Tíminn - 09.12.1989, Síða 4

Tíminn - 09.12.1989, Síða 4
4 HELGIN Laugardagur 9. desember 1989 Hefði mátt afstýra vetrarstríðinu? Þegar fimmtíu ár eru liðin frá upphafi vetrarstríðsins milli Finna og Rússa, hugleiða menn hvort forðast hefði mátt þessar blóðsúthellingar - eða hvort Finnar hafi borgið sjálfstæði sínu með því að grípa til vopnaí heimssögu- legu samhengi var vetrarstríðið milli Finna og Rússa, veturinn 1939 -1940, hversdagslegur viðburður. Á útjöðrum stórveldanna hafa alla tíð orðið harðir og blóðugir árekstrar og í þeim mikla harmleik sem síðari heimsstyrj- öldin var, þá var hér aðeins um atburði að ræða sem stóðu skamman tíma. Heimspólitískar afleið- ingar stríðsins Eigi aö síður hafði stríðið stórpólitískar afleiðingar. Skömmu áður en Þjóðabanda- lagið leystist upp vék það Sov- étríkjunum úr sínum röðum vegna þess. Þá vakti það óróa meðal kommúnista víða um lönd. Hafði sósíalískt ríki gjörst sekt um árásarstríð? Mörg vestræn ríkl fóru að hugleiða að gera út herleiðangur tll Norðurlanda. í Frakklandi féll stjórn Daladiers vegna ágreln- Ings sem tengdist vetrarstríð- inu. Það varð hörð prófraun fyr- ir hlutleysisstefnu Svía og fyrsta sprungan sem kom í eln- angrunarafstöðu Bandaríkj- anna. Það styrkti tengslin á milli þeirra Hitlers og Mussol- Inl. En er hálf öld er nú liðin frá því er atburðirnir gerðust geta fornir féndur og núverandi góðvinir rætt þetta allt saman af rósemi og sannsýni. Það er aðeins mannlegt að menn leiti að einhverri einni orsök fyrir því að stríðið braust út. Þeg- ar fjallgöngumaður hrapar, leita menn ekki að orsökinni í þyngdar- lögmálinu, landfræðilegum að- stæðum eða þeim þætti í eðli hans, sem fær hann til að langa til að klífa fjallatinda. Menn telja að slysið hafi orðið vegna þess að hann hafi misstigið sig, enda mundi það úrslitaorsök þess að svo illa fór. En vetrarstríðið verður ekki skýrt með slíku „feilspori." Það verður að skoðast í víðu sögulegu samhengi. Varla er þörf á því hér að rekja öll þau mörgu stríð, sem Svíar og Rússar háðu á finnskri grund. Samkvæmt „leyniákvæðunum" í samningi þeirra Napóleons og Al- exanders Rússakeisara skyldi Finnland teljast leyst undan yfir- ráöum Svía og vera stórhertoga- dæmi í rússneska ríkinu. Stórher- togadæmið naut þó verulegrar sjálfsstjórnar og á þessum tíma efldist þjóðarvitund Finna og þeir komu upp sínum eigin stjórnar- stofnunum. En um aldamótin raskaðist þetta jafnvægi. Nikulás keisari annar tók að þrengja að sjálfsá- kvörðunarrétti Finna og auka rússnesk áhrif í landinu. Síðasta dag ársins 1917 lýsti Lenín yfir sjálfstæði Finnlands. En árið á eftir náðu átökin í rúss- nesku borgarastyrjöldinni inn á finnskt landsvæði. Finnskir rauð- liðar voru studdir af rússneska hernum, sem enn hafði stöðvar á finnskri grund, en Þjóðverjar efldu hvítliða. Sigur hvítliða hafði úr- slitaáhrif á þróun mála í landinu í stjórnmálalegu tilliti. í Finnlandi var haldiö við lýðræðisskipulagi því og markaðsskipulagi, sem þróast hafði á sjálfsstjórnartíman- um. Því litu Sovétríkin svo á að landið væri kapítalískt og borg- aralegt ríki. Kuldaleg sambúð Þrátt fyrir friðarsamningana milli ríkjanna árið 1920 andaði köldu í milli þeirra. Sú kynslóð sem lifði það er Finnland varð sjálfstætt, minntist Rússa jafnan sem gamalla kúgara. Háskóla- æskan gerði sér títt um Finna þá sem bjuggu í sovésku Karelíu og lét sig dreyma um stór - Finnland. Kommúnistar voru litnir hornauga og taldir vinna í þágu erlends rík- is. Verslun og önnur samskipti við Sovétríkin voru í lágmarki. En það var ekki einvörðungu sök Finna, því Stalín fylgdi strangri einangr- unarstefnu. Þótt þýsk áhrif væru sterk í Finnlandi frá gamalli tíð, náðu fas- isminn og nasisminn þó ekki fót- festu í hinu pólitíska lífi. í kosning- unum 1939 fengu öfgaflokkar til hægri aðeins sjö þingmenn af tvö hundruö. Verkalýðshreyfingin undir stjórn jafnaðarmanna var öflug. Því taldist Finnland til fárra Evrópulanda á fjórða áratugnum, þar sem þingræðið stóð föstum fótum. Sárin eftir borgarastríðið 1918 voru farin að gróa, þegar jafnaðarmenn og borgaraflokk- arnir mynduðu samsteypustjórn árið 1937. Þegar skuggarnir af útþenslu- stefnu Hitlers fóru að falla yfir Evr- ópu, var tekin sú stefna að minnka samskiptin við Þýskaland sem mest. Þingið féllst á það við- horf stjórnarinnar að Finnar skyldu fylgja sömu hlutleysis- stefnu og önnur Norðurlönd. Þá hafði veriö gerður „ekki - árásar“

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.