Tíminn - 07.12.1989, Page 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 7. desember 1989
iiiiiiiiiiiiiiiii bækur [uwiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiimi^
Burkíirii von Möllcnhcinv
Kcchhcrg haron
BISMARCK
Orrustuskipið
Bismarck
Hjá Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Orrustuskipið
Bismarck en fyrr á árinu fannst
flak þessa mikla skips.
Sigling orrustuskipsins
Bismarcks frá Póllandi norður fyrir
ísland og síðan suður vestan við
landið til síns endanlega
lokastaðar er einn af áhrifamestu
viðburðum síðari heimsstyrjaldar
og raunar sjóhemaðarins fyrr og
síðar. Vestur af Reykjavík skaut
Bismarck í kaf omistuskipið
Hood, stærsta og best búna skip
breska flotans, og heyrðust
drunumar frá þeirri viðureign til
Reykjavíkur. Síðan sendu Bretar
32 herskip á vettvang ástunt
flugvélum til þess að ráða
niðurlögum þessa stærsta
herskips veraldar. Það tókst að
lokum og munaði þá hársbreidd
að Bismarck slyppi til hafnar í
Brest á Bretagneskaga sem
Þjóðverjar réðu.
Af 2200 manna áhöfn komust
115 menn lífs af úr viðureigninni.
Um 40 ámm seinna tók einn
þeirra, von Mullenheim-Rechberg
barón, foringi á skipinu, sér fyrir
hendur að rita sögu þessarar
stórbrotnu siglingar.
Þýðandi bókarinnar er Halldór
Vilhjálmsson. Bókin er 327 bls. að
stærð og prýdd fjölda ljósmynda.
Prentsmiðjuvinnu annaðist
Steinholt hf. en bókband
Félagsbókbandið - Bókfell hf.
Gerð kápu var í höndum Guðjóns
Inga Haukssonar.
STARRNIR OKKAR
Mál ofl m«rmlno
Stafabók
Hjá Máh og menningu er komin
út ný stafabók, Stafirnir okkar.
Bókin er ætluð fyrir ung böm sem
vilja læra að þekkja stafina. Því em
einungis notaðir stóm stafirnir,
myndir hafðar skýrar og orð
einíöld. Höfundur mynda er Rod
Campell.
Vasabók
Péturs
Bókaútgáfan Punktar sendir frá
sér nýja bók eftir Pétur
Gunnarsson: Vasabók. í formála
segir höfundur m.a.: „Það sem
gerir lífið í senn heillandi og
þungbært er sú staðreynd að það
líður. Við fálmum eftir því sem
huga og hendi er næst í von um
að fá lífið til að staldra við í
endurminningu, ljósmynd,
myndbandi. Það hefur komist í
vana hjá mér að vera með
minniskompu við hendina, svipað
og menn bera myndavél og smella
af þegar eitthvað minnilegt ber
fyrir augu ... Þessi htla bók er
hugsuð sem lofsöngur til
augnabliksins. Þessu sem jafnan
er slegið á frest eða látið þoka fyrir
því sem er í vændum eða skákað
í skuggann af því sem hefði átt að
vera. Samt er augnablikið það
eina sem við eigum með vissu. Og
þótt það sé ekki stórt þá rúmar
það samt veröldina. Hver veit
nema í andránni búi sjálft frækorn
hamingjunnar? Ef við leyfðum þvi
að skjóta rótum. Ef við leyfðum því
að springa út?“
minningar eids
Kristján Kristjánsson
Minningar
elds
Hjá Almenna bókafélaginu er
komin út bókin Minningar elds,
fyrsta skáldsaga Kristjáns
Kristjánssonar sem áður hefur
sent frá sér tvær ljóðabækur:
Dagskrá kvöldsins og Svartlist.
Minningar elds segja frá
sérkennilegri vináttu tveggja
manna, Axels og Orra. í sögunni
rifja þeir upp ýmis atvik frá þeim
23 árum sem vinátta þeirra hefur
staðið - atvik sem öll tengjast á
einn eða annan hátt þeim
voveiflega atburði sem hvað mest
hefur mótað lífshlaup þeirra.
Kristján Kristjánsson er 29 ára
að aldri og búsettur á Akranesi.
Minningar elds er 24 bls. að stærð.
Mynd á kápu er eftir Aðalstein
Svan Sigfússon. Úrvinnslu
disklinga, umbrot, filmuvinnu og
prentun annaðist Prentstofa G.
Benediktssonar, bókin var bundin
í ArnarfeUi hf.
Furður geims
og manna
Mál og menning hefur hafið
útgáfu á nýjum flokki fræðibóka
sem í íslenskri útgáfu hefur hlotið
nafnið Gluggi alheimsins.
