Tíminn - 08.11.1989, Síða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 8. nóvember 1989
lllllillllllllllllllllllllll ÚTLÖND
SAMEINUÐU ÞJÓÐ-
IRNAR - Bandaríkjamenn
beittu neitunarvaldi í Oryggis-
ráöinu til aö koma í veg fyrir aö
ráöiö ályktaði gegn framferði
Israela á hernumdu svæöun-
um. öll önnur ríki er sitja í
Öryggisráðinu greiddu at-
kvæöi gegn framferði Israela,
en Bandaríkjamenn vilja verja
dráp Israela fram í rauðan
dauðann.
WASHINGTON - George
Bush forseti Bandaríkjanna
lýsti því yfir aö breytingarnar í
Austur-Evrópu væru ekki aftur-
kallanlegar og vísaði á bug
þeim ásökunum aö hann hafi
verið of varkár í aö styöja við
breytingar í lýðræöisátt þar á
bæjum.
FRÉTTAYFIRLIT
BEIRÚT - Hinn nýi forseti
Líbanon, Rene Muawad, reyn-
ir nú allt hvaö hann getur ao fá
heföbundna andstæðinga í
borgarastyrjöldinni til að
mynda samsteypustjórn. Á
meöan safnast saman öfgafull-
ir trúbræöur hans í Beirút,
kristnir maronítar, og lama at-
hafnalíf í Beirút í mótmæla-
skyni við kjör Muawads. Fylgis-
menn Michel Aouns yfirmanns
herja kristinna manna gengu
að franska sendiráðinu í Beirút
til aö lýsa óánægju sinni yfir
stuðningi Frakka við friðar-
áætlun Arababandalagsins.
WINDHOEK - Namibíu-
menn hófu að kjósa sér lög-
gjafarþing í samræmi við sjálf-
stæðisáætlun Sameinuðu
þjóðanna, en Namibía mun fá
fullt sjálfstæði á næsta ári.
Kyrrð var yfir kosningunum
fyrsta kjördaginn, en kosið
verður í fimm daga undir eftirliti
Sameinuðu þjóðanna. Talið er
næsta víst að SWAPO, sem
barist hafa gegn yfirráðum
Suður-Afríku, muni sigra í
kosningunum, en úrslit munu
liggja fyrir eftir viku.
SCHRINDING - Um 200
Austur-Þjóðverjar komu til
Vestur-Þýskalands á hverri
klukkustund og eru landa-
mæraverðir vesturþýskir farnir
að spyrja sig hvort flóðið muni
aldrei enda. Ekki er Ijóst hve
áhrif þess að ríkisstjórn komm-
únista í Austur-Þýskalandi
sagði af sér muni hafa á flótta-
mannastrauminn.
Stjórn A-Þýskalands
segir óvænt af sér!
Ríkisstjórn kommúnista í Austur-Þýskalandi sagði af sér í
gær eftir að laganefnd Volkskammers, þing landsins, úrskurð-
aði að frumvarp stjórnarinnar sem miðaði að rýmkun
ferðafrelsis gengi allt of skammt og bryti auk þess í bága við
stjórnarskránna. Egon Krenz hinn nýi leiðtogi Austur-Þýska-
lands fór fram á það við Volkskammer að kjósa nýja
ríkisstjórn. Þangað til mun ríkisstjórnin starfa sem starfsríkis-
stjórn.
Ákvörðun þessi kom mjög á óvart
þrátt fyrir þá ólgu sem ríkt hefur í
Austur-Þýskalandi að undanförnu
þar sem hundruð þúsunda lands-
manna hafa tekið þátt í mótmæla-
göngum og krafist afsagnar. Wolf-
gang Meyer talsmaður ríkisstjórnar-
innar skýrði frá afsögn stjórnarinnar
á hlaðamannafundi sem boðaður
var í skyndi í gærkvöldi eftir ríkis-
stjórnarfund.
