.
Þúsundir hermanna voru sendir til
Azerbaijan og Armeníu á síðasta ári
eftir að bióðug kynþáttaátök brutust
út milli Azera og Armena vegna
fjallahéraðsins Nagorno-Karabakh.
Þar eru Armenar í miklum meiri-
hluta og vilja sameinast Armeníu.
Opinberar tölur herma að 120
manns hafi fallið í þessum kynþátta-
átökum.
Bókmennta-
verðlaunin
til Spánar
Spánverjinn Camilo José Cela
hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í
ár. Sænska bókmenntaakademían
skýrði frá þessu vali sínu í gær.
Camilo José Cela er þekktasti
núlifandi rithöfundur Spánverja og
hefur hann getið sér gott orð víðs-
vegar um heiminn. Hann hefur skrif-
að meistaralegar gamansamar bækur
með alvarlegum þjóðfélagslegum
undirtón. Hafa íslendingar fengið
smjörþefinn af snilli Cela því í fyrra
kom út fyrsta og líklega ein áhrifa-
mesta bók rithöfundarins, „Paskval
Dvarte og hyski hans“ í stórkostlegri
þýðingu hins vinsæla fréttaritara
útvarps, Kristins R. Ólafssonar.
Cela sem er 73 ára að aldri er
fimmti Spánverjinn sem hlýtur þessi
eftirsóknarverðu verðlaun.
Kínversk stjórnvöld hóta Norðmönnum
vinslitum ef Dalai Lama fær að koma til
Osló að taka á móti friðarverðlaunum Nóbels:
Viðbrögð í anda Hitlers