Tíminn - 21.11.1989, Side 3
Þriðjudagur 21. nóvember 1989
Tíminn 3
FíflU GK var á laugardag við loðnuleit meðfram ísrðndinni. Þegar myndin var tekinn var hann staddur djúpt út af
Víkurál, á siglingu norðaustur með ísnum. Þegar af loðnunni fréttist við Kolbeinsey, hélt Fíflll á þær slóðir.
Tímamynd Tómas H.
Meðallaun á starfsmann á Ríkisspítölum árifr 1988
Þús.kr.
Meðaldagvinnulaun
~ á starfsmann
Hrönn Ottósdóttir:
Meira um launamál Rikisspítala
Að gefnu tilefni tel ég nauðsynlegt að leiðrétta efnislegt
innihald greinar sem birtist í Tímanum föstudaginn 10.
nóvember sl. þar sem fjallað er um Iaun hinna ýmsu
starfsstétta á Ríkisspítölum. Þar fellur greinarhöfundur í
þá gryfju að bera saman tölur úr töflum í ársskýrslu
Ríkisspítala fyrir árið 1988 sem ekki eru samanburðarhæf-
ar.
{ skýrslunni er tafla sem sýnir
heimilaðan fjölda starfsmanna á
fjárlögum skipt niður í starfsstéttir.
Hún er borin saman við töflu þar
sem launakostnaði ársins er hlut-
fallslega deilt niður á sömu stéttir.
Á grundvelli þessa samanburðar er
síðan ályktað og staðhæft unt
launakjör og launamismun milli
einstakra starfshópa innan stofn-
unarinnar.
Hér er um villandi samanburð
að ræða þar sem fjöldi starfsmanna
í hverri starfsstétt er oft annar en
heimildir segja til um. Það stafar
m.a. af því að ekki hefur tekist að
ráða faglært fólk í allar þær heim-
ildir sem Ríkisspítalar hafa yfir að
ráða fyrir ákveðna starfshópa. Hér
er fyrst og fremst átt við hjúkrun-
arfræðinga, sjúkraliða og þroska-
þjálfara sem eru tæplega þriðjung-
ur af starfsmannafjöldanum. Það
skal einnig tekið fram að þegar
launaliður Ríkisspítala er ákveð-
inn á fjárlögum er gert ráð fyrir
viðbótarstarfsfólki til ýmiss konar
afleysingarstarfa. Það er mjög
breytilegt eftir starfsstéttum og
vinnufyrirkomulagi (vaktir) hversu
margar heimildir eru nauðsynlegar
vegna afleysinga.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
meðallaun á starfsmann á Ríkis-
spítölum árið 1988 miðað við raun-
verulegan fjölda fólks í starfl en
ekki miðað við fjárlagaheimildir
eins og gert er í umræddri grein. Þá
má einnig sjá hvernig heildartekjur
hinna ýmsu starfsstétta skiptast í
dagvinnulaun og önnur laun. Önn-
ur laun fela í sér greiðslur m.a.
fyrir álag, yfirvinnu og vaktir.
Vakin skal athygli á eftirfarandi
fullyrðingu, sem tekin er upp úr
fyrirsögn greinarinnar „Einungis
helmingur greiddra launa Ríkis-
spítalanna fer til hinna eiginlegu
heilbrigðisstétta:“ Hverjar eru hin-
ar „eiginlegu heilbrigðisstéttir"? í
greininni margnefndu virðist sú
skilgreining vera nokkuð þröng.
Þar eru greinilega ekki meðtaldir
meinatæknar, sálfræðingar, félags-
ráðgjafar, lyfjafræðingar og rönt-
gentæknar svo eitthvað sé nefnt.
Sama má segja um alla þá nema
sem eru í vinnu á Ríkisspítölum.
Minna má á í því sambandi að
Ríkisspítalar eru aðalkennslu-
sjúkrahús landsins fyrir hinar ýmsu
heilbrigðisstéttir. Á Ríkisspítölum
eru ofangreindar stéttir ótvírætt
taldar eiga heima meðal „eigin-
legra heilbrigðisstétta". Því má svo
í lokin einnig velta fyrir sér hvort
ekki eigi að telja þann stóra hóp af
ófaglærðu fólki, sem vinnur beint
við umönnun og aðhlynningu
sjúklinga, með heilbrigðisstéttum.
