Tíminn - 21.11.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 21. nóvember 1989
lllllilllllllll ÚTLÖND ................................................. ..............................
Tékkneska óeirðalögreglan tekur sér stöðu við Wenzeltorg í miðborg Prag gegnt mótmælagöngu almennings sem hugðist halda inn á torgið.
Lögreglan barði fjölda manns til óbóta á Wenzeltorgi á föstudag, en það var skammgóður vermir fyrir stjórnvöld, því í gær var haldin fjölmennasta
mótmælaganga í 20 ár.
Hundrað þúsund Tékkar
ganga gegn kommúnisma
Rúmlega hundrað þúsund manns tóku þátt í mótmæla-
göngu í Prag á mánudag og kröfðust þess að kommúnista-
flokkurinn legði snarlega niður völd og að róttækum
umbótum yrði komið á í Tékkóslóvakíu. Er þetta stærsta
mótmælaganga í landinu í tuttugu ár, allt frá því Voriö í Prag
var kramið undir beltum sovéskra skriðdreka árið 1968.
FRÉTTAYFIRLIT
AUSTUR-BERLÍN-Mót
mælendur í Austur-Berlín
kröföust endursameiningar
Þýskalands í mótmælagöngu
sem haldin var á sama tíma og
Egon Krenz leiðtogi kommún-
istaflokksins og æösti maður
landsins ræddi viö ráöherra frá
Vestur-Þýskalandi.
MOSKVA - Sovétmenn
fögnuðu ummælum Richards
Cheney vernarmálaráðherra
Bandaríkjanna um fyrirhugaö-
an niðurskurð á útgjöldum til
hernaðarmála í Bandaríkjun-
um. Sovétmenn segja niður-
skurðinn geta flýtt fyrir umbóta-
þróun Austur-Evrópu.
MOSKVA - Æðsta ráðið í
Sovétríkjunum felldi frumvarp
ríkisstjórnarinnar sem gerði
ráð fyrir aukinni sjálfstjórn
sovétlýðveldanna í efnahags-
málum með því fororði að
frumvarpið gengi ekki nægi-
lega langt.
TÓKÝÓ - Bandaríkin vænta
þess af Japönum að þeir taki
fullan þátt í alþjóðlegu átaki til
stuðnings Austur-Evrópu.
Þetta sagði Michael Armacost
sendiherra Bandaríkjanna í
Japan og þykja tíðindi þar
eystra.
ABU DHABI - Hin voldugu
olíuútflutningsríklu í Araba-
löndunum finnst nú að eftir-
spurn eftir olíu sé það mikil að
hægt sé að halda uppi núver-
andi lágmarksverði a olíu þrátt
fyrir aukna olíukvóta OPEC
ríkja. Þetta spurðist af fundi
olíumálaráðherra Arabaríkja
sem funda í Abu Dhabi.
AMSTERDAM - Hol
lenska lögreglan beitti jarðýt-
um til að ryðja burt farartálmum
og rauf þak á húsum þegar
hun rýmdi gömul vöruhús í
mlðbæ Amsderdam sem hús-
tökufólk hefur haft á valdi sínu.
TÓKÝÓ - Þær eyjar sem
Sovétmenn hafa á valdi sín,
en Japanir gera tilkall til geta
orðið vettvangur sameigin-
legra framleiðsluverkefna
þessara ríkja, eða þá opnar
undir fjárfestingu alþjóðlegra
aðila. Frá þessu skýrði sovésk-
ir stjórnarerindrekar í Tókýó.
AÞEN A - Stjórnmálaleiðtog-
ar í Grikklandi ná ekki að berja
saman í nýja ríkisstjórn og er
stjórnarkrísan farin að hafa
alvarleg áhrif á grískt þjóðfé-
lag.
Þá bar það til tíðinda að Egon
Krenz hinn nýi umbótaleiðtogi Aust-
ur-Þýskalands frestaði fyrirhugaðri
heimsókn sinni til Tékkóslóvakíu,
greinilega vegna mótmælanna sem
hafa stigmagnast frá því á föstudag
þegar lögreglan beitti göngumenn í
Prag ótrúlegu harðræði.