Tvær bækur koma út í þessum
flokki: Himingeimurinn - sólir -
stjömur - gervitungl - geimtækni
sem fjallar um hnetti, sólkerfi og
stjömubelti himingeimsins en
einnig starfsemi manna og
tilraunir úti í geimnum. Alfheiður
Kjartansdótti þýddi.
Sjö furðuverk veraldar og fleiri
stórvirki segir frá
stórkostlegustu
byggingarafrekum
veraldarsögunnar allt frá
piramídunum miklu til
Eiffelturnsins og
Frelsisstyttunnar. Hér em
byggingarafrek fornaldar skoðuð
í ljósi nútímatækni.
Hvor bók um sig er 64 blaðsíður
og hefur atriðaorðaskrá og
efnisyfirlit. Báðar bækumar em
mikið myndskreyttar.
Brynjólfs
Mál og menning hefur gefið út
bókina Brynjólfur Bjarnason,
pólitísk ævisaga. Að stofni til er
bókin viðtöl sem Einar Ólafsson
rithöfundur tók við Brynjólf í
desember 1987 og vorið 1988 þar
sem þeir ræða ítarlega
stjórnmálaferil Brynjólfs sem var
einn af helstu leiðtogum íslenskra
sósíalista um árabil. Meðal þess
sem Brynjólfur ræðir um er hinn
frægi dómur sem hann fékk í
„Guðlastsmálinu" svonefnda fyrir
ritdóm um Bréf til Lám, stofnun
Kommúnistaflokksins og síðar
Sameiningarflokks alþýðu-
sósíahstaflokksins sem varð til við
sammna kommúnista og vinstri
arms Alþýðuflokksins. Brynjólfur
ræðir setu sína í hinni frægu
Nýsköpunarstjóm
sjálfstæðismanna,
alþýðuflokksmanna og sósíahsta,
stofnun Alþýðubandalagsins og
afstöðu sína til þess og gerir grein
fyrir lífsafstöðu sinni og heimssýn
á skýran og greinargóðan hátt,
þar sem meðal annars er vikið að
heimspekiritum hans. Einar
Ólafsson hefur ritað inngang þar
sem hann rekur póhtíska sögu
Brynjólfs og setur í samhengi og í
bókarauka em birtar nokkrar
síðustu ritgerðir Brynjólfs um
póhtísk efni. Bókin er prýdd fjölda
mynda, auglýsingastofan Næst
annaðist kápugerð og Oddi sá um
prentun. Hún er 171 blaðsíða.
Brenndu þig
ekki upp
Út er komin hjá Máh og
menningu í handbókaflokknum
Betra líf bókin Útbmnninn? -
Farðu betur með þig (Brann inte
utdig!) eftirBarbroBronsbergog
Ninu Vestlund, í þýðingu Ólafs G.
Kristjánssonar.
Álag í vinnu og heima fyrir,
uppsöfnuð þreyta og síðast en
ekid síst streita em í sífeht ríkari
mæh tahn orsök ýmissa sjúkdóma
og andlegrar sem líkamlegrar
vanhðunar. Menn grípa ekki nógu
fljótt í taumana — jafnvel þótt þá
gmni að ekki sé allt með fehdu —
og afleiðingamar láta ekki á sér
standa: Fyrr en varir em þeir
„útbmnnir".
Þessi bók tekur á þessum
vanda. Höfundarnir, sem em
félagsráðgjafar og hafa auk þess
reynt það sjálfir að hafa gengið
mjög á eldsneytisforða sinn, taka
fyrir ýmsa orkufreka þætti, svo
sem vinnuálag, tímaskort, '
ábyrgð, kröfur og skyldur. Bent er
á leiðir til að koma í veg fyrir að
menn gangi alveg fram af sér sem
og til að byggja þá upp sem em
„útbmnnir".
Útbrunninn? - Farðu betur
með þig er 170 bls. og prentuð í
Prentsmiðjunni Odda.
Auglýsingastofan Næst hannaði
kápu.
,S»
Dagbók barns
Setberg hefur sent frá sór
bókina Fyrstu órin mín - Dagbók
barnsins.
Þetta er ný, falleg htprentuð
bók sem varðveitir minningar um
bamið frá fæðingu og næstu árin.
Blá fyrir drengi og bleik fyrir
stúlkur.
Bók sem veitir foreldmm og
bömum ómetanlega skemmtun
og geymir dýrmætar minningar:
Hvenær tók ég fyrstu tönnina?
Fyrstu orðin. Skemmtilegustu
leikfélagarnir. Fyrsta ferðalagið.