Meyer sagði að ríkisstjórnin hvetti
alla landsmenn til að halda ró sinni
í því mikla róti sem verið hefur í
stjórnmálum og efnahagslífi Austur-
Þýskalands að undanförnu. Var al-
menningur hvattur til að halda áfrarn
störfum sínum eins og ekkert hafi í
skorist til þess að halda þjóðlífinu í
nauðsynlegum skorðum á erfiðum
tíma.
Úrskurður laganefndar Volks-
kammer sem hafnaði frumvarpi
ríkisstjórnarinnar um aukið ferða-
frelsi kom mjög á óvart í gær. Var
talið næsta víst að Volkskammer
myndi samþykkja breytingarnar án
nokkurs múðurs, en annað kom á
daginn. Nefndin krafðist enn meira
frjálsræðis, þar sem heftun ferða-
frelsis sem fælist í nýju frumvarps-
drögunum bryti í bága við stjórn-
arskránna þrátt fyrir þá tilslökun
sem drögin gerðu ráð fyrir. Má því
skilja úrskurð nefndarinnar á þann
veg að sú heftun á ferðafrelsi sem
ríkt hefur í Austur-Þýskalandi urn
áratuga skeið hafi verið brot á stjórn-
arskrá landsins'.
Egon Krenz hinn nýi leiðtogi Aust-
ur-Þýskalands hefur ekki náð þeim
tökum á ástandinu sem kommúnist-
ar vonuðu og hefur ríkisstjórn lands-
ins nú sagt af sér.
Korsíka:
Vopnaðir grímumenn
í sprengjuleiðangri
Þrjátíu þungvopnaðir grímumenn
gerðu sér lítið fyrir á Korsíku í
fyrrinótt. Þeir röltu sér inn í þorpið
Sainte-Lucie de Porto-Vecchio á
mánudagskvöld, tóku alla þorpsbúa
höndum og miðuðu á þá byssum á
meðan þeir sprengdu tvær íbúða-
blokkir í smíðum í loft upp. Þá var
tekið að morgna. Eftir sprengingarn-
ar sem lögðu í rúst 150 íbúðir sem
ætlaðar voru ferðamönnum til leigu,
slepptu grímumennirnir þorpsbúum
og drifu sig á brott.
Grímumennirnir eru úr röðurn
Þjóðfrelsishreyfingar Korsíku sem
berst fyrir aðskilnaði frá Frakklandi
og gegn ítökum útlendinga á eyj-
unni. Segjast þeir sérstaklega berjast
gegn ítölsku mafíunni sem ásælist
ítök í efnahags og atvinnulífi eyjar-
innar.
í yfirlýsingu Þjóðfrelsishreyfingar
Korsíku eftir sprengingarnar segir
að aðgerðirnar beinist gegn „alþjóð-
legum kaupsýsluspekúlöntum
tengdum mafíunni sem hyggjast taka
Korsfku yfir“.
Árás þessi er sú fyrsta síðan í
júnímánuði 1988 þegarr Þjóðfrelsis-
hreyfinginn gerði friðarsáttmála við
ríkisstjórn Frakka. Óttast menn nú
að sú ofbeldisalda sem ríkti á Kors-
íku frá Þjóðfrelsishreyfingin var
stofnuð árið 1976 þar til samningar
náðust í fyrra, muni rísa að nýju sem
aldrei fyrr.
í ágústmánuði síðastliðnum varaði
Þjóðfrelsishreyfingin erlenda fjár-
málamenn, og þá sérstaklega Maf-
íuna, við að fjárfesta í ferðamanna-
iðnaði á Korsíku. Þá varði hreyfing-
in innfædda Korsíkumenn við sam-
vinnu við útlendinga.
„Þeir leika hlutverk í dauða þjóð-
arsamfélags okkar og við munum
ekki sýna þeim nokkra miskun"
sagði í yfirlýsingunni í ágústmánuði.
