Tíminn - 09.12.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn
DAGBÓK
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á
morgun, sunnudag. Kl. 14:00 er frjálst
spil og tafl. Kl. 20:00 dansað.
Aðventusamkoma
Ámesingakórsins
Árnesingakórinn í Reykjavík heldur
aðventusamkomu í Risinu, Hverfisgötu
105, sunnudag 10. des. kl. 15:00.
Kaffihlaðborð, jólahugvckja, kórsöng-
ur og hljóðfæraleikur.
Jólafundur
Kvenréttindafélags íslands
Kvenréttindafélag íslands heldur jóla-
fund sinn að Hallveigarstöðum mánudag-
inn 11. des. kl. 20:30.
Félagskonur eru hvattar til að mæta vel
og stundvíslega og taka með sér gesti.
Húnvetningafélagið
Félagsvist verður spiluð laugardaginn
9. des. kl. 14:00 í Húnabúð, Skeifunni 17.
Parakeppni. Verðlaun veitt.
Síðasta sinn fyrir jól.
Selkórinn heldur
Aðventutónleika
Selkórinn á Seltjarnarnesi heldur tón-
leika í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn
10. desember kl. 20:30. Á efnisskrá
verður kirkju- og jólatónlist.
Stjórnandi Selkórsins er Friðrik Guðni
Þórleifsson.
Jólafundur Kvenfélags
Neskirkju
Kvenfélag Neskirkju heldur jólafund
sinn nk. mánudagskvöld kl. 20:30 í safn-
aðarheimilinu.
Gestur fundarins verður Hanna Jo-
hannessen, formaður Jólanefndar
Verndar, en Birgir Kjartansson er for-
maður Verndar.
Konur eru minntar á að hafa með sér
jólapakka.
Jólafundur Kvennadeildar
Skagfirðingafélagsins
Kvennadeild Skagfirðingafélagsins í
Reykjavík verður með sinn árlega jóla-
fund í Drangey, Síðumúla 35, sunnudag-
inn 10. desember, sem hefst með borð-
haldi kl. 19:00.
Jólafundur Kvennadeildar
Skagfirðingafélagsins
Kvennadeild Skagfirðingafélagsins í
Reykjavík verður með sinn árlega jóla-
fund í Drangey, Síðumúla 35, sunnudag-
inn 10. desember, sem hefst með borð-
haldi kl. 19:00.
Safnaðarfélag
Ásprestakalls
Jólafundur Safnaðarfélags Áspresta-
kalls verður haldinn þriðjudaginn 5. des-
ember kl. 20:30 í safnaðarheimilinu.
Fundarefni: Jólahugvekja og föndur.
Fríkirkjan í Reykjavík
Guðsþjónusta klukkan 11:00 (Athugið
tímann). Einsöngur: Guðlaugur Tryggvi
Karlsson.
Tónleikar kórs Kennaraháskóla Islands
kl. 14:30.
Helgistund með skírn kl. 17:00. Leikið
verður á orgelið frá kl. 16:40.
Miðvikudagurkl. 7:30: Morgunandakt.
Orgelleikari Pavel Smid.
Cecil Haraldsson
Halla Haraldsdóttir
Myndlistarsýning
ÍMJÓDD
Halla Haraldsdóttir, myndlistarkona
frá Keflavík, heldur sýningu á verkum
sínum í verslun Hjartar Nielsen, Mjódd-
inni, í desember og janúar.
Halla er fædd og uppalin á Siglufirði.
Hún var við nám í Myndlistar- og liand-
íðaskóla Islands í tvo vetur og seinna í
kennaradeild skólans í einn vetur. Aðal-
kennari hennar þar var Erró. Síðan liélt
hún til Danmerkur og stundaði nám hjá
dönskum listmálara, Sören Esbjerg í tvo
vetur.
Fyrirtækin sem staðsett eru á
Bernhöftstorfu hafa tekið höndum saman
um að skapa jólastemmningu á svæðinu.
Til að auðvelda foreldrum jólainnkaup-
in munu fóstrur sjá um harnagæslu á
Bernhöftstorfu í desember alla föstudaga
kl. 14:00-18:00 og laugardaga kl. 10:00 til
lokunartíma verslana, en þó ekki lengur
en til kl. 20:00. Gæslan er fyrir börn á
aldrinum 2-8 ára.
Skífan verður mcð hljómplötukynn-
ingu. og á föstud. og laugard. með lifandi
tónlist. Á Þorláksmessu mun Dómkórinn
koma fram á útitaflinu, en auk þess mun
hluti kórsins koma fram á Bernhöftstorfu
á laugardögum til jóla.
