Tíminn - 07.12.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 7. desember 1989 - - Fimmtudagur 7. desember 1989
‘Tíminn 11
rilri'í’
sneyðingin færi fram í lokaðri vélasam-
stæðu þar sem öllum óæskilegum gerlum
væri eytt og ætissveppagróunum síðan
blandað í massann, honum pakkað og
hann síðan sendur af stað til Islands.
„Þung“ sveppagró
Rotmassinn er fluttur inn undir toll-
skrámúmerinu 06029100 sem sveppagró.
Sveppagróin sjálf em afar lítil og létt og
af þeim em notuð 3-4 grömm í hvert kíló
af rotmassa. Á þessu ári hafa samkvæmt
upplýsingum Hagstofunnar verið flutt
inn 370 tonn af „sveppagróum“ sem eru
því að lang mestu leyti rotmassi.
„Okkur hefur fundist þessi gró ansi
þung,“ sagði starfsmaður Hagstofunnar
þegar spurst var fyrir um rotmassainn-
flutninginn.
Ragnar Kristinn Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Flúðasveppa hóf sína
ræktun árið 1984. Þá var hörgull á hálmi
innanlands og átti hann í erfiðleikum
með að fá hálm í fyrstunni. Hann sótti
þá um til landbúnaðarráðuneytisins að
fá að flytja inn hveitihálm frá Danmörku
en erindinu var hafnað og vísað í því
sambandi til laga nr. 11/1928 sem vitnað
er til í upphafi þessarar greinar.
Ragnar segist hafa sætt sig við synjun-
ina í sjálfu sér og í kjölfar hennar
ákveðið að laga sig að íslenskum aðstæð-
um. Sér hafi því komið það í opna
skjöldu þegar innflutningur síðan hófst
á sjálfum rotmassanum erlendis frá en
hann telur að rotmassi hljóti að vera
mun líklegri smitberi heidur en hálmur.
Þar að auki væru veittar undanþágur frá
hálmbanninu í sambandi við innflutning
á blómum t.d.
Innflutningurinn sparar
fé og fyrirhöfn
Sveppaframleiðendur á íslandi höfðu
allir áður en þessi innflutningur hófst,
búið til rotmassa sinn sjálfir en það er
talsvert umstang og erfiði og reksturinn
þarf að vera umfangsmikill til að borgi
sig að vélvæða þennan þátt ræktunarinn-
ar. Þegar hann er búinn til er blandað
saman hálmi og yfirleitt hrossaskít.
Þessu er mokað saman í haug sem síðan
geriar og hitnar rækilega í.
Á ákveðnu stigi gerjunarinnar er
sveppagróunum blandað í massann og
honum komið fyrir í sérstökum ræktun-
arklefum með réttu hita- og rakastigi.
Þar vaxa síðan sveppaþræðir um allan
massann en á ákveðnu vaxtar- eða
myglustigi er þunnu moldarlagi jafnað
yfir og upp úr því vaxa síðan ætissvepp-
imir sjálfir.
Innflutningur á rotmassa er umdeild-
ur. Sumir telja að smithætta hér sé
óveruleg eða engin því að svo vel sé að
framleiðslu massans í Englandi staðið.
Hann sé gerilsneyddur og ekki sé notað-
ur búfjáráburður við framleiðsluna
þannig að lítil hætta sé á að búfjársjúk-
dómar berist með honum hingað. Áuk
þess sé eftirlit með útflutningnum mjög
strangt af hálfu Breta og öll tilskilin
vottorð frá breskum heilbrigðisyfirvöld-
um séu til staðar.
Dr. Gunnar Sigurðsson forstöðumað-
ur Fóðureftirlitsins er einn þeirra ugg-
andi. Hann telur þennan innflutning í
hæsta máta vafasaman. Ekki sé hægt að
útiloka að einhverskonar óæskilegt
veirusmit berist með massanum hingað
til lands. Þessi innflutningur sé mjög
viðkvæmt mál og að menn hljóti í
tengslum við hann að spyrja út frá
sóttvarnasjónarmiðum hvort ekki eigi
eins að leyfa innflutning venjulegra bú-
fjárafurða. Þá hafi í Englandi veirusjúk-
dómur í nautpeningi, eins konar riða,
gert talsverðan usla og þessi innflutning-
ur hljóti að skapa vissa hættu á að
eitthvað slíkt gæti borist til landsins. Því
sé óráðlegt að bjóða hættunni heim með
einum eða öðrum hætti.
Algerlega hættulaust
Lífsspursmál fyrir ræktendur
„Þetta hefur verið flutt inn í ein tíu ár
og byrjaði þannig að fluttir voru inn
svokallaðir sprettukassar. Það er hins
vegar nýjung að hægt sé orðið að flytja
massann í þessum mæli milli landa,“
sagði Pálmi Karlsson sveppaframleið-
andi, en hann er einn þeirra sem nota
innflutta rotmassann.
Pálmi sagði að engin hætta fælist í
þessum innflutningi þar sem massinn
væri gerilsneyddur og sótthreinsaður af
öðru en því lífi sem ætti að vera í honum.
Húsdýraáburður sé ekki notaður við
gerð hans og þessi innflutningur væri
ekkert hættulegri en innflutningur á
grænmeti og ávöxtum, plöntum og slíku
og væri gengið úr skugga um það af
eftirlitsmönnum bæði í Bretlandi og á
íslandi.
Pálmi sagði að hann væri stærsti
sveppaframleiðandi landsins og þessi
innflutningur væri lífsnauðsynlegur til
að halda kostnaði niðri. Hann hefði
lækkað verðið á sveppunum um 35% í
byrjun september en áður hefði verðið
verið óbreytt s.l. 2 ár. „Fólkið í landinu
verður að fá að kaupa þetta á skikkan-
legu verði. Neysla sveppa er stöðugt að
aukast og fólk á kröfu á að fá vöruna á
sem Iægstu verði.
Hálmurinn hér heima er allt of dýr og
vinna við að gera rotmassann er mikil og
dýr. Vegna þess hvað framleiðslueining-
arnar eru smáar og vélvæðing þessa
þáttar ræktunarinnar er dýr, þá er óhjá-
kvæmilegt annað en að það komi fram í
verðlagningunni," sagðiPálmi. Innflutn-.
ingurinn er forsenda lægra verðs,“ sagði
Pálmi.
Hann sagði að í framtíðinni mætti þó
búast við að rotmassi yrði í framleiddur
~hér innanlands í stórum stíl á sama hátt
og gert er í Englandi þaðan sem rotmass-
inn er keyptur. Þá gæti svona verksmiðja
verið staðsett einhversstaðar á landinu
og allir ræktendur notið góðs af starfsemi
hennar.
„Ég tel nauðsynlegt að við höldum
áfram með þennan innflutning til að við
öðlumst reynslu og þekkingu með þetta.
Ef hann verður bannaður held ég að
svepparækt leggist jafnvel af hér á
landi,“ sagði Pálmi.
Yfirdýralæknir uggandi
„Það er verið að rannsaka þennan
rotmassa núna til þess að fá fram hvað
er í honum. Það er það eina sem ég veit
um þetta mál, enda er það ekki á mínum
snærum,“ sagði Brynjólfur Sandholt yfir-
dýralæknir.
Yfirdýralæknir sagði að þetta mál
hefði komið til kasta embættisins fyrir
hans tíð og nú hefði verið talið rétt að
kalla eftir fyllri upplýsingum. Hann sagði
að rotmassinn hefði verið fluttur inn á
þeim forsendum að hann væri hitameð-
höndlaður og enginn skítur í honum.
Yfirdýralæknir sagði að allur innflutn-
ingur af þessu tagi væri áhættusamur og
þess vegna væri verið að reyna að nota
gildandi lög til að koma í veg fyrir að
sjúkdómar berist til landsins. Hugsanlegt
væri að þessi innflutningur hefði hafist
vegna einhvers konar misskilnings á
lögunum. Hann ítrekaði að málið hefði
ekki komið upp í sinni embættistíð og
því væri það í höndum annarra aðila nú.
Dr. Sigurgeir Ólafsson sérfræðingur
hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins
sagði að áður en þessi innflutningur
hófst hefði stofnunni borist fyrirspumir
frá Bretlandi um hvort heimilt yrði að
flytja inn rotmassa. Innihaldslýsing hefði
síðan borist og framjeiðsluferlinu lýst.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
gefur út leyfi til að flytja inn plöntur og
þar sem innflutningur á rotmassa félli
einnig undir lög um búfjársjúkdóma
sagðist hann hafa borið gögnin frá Eng-
landi undir yfirdýralækni. Niðurstaðan
hefði orðið sú að innflutningur væri
heimili með ákveðnum skilmálum.
Skilmálamir væru þeir að enginn bú-
fjáráburður væri í rotmassanum, vottorð
frá opinbemm aðilum í Englandi fylgdu
með en í þeim skyldi koma fram að
rotmassinn hefði hlotið hitameðferð sem
yfirdýralæknir teldi fullnægjandi til þess
að hindra hugsanlegt smit búfjársjúk-
dóma. Þá skyldi í þriðja lagi fylgja með
heilbrigðisvottorð með tilliti til plöntu-
sjúkdóma. Innflutningurinn hefði síðan
farið fram að þessum skilmálum uppfyllt-
um.
Wmm
Eftir Stefán Ásgrímsson
„Bannaður er innflutningur á þessum
vörutegundum:
a. Heyi, hálmi, alidýraáburði, hráum
og lítt söltuðum sláturafurðum,,,... “
Þessi orð standa í annarri grein laga
nr. 11 frá 1928 en lögin fjalla um varnir
gegn því að gin- og klaufaveiki og aðrir
alidýrasjúkdómar berist til landsins.
Um nokkurt skeið hefur verið stund-
aður innflutningur frá Bretlandi í nokkr-
um mæli á svonefndum rotmassa sem er
veigamikill þáttur í svepparækt.
Rotmassi er yfirleitt búinn þannig til
að í hann fara að 4/5 hlutum hálmur en
afgangurinn 1/5 er húsdýraáburður, oft-
ast hrossaskítur og samkvæmt heimild-
um frá Bretlandi er hrossaskítur og
kjúklingaskítur notaður í rotmassann.
Það gæti því virst nokkuð ljóst að slík
blanda ætti ekki samkvæmt ofanritaðri
lagagrein að fást flutt inn í landið.
„Það má segja að upphafið að þessu
hafi verið annað en að landbúnaðarráðu-
neytið leyfði þetta. Okkur var skrifað
um þetta mál fyrir nokkru og beðnir um
útskýringu á hvort þetta væri heimilt,“
sagði Sveinbjörn Eyjólfsson í landbún-
aðarráðuneytinu. Hann sagði að ljóst
væri að innflutningur á hálmi í hvaða
mynd sem væri, væri óheimill. Hins
vegar þyrfti ráðuneytið að fá nákvæma
innihaldslýsingu á rotmassanum og helst
efnagreiningu áður en nokkuð væri hægt
að segja um þennan tiltekna innflutning
og lögmæti hans.
- En á meðan kemur hann inn í
landið?
„Við höfum í sjálfu sér aldrei leyft
innflutning á þessum rotmassa enda
aldrei verið spurðir um það fyrr en nú.
Við verðum því að fá frekari upplýsingar
áður en við svörum nokkru. Rannsókna-
stofnun Landbúnaðarins hefur trúlega
skrifað upp á heimild til innflutnings
eftir að þessi massi hafi fengið ákveðna
meðhöndlun. Þeir hafa nú óskað um-
sagnar okkar og við höfum óskað eftir
frekari upplýsingum áður en við svörum
endanlega,“ sagði Sveinbjörn.
Skítur eða eitthvað annað?
Rotmassi íblandaður svðppagróum
hefur verið fluttur inn í talsverðum mæli
síðan árið 1988. Hann er fluttur inn frá*
Englandi þaðan sem hann er framleiddur
í sérstakri verksmiðju. Fullyrt er að í
hann sé ekki notaður húsdýraáburður að
marki a.m.k. en ekki hefur tekist að afla
upplýsinga um hvaða hráefni eru notuð
við að framleiða massann og þeir sem við
var talað bar ekki saman um hvort í
.honum væri húsdýraskítur eða ekki. Þó
er klárt að hálmur sé uppistaðan, eða um
80%.
Hægt er að nota ýmislegt annað við
framleiðsluna en skít og eftir því sem
næst verður komist má nota t.d. fiski-
mjöl, beinamjöl eða einhvers konar
lífrænan úrgang, eða eins og starfsmaður
verksmiðjunnar í Englandi, Hensley
Compost segir; „Animal waist“, sem
ekki var skilgreint nánar. Ekki tókst að
fá upplýsingar um hver þessi dýraúrgang-
ur var en fræðimenn telja að um gæti
verið að ræða einhvers konar innvols og
beinamjöl frá svínum og stórgripum sem
-,,er síst skárra en skítur með tilliti til
smithættu," sagði veirufræðingur einn.
Starfsmaður rotmassaverksmiðj unnar
í Englandi sagði að rotmassinn sem til
íslands færi væri lagaður sérstaklega og
í hann væri ekki notaður skítur eða
„Manure“. Þó væri ekki loku fyrir það
skotið að smáræði af kjúklingaskít færi í
massann. Það væri þó það lítið og væri
sett það snemma í hann að öll efni í
honum væru búin að brotna niður áður
en til gerilsneyðingarinnar kæmi. Geril-
ai nverju er ekki nægt ao nota skitinn ur pessum:
frá enskum
til sveppa-
Flytja inn
hrossaskít
ræktar hér?
/