Tíminn - 22.11.1989, Blaðsíða 3

Tíminn - 22.11.1989, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 22. nóvember 1989 Tíminn 3 Menntamálaráðherra krefur „poppstöðvarnar“ um menningarstefnu: Menningarlegra að éta hamborgara en slátur - segir Bjarni Dagur á Aðalstöðinni „Okkar menningarstefna er eiginlega sú að við ætlum að vera eins menningarleg og við getum, vanda okkur í töluðu máli og vera manneskjuleg,“ sagði Bjami Dagur Jónsson útvarpsstjóri Aðalstöðvarinnar. Svonefndar frjálsar íslenskar útvarpsstöðvar hafa fengið bréf frá menntamálaráðherra þar sem ráðherrann óskar eftir því að stöðvarnar skili greinargerð um þá menningarstefnu sem þær starfa eftir. Greinargerðinni eiga stöðvarnar að skila fyrir næstu áramót. Svavar Gestsson menntamálaráð- herra segir að ástæða beiðninnar sé sú að í útvarpslögum sé kveðið á um að útvarpsstöðvar ættu að hafa menningarstefnu. Stöðvarnar hafi ekki gert grein fyrir henni opinber- lega og tími til kominn að þær geri það. Hvatinn að beiðni ráðherra mun vera athugun sem var gerð á hlut íslenskrar tónlistar í dagskrá „frjálsu útvarpsstöðvanna". Athugunin leiddi í ljós að sú tónlist sem þar er flutt er að langstærstum hluta erlend. „Sannleikurinn er sá að hlustend- ur biðja miklu oftar um erlend lög en innlend. Af því að við erum að selja okkar stöð fyrir auglýsendur og laða þá að henni, þá verðum við að fara talsvert eftir því hvað hlustand- inn vill heyra. Þegar hlustendur hringja inn og biðja um lög þá er oftast nær beðið um erlend lög og sárasjaldan um innlend,“ sagði Bjami Dagur. Hann sagði sagði að spurning væri hvort að sömu ástæður væru fyrir þessu og því að á matsölustöðum er mun oftar beðið um hamborgara og franskar heldur en hafragraut og súrt slátur þótt hið síðamefnda sé íslenskt, gott og hollt. Páll Þorsteinsson tók undir með Bjarna Degi hvað varðaði íslenska tónlist. Hvað varðaði menningarmál þá sagði hann að Bylgjan og Stjarnan hefðu afar lítið fé aflögu til að sinna menningarmálum samkvæmt þeim skilningi sem hann grunaði að menntamálaráðherra legði í það orð. Stöðvarnar sinntu hins vegar dægurmenningu ágætlega. Hann sagðist að öðru leyti ekki vilja tjá sig um menningarstefnu sinna útvarps- stöðva fyrr en hann hefði svarað beiðni menntamálaráðherra. Bjami Dagur gat þess að Aðal- stöðin hefði undanfarið verið með þætti annan hvern dag milli kl. 6-7 sem heita íslenskir tónar þar sem eingöngu eru leikin íslensk lög. „Við ætlum okkur að vera áfram mannleg og fjalla - einkum á kvöldin - um mál sem alla skipta, bæði andleg og líkamleg og tala við menn- ingarlegt, greint og skynsamt fólk, fá til viðtals vitibornar manneskjur sem geta miðlað hlustendum ein- hverju skemmtilegu og þægilegu já- kvæðu, það er okkar menningar- stefna,“ sagði Bjami Dagur og kvaðst ætla að vera svo menningar- legur að setja saman einhverja grein- argerð fyrir menntamálaráðherra. „Aðalstöðin reynir af litlum efnum að sinna menningarmálum eftir megni, t.d. í þáttum með frétta- tengdu efni sem sendir eru út síðdeg- is daglega. Bókaútgefendum var ný- lega boðinn klukkutími á dag til