Útimarkaður verður á Bernhöftstorfu
á föstu- og laugardögum og rennur ágóði
af sölu til líknarmála. Jólasveinarnir kom
öðru hverju í heimsókn. Boðið verður
upp á heitt kakó og piparkökur. Auk
þessa verða ýmsar uppákomu á vegum
Miðbæjarsamtakanna.
Fyrirtækin sem staðsett eru á Bern-
höftstorfu eru: Veitingahúsin Lækjar-
brekka og Punktur og Pasta, ferðaskrif-
stofurnar Land og Saga og íslenskar
fjallaferðir, Sveinn bakari, UII og gjafa-
vörur, Listahátíð, Sinfónían og Asse.
Fjölskyldutónleikar
Sinfóníuhljómsveitarinnar:
HNOTUBRJÓTURINN
Sunnud. 10. des. kl. 14:00verðahaldnir
síðustu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands á þessu ári. Það eru aðventutónleik-
ar fyrir alla fjölskylduna og leikinn verður
Hnotubrjóturinn eftir Tjajkofskí, en
Benedikt Árnason leikar segir söguna um
Hnotubrjótinn, og vatnslitamyndir
Snorra Sveins Friðrikssonar listmálara
verða varpað á sýningartjaldið á meðan á
flutningi stendur.
Miðar á tónleikana eru seldir í miðasöl-
unni í Háskólabíói.
Frá árinu 1978 hefur Halla verið í
tengslum við gler- og listiðnaðarverkstæði
D.H. Oidtmann í Þýskalandi, fyrst við
nám og seinna við störf hjá fyrirtækinu.
Hún hefur haldið fjölda einka- og samsýn-
inga heima og erlendis og hlotið margvís-
legar viðurkenningar fyrir list sína.
Myndir Höllu á þessari sýningu eru
vatnslitamyndir unnar með blandaðri
tækni, auk glerlistaverka. öll verkin eru
unnin á þessu ári. Sýningin, sem er
sölusýning, er opin á verslunartíma, alla
virka daga kl. 10:00-18:30 og kl. 10:00-
16:00 á laugardögum.
Mæðrastyrksnefnd
Á vegum kvennfélagasmbands Kópavogs
starfa mæðrastyrksnefnd eins og undan-
farin ár. Kópavogsbúar ef þið vitið af
bágstöddum samborgara, vinsamlega lát-
ið okkur vita.
í nefndinni eru Ingibjörg í síma 41224,
Sólveig í s. 40531, Laufey í s. 40035,
Þorgerður í s. 40582 og Viktoría í s.
40298.
Hljómsveit Ingimars
Eydal í Danshöllinni
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir
dansi í Danshöllinni laugardaginn 9. des-
ember. Aðeins þetta eina skipti í Reykj-
avík í desembermánuði. Hljómsveitin
hefur
hefur tvisvar áður skemmt í Danshöllinni
(Þórscafé).
Jólasýning FÍM í Garðastræti
Jólasýning FÍM, Félags íslenskra
myndlistarmanna, stendur yfir í FÍM-
salnum, Garðastræti 6. Margir þekktir
myndlistarmenn, eldri og yngri, eiga verk
á sýningunni, sem er sölusýning. Alla
laugardaga, meðan sýningin stendur yfir,
verður boðið upp á vandaða dagskrá með
lestri höfunda úr nýjum bókum og fjöl-
breyttri tónlist.
Dagskrá laugardagsins 8. des: Birgir
Sigurðsson les úr smásagnasafni sínu, Frá
himni og jörðu, EyvindurEiríksson lesúr
Ijóðabókinni Viltu, Ragnhildur Ófeigs-
dóttir les úr ljóðabókinni Faðmlag
vindsins, Þorsteinn frá Hamri les úr
ljóðabókinni Vatnsgötur og blóðs. Björn
Björnsson, bariton, syngur við undirleik
Guðbjargar Sigurjónsdóttur.
Veitingar: Jólaglögg og piparkökur.
Opið er frá kl. 14:00 alla daga, en lokun
fylgir almennum verslunartíma.
Ballettinn ívan grimmi í MÍR
MlR sýnir tvær frægar sovéskar ballett-
kvikmyndir nú í desember í bíósal félags-
ins, Vatnsstíg 10. Sunnud. 10. des. kl.
16.00 verður sýnd „ívan grimmi", ballett
Júrí Gígorovitsj, aðaldansasmiðs Bols-
hoj-leikhúddins um árabil við tónlist þá,
er Sergei Prokofiev samdi við samnefnda
kvikmynd S. Eisensteins (sýnd í nóv. í
MÍR). Margir af fremstu dönsurum Bols-
hoj-leikhússins fara með stærstu hlutverk-
in.