Þrátt fyrir árásir Þjóðfrelsishreyf-
ingar á mannvirki í ferðamannaiðn-
aði, þá hafa Frakkar streymt í stríð-
um straum til Korsíku til að eyða
fríum sínum þar.
Öðru vísi mönnum áður brá í Rússíá:
Mótmæli og hátíðarhöld í
tilefni októberbyltingar
Það er næsta víst að Lenín og
Stalín myndu snúa sér við í grafhýs-
um sínum ef þeir vissu hvemig
hátíðarhöldin á byltingarafmælinu í
Sovétríkjunum fóru fram þetta árið.
í Moskvu fóru fram tvær skrúð-
göngur. Annars vegar hin hefð-
bundna ganga á Rauða torginu þar
sem Mikhaíl Gorbatsjof forseti
Sovétríkjanna stóð á grafliýsi Leníns
og veifaði mannfjöldanum ásamt
fjölda fyrirmanna sovéskra. Hins
vegar var ganga róttækra umbóta-
sinna í úthverfi Moskvuborgar þar
sem mátti sjá slagorðaborða gegn
kommúnisma og jafnvel fána hinna
liðnu tsara.
Steininn tók þó úr í Moldavíu þar
sem þjóðernissinnar lentu í átökum
við lögreglu þegar þeir gerðu aðsúg
að skriðdrekum og brynvörðum bif-
reiðum sem áttu að taka þátt í
hersýningu í Leníntorginu í Kishin-
yev, höfuðborg Moldavíu. Ekkert
varð því af hersýningu og flúðu
ráðamenn úr hásætum sínum þar
sem best útsýni átti að vera yfir
herlegheitin.
- Þetta er ný bylgja lýðræðis,
sagði Telman Gdlyan einn af róttæk-
ustu þingmönnum í Æðsta þinginu
þar sem hann ávarpaði mannfjölda
sem safnaðist saman á ólympíuleik-
vanginum eftir að 10 þúsund
Moskvubúar höfði haldið sína eigin
þriggja tíma byltingargöngu um
stræ'ti Moskvuborgar.
- Hvers konar fjölhyggja er það á
hinu vel þekkta Rauða torgi þegar
við, sem fylgjum hinni hliðinni,
höfum enga möguleika á að tjá
okkur? spurði Gdylyan fagnandi
mannfjöldan í hinni óopinberu
göngu róttæklinganna.
Ganga þessi var gersamlega snið-
gengin af sovéska sjónvarpinu á
meðan bein útsending var af hinum
opinberu hátíðarhöldum á Rauða
torginu. Hins vegar sýnir það ótrú-
legar breytinga að ganga róttækling-
anna skyldi yfir höfuð vera liðin af
stjórnvöldum.
En þó munurinn á göngunum
tveimur í Moskvu hafi verið gífur-
lega táknrænn, þá vekja atburðirnir
í Moldavíu meiri furðu. Það var
opinberum hátíðarhöldum aflýst
vegna mótmæla þjóðemissinna. Þar
brutust nokkur þúsund meðlimir í
Þjóðfylkingunni og öðrum stjórn-
málahópum gegnum varnir lögregl-
unnar, klifmð upp á skriðdreka og
brynvarðar bifreiðar, veifandi kröfu-
spjöldum, hrópandi slagorð.
Þegar mannfjöldinn kom á Len-
íntorgið sáu leiðtögar sovétlýðveld-
isins sinn kost vænstan og flýja af
hólmi. Ekkert varð síðan af hersýn-
ingunni. Nokkrir menn meiddust í
átökunum og aðrir teknir höndum.
Nokkrir þjóðemissinnar í Vilnu
höfuðborg Litháen reyndu að koma
í veg fyrir hersýningu, en þeim varð
ekki kápan úr því klæðinu. Lögregl-
an tók þá höndum þar til hersýningin
hafði farið hjá og sleppti þeim síðan.
í Jerevan höfuðborg Ármeníu tók
lögreglan nokkurungmenni höndum
eftir að þeir brenndu hið rauða flagg
Sovétríkjanna.