Ef tekið er mið af þessum at-
hugasemdum má ljóst vera að
bróðurparturinn af greiddum laun-
um á Ríkisspítölum fer til hinna
„eiginlegu heilbrigðisstétta!.
Til fróðleiks má geta þess að
aðeins um 2,9% af launakostnaði
Ríkisspítala eru vegna stjórnunar.
Þetta hlutfall er með því lægsta
sem þekkist. Á Norðurlöndum er
hlutfallið um 10% og í Bandaríkj-
unum allt að 20%.
Höfundur er deildarstjóri áætlana-
og hagdeildar Ríkisspítala
Loðnan
fundin
Loðnutorfa fannst austan við Kol-
beinseyjarhrygginn aðfaranótt
sunnudags sl. en vegna strauma og
veðurs var lítið að fá. Nokkur skip
köstuðu á þessum slóðum og fengu
um 30 til 40 tonn í kasti. Loðnan var
þá á um 40 til 60 faðma dýpi. Engin
veiði var aðfaranótt mánudags vegna
veðurs.
Um tíu bátar voru á miðunum við
Kolbeinsey um helgina, en fleiri
lögðu af stað þegar fréttist af loðn-
unni og var búast við fjölda báta á
þessum slóðum þegar í nótt, enda
spáð batnandi veðri. „Útlitið virðist
vera nokkuð gott,“ sagði Ástráður
Ingvarsson hjá Loðnunefnd. Smá-
loðnan er farin að sýast frá loðnunni
sem veiðanleg er. Vestan við hrygg-
inn lá smáloðnan ofnaá, en þegar
hún fór austur fyrir þá skildust þær
að. -ABÓ
Athugasemd ritstjórnar:
Til hvers skýrslur?
Til hvers gefa stofnanir og
fyrirtæki út margra tuga og
jafnvel hundraða blaðsíðna
dýrar og vandaðar ársskýrslur
með aragrúa af tölum, töflum,
línuritum, gröfum og mynd-
um? Eru þær ætlaðar til upp-
lýsinga? Hugsanlega til að
segja hálfsannleika (blekkja)?
Kannski aðeins af því að það
þykir til siðs og virðulegt að
gefa út stóra skýrslu?
Til hvers birta t.d. Ríkisspítal-
arnir (og fjárlögin) ár eftir ár
nákvæmar - tölulegar og hlutfalls-
legar - upplýsingar um fjölda
stöðuheimilda í hveri starfsgrein,
þegar síðan þarf eftirgangsmuni til
að fá það upplýst að þeir eru í raun
nærri fjórðungi fleiri.
{ athugasemd frá Ríkisspítölun-
um, vegna fréttar sem unnin var úr
ársskýrslu stofnunarinnar segir
m.a.:
„Þar fellur greinarhöfundur í þá
gryfju að bera saman tölur úr
töflum í ársskýrslu Ríkisspítala...
sem ekki eru samanburðarhæfar“.
En af hverju eru tölurnar ekki
samanburðarhæfar? Jú, vegna
þess, eins og síðan segir, „að fjöldi
starfsmanna í hverri starfsstétt er
oft annar en heimildir segja til
um“!
í hvaða tilgangi verja þá Ríkis-
spítlalar einni blaðsíðu (af 130) í
skýrslunni undir heimilaðar
stöður, bæði í tölum og prósentum,
sem síðan kemur fram að ekkert er
að marka í raun - en birtir síðan
hvergi staf um það hvað starfsmenn
eða stöðugildi eru raunverulega
mörg.
í stað 2.119 stöðuheimilda sam-
kvæmt fjárlögum og 2.129 (sjá
ljósrit) samkvæmt ársskýrslunni
hefur Tíminn nú fengið upp gefið
að þeir voru f raun um 2.600
(miðað við fullt starf), eða um 470
manns (um 23%) fleiri heldur tölur
í ársskýrslu og fjárlögum segja til
um. Jafnvel í athugasemd Ríkis-
spítala er rétta talan ekki heldur
upplýst.