upplestrar úr nýjum bókum en undirtektir hafa hingað til verið ákaflega daufar. Tíminn reyndi að ná sambandi við tvær aðrar af hinum frjálsu útvarps- stöðvum. Önnur hefur hætt útsend- ingum, síminn var lokaður hjá hinni. -sá Stjómmálaályktun landsfundar Alþýðubandalagsins tekur ekki afstöðu til forkönnunar á vegum NATO vegna vara- flugvallar, en boðar breytta stefnu í stóriðjumálum: Grænt Ijós á er- lenda stóriðju Nýja kirkjan á Skagaströnd, sú gamla í baksýn. Tímamynd Ö.Þ. NY KIRKJUBYGGING Á Skagaströnd hefur undanfarin misseri verið unnið við að byggja nýja kirkju. Byggingin er nú rúmlega fokheld og er þessa dagana unnið við einangrun og múrverk innan- húss. Áformað er að vinna í kirkj- unni í vetur, en óvíst er um fram- kvæmdahraða þar sem verulega er farið að saxast á það fjármagn sem ætlað var til byggingarinnar. í sam- tali við Lárus Ægi Guðmundsson formann byggingarnefndar kom fram að nýja kirkjan er byggð ör- skammt frá þeirri gömlu. Brýnt var orðið að ráðast í byggingu kirkjunn- ar því sú sem fyrir er orðin léleg enda komin til ára sinna. Áformað er að kirkjan taki um 200 manns í sæti. í byggingunni verður einnig safnaðarheimili. Framkvæmdir hafa gengið mjög vel til þessa. Verkið hefur allt verið unnið af heimamönn- um á Skagaströnd, byggingameistari er Helgi Gunnarsson en arkitektar að húsinu eru Ormar Þór Guð- mundsson og Örnólfur Hall. Ö.Þ. Lögbókin þín endurútgefin Bókaútgáfan Örn og Örlygur hef- ur endurútgefið lögfræðihandbók- ina, Lögbókin þín, eftir Björn Þ. Guðmundsson prófessor. Auk hans vann Stefán Már Stefánsson prófess- or að endurskoðun ritsins. Bókin kpm fyrst út árið 1973 og hefur verið ófáanleg í mörg ár. Lögbókin þín er nær 600 blaðsíð- ur, í bókinni eru 1500 uppflettiorð og um 1100 tilvísunarorð. Auk þess er þar að finná' aðgengileg yfirlit um réttindi sem menn öðlast á hinum ýmsu aldursskeiðum og um helstu refsingar við afbrotum samkvæmt hegningarlögum. Þá er gerð grein fyrir öllum helstu ríkisstofnunum, nefndum og ráðum. Lögbókin þín spannar öll svið íslensks réttar. Dregin eru fram aðalatriði íslenskrar löggjafar á þann hátt að almenningi verða not af og auðvelt er að skilja. Jafnframt er vitnað til viðkomandi lagaákvæða og lögfræðirita þeim til þægindaauka sem vilja gæta nánar að. Handbókin hefur verið umsamin að verulegu leyti. Skipta má breyt- ingum á fyrstu útgáfu árið 1973 í þrennt. í fyrsta lagi er lögð meiri áhersla á afmarkaða, lögfræðilega skilgreiningu hvers lagahugtaks sem nýtast mætti lögfræðingum, laga- nemum og1 áhugamönnum um lög- fræði.'í öðru lagi eru dæmi, eitt eða fleiri, nær undantekningarlaust not- uð fyrst og fremst almenningi til skilningsauka, bæði á hugtökum og almennum texta. í þriðja lagi er auk lagatilvitnana vísað í lögfræðirit í lok reifunar hvers orð eftir því sem tiltæk eru og við á í stað þess að geta heimilda eingöngu sameiginlega á einum stað. SSH RJORN P, GU0MUNOSSON BíÍÍÍn HN 'mf i _ ^.1 Stjórnmálaályktun 9. landsfundar Alþýðubandalagsins hefur verið send fjölmiðlum, en fundurinn fól ráðherrum flokksins að ganga frá henni í endanlegri mynd. í