Tíminn - 09.12.1989, Síða 5

Tíminn - 09.12.1989, Síða 5
Laugardagur 9. desember 1989 Tíminn 5 Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra segist sannfærður um að fljótlega komi fram, í einhverri mynd, tillögur um afvopnun n llegun nhvei rgi is 1 al ka á kröfi iim 0 kkaru imafi /0 Pl 1 Ul ná h öfun um vafa um það að mjög fljótlega fari að koma fram í einhverri mynd, framkvæmd á tillögum íslendinga á vettvangi NATO um viðræður um afvopnun í og á höfunum. Forsætisráðherra telur þó að það sé annarra en íslendinga að móta þær tillögur. Sem kunnugt er Iýsti Steingrímur Hermannsson vonbrigðum sínum, á ráðherrafundi NATO fyrir skömmu, með að Bush Bandaríkjaforseti var ekki tilbúinn til að ræða slíkar tillögur á leiðtogafundi með Gorbatsjov Sovétleiðtoga á Möltu. Bandaríkjaforseti sagði slíkar viðræður ekki tímabærar. „Við höfum sem betur fer haft okkur sífellt meira í frammi innan bandalagsins. Ég sagði það á meðan ég var utanríkisráðherra að við hefðum gert allt of mikið af því að hlusta og láta aðra taka ákvarðanir fyrir okkur. Sem betur fer hefur það breyst og við munum halda áfram á sömu braut á meðan þessi ríkisstjórn situr,“ sagði Steingrímur í samtali við Tímann í gær. „Það er talað um það sífellt meira innan stofnunarinnar að ekki verði hjá þessu komist, og allir þekkja mikla áherslu Rússa á þessum sviðum. Ég tel að við eigum áfram að leggja áherslu á afvopnun á höfunum og álít það afar mikilvægt vegna þeirrar áhættu sem fylgir kjarnorkuvígbúnaði á og í höfunum. Við megum þar hvergi slaka á okkar kröfum," sagði Steingrímur. Forsætisráðherra sagði þessar til- lögur enn á umræðustigi og margs- konar samkomulag koma til greina í þessum efnum, allt frá því að stór- veldin létu vita um ferðir skipa sinna, til þess að ákveðin vopn yrðu bönnuð á höfunum. Þá hefðu einnig skotið upp kollinum róttækar hug- myndir s.s. að banna ætti alla notkun og meðferð kjarnorku á höfum úti, bæði kjarnorkuvopn og kjarnorku- knúin skip. „Sumir hafa bent á það að líklega væri þessi samgönguleið yfir Atlandshafið, sem er mjög mikilvæg fyrir NATO, best tryggð með því að öll kjarnorka væri fjarlægð úr höfun- um, vegna þess að Vesturveldin hefðu gífurlega yfirburði yfir Aust- antjaldsríkin í skipakosti,“ sagði forsætisráðherra. Steingrímur segir það ekki vera hlutverk íslendinga að leggja fram tillögur um hvar skuli fækka kjar- orkuvopnum og hvernig skuli að því staðið. Aðal atriðið sé að það komist á dagskrá og byrjað sé að ræða kjarnorkuafvopnun í höfunum inn- an Atlandshafsbandalagsins. Fjölmiðar í Bandaríkjunum hafa greint frá afstöðu íslendinga og jafn- framt að margt benti til að fleiri ríki innan Atlantshafsbandalagsins muni knýja á um umræður um eyðingu kjarnavopna í höfunum. Þau lönd sem nefnd hafa verið sem hugsanleg- ir bandamenn íslendinga í þessu máli eru; Noregur, Danmörk, Kan- ada, Belgía og Tyrkland. Sömu fjölmiðlar halda því fram að fyrir utan sjálf Bandaríkin muni hörðust andastaða við slíkar tillögur koma frá Bretum og Frökkum. Mjólkurbú Flóamanna, myndin er tekin fyrir 1935. Húsið var teiknað af Guðjóni Samúelssyni en var rifið í kringum 1960. Mjólkurbú Flóamanna á tímamótum: Sextíu ára framþróun kringum 38 miljónir. Starfssvæðið hefur líka stækkað í áranna rás, fyrsta starfsárið voru Flóamenn ein- ir, en með árunum bættist við og í dag eru innleggjendur allt frá Öflusi í vestri að Núpsvötnum í austri og eru nú 548 talsins. Um 120 manns vinna að staðaldri hjá Mjólkurbúinu og er það einn stærsti atvinnurekandi á Selfossi. Má í raun segja að beint eða óbeint grípi tilvist Mjólkurbúsins inn í Iíf flestra íbúa Arnes-, Rangár- og Vestur-Skaftafellsýslna. Sú