Svona teiknaði ég. Fyrsta
barnaboðið. Vísurnar sem ég
lærði. Fyrstu jóhn. Hárlokkur og
ahar myndirnar sem líma má inn í
bókina.
Þetta er bók sem verður
ömgglega skoðuð aftur og aftur.
ÁRMANN KR. EINARSSON
Ný bók í bóka-
flokknum Ævintýra-
heimur Ármanns:
Víkingaferð
til Surtseyjar
Vaka-Helgafeh hefur gefið út
bókina Víkingaferð tU Surtseyjar
eftir bamabókahöfundinn
góðkunna Ármann Kr.
Einarsson.
Ármann Kr. Einarsson hefur
heihað böm og unglinga með
sögum sínum og frásagnargleði í
áratugi. Víkingaferð tU
Surtseyjar er þar engin
undantekning. Hún er áttunda
bókin í bókaflokknum
Ævintýraheimur Ármanns, en
upphaflega kom bókin út árið
1964 og er löngu uppseld.
í Víkingaferð tU Surtseyjar
segir frá félögunum Ingólfi,
Hjörleifi og Vilhjálmi sem fara í
spennandi leiðangur til Surtseyjar
skömmu eftir að hún reis úr sæ í
nóvember 1963. Ungir sem aldnir
fylgdust með þessu sérstæða
náttúmundri og margir létu sig
dreyma um að komast í
könnunarleiðangra til hinnar
ungu eyjar.
Þeir félagar láta drauminn
rætast og sigla til eyjarinnar
dularfuhu nótt eina. Þegar þangað
er komið búa óvænt atvik og
hættur við hvert fótmál og þeir
lenda í hinum mestu
mannraunum.
Prentsmiðjan Edda í Kópavogi
annaðist prentvinnslu og
bókband. Bókin er 106 blaðsíður
'og er skreytt myndum eftir
Hahdór Pétursson, en kápumynd
teiknaði Jean Posocco.
Þorgeir í
Gufunesi
Skráð af Atla Magnússyni
blaðamanni
Snemma á þriðja áratugnum tók
ungur og lágvaxinn bóndasonur
af Kjalamesi að vekja stórathygh
með því að bylta um frægustu
glímugörpum þjóðarinnar, einum
af öðmm, og setja met í frjálsum
íþróttum sem sum stóðu á annan
áratug. Hér var á ferðinni Þorgeir
Jónsson frá Varmadal sem síðar
var ætíð kenndur við Gufunes,
en Bókaútgáfan öm og örlygur
hefur gefið út bók um Þorgeir sem
skráð er af Atla Magnússyni
blaðamanni.
Þegar fræknum
íþróttamannsferh sleppti gerðist
Þorgeir eigandi og ræktandi
margra nafntoguðustu
stökkhesta og vekringa landsins.
Segja má að dynurinn undan
hófum þeirra á
kappreiðavöhunum hafi borist inn
á hvert heimili landsins ár eftir ár
- lengi verður nafn Þorgeirs í
Gufunesi baðað ljóma í huga
hestamanna.
En Þorgeir var sérstæður maður
í fleira tihiti en þessu. Hann var
ennfremur furðulegur og
ógleymanlegur persónuleiki.
Hann var maður hins óhefta
frelsis og viðemis í dagfari sínu,
barn og heimspekingur í senn,
sem með óvæntum
athugasemdum og ábendingum
gat séð ýmis vandamál daglegs
lifs í spánnýju ljósi, sem gerði þau
léttvæg og kannski einkum
brosleg. Það vom ekki ahtaf allir
sem fylgdu honum eftir á
„fluginu" til að byrja með — en
gerðu það eftir á. I hjartalagi hans
vom nefnilega sannindi fólgin
sem ekki em á hverju strái. Bókin
um Þorgeir í Gufunesi er til orðin
úr samtölum við á fimmta tug
manna, fólk sem þekkti
„Gufunessgoðann" lengri eða
skemmri tíma og þótti vænt um
hann - svo ekki sé sterkara að orði
kveðið.
Bókin um Þorgeir í Gufunesi er
prentuð í Prentstofu G.
Benediktssonar og bundin hjá
Amarfelh hf. Kápugerð annaðist
Auglýsingastofa P og Ó.
Bragskógar
Út er komin hjá Hörpuútgáfunni |
ný ljóðabók eftir Sveinbjöm
Beinteinsson. Bókin heitir
Bragskógar. í henni em ljóð sem
tengjast og gróðri, skógrækt og
landvemd. Einnig ljóð sem vísa
nokkuð út fyrir hversdagslegan
vettvang, sum þeirra byggð á
draumum.
Bragskógar er 48 bls. Prentuð í
Prentverki Akraness hf.