Tíminn - 07.12.1989, Blaðsíða 4

Tíminn - 07.12.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 7. desember 1989 FRÉTTAYFIRLIT WASHINGTON - Egyptar hafa formlega samþykkt fimm punkta friðaráætlun sem James Baker utanríkisráð- herra Bandaríkjanna hefur laat fram til að freista þess að koma á friði í Miðausturlönd- um. Áætlunin miðar að beinum friðarviðræðum ísraelaog Pal- estínumanna. Nú eru tvö ár frá því Palestínumenn á her- numdu svæðunum hófu upp- reisn sína gegn hernámi Isra- ela. BOGÓTA - 35 manns fór- ust er öflug sprenaja sprakk fyrir utan höfuðstöovar leyni- lögreglu og öryggislögreglu í Koiumbíu. 350 særðust. ABLAH - Elias Hrawi forseti Líbanon segist ætla að segja af sér ef hann nái ekki að hrekja Michel Aoun úr forseta- höllinni í Beirút. PARÍS - Frakkar hyggjast hætta efnahagsaðstoö við Comoroeyjar þar til evrópskir málaliðar sem þar hafa náð völdum eftir að forseti eyjanna var drepinn veiti eyjaskeggjum stjórnina að nýju. MANILA - Corazon Aquino forseti Filipseyja er talin hafa misst stuðning margrar dyggra stuðningsmanna er hún setti á neyðarástandslög sem gefur henni rétt til að hefta ritfrelsi og annað slíkt. Ástæðan er sú ao hvorki gengur né rekur í að knésetja uppreisnarmennina 400 sem komið hafa sór fyrir í fimmtán stórhýsum í viðskipta- hverfi Manila. NÝJA DELHI - Hinn nýi forsetaráðherra Indlands, Vishwanath Pratap Singh, kom mönnum mjög á óvart er hann birti ráðherralista í fimmtán manna ríkisstjórn sinni. Hann tók varnarmálin í sínar hendur, en búist hafði verið við að hann myndi halda áfram starfi sínu sem fjármálaráðherra, en hann gegndi því embætti áður en hann sagði skilið við Kong- ressfiokkinn og hóf baráttu gegn Ftajiv Gandhi og spillingu á Indlandi. AÐ UTAN Austur-Þýskaland: Seta kommúnista í forsetastól lokið Kommúnistinn Egon Krenz hefur sagt af sér sem forseti Austur-Þýskalands. Manfred Gerlach leiðtogi Frjálslynda lýðræðisflokksins hefur tekið við forsetaembættinu og er því 40 ára valdatíð kommúnista í forsetastól Austur-Þýskalands lokið. Manfred Gerlach hefur verið í fararbroddi þeirra sem krafist hafa umbóta í Austur-Þýskalandi. Hóf hann þá baráttu með því að standa upp í hárinu á forystu kommúnista- flokksins með því að krefjast lýðréttinda nokkru áður en umbótabylgjan, sem sópað hefur kommúnismanum í Austur- Þýskalandi á brott undanfarnar vikur, reis fyrir alvöru fyrir aðeins tveimur mánuðum. Sú tuttugu og fimm manna fram- kvæmdanefnd austur-þýska komm- únistaflokksins sem valin var um síðustu helgi þegar miðstjórn flokks- ins rak sjálfa sig og stjórnarnefndin i brást við þessum atburðum með því að flýta fyrirhuguðu neyðarþingi kommúnistaflokksins. Mun þingið verða haldið á morgun, föstudag. Er jafnvel talið að kommúnistaflokkur- inn verði lagður niður, enda í sárum eftir að upp komst um alvarlega spillingu og fjármálamisferli flokks- forystunnar og rúmlega hundrað háttsettra embættismanna. 