þessari lokaútgáfu ályktunarinnar er sneitt hjá þvi að minnast á hugsanlega þáttöku Mannvirkjasjóðs NATO í forkönnun á varaflugvelli er nýttist þeim á ófriðartímum. Þar er hins vegar boðuð stefnubreyting hvað varðar afstöðu til erlendrar stóriðju, og sagt að í þeim efnum komi samvinna við útlendinga í undan- tekningartilfellum til greina. Eins og kunnugt er hefur Hjörleif- ur Guttormsson þingmaður Alþýðu- bandalagsins á Austurlandi, dregið í efa að ályktun þessi standi undir því að breyta stefnu flokksins, vegna þess hve fámennt var orðið á lands- fundinum er hún var samþykkt. í stjórnmálaályktuninni eru sett nokkur skilyrði fyrir því að erlend- um aðilum sé leyft að byggja hér upp orkufrekan iðnað. Þar á meðal að uppfylltar séu ströngustu kröfur um mengunarvarnir, að raforkuverð tryggi ríflégan framleiðslukostnað og að uppbygging stóriðju verði að öðru jöfnu í dreifbýli. Það sem ef til vill vekur samt mesta athygli er að ekki er útilokað í ályktun Alþýðu- bandalagsins að útlendingar eigi meirihluta í stóriðju hér á landi, heldur einungis að forræði íslend- inga sé tryggt. Orðrétt segir í kafla um nýtingu íslenskra orkulinda til iðnaðaruppbyggingar: að forræði íslendinga verði tryggt að öðru leyti, m.a. með verulegum eignarhluta, meirihluta eða öðrum sambærileg- um hætti.“ Þá er ekki minnst á forkönnun NATO á byggingu varaflugvallar, en Hjörleifur Guttormsson hefur lýst því yfir að væri hún heimiluð af utanríkisráðherra leiddi það til stjómarslita. Um hernaðaruppbygg- ingu er fjallað í kafla er ber heitið „sigurhorfur": „ Alþýðubandalagið telur það einn mikilvægasta árangur núverandi stjórnarsamstarfs að víðtæk pólitísk samstaða hefur myndast um frum- kvæði að friðun heimshafanna í samræmi við íslenska hagsmuni, og leggur áherslu á að því starfi sé fram haldið af fullum þrótti. Alþýðu- bandalagið telur að hugleiðingar um aukin hernaðarumsvif hérlendis, þar á meðala nýjan hernaðarflugvöll, séu fráleit tímaskekkja sem gengur þvert á frumkvæði íslensku ríkis- stjórnarinnar um afvopnun í höfun- um, og minnir landsfundurinn enn á það grundvallarákvæði í málefna- samningi stjórnarinnar að ekki skuli leyfðar neinar nýjar hernaðarfram- kvæmdir hér á landi.“ -ÁG Akureyri: Lektorar við H.A. í haust voru ráðnir þrír nýir lekt- orar við Háskólann á Akureyri. Tveir voru ráðnir í hlutastörf við heilbrigðisdeild og einn í fullt starf við rekstrardeild. Við heilbrigðisdeild var Hólmfríð- ur Kristjánsdóttir B.S. ráðinn lektor í hjúkrunarfræði og Dr. Ingvar Teitsson í sjúkdómafræði. Hólm- fríður hefúTverið stundakennari við Verkmenntaskólann á Akureyri og einnig Háskólann á Akureyri frá vorinu 1988. Ingvar hefur starfaðvið fjölmörg sjúkrahús hér á landi og í Bretlandi, síðast sem aðstoðarsér- fræðingur og lektor í lyflækningum við kennslusjúkrahúsin í Aberdeen í Skotlandi. Við rekstrardeild var Lilja Móses- dóttir M.A. ráðin lektor í rekstrar- hagfræði. Lilja hefur kennt við Verslunarskóla íslands og starfaði síðastliðið ár sem hagfræðingur Al- þýðusambands íslands. SSH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.