Tíminn - 09.12.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
FRÉTTAYFIRLIT
STRASBOURG - Evr
ópubandalagiö sendi Mikhaíl
Gorbatsjof forseta Sovétríkj-
anna ákveðin skilaboö um það
að bandalagið styddi heilshug-
ar í viðleitm hans til umbóta í
efnahaaslífi og stjórnmálalífi
Sovétríkjanna og óskuð eftir
nánari tengslum og samvinnu
við efnahagslega og stjórn-
málalega uppbygginqu Austur-
Evrópu. í drögum að fyrirhug-
aðri lokayfirlýsingu leiðtoga-
fundar Evrópubandalagsrikj-
anna sem hófst í gær er lýð-
ræðisþróuninni í Austur-Evr-
óþu ákaft fagnað.
MANILA - Corazon Aquino
forseti Filiþseyja hóf harða
árás á pólitíska andstæðinga
sína í kjölfar valdaránstilraun-
ar hluta hersins. Aquino sagði
að varaforseti sinn og tveir
aðrir stjórnarandstæðingar
tengdust uppreisnartilraun
hersins. Sagðist hún svo sann-
arlega ekki ætla að segja af
sér embætti. Á fundi þar sem
hún ávarpaði um 100 þúsund
stuðningsmenn sína skoraði
hún á Salvador Laurel vara-
forseta að segja af sér. Hún
hvatti hann til þess að skýra þá
tilviljun að hann væri ætíð út úr
bænum þegar valdaránstil-
raunir hefou verið gerðar.
JERÚSALEM - ísraelar
ákváðu að senda utanríkisráð-
herra sinn, Moshe Arens, til
Washington til að hitta að máli
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna og Egyptalands. Er talið
að þetta geti orðið fyrsta raun-
hæfa skrefið í átt til friðarvið-
ræðna Israela og Palestínu-
manna. Á meðan juku ísra-
elskir hermenn á hernumdu
svæðunum viðbúnað sinn og
útgöngubann var sett á nærri
miíljón Palestfnumenn. Nú um
helgina eru tvö ár frá því upþ-
reisn Palestfnumanna gegn
hernámi Israela á Vesturbakk-
anumn og f Gaza hófst.
BAGDAD - írakar segja að
geimskot þeirra hafi hrært
heldur betur upp f óvinum
sínum. Segja stjórnmála-
skýrendur ao ef fréttirnar af
geimskotinu séu sannar, þá
muni fara um nágrannaríkin,
sérstaklega þó Israela, Sýr-
lendinga og írana sem eru
helstu andstæðingar Iraka, á
mismunandi forsendum þó.
GENF - Sovétmenn og
Bandaríkjamenn luku fyrstu
lotunni í afvopnunarviðræðun-
um í Genf í góðu andrúmslofti
og sögðu báoir aðilar að náðst
hafi töluverður árangur í átt til
fækkunar í kjarnavopnabúrum
risaveldanna.
llllllllllllllllll AÐ UTAN lllllllllllllllllllllllllllllllllllBlllllllllllllllllllllllllllllllll
Líbanon:
Sýrlendingar stoðva
átök Shíta í Beirút
Sýrlenskir hermenn gripu inn
í átök stríðandi fylkinga Shíta í
vesturhluta Beirút í gær eftir
sólarhrings langa blóðuga bar-
daga. Sýrlensku hermennirnir
héldu inn í að minnsta kosti
fimm hverfi þar sem bardagarnir
hafa verið harðastir vopnaðir
rifllum og elflaugum. Gengu
þeir á milli sveita hinna öfgafullu
Hizbollah samtaka og Amalliða
sem berjast um völdin í samfé-
lagi Shíta í Líbanon.
Samkvæmt heimildum frá sjúkra-
húsum í Líbanon hafa að minnsta
kosti tíu manns fallið í átökum
Shítanna og rúmlega tuttugu særst
alvarlega. Þá féllu að minnsta kosti
tveir Shítar fyrir kúlum sýrlensku
hermannanna í gær.
Sjónarvottar segja að sýrlenskir
hermenn hafi umkringt vopnaða
hópa beggja aðila í Bourj Abou
Haidar hverfinu þar sem bardagar
voru harðastir, afvopnað þá og ekið
þeim burt á vörubíium. Ekki er
vitað hvert þeir voru fluttir.
Strætin í vesturhluta Beirútborgar
voru víða lituð blóði og gler og
annar brak liggur eins og hráviði út
um allt eftir átökin.
Annars bar það annað til tíðinda
í málefnum Líbanon að Antoine
Lahd leiðtogi hersveita kristinna
manna í suðurhluta Líbanon sem
njóta dyggs stuðnings ísraela fór
fram á það við ísraelsku ríkisstjórn-
ina að hún komi Michel Aoun leið-
toga kristinna manna í Lfbanon til
hjálpar ef múslímar og Sýrlendingar
þrengja um of að honum.
ísraelar aðvöruðu Sýrlendinga í
síðasta mánuði þegar spennan var
sem mest og sögðust ekki standa
aðgerðarlausir hjá ef Sýrlendingar
beittu herliði sínu til að stokka upp
valdajafnvægið í Líbanon.
Þá er Arababandalagið að koma á
fót enn einni sendinefndinni sem
ætlað er að koma friði á í Líbanon.
Pólskir fang-
ar falla
í róstum
Þrír pólskir fangar létu lífið í
átökum sem brutust út í fimm fang-
elsum í Póllandi í gær eftir að pólska
þingið ákvað að almenn sakarupp-
gjöf næði ekki til manna er hafa gert
fleiri en eina líkamsárás.