Eldri ballettmynd, „Spartacus" verður
svo sýnd sunnud. 17. des.
Aðgangur að kvikmyndasýningum
MÍR er ókeypis og öllum heimill.
Sunnudagsferðir F.í.
Sunnud. 10. des. kl. 13:00 Reykjaborg
- Reykjafell. Ekið að Hvammi og gengið
þaðan á Reykjaborgina og áfram verður
gengið í norður á Reykjafell (268 m) og
komið niður í Skammadal. Farmiðar við
bíl (600 kr.)
Sunnud. 17. des. kl. 10:30 Esja -
Kerhólakambur. Gengið frá Esjubergi á
Kerhólakamb. Birting er kl. 10:00 og
myrkur kl. 16:48. Aðeins 4 dagar að
vetrarsólstöðum 21. des. Munið þægilega
skó og hlýjan klæðnað. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far-
miðar við bíl (800 kr.)
Athugið: Áríðandi að allir sem ákveðn-
ir eru í að halda fráteknum farmiðum í
áramótaferð til Þórsmerkur greiði þá
ekki seina en 15. desember n.k.
Sunnudagsferð
Útivistar 10. des.
Lækjarbotnar - Hólmsborg. Frekar
auðveld ganga um kjarrivaxið land fyrir
ofan Silungapoll. Skoðaður hellir og
fjárborg. Brottför kl. 13:00 frá Umferða-
miðstöð - bensínsölu.
TIL SOLU
Mitsubishi Pajero diesel Turbo
5 dyra ekinn 77.000 km
Bíllinn er í góðu ásigkomulagi.
□ Rafmagn í rúðum □ Vökvastýri □
□ Utvarp/segulband □
Verð kr. 1.450.000,- Staðgreiðsla kr. 1.250.000.-
Upplýsingar í síma 91-687905
eða 985-25080
Jólastemmning
a BERNHÓFTSTORFU
Laugardagur 9. desember 1989
+
Alþjóðleg
UÓSMYNDASAMKEPPNI
Alþjóðasamband Rauðakrossfélaga
efnir nú f annað skipti til Ijósmyndasam-
keppni meðal áhugafólksog ljósmyndara.
Þema keppninnar er mannúð eins og
hún kemur fram í starfi Rauðakrosshreyf-
ingarinnar undir kjörorðunum: VERND-
UN MANNLEGS LÍFS.
Fyrstu verðlaun eru ljósmyndafcrð til
einhvers þcss staðar þar sem Rauði
krossinn starfar að mannúðarmálum,
ljósmyndavörur, Ijósmyndasýning í Genf
í Sviss og verðlaunapeningur. 5 næstu
þátttakendur fá verðlaunapening og
íjósmyndavörur í verðlaun.
Myndir í keppnina mega ekki vera
eldri en þriggja ára og þurfa að berast
Alþjóðasambandi Rauðakrossfélaganna
fyrir 31. mars 1990.
Rauði kross Islands, Rauðarárstíg 18,
Reykjavík, veitir allar nánari upplýsingar
í síma 91-26722 og þar fást skráningarblöð
fyrir myndir sem senda á.
1949-1989
Afmæiispit Laugarneskirkju
Á þessu hausti eru 40 ár liðin frá því að
Laugameskirkja var vígð og því hefur
verið gefið út veglegt blað, Áfmælisrit
Laugarneskirkju, 1949-1989. Fremst er
ávarp frá Jóni Dalbú Hróbjartssyni sókn-
arpresti, en þar næst segir Þór Magnússon
frá Laugarneskirkju hinni fornu.
Ástráður Sigursteindórsson rifjar upp í
grein Upphaf Laugamessafnaðar. Þá
skrifar Þröstur Eiríksson um tónlistarlíf
kirkjunnar og sagt er frá safnaðarstarfi.
Karl Ómar Jónsson segir byggingarsögu
safnaðarheimilisins og greinir frá endur-
bótum á Laugameskirkju árin 1988 og
1989.
Kverfélag Laugamessóknar er fyrir-
sögn á grein Vivans Svavarsson. Þor-
steinn Ólafsson skrifar: Laugameskirkja
40 ára.
1 ritinu eru fjölmargar myndir úr safn-
aðarstarfi kirkjunnar og skrá yfir starfs-
fólk og nefndir í Laugarneskirkju.
Heimilisblaðið
VISKUBRUNNURINN
Þetta blað er gefið út af dvalarheimili
aldraðra í Seljahlíð (að Hjallaseli 55) og
ritstjóri er Rannveig Káradóttir og ábm.
er María Gísladóttir forstöðum., en með
þeim starfar ritstjóm.