mjólk sem síðan er keyrð óunnin vestur yfir Hellisheiði er burðarásinn í starfssemi Mjólkursamsölunnar í Reykjavík. I stjórn Mjólkurbús Flóamanna eiga sæti, Hörður Sigurgrímsson Holti sem er formaður, Snorri Þor- valdsson Akurey, Páll Lýðsson Litlu Sandvík, Magnús Sigurðsson Birt- ingahloti og Kjartan Magnússon Hjallanesi. Birgir Guðmundsson hefur verið mjólkurbússtjóri frá 1987. Frá Sigurði Boga Sævarssyni fréttaritara Tímans á Selfossi. „Á 60 árum hefur myndast heil- mikil saga,“ sagði Birgir Guðmunds- son bústjóri Mjólkurbús Flóamanna á blaðamannafundi nýverið í tilefni af því að þann dag voru liðin rétt 60 ár frá því að fyrsta mjólkin var lögð inn í búið. Auk þess sem saga búsins og starfssemi voru kynnt var nýjasta framleiðsluafurðin, dj úpsteiktur Camenbertostur, kynntur en hann kemur í verslanir nú á allra næstu dögum. Þá er að koma út samhliða afmælinu 60 ára afmælisrit, sem Páll Lýðsson í Litlu Sandvík hefur skrifað. Það var Flóaáveitan, öðru fremur sem varð undirrót þess að í upphafi var ráðist í það af Flóamönnum að byggja mjólkurbú. Með tilkomu hennar margfaldaðist mjólkurfram- leiðsla að sama skapi og heyfengur og í áveitulögum er bygging mjólk- urbús talin sem hluti af heildarfram- kvæmdum. Lokið var við áveitu- framkæmdir 1927 og fyrsta mjólkin svo móttekin 5. desember 1929, í nýbyggðu mjólkurbúshúsi, sem Guðjón Samúelsson teiknaði. Síðan þá hefur orðin sífelld framþróun bæði á sviði tækniþróunnar, vöru- framleiðslu og svo mætti lengi telja. Er Mjólkurbúið í dag mjög framar- lega á sviði tækninýjunga og hefur verið brautryðjandi margra nýjunga í mjólkuriðnaðinum. Húsakostur Mjólkurbúsins var endurnýjaður í áföngum á árunum í kringum 1960. Það hefur oft verið haft á orði, að öðru fremur hafi það verið Mjólkurbúið og KÁ sem hafi verið aflvakar stígandi byggðaþró- unnnar á Selfossi því það er stað- reynd að á meðan að þessi fyrirtæki voru í sem mestum viðgangi, óx íbúafjöldi á Selfossi hvað mest. Var vöxtur þeirra nokkuð samstiga fram- an af, en lengstum var stjórnarfor- maður Mjólkurbúsins, Egill Thorar- ensen kaupfélagstjóri. Til gamans má geta að fyrsta starfsárið voru innlagðir mjólkur- lítarar 1.2 miljón lítra en eru í dag Núverandi stjórn og mjólkurbússtjóri. F.v. Kjartan Magnússon, Hjallanesi Landssveit, Magnús H. Sigurðsson, Birtingaholti Hrunamannahreppi, Birgir Guðmundsson, mjólkurbússtjóri, Hörður Sigurgrímsson, formaður stjórnarinnar, Holti Stokkseyrarhreppur, Snorri Þorvaldsson, Akurey V-Landeyjum og Páll Lýðsson, Litlu Sandvík Sand víkurhreppi. r t.v/i\i\sju i «nr Keflavík Magnús Haraldsson Jóhann Einvarðsson Drifa Sigfúsdóttir Aðalfundur fulltrúarráðs framsókn- arfélaganna í Keflavík verður haldinn að Glóðinni þann 09.12 1989 kl. 16.00 kl.16.00 1 .Almenn aðalfundarstörf. 2. Kosningar: formaður til eins árs 4 aðalmenn í stjórn 4 varamenn í stjórn 2 endurskoðendur kl.16.45 3. Bæjarmál: Framsögu hafa: Magnús Haraldsson Drífa Sigfúsdóttir 4. Sveitarstjórnarkosningar: lögð fram tillaga frá stjórn um kosninganefnd. 5. önnur mál. kl.18.00 Aðalfundur hússtjórnar skýrsla stjórnar og reikningar, umræður og atkv.gr., kosning stj. kl. 18.45 Létt máltíð - Sérmál fundarins: Jóhann Einvarðsson alþingismaur ræðir um breytingar á lögum um verkaskiptingu ríkis og sveitar. Jólafundur Félags framsóknar- kvenna í Reykjavík verö- ur að Hótel Lind, Rauð- arárstíg 18, mánudag- inn 11. desember kl. 20.00. Hin árlega jóla- dagskrá með jólapökk- um, súkkulaði og tertum. Gestur fundarins verður Haraldur Ólafsson, lekt- or. Hafið með ykkur gesti og munið eftir jóla- pökkunum. Stjórnin.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.