Mótmælaverkföll hafa breiðst út í
mótmælaskyni við hörku lögregl-
unnar sem stórslasaði fjölda manns.
Komst orðrómur á kreik um að
ungur námsmaður hefði látist af
barsmíð lögreglu, en svo mun ekki
Skæruliðasveitir Farabundo Marti
þjóðfrelsisfylkingarinnar í El Salva-
dor hefur tekist að halda borgarhlut-
um í San Salvador, höfuðborg
landsins, í rúma viku þrátt fyrir að
stjómarherinn hafi gert að þeim
atlögur af öllum krafti. Bardagar
héldu áfram í höfuðborginni um
helgina með tilheyrandi mannfalli,
en þeir minnkuðu á sunnudagskvöld
þegar skæruliðar tóku að hörfa til
stöðva sinna utan við höfuðborgina.
Þá hafa dauðasveitir hægrimanna
áfram haldið morðum sínum.
Öruggt þykir að dauðasveitir
hægrimanna sem jafnvel eru ná-
tengdar ríkisstjórn hægrimannsins
hafa verið, heldur liggur maðurinn
þungt haldinn á sjúkrahúsi. Var
þekktur andófsmaður handtekinn
fyrir að breiða út orðróminum.
Hins vegar gagnrýndu þeir tveir
stjórnmálaflokkar sem fengið hafa
að starfa sem leppar í skugga komm-
únistaflokksins í Tékkóslóvakíu
gegnum tíðina, þá fádæma hörku
sem lögreglan sýndi á föstudag.
Staða kommúnistaflokksins virð-
ist því slæm og má ætla að kommún-
istar verði fyrr en varir að feta í
fótspor fyrrum samherja sinna í
Alfredo Cristiani hafi drepið jesúíta-
prestana sex sem voru myrtir svo
grimmilega í borginni fyrir helgi. Á
sunnudag bættu dauðasveitimar um
betur og myrtu einn helsta verka-
lýðsleiðtoga landsins, Guillermo,
Rojas. Hann fannst myrtur í verka-
mannahverfi í úthverfi borgarinnar.
Rojas hafði verið mjög gagnrýnd-
ur af fjölmiðlum ríkisstjórnarinnar
að undanförnu og hann sakaður um
að tengjast skæmliðum Farabundo
Marti. Vopnaðir menn réðust að
honum á heimili hans á sunnudag og
skutu síðan ein og hund.
Fréttir af morðinu á Rojas komu
skömmu eftir að Arturo Rivera
Austur-Þýskalandi sem urðu að láta
undan kröfu þjóðarinnar um aukið
frelsi.
í Búlgaríu virðast lýðræðisvind-
arnir ná að blása, en í gær lagði
stjórnarnefndarmaðurinn Andrei
Lukanov til að forræði kommúnista-
flokksins í stjórnmálalífi landsins
yrði afnumið og frjálsar kosningar
haldnar. Lukanov var kjörinn í
stjórnarnefnd kommúnistaflokksins
í síðustu viku eftir að Todor Zhivkov
fyrrum forseti landsins og aðalritari
kommúnistaflokksins til 35 ára var
settur af með skömm.
Hins vegar er engan bilbug að
finna á Nicolae Ceausescu forseta
Rúmeníu. Á fyrsta degi miðstjórnar-
Corazon Aquino forseti Filipseyja
varð fyrir miklu áfalli um helgina
þegar meirihluti kjósenda á suður-
hluta Filipseyja höfnuðu tillögum
stjórnarinnar um sjálfstjórn eyjanna
í suðri. Því virðist lítt friðvænlegt á
þessum slóðum á næstunni, þar sem
Aquino hefur hafnað öllum samn-
ingaviðræðum við skæruliða á Mind-
anao sem barist hafa fyrirsjálfstæði.