í blaðinu er fyrst ávarp frá ritstjóra og
smáfréttir frá heimilinu í Seljahlíð. Davíð
Sigurðsson yrkir brag sem hann nefnir:
Veðurfar og fleira 1989. Þá segir Guðríð-
ur Guðmundsdóttir, 92 ára, frá ævi sinni,
en henni til aðstoðar er Lóa Þorkelsdóttir.
Bjarni Th. Guðmundsson segir frá í
greininni „Vertíð í Keflavík 1918-T9, og
er sú frásögn aðalefni blaðsins. Þá er
jólahugvekja eftir Arinbjöm Ámason,
vísur og smágreinar eftir ýmsa, gátur og
spakmæli. Ljóð eru um Magdalenu Sigur-
þórsdóttur, 91 árs, Hugrún yrkir til
göngugarpa í Jónsmessugöngu, en þeir
komu við í Seljahlíð 21. júní sl. og Davíð
Sigurðsson yrkir um dvalarheimilið og
nefnist ljóðið Seljahlíð.
Þá fær Jón Öm Stefánsson, kokkur
staðarins og matargerðarmeistari þakkar-
kveðjur í bundnu og óbundnu máli.
Þetta blað er 2. tbl. 1989, sem er 3.
árgangur ritsins.
Margar myndir em í blaðinu frá Selja-
hlíð og af fólkinu þar.
Nýttlíf
8. tbl. 12. árg.
Fremst í þessu tölublaði Nýs lífs er
viðtal við Ragnhildi Pálu Ófeigsdóttur,
skáldkonu og húsmóður um trúarbrögð-
in, tilfinningalífið, ástina, sorgina og
dauðann.
Steinunn Sigurðardóttir ræðir við Ástu
Eiríksdóttur, ekkju Svavars Guðnasonar
listmálara. Fyrirsögn viðtalsins er: Ég
stillti mig inn á hans persónu.
Þá er mikið skrifað um tæknifrjóvgun
og sagt frá Bourn Hall Clinic, þar sem
margar íslenskar konur hafa leitað lausna
við ófrjósemisvanda.
Margar síður em lagðar undir tísku-
myndir, sem teknar eru á götum New
York borgar. Þá er sagt frá leikhúslffl í
London og Ragnheiður Davíðsdóttir hef-
ur viðtal við fyrmm eiginkonu kynferðis-
brotamanns. Fyrirsögn á viðtalinu er:
Gleymd fórnarlömb.
Margt annað er í blaðinu, svo sem
grein um jólabakstur, litið inn í smiðju
Kolbrúnar Kjarval o.fl.
Jólaglaðningur nefnist aukablað Nýs
lífs, en þar er mikið af snyrtivömkynning-
um og auglýsingum, sýndar blómaskreyt-
ingar og jólaföndur. Sagt frá bókaútgáfu
Frjáls framtaks og kynnt verslunin Boris,
sem er fyrsta snyrtivömverslunin sem er
eingöngu fyrir karlmenn.
Minningar
leikkonu
Ást og trú, gleði og sorg,
hjónabönd og tilfinningar. Þetta
eru meginþræðimir í bókinni Ég
og lífið sem komin er út hjá Vöku-
Helgafelh. Þetta eru minningar
Guðrúnar Ásmundsdóttur
leikkonu sem Inga Huld
Hákonardóttir hefur skráð.
Bókin skiptist í sautján
efniskafla og er form þeirra
mismunandi efni, viðtöl, beinar
frásagnir Guðrúnar og
hugleiðingar bókarhöfundar um
viðmælanda sinn. Fjöldi mynda
prýðir bókina, bæði úr einkalífi
Guðrúnar og af listferli hennar.
Ég og Ufið er lifandi reynslusaga
konu. Á opinskáan hátt ræðir
Gúðrún um bemsku sína og
sérstæða foreldra, ást sína og
hjónabönd, starf sitt og list. Af
næmu innsæi og tilfinningu segir
hún frá konum sem hún hefur
kynnst á lífsleiðinni. Hún hefur
mikið að gefa öðmm konum og
öllum þeim sem láta sig
manneskjuna nokkm varða.
Inga Huld Hákonardóttir ræðir
þessi mál við Guðrúnu. Hún
skrásetur söguna af hstfengi.
Stundum er hún virkur
viðmælandi og gefur þannig
fjölbreyttari og dýpri sýn í heim
Guðrúnar.
Ég og lífið er einhver
óvenjulegasta æviminningabók
sem komið hefur út á íslandi.