Tíminn - 09