Tíminn - 07.12.1989, Qupperneq 2
2 Tírriinn
*•>'i' ioc*iT.fc€C‘0 i i’i.s'. >. • t'i
Fimmtudagur 7. desember 1989
Heildartap Hafskips
um 6 milljarðar kr.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Tímans nemur
heildartap vegna gjaldþrots Hafskips rúmum 6 milljörðum
króna framreiknað til dagsins í dag, eða frá upphafsdegi 6.
desember 1985 til skiptaloka sem var 17. nóvember sl.
Við skiptalok voru kröfur um
afhendingu eigna að upphæð rúm-
ur 1,7 milljarður viðurkenndar.
Lýstar kröfur í búið námu 2,3
milljörðum til viðbótar, en af þeirri
upphæð greiddist rúmur 1,2 mill-
jarðar. Mismunurinn er því 1,1
milljarður, sem tapaðist. Þar sem
gjaldþrotamáli hefur verið lengi í
meðförum hafa dráttarvextir hlað-
ist upp og nema dráttarvextir af
upphæðinni við skiptalok um 2,7
milljarðar og er því tapið 3,8
milljarðar, þ.e. dráttarvextir plús
ofangreindur mismunur upp á 1,1
milljarð. Auk þessa töpuðust drátt-
arvextir af örðum skuldum frá
upphafsdegi skipta. Sú upphæð er
um 2,2 milljarðar og er því heildar-
tapið 6 milljarðar.
Þó svo að skiptalok hafi farið
fram er skiptum ekki að fullu lokið
og verða þau samkvæmt heimild í
126. gr. gjaldþrotalaga nr. 6/1978
endurupptekin þegar niðurstaða
liggur fyrir varðandi tiltekin atriði
sem enn eru til meðferðar fyrir
dómstólum og um innheimtu til-
tekinna útistandandi krafna.
Hafskipsmálið er nú fyrir Saka-
dómi Reykjavíkur, þar sem verið
er að kynna sakborningunum 17
ákærurnar og viðkomandi gefinn
kostur á að tjá sig um þær. Dóms-
rannsókn hefst hins vegar í janúar.
- ABÓ
Dótturfyrirtæki Eimskips:
Tvö skip
seld til
Mallorca
Dótturfyrirtæki Eimskips, Cost
Line Shipping Company Ltd. sem
aðsetur hefur á Antiqua í Karabíska
hafinu hefur gert samning um sölu
skipanna North Coast og South
Coast, sem áður hétu Álafoss og
Eyrarfoss. Það er spánskt fyrirtæki á
Mallorca sem kaupir skipin og verð-
ur North Coast væntanlega afhent
kaupendum í lok desember, en
South Coast í febrúar nk.
- ABÓ
Helen SH103 í höfninni á Rifi. Töluvert tjón varð innanborðs þegar báturinn
valt í sjóinn er verið var að draga hann upp. Tímamynd Ægir Þórftarson Hellissandi.
Trilla valt
Æglr Þór&arson, Helllssandi.
Það óhapp vildi til við höfnina á
Rifi síðastliðið sunnudagskvöld að
trillubáturinn Helen SH 103 frá
Hellissandi fylltist af sjó þegar verið
var að draga bátinn upp. Var hann
á vagni sem settur var útí sjó og
bátnum síðan siglt uppá og var
gengið frá honum á venjulegan hátt.
Að sögn Eggerts Bjarnasonar annars
eiganda bátsins kom hnykkur á bát-
inn þegar byrjað var að draga hann
upp og við það brotnuðu stoðir
vinstra megin á vagninum með þeim
í höfninni
afleiðingum að hann valt á hliðina
og beint í sjóinn. Ekki tókst að ná
bátnum upp strax og fór hann að
mestu leyti á kaf þegar flæddi að.
Ekki urðu skemmdir miklar á skrokk
bátsins, en ljóst er að stjórntæki og
aðrir hlutir innanborðs hafa orðið
fyrir verulegu tjóni, en hann mun
vera að fullu tryggður.
Helen sem er innan við 10 tonn að
stærð hefur veirð gerð út á línu upp
á síðkastið, en mjög gott fiskerí
hefur verið hjá smábátum frá Hellis-
sandi undanfarið.
lönaðarráðherra segist vonast til nýir aðilar komi til liðs við
r Atlantal hópinn mjög fljótlega:
Ahugi Hoogovens og
Gránges ekki minni
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
sagðist í samtaii við Tlmann eiga von
á því að heyra frá álfyrirtækjunum
Hoogovens og Gránges um miðjan
þennan mánuð og þá yrði væntan-
lega tekin ákvörðun um hvernig yrði
staðið að næstu skrefum í álmálinu.
Ráðherra sagðist vilja gera nýtt
samkomulag um framgang málsins,
en samkomulag það sem gert var um
mitt ár í fyrra, rennur út um næstu
áramót.
„Með þessum atburðum, þ.e.a.s.
að Alusuisse hefur gengið úr Atlant-
al hópnum, verða viss þáttaskil í
málinu. Þetta er að vissu leyti
hreinna borð. Það verða einnig skýr-
ari línur í sambandi við byggingu
nýrra virkjanna. Með því að ráðast
í hagkvæmustu stærð af sjálfstæðu
álveri erum við raunverulega líka að
taka ákvörðun um Jökulsárvirkjun
og Fljótsdalsvirkjun," sagði ráð-
herra.
Jón Sigurðsson sagði að þessi
ákvörðun gæti hugsanlega tafið mál-
ið eitthvað, en vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um hvenær endanlegar
ákvarðanir verða teknar.
„Áhugi þessara tveggja fyrir-
tækja, Hoogovens og Gránges á
byggingu nýs álvers, er mjög mikill.
Þau eru búin að gera það upp við sig
að þau vilja ráðast í byggingu 185-
200 þúsund tonna álvers."
Iðnaðarráðherra sagði engu vilja
spá um áhuga annarra álfyrirtækja á
að taka þátt í byggingu nýs álvers.
Bandaríska álfyrirtækið Alumax og
norsku fyrirtækin Elkem Aluminium
og Norsk Hydro hafa sýnt áhuga á
samstarfi við íslendinga um bygg-
ingu nýs álvers. Áhugi þessara og
annarra fyrirtækja verður kannaður
á næstu dögum og vikum. Jón Sig-
urðsson sagðist eiga von á að niður-
Mikið hefur verið rætt um að
einstaklega mikil hlýindi hafi verið á
landinu að undanförnu. Hlýindin
eru þó ekki eins einstök og af er
látið, því undanförin tvö ár hefur
sama blíðan verið á þessum árstíma.
Trausti Jónsson veðurfræðingar
sagði í samtali við Tímann að ef
svipuð hlýindi yrðu í tvær vikur í
viðbót þá gætu menn farið að tala
um að blíðan væri einstök.
Sem dæmi má nefna að desem-
bermánuður fyrir tveimur árum var
hlýjasti desembermánuður í 50 ár.
Fyrstu daga mánaðarins var há-
markshiti á Akureyri 12 stig í nokkra
daga og meðalhiti á sólarhring allt
að því 9.5 gráður. í Reykjavík á
sama tímabili var einnig einstaklega
hlýtt, á bilinu 8-9 stig.
staða í því máli muni fást mjög
fljótlega.
Málið hefur verið rætt í ríkis-
stjóminni. Jón Sigurðsson sagði að
því yrði hraðað eins og hægt væri.
Að undanförnu hafa verið birtar
fréttir af því að blóm séu að springa
út í hlýindunum. Trausti sagði að
slíkt væri ekki einsdæmi og minnti á
að í hitteðfyrra voru birtar fréttir af
því að menn hafi spilað golf milli
jóia og nýárs á á sama tíma og nú er
hafi menn slegið tún í Ártúnsbrekk-
unni sér til skemmtunar.
Aðspurður sagði Trausti að annað
væri ekki að sjá en hlýindi á þessum
árstíma undanfarin ár væm vegna
náttúmlegra sveiflna í veðurfarinu.
„Ef að þetta stendur í hálfan mánuð
í viðbót, þá fer þetta nú að vera
óvenjulegt.“ Sagði Trausti og bætti
því við að hlýindin segðu lítið fyrir
um það hvernig framhaldið á vetrin-
um verður veðurfarslega séð. SSH
- EÓ
Erum fljót að
gleyma veðrinu
Bifreiðaskoðun íslands:
Bílum fækkað á
árinu um 2800
Sala á jólabókum
fer hægt af stað
Jólabókasaian er rétt að fara af
stað samkvæmt upplýsingum sem
Timinn fékk Ljiokkmm af stærri
bókaverslunum á höfuðborgar-
svæðinu. Menn voru einnig sam-
mála um að enn væri of snemmt að
raða bókum í vinsældaröð og engin
ein bók skæri sig úr hvað varðar
sölu.
Búist er við að salan á jólabók-
unum fari ekki af stað að neinu
marki fyrr en eftir 10. desember og
enn er töluvert af bókum sem ekki
hefur verið dreift í verslanir.
Svo virðist að eldra fólk fari fyrr
af stað til að huga að jólabókunum
en mikið er um að fóik komi í
bókabúðirnar til að skoða og spá í
verð bókanna.
Versiunarmennirnir sem talað
var við vom beðnir að nefna
nokkra íslenska bókatitla sem
þeim virtist að seldust mest, eða
fólk sýndi mestan áhuga. Vom
eftirfarandi titlar oftast nefndir:
Jakinn, eftir Ómar Valdimarsson,
Ég og lífið, eftir Ingu Huld Hákon-
ardóttur, Sendiherrafrúin segir frá,
eftir Hebu Jónsdóttur, Davíð
Oddsson, eftir Eirík Jónsson,
Náttvíg, eftir Thor Vilhjálmsson
og Ég heiti ísbjörg, ég er ljón, eftir
Vigdísi Grímsdóttur.
Einnig kom fram að sala á skáld-
sögum fer hægar af stað heldur en
sala á endurminningabókum. SSH
Bílum hér á landi hefur fækkað
um 2800 á fyrstu 11 mánuðum þessa
árs, ef tekið er mið af fjölda þeirra
bíla sem afskráðir em á árinu um-
fram nýskráða. Þann fyrsta desem-
ber höfðu verið afskráðir 9.800 bílar,
en nýskráðir bílar vom 7.000. í
þeirri tölu em bæði bílar og bifhjól.
í nóvember var fjöldi aðalskoðana
kominn í um 74.600 bíla. Auka-
skoðanir vom um 1300 og fjöidi
endurskoðana 9.500. Þar af fór
endurskoðun fram hjá verkstæðum í
2.100 tilfellum en menn geta ráðið
því hvort endurskoðun fer fram hjá
Bifreiðaskoðun íslands eða þeim
verkstæðum um land allt sem hafa til
þess viðurkenningu.
Áður en Bifreiðaskoðun íslands
tók til starfa var skoðunargjaldið
innheimt um leið og mkkað var fyrir
bifreiðaskatt. Bifreiðaeigendur
greiða nú í tvennu lagi það sem áður
var greitt með einum gíróseðli, þ.e.
annarsvegar bifreiðagjöld til ríkis-
ins, sem nemur rúmum 5000 krónum
af meðalstórum bíl og hins vegar
skoðunargjaldið sem er krónur 1900
til Bifreiðaskoðunar íslands, fyrir þá
bíla sem þarf að skoða. - ABÓ
SJÁUMST MAJLW
ENDURSKINI!