Tíminn - 08.11.1989, Blaðsíða 13

Tíminn - 08.11.1989, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 8. nóvember 1989 Tíminn 13 ri.ur\r\uv> ■ Mnr Viðtalstími L.F.K. Guðrún Alda Harðardóttir, forstöðumaður leik- skólans Marbakka í Kópavogi, verðurtil viðtals að Nóatúni 21, miðvikudaginn 8. nóv. kl. 14-15.30. Sími 91-24480. Stjórn L.F.K. Prlpl 'ÆmSi Guðrún Alda Kristrún Þóra Sigrún Ólafsdóttir Þorleifsdóttir Magnúsdóttir Finnur Ingóifsson Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Fundur miövikudaginn 8. nóvember kl. 20.30 að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. Dagskrá: Kristrún Ólafsdóttir segir frá Landsþingi K.í. í Vestmanna- eyjum og Fulltrúaráðsfundi B.K.R. í Munaðarnesi. Þóra Þorleifsdóttir segir frá Landsþingi L.F.K. að Hvanneyri. Gestir fundarins verða Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi og Finnur Ingólfsson, form. fulltrúaráðsins í Reykjavík. Þau munu ræða borgarstjórnarkosningarnar á komandi vori. Mætið vel og takið með ykkur gesti. Stjórnin. 34. kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi-eystra Haldið á Hótel KEA, Akureyri 11. nóv. 1989 1 s Dagskrá: Kl. 9.00 Setning. Skýrsla stjórnar og reikningar. Kl. 10.00 Ræður þingmanna. Lögð fram stjórnmálaályktun. Almennar umræður. Kl. 12.00 Matarhlé. Kl. 13.00 Kosningar. Kl. 13.30 Sér mál þingsins: Umhverfismál og náttúruvernd. Framsögumenn: Jón Sveinsson aðst.m. forsætisráðh. Hermann Sveinbjörnsson aðst.m. sjávarútv.ráðh. Kl. 16.00 Ávörþgesta. Kl. 16.30 Afgreiðsla mála. Úrslit kosninga. Önnur mál. Kl. 18.30 Þingslit. Kl. 20.00 Kvöldskemmtun á Hótel KEA. Sveinsson Hermann Sveinbjörnsson Guðmundur Bjarnason JóhannesGeir Sigurður Gissur Helga Sigurgeirsson Geirdal Pétursson Helgadóttir Sunnlendingar Almennur fundur um umhverfismál verður haldinn fimmtudaginn 9. nóv. kl. 21.00 í Inghól, Selfossi. Frummælandi verður Júlíus Sólnes, verðandi umhverfismálaráð- herra. Hann mun m.a. kynna starf og umfang væntanlegs umhverfis- ráðuneytis. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Árnessýslu. Borgnesingar nærsveitir Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 10. nóvember kl. 20.30 Fyrsta kvöld í þriggja kvölda keppni. Mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgarness. Kópavogur Opið hús að Hamraborg 5 miðvikudaginn 8. nóv. kl. 17.30. Birgir H. Sigurðsson skipulagsstjóri kynnir tillögur að aðalskipulagi Kópavogs. Illllllllllllllllllllllllll SPEGILL lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Smekkur fyrir fullorðna! „Stjörnulífið“ eyðileggur fyrir mér ástalífið í orðabók er smekkur sagður vera „slefuspeldi" fyrir ungbörn, en nú nýlega er kominn á markað- inn í Ameríku „smekkur fyrir full- orðna“, og er þá líklega ekki átt við slefuspeldi. Það er Jean Pomerance frá Sherman Oaks í Kaliforníu sem saumaði sér fallegan matarsmekk til að hlífa silkiblússum sínum og sparikjólum. Hún sagðist liafa ver- ið orðin þreytt á reikningum fyrir hreinsun á fötum, og saumaði sér því smekk. Hún mætti svo í kvöld- verðarboð og tók smekkinn upp úr veski sínu og setti hann á sig. í fyrstu ráku gestir upp stór augu, en ýmsir fóru að dást að þessu uppátæki Jean og spyrja hana hvort hún væri ekki til í að búa til nokkur stykki og selja vinum og kunningjum. Þetta endaði með því að Jean Pomerance stofnaði fyrirtækið „Eat Elite“ og fór að framleiða matarsmekki fyrir fullorðna. Þeir eru seldir á 12-15 dollara stykkið og renna út. Hin þekkta grínleikkona Phillis Phyllis Diller er hér að snæðingi með nýjasta matarsmekkinn sinn um hálsinn Diller segist alltaf nota svona smekki í flugferðum, því þá sé oft þröngt og hætt við að matarblettir komi í ferðadragtina eða fínu blússuna. „Matarsmekkir eru ekki lengur aðeins fyrir litlubörnin. Við full- orðna fólkið viljum líka hlífa fínu fötunum okkar,“ segir uppfinning- akonan Jean Pomerance Anne-Marie Johnson og Martin Grey, kærastinn hennar. „Ég sakna hans svo,“ segir hún -segir Anne Marie Johnson í sjónvarpsþáttunum „Heitar nætur“ Sjónvarpið hefur að undanförnu sýnt á fimmtudagskvöldum þættina „Heitar nætur“ (In the Heat of the Night). Þættirnir gerast í Suður- ríkjum Bandaríkjanna, og eru teknir upp í Covington í Georgíu. Anne Marie Johnson leikur hina fögru eiginkonu lögregluforingjans þeldökka Virgil Tibbs. Anne Mar- ie er ánægð með hlutverkið, en er leið yfir aðskilnaðinum frá kærast- anum og fjölskyldu sinni. Fólkið hennar býr í Los Angeles, og þar hafði Anne Marie nýverið keypt sér fallega íbúð, sem hún hefur lítið sem ekkert getað verið í, því að upptökur á þáttunum eru gerðar í Georgíu í sex mánuði samfleytt í einu. Anne Marie segir: „Það er indælt hér í Georgíu, en ég vildi óska að þættirnir væru heldur teknir upp í Los Angeles. Martin Grey, kærast- inn minn, er líka leikari, og hann er fastur í sinni vinnu þar. Hann skilur aðstöðu mína og ég treysti honum, en það er víst ekkert óeðlilegt þó við séum bæði svolítið afbrýðissöm, þegar við sjáumst svona sjaldan. Ég er mest hrædd um að „stjörnulífið" komi til með að eyðileggja fyrir mér ástalífið, en við reynum þó að spyrna gegn því.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.