Tíminn - 07.12.1989, Blaðsíða 1
Rotmassi til svepparæktar fluttur inn í stórum stíl frá Englandi:
Sveppir ræktaðir í
enskum hrossaskít?
Um 400 tonn af rot-
massa, frá Englandi,
hafa verið flutt inn í ár.
Rotmassinn er notaður
til svepparæktar, en
margir aðilar hafa veru-
legar áhyggjur af þess-
um innflutningi. Heim-
ildir okkar herma að rot-
massinn sé að stærst-
um hluta hálmur og
hrossaskítur. Sam-
kvæmt lögum er bannað
að flytja inn slíkar „land-
búnaðarafurðir.“ Veru-
leg hætta verður að telj-
ast á að smit geti borist
með t.a.m. hrossaskít.
Við höfum ekki efni á að
tefla á tvær hættur í
þessum efnum og því
hlýtur það að vera að-
kallandi mál að yfirvöld
kanni mál þettatil hlítar.
• OPNAN
Kortaviðskipti Islendinga erlendis að öllum líkindum rúmir fimm milljarðar á þessu ári:
Eriend kortaúttekt í ár
um 80.000 á fjðlskyldu
Notkun á krítarkortum erlendis verður að öllum líkind-
um um 5,2 milljarðar króna á þessu ári. Þessi upphæð
svarar til um 80 þúsund króna úttektar á hverja fjögurra
manna fjölskyldu í landinu.
Heildarvelta á krítarkortum hefur vaxið jafnt og þétt
frá 1985 og stefnir í að verða 34 til 35 milljarðar. Innlend
velta hefur aukist um 30% frá í fyrra og er það talsvert
umfram verðlagshækkanir og langt umfram kauphækk-
anir.
• Blaðsíða 5
* •' jf- xsl* *