Aquino hafði bundið vonir við að
tillögur hennar um sjálfstjórn yrðu
Damas erkibiskup hafði staðhæft að
ríkisstjórn landsins væri tengd morð-
unum á jesúítaprestunum sex. Hann
varaði einnig við áframhaldandi of-
beldi dauðasveita hægrimanna og
óttast menn að nú sé að ganga í garð
morðalda svipuð og gekk yfir E1
Salvador í byrjun þessa áratugs eftir
að Oscar Arnulfo Romero erkibisk-
up var myrtur. Þá myrtu dauðasveit-
imar vinstrisinna og meinta stuðn-
ingsmenn Farabundo Marti í þús-
undavís. Þrátt fyrir það hafa morð-
ingjar á vegum öfgafullra hægri
manna aldrei verið dæmdir fyrir
verknaði sína í E1 Salvador.
Spænskir ríkisborgarar sem dvalið
fundar rúmenska kommúnista-
flokksins hafnaði hann algerlega öll-
um frávikum frá harðlínustefnu
þeirri sem hann hefur rekið með
harðri hendi í 24 ár. Lét hann
orðsendingu sovéska kommúnista-
flokksins sem hvatti Rúmena til
umbótastefnu sem vind um eyru
þjóta.
Þá blés hann á áskorun ungverska
sósíalistaflokksins um að auka lýð-
ræði í Rúmeníu og að virða rétt
minnihiutahópa í landinu. Ceaus-
escu hefur að undanförnu ofsótt
ungverska minnihlutann í Rúmeníu
og lagt þorp þeirra í rúst. Þess í stað
kynnti Ceausescu áætlanir um að
auka hemaðarmátt Rúmena.
samþykktar og þannig vopnin slegin
úr höndum skæruliða á Mindanao.
En múslímar á þessum slóðum snið-
gengu kosningarnar nær algerlega
og kristnir kjósendur greiddu flestir
atkvæði gegn áætluninni.
Múslímar krefjast algers sjálf-
stæðis og sniðgengu þess vegna kosn-
inguna, en kristnir menn em alger-
lega mótfallnir sjálfstjórn, hvað þá
aðskilnaði, enda múslímar í miklum
meirihluta á Mindanao.
hafa í E1 Salvador flugu heim í
hundraðatali um helgina til að forð-
ast bardagana og morðæði dauða-
sveitanna. Fjórir jesúítaprestanna
sem myrtir vom í síðustu viku voru
fæddir á Spáni.
George Bush forseti Bandaríkj-
anna aftók það með öllu að hætta við
þá hernaðaraðstoð sem Bandaríkja-
menn veita ríkisstjórninni í E1 Salva-
dor, þrátt fyrir morðina á jesúíta-
prestunum og aðfömm dauðasveit-
anna. Telur hann enn brýnna en
nokkm sinni að styðja við bak
stjórnarhersins í baráttunni við
skæmliða Farabundo Marti.
Kambódía:
Skæruliðar vinna sigra
Skæruliðaherir Rauðra Khmera
og tveggja kambódískra skæruliða-
samtaka er njóta stuðning ýmissa
vestrænna ríkja unnu mikinn sigur
á stjórarhernum í Kambódíu í gær
Nokkur þúsund skæruliða sam-
hæfða sókn að varðstöðvum stjórn-
arhersins við helstu þjóðvegi og
járnbrautaleiðir sem liggja til Tæ-
lands og náðu þeim á sitt vald.
Árás þessi kemur í kjölfar þess
að meirihluti allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna viðurkenndi
skæruliðahreyfinguna í Kambódíu
sem berst gegn ríkisstjórninni í
Pnom Penh, sem Víetnamar komu
á fót á sínum tíma. Hafa tiltölulega
fá ríki viðurkennt þá stjórn sem
rétta stjórn Kambódíu.
Skæmliðar hafa náð á sitt vald
að minsta kosti 20 km kafla af
hinum torfæra þjóðvegi 5 sem
liggur frá bænum Sisophon til
Tælands.
Bardagar halda áfram í El Salvador:
Verkalýðsleiðtogi myrtur
Kjósendur á Mindanao:
Hafna sjálfstjórn-
artillögum Aquino