í sjálfu sér mundi þetta „viðbót-
arfólk" þó ekki raska hlutfallsleg-
um launamun milli stétta ef það
skiptist í sömu hlutföllum og starfs-
liðið. Hins vegar hefur Tíminn nú
fengið upplýst að: „Alls við lækn-
ingar og hjúkrun" eru ekki 53,3%
starísmanna eins og fram kemur í
ársskýrslunni - heldur aðeins í
kringum 40% starfsmanna. Um
60% starfsmanna eru því við rann-
sóknir, eldamennsku, skúringar,
þvotta og skriftir.
Hártogunum um hinar „eigin-
legu heilbrigðisstéttir" vísar Tím-
inn beint til föðurhúsanna; skýrsl-
unnar sjáfrar: „Alls við lækningar
og hjúkrun". Eru það ekki hinar
eiginlegu heilbrigðisstéttir?
„Bréfaskipti" Tímans og Ríkis-
spítalanna hafa þó a.m.k. leitt til
þess að fá fram réttari upplýsingar
um fjölda starfsmanna Ríkisspítal-
anna og með launaskiptingu milli
starfsgreina heldur en nokkur
möguleiki er að lesa út úr hinni
myndarlegu 130 blaðsíðna árs-
skýrslu stofnunarinnar. - HEI
Fjarlagaheimildir A-hluta Ríkisspítala eftir starfsstéttum
Hlutfallsleg skipting launategunda
á starfsstéttir A-hluta Rlkisspítala
Siarfsstétt Hcimildir %
Yfirlæknar 50,00 2,3
Sérfræöingar 79,55 3.7
AÖstoÖarlæknar 67,60 3 2
Læknar 197,15 9.3
Hjúkrunarforstjórar 4,00 0.2
Hjúkrunarframkvstj./Hjúkninarstjórar 38,00 1.8
Hjúkrunardeildarstjórar 179,50 8.4
Hjúkrunarfræðingar 265,50 12J5
H j ú krunarfræöi ngar 487,00 22,9
LjósmæÖur 37,00 1.7
SjúkraliÖar 274,50 12,9
Sjúkraþjálfarar 2U0 1.0
IÖjuþjálfar 36,00 1.7
Þroskaþjálfar 45,00 2.1
[Alls viö lækningar og hjúkrun J 1.098,15 ©
Meinatæknar 81,50 3.8
NáttúrufræÖingar 12,00 0,6
SáJfræÖingar/FélagsráÖgjafar 37,85 1.8
Tæknimenn 69,30 33
Skrifstofufólk 174,45 8,2
Starfsfólk í Sókn 364.60 17.1
AnnaÖ starfsfólk ' 256.95 12.1
Samtals fjárlagaheimildir á Rikisspítölum 2.094,80 98,4
N'emar 34,00 1.6
Samtals {Z128,80j i 100,0
Starfsstétt Heildar- laun %
Yflrlæknar 4.1
Sérfneðingar 8.8
AÖstoöarlæknar 5.9
Læknar 18,8
Hjúkrunarstjóm 2J2
Hj úknmardei Idarstjórar 7.8
HjúkrunarfræÖingar 11.0
Hjúkrunarfræöingar 21,0
LjósmæÖur 2.2
SjúkraliÖar 8.3
SjúkraþjáJfarar 0.8
Iöjuþjálfar 1.1
þroskaþjálfar
Allsviölækningar og hjúkrun ^3.3
Meinatæknar O
Námírufræöingar 1.9
SálfræÖingar/FélagsráÖgjafar 1.6
Tæknimenn 4.7
Skrífstofufólk 8.7
Starfsfólk í Sókn 13,8
Annaö starfsfólk 11.2
Samtals starfssténir 99.4
Nemar 0.7
Samtals 100
Frétt Tímans byggði á þessum tölum úr ársskýrslu Rðdsspítala,
þar sem fram koma hlutföll hverrar starfsgreinar í heildarmann-
afla Ríkisspítalanna og sömuleiðis hlutfall hverrar starfsgreinar í
greiddum heildarlaunum.