Andrzej Cubala talsmaður dóms-
málaráðuneytisins skýrði frá því að
þrír fangar hefðu látið lífið þegar
fangaverðir beittu táragasi gegn að
minnsta kosti þúsund föngum sem
tekið höfðu stærsta hluta Czarne
fangelsinu í Koszalinhéraði á sitt
vald.
Cubala sagði að einn þeirra hafi
fallið fyrir byssukúlu, en ekki var
vitað af hverju hinir tveir létust. Tíu
manns liggja á sjúkrahúsi með
skotsár. Ekki er ljóst hvort fanga-
verðir skutu manninn eða hvort
fangarnir hafi komist yfir skotvopn.
Sakaruppgjöfin sem þingið sam-
þykkti í gær bjargaði þremur morð-
ingjum frá gálganum, en þeir þurfa
að dúsa innan veggja fangelsa það
sem eftir er, auk þess sem 17 þúsund
menn sem gerst hafa sekir um minni-
háttar líkamsárásirfengu frelsi. Hins
vegar hafnaði þingið samþykkt öld-
ungadeildarinnar um að dómar sí-
brotamanna yrði styttur um
fjórðung. Það kom róstunum af stað.
Móðir með barn sitt í ónýtri íbúðabiokk í vesturhluta Beirút, en í gær gengu
sýrlenskir hermenn milii stríðandi sveita Shíta í borginni.
Biskayaflói:
Eldur í
sovésku
skipi
Tveir sjómenn fórust þegar
eldur kom upp í sovésku fiskverk-
smiðjuskipi á Biskayaflóa í gær.
Áttatíu sjómönnum var hins veg-
ar bjargað.
Það var belgískt vöruflutninga-
skip sem fyrst kom að hinu brenn-
andi skipi 550 mílur út af Land’s
End á suðvesturodda Englands.
Flutningaskipið skaut út björgun-
arbátum til að bjarga sovésku
sjómönnunum á meðan breska
strandgæslan kom boðum til ná-
lægra skipa sem síðan komu til
hjálpar.
Einn áhafnarmeðlima fannst
látinn á þilfari sovéska skipsins
og annar drukknaði.
Áhöfninni á skipinu var síðan
komið fyrir á sovésku vöruflutn-
ingaskipi sem var í grenndinni.
Austur-Þýskaland:
Opinber ákæra á hendur
Honecker og félögum birt
Einungis heilsulcysi Erichs
Honeckers fyrrum leiðtoga
Austur-Þýskalands kom í veg
fyrir að hann yrði færður í
fangelsi þegar hann og aðrir
fyrrum forystumenn kom-
múnistaflokksins voru setti í
stofufangelsi í lúxusíbúða-
hverfi flokksforystunnar
utan við Berlín fyrir viku.
Þetta kom fram í máli tals-
manns ríkissaksóknara Aust-
ur-Þýskalands í gær þegar
birt var ákæra á hendur Hon-
ecker og sex helstu sam-
starfsmanna hans vegna spill-
ingar og fjárdrátts.
Ákæran var birt einungis tveimur
klukkustundum áður en sérstakt
neyðarþing austurþýska kommún-
istaflokksins hófst, en þar munu
2700 fulltrúar ræða framtíð flokksins
og þær tillögur sem sérstök tuttugu
og fimm manna nefnd flokksins mun
leggja fyrir þingið.
Erich Honecker, fyrrum leiðtogi
austur-þýskra kommúnista.
Nefndin sem var skipuð á mið-
stjórnarfundi flokksins síðastliðinn
sunnudag þegar stjórnarnefndin var
rekin og miðstjórnin leyst upp, ræddi
við helstu leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar á fimmtudag. Eftir þær við-
ræður ákvað nefndin, sem er undir
forsæti Hans Modrows forsætisráð-
herra landsins sem er einn hinna fáu
háttsettu kommúnista sem ekki er
talinn tengjast spillingunni, að leggja
til að kosningar fari fram 6. maí, ný
frjálslynd stjórnarskrá yrði samin og
að öryggislögreglan yrði leyst upp og
lögð niður.
UMSJÓN:
Hallur
Maqnússon
Borgaralegur vettvangur þjarmar að tékkneskum kommúnistum:
Vilja Havel sem forseta
Borgarlegur vettvangur þjarmar
nú að tékkneskum kommúnistum
og krefst þess að Gústav Husak
forseti Tékkóslóvakíu segi af sér.
Hyggjast samtökin stinga upp á
leikritaskáldinu Vaclav Havel,
þekktasta leiðtoga sínum, sem arf-
taka Husaks sem forseta landsins.
Borgaralegur vettvangur hefur
heitið því að styðja kommúnistann
Marian Calfa sem forsætisráðherra
Tékkóslóvakíu svo fremi sem hann
myndi ríkisstjóm sem samtökun-
um er þóknanleg. Hins vegar
standa samtökin fast á kröfunni
um afsögn Husaks, enda tók hann
við stjórninni íTékkóslóvakíu eftir
að Vorið í Prag var drepið af
herjum Varsjárbandalagsins.
Calfa var skipaður forsætisráð-
herra á fimmtudaginn þegar Ladi-
slav Adamec sagði óvænt af sér
embætti vegna þess sem hann kall-
aði óeðlilegs þrýstings Borgaralegs
vettvangs.
Borgaralegur vettvangur segist
samþykkja Calva, sem er Slóvani,
ef Tékki sem ekki hefur tekið þátt
í starfi kommúnista verði forseti
landsins.