1 staðinn verði reynd að stofna úr rústunum nýjan umbótasinnaðan sósíalista- flokk í anda ungverska sósíalista- flokksins. Flokksdeildirnar í kommúnista- flokksins eru nú í óða önn að kjósa fulltrúa sína á neyðarþingið og virð- ist alger kynslóðaskipti ætla að verða. Þar sem kosið hefur verið er ungt fólk í miklum meirihluta. Sem dæmi um það er meðalaldur fulltrúa deildarinnar í Dresden 41 ár. Fyrsta verk Manfreds Gerlachs Leikritaskáldið Vaclav Havel og félagar hans í lýðræðishreyfingunni Borgaralegur vettvangur hafa fengið því framgengt að ný frjálslynd ríkisstjóm tekur við völdum í Tékkóslóvakíu á morgun. Borgaralegur vettvangur með Vaclav Havel þvinga kommúnista í átt til meira frjálsræðis: NU FRJALSLYND RÍKISSTJÓRN f m w w / TEKK0SL0VAKIU Ný frjálslynd ríkisstjórn mun sjá dagsins ljós í Tékkóslóvakíu á föstu- daginn, en þá mun forsætisráðherra landsins, umbótasinninn Ladislav Adamec birta nýjan ráðherralista. Noregur: Fjórtán fiski- mönnum bjargað Björgunarþyrlur björguðu fjórtán norskum fiskimönnum úr gúmmíbát við strendur Noregs í gær eftir að flugmenn farþegaþotu sem var á leið frá Bandaríkjunum til Evrópu til- kynnti um logandi bát 100 km frá ströndum Noregs. Sjómennirnir fjórtán þurftu að yfirgefa hinn brennandi bát og höfuð dvalið í björgunarbátnum nokkra hríð í ísköldu slagveðri áður en þyrlurnar komu til bjarga. Mun listinn verða lagður fyrir for- ystu Borgaralegs vettvangs til sam- þykktar áður en hann verður opin- beraður. Það var leikritaskáldið og andófs- maðurinn Vaclav Havel, einn helsti leiðtogi Borgaralegs vettvangs sem skýrði frá þessi í gær eftir fundarhöld með Karel Urbanek aðalritara kommúnistaflokksins og Ladislavs Adamec forsætisráðherra. Hin nýja ríkisstjórn mun leysa þá ríkisstjórn af hendi sem tók við völdum á sunnudaginn. Borgaraleg- ur vettvangur gat ekki sætt sig við sextán af tuttugu og einum ráðherra í þeirri stjórn og hafa haldið uppi verkföllum og andófsfundum til að knýja á um breytingar. Hafði Borg- aralegur vettvangur boðað allsherj- arverkfall á mánudaginn ef engu yrði breytt. Að auki hafði Ladislav Adamec hótað að segja af sér ef kommúnistaflokkurinn léti ekki undan og leyfði breytingar á ráð- herralista. Manfred Gerlach leiðtogi Frjáls- lynda lýðræðisflokksins hefur nú tekið við sem forseti Austur-Þýska- lands eftir að Egon Krenz fyrrum leiðtogi kommúnistaflokksins sagði af sér. Þá er tími kommúnista í forsetastól í Austur-Þýskalandi á enda eftir 40 ár. eftir að hann tók við embætti var að veita almenna sakaruppgjöf því fólki sem dúsað hefur í fangelsum fyrir litlar sakir sem engar. Aðeins harð- svíraðir glæpamenn fá nú að dúsa í steininum. Gerlach tók ekki einungis við forsetaembættinu heldur einnig við formennskunni í Varnarmálaráði landsins og er því einnig orðinn æðsti yfirmaður austur-þýska hersins. Gerlach tók það skýrt fram er hann tók við forsetaembættinu eftir fund ríkissráðs Austur-Þýskalands, að hann muni einungis gegna em- bættinu til bráðabirgða. Nýr grund- völlur muni skapast eftir kosningar, sem haldnar verði innan árs. Þrátt fyrir að Egon Krenz hafi sagt af sér embætti og kommúnistar virð- ast vera að missa völdin í Austur- Þýskalandi virðist staða Hans Mo- dlovs forsætisráðherra landsins trygg. Stuðningur við hann virðist víðtækur, enda var hann mjög vin- sæll sem borgarstjóri í Dresden. Hann nýtur þess nú að hafa verið haldið úti í kuldanum og ekki verið hleypt í innsta hring gamla kommún- istaflokksins, en hann var ekki vin- sæll þar vegna umbótahugmynda sinna sem eru í anda stefnu Gorbat- sjofs. Modrow mun halda til Dresden 19.desember til að hitta Helmut Kohl kanslara Vestur-Þýskalands og ræða við hann hugsanlega efnahags- aðstoð frá Vestur-Þýskalandi. Þess má geta að hinum þekkta austur-þýska lögfræðingi Wolfgang Vokel sem handtekinn var í fyrradag á sama tíma og Honecker fyrrum forseti landsins, var sleppt úr haldi og var ríkissaksóknari hann afsökun- ar. Vokel hafði verið borinn röngum sökum, en hann er frægur fyrir að hafa verði milligöngumaður í fang- askiptum á njósnurum austurs og vesturs. Loftárás- ir á þorp I Súdan Flugherinn í Súdan gerði í gær harðar loftárásir á þorp sem eru á valdi skæruliða í suðurhluta landsins, aðeins nokkrum klukku- stundum eftir að friðarviðræður ríkisstjórnarinnar og skæruliða fóru út um þúfur í Nairóbí. Skæruliðar sem undanfarið hafa látið lítið á sér kræla vegna samn- ingaviðræðnanna sem voru undir stjórn Jimmy Carters fyrrum Banda- ríkjaforseta, segja að loftárásirnar séu ekkert annað en endumýjuð stríðsyfirlýsing og að þeim verði svarað af fullum krafti. Ekki er vitað um hvert mannfallið varð í þorpinu Waat, en Ijóst er að manntjón varð. Friðarviðræðurnar í Nairóbí strönduðu á því grundvallaratriði sem í raun er meginástæða borgara- styrjaldarinnar, hin íslamska löggjöf landsins. Norðurhluti landsins er að megninu til byggður múslímum sem hafa töggl og haldir í stjórnmálum, en í suðri búa kristnir menn og fólk er aðhyllist hin forni hefðbundnu trúarbrögð ættbálka sinna. Ríkisstjórn Súdan vildi ekki slaka á íslamskri löggjöf sem fólk í suður- hlutanum getur ekki sætt sig við. Sprengjutil- ræði í Bogóta Það var viðburðarfkur dagur í baráttu stjórnvalda og eiturlyfja- hringa í Kólumbíu í gær. í Bogóta höfuðborg landsins sprengdu eit- urlyfjabarónarnir gífurlega öfluga sprengju fyrir utan aðalstöðvar leynilögreglu og öryggislögreglu Kólumbíu með þeim afleiðingum að sjö manns fórust að minnsta kosti og fimmtíu særðust. Góðu fréttirnar voru hins vegar þær að Svisslendingar skýrðu frá því að fimm voldugir eituríyfjabar- óninn frá Kólumbíu hefðu verið handteknir þar í landi í síðasta mánuði. Stjórnvöld hafa ekki skýrt frá hverjir mennimir em, en þó hefur lekið út að einn þeirra sé Severo Escobar, náfrændi Pablo ‘Escobar voldugasta eiturlyfjabar- óns Kólumbíu og þá heimsins alls. Sprengjan sem sprakk fyrir utan höfuðstöðvar leynilögreglunnar og öryggislögreglunnar í Bogóta var það öflug að fjöldi húsa í nágrenn- inu stórskemmdust. Staðarvalið var ekki tilviljun því stríðinu gegn eiturlyfjahringunum hefur einmitt verið að mestu stjórnað frá höfuð- stöðvunum. Þá var einn af þeim dómurum sem rannsaka mál eiturlyfjahring- anna skotinn á götu í Bogóta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.