Tíminn - 07.12.1989, Síða 5
■> r
Fimmtudagur 7. desember 1989
Tíminn 5
„Plastkortaverslunin“ um 34-35 milljarðar króna á þessu ári:
Erlend kortaúttekt um
80.000 kr. á fiölskyldu
íslendingar greiddu um 26,5 milljarða króna með
krítarkortunum sínum árið 1988. í lok september á þessu
ári var kortaverslunin komin upp í um 25,3 milljarða kr.
(um 400.000 kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu að
meðaltali), en lfldegt að þessi viðskipti verði um 34-35
milljarðar króna áður en árið er úti. Árin 1985 til 1988
hefur úttekt erlendis lækkað úr 22% niður í um 15% allrar
krítarkortanotkunar. Miðað við að hlutfallið lækki ekki
þeim mun meira þrjá síðustu mánuði þessa árs gætu
kortaviðskipti erlendis orðið um 5,2 mflljarðar króna á
árinu - eða sem svarar rúmlega 80.000 krónum á hverja
fjögurra manna fjölskyldu á íslandi að meðaltali.
Yfirlit um notkun kntarkorta
frá árinu 1985, bæði upphæðir og
fjölda úttekta, kemur fram í nýrri
skýrslu Seðlabankans. Veltuaukn-
ing var mest fyrst, um 90% á ári.
Notkun virðist þó enn fara vax-
andi. Þannig var innlend velta nær
30% meiri á 3. ársfjórðungi í ár
heldur en á sama tíma í fyrra, sem
er talsvert umfram verðlagshækk-
anir og enn meira umfram launa-
hækkanir.
Heildarvelta krítarkorta hefur
verið þessi frá 1985 í milljónum
króna:
Millj.alls:Þ.£ t.erlend.
1985 5.397 1.184
1986 10.016 2.013
1987 17.026 3.332
1988 26.278 4.382
1989 (sept.) 25.309 3.711
Þegar litið er á einstaka ársfjórð-
unga vekur athygli, að úttekt er-
lendis á tímabilinu október/des-
ember jafnan er Iítið sem ekkert
minni heldur en á aðal sumarleyfis
tímabilinu, júlí/september, en er
síðan aftur hátt í helmingi minni
janúar/mars. Spurning er hvort
þetta skýrist að hluta til af „Glas-
gowferðunum".
Hitt er kannski ekki síður athygl-
isvert hve kortaúttekt innanlands
eykst jafnan lítið á síðasta fjórð-
ungi ársins - minnkaði m.a.s. á
síðasta ári frá næsta fjórðungi á
undan (sumarleyfistímabilinu).
Hin margfrægu „plastjól“ verða
því ekki lesin út úr yfirliti Seðla-
bankans, nema þá í verslunum í
útlöndum, sem áður er minnst á.
Talið í fjölda úttekta þrefaldað-
ist kortanotkun á síðustu fjórum
árum (1985-1988). í fyrra drógu
landsmenn upp kort til greiðslu í
rúmlega 10 milljón skipti. Enn er
þó notkunin að aukast því í lok
september á þessu ári höfðu menn
notað „plastið“ nærri 9 milljón
sinnum, þ.e. tæplega milljón sinn-
um á mánuði hverjum að meðal-
tali.
Athyglisvert er að tékkanotkun
jókst ekkert minna, nema síður
væri, eftir að kortin komust í hvers
manns vasa. Þannig jókst fjöldi
tékka á árunum 1981-1984 í kring-
um 1 milljón stykki á ári, eða úr 16
í 19 milljón tékka árlega. f fyrra
var fjöldi tékka hátt í 26 milljónir,
auk 10 milljóna krítarkortanóta,
sem áður segir.
Meðalúttekt á krítarkortin tíma-
bilið júlí/september í sumar var
um 2.700 kr. innanlands, en um
6.850 kr. erlendis. -HEI
Ekki aðeins sóðaskapur í reykvískum fjörum:
Skolpmál Seltirninga
í algjörum ólestri
í skýrslu um frárennslismál Sel-
tjarnarness sem gerð var á vegum
heilbrigðisnefndar Kjósarsvæðis
kemur fram að ástandið í skolpmál-
um Seltirninga er mjög slæmt og
getur verið heilsuspillandi.
í heilbrigðisreglugerð segir: „Við
sjó skal skólp leitt út fyrir stór-
straumsfjöruborð, nema heilbrigðis-
nefnd geri ríkari kröfur." í skýrsl-
unni kemur fram að ekkert af ellefu
frárennslisræsum á Seltjamamesi ná
út fyrir stórstraumsfjömborð og að-
eins fimm ræsi ná að einhverju
marki út í fjöruna, hin eru mun
styttri. Þá segir einnig að aðstæður
við Seltjamarnesbæ séu nokkuð sér-
stakar. Ræsin eru mörg og nokkuð
jafnt dreifð um allt nesið. Byggð er
nálægt sjó og þvermál nessins er
ekki mikið og ekkert skjól er fyrir
veðri og vindum. Öll ræsi standa upp
úr á smástraumsfjöru.
Síðan segir: „Það er þess vegna
fátt sem hamlar gegn þeim heilsu-
spillandi aðstæðum sem til staðar
geta verið við núverandi aðstæður,
þrátt fyrir þá sjálfshreinsun sem á
sér stað á skólpinu í sjónum. (Með
sjálfshreinsun sjávar er átt við þá
fækkun gerla er á sér stað er skólpi
er veitt í sjó eins og við núverandi
aðstæður. Fækkunin er háð tíma.)
Það er þess vegna brýnt að unnið
verði að úrbótum sem allra fyrst á
frárennslismálum bæjarins."
Við sérstakar aðstæður getur
tvennskonar hætta stafað af frá-
rennslunum. í fyrsta lagi er fjaran
vinsælt útivistarsvæði og hætta á
smiti er til staðar eins og fyrirkomu-
_ lagið er nú. „Er hér átt við veirusmit
jafnt sem gerlasmit. Umgangur fólks
um svæði þar sem skólp rennur er
alls ekki heppilegur og getur verið
heilsuspillandi."
í öðru lagi er í skýrslunni nefnt að
sjóúði berist oft á tíðum yfir byggð-
ina vegna vinda. „í læknavísindum
er oft talað um „aerogent“ smit, og
er þetta algeng smitleið við ýmsa
sjúkdóma. Veirur berast gjarnan á
milli manna á þennan hátt. Er hér
um mjög fínan úða að ræða sem
getur borist langar leiðir. Veirur
jafnt sem bakteríur sitja á þessum
úða, eða öllu heldur á örfínum
dropum sem mynda úðann. Þess
háttar úði getur myndast við ofan-
greindar aðstæður og borist yfir
Seltjarnarnesbæ og lengt flensufar-
aldur svo dæmi séu tekin. Úðinn sest
einnig á rúður og veggi og þess
háttar. Hætta á smiti/mengun af
coligerlum, saurcoligerlum og veir-
um er þess vegna til staðar við
núverandi aðstæður."
í skýrslunni er einnig tekið fram
að hætta sé á að örverur berist beint
í matvæli með úðasmiti og er í þessu
sambandi nefnd sérstaklega mat-
vælafyrirtæki sem sett hafa verið á
fót við austurströndina sem liggur
mjög nærri sjó. „Líkurnar á að upp
geti komið matareitrun sem rekja
má til skólpmengunar er því að sama
skapi til staðar. Hversu líklegt það
hins vegar er að slíkt gerist er afar
erfitt að geta sér til um en nægilegt
er að möguleikinn sé fyrir hendi,“
segir að lokum í skýrslunni. SSH
Hálendisvegir
illa farnir
Kjalvegur er mjög illa farinn
vegna úrrennsla og vatna-
skemmda. Um fimm metra skarð
er í veginum norðan við Hvítár-
vatn, sem myndast hefur í vatna-
vöxtum undanfarið. Þá hafa einnig
minni skörð myndast í veginn og er
hann torfarinn. Vegurinn mun hins
vegar vera snjólaus. Búið er að
setja upp lokunarmerki á veginn til
að vara vegfarendur við ástandi
vegarins.
Vegunum um Uxahryggi og
Kaldadal var formlega lokað á
mánudag, til að fólk færi sér ekki
að voða á þeim slóðum, enda um
millibyggðavegi að ræða. Vegurinn
er mjög grafinn vegna hlýinda
undanfarið og er um tveggja metra
skarð í veginum eftir vatnavexti,
auk þess sem fjölmörg smærri
skörð eru sem gera veginn torfar-
inn og ófæran fólksbílum.
Vegaeftirlit Vegagerðar ríkisins
hefur ekki haft spurnir af Sprengis-
andsleið, en þar er líklega snjór.
Formlegt eftirlit með hálendisveg-
um er ekki á veturna og því ekki
reglulega fylgst með ástandi þeirra.
Búast má við að aðrir hálendisvegir
séu í svipuðu ástandi og ofan-
greindir vegir. - ABÓ
Borgaraflokkur:
Á móti vaxtahækkun
Á ríkisstjórnarfundi í gær lögðust
ráðherrar Borgaraflokksins gegn
ákvörðun um hækkun vaxta á lánum
sem veitt verða úr Byggingarsjóði
ríkisins. Rök ráðherra Borgara-
flokksins voru þau að ekkert réttlæti
slíka vaxtahækkun miðað við núver-
andi aðstæður í þjóðfélaginu.
Skip í
stað
Heklu
Ríkisskip hafa tekið á leigu skip
hjá norsku skipafélagi til að anna
flutningum, á meðan viðgerðir fara
fram á Heklunni, en sem kunnugt er
laskaðist hún í brotsjó fyrr í vetur.
Skipið sem hér um ræðir heitir
Tananger og er frá Stavangerske
skipafélaginu. Það kom hingað til
lands um síðustu helgi og er nú í
sinni fyrstu ferð. Áætlað er að
skipið, sem er álíka uppbyggt og
Heklan en burðarmeira, verði í
siglingum fyrir Ríkisskip a.m.k. út
desember og væntanlega til janúar-
loka, en þá er búist við að Hekla
verði tilbúin til siglinga á ný. Áhöfn-
in er að hluta til norsk og hluta til
íslensk. - ABÓ/Tímamynd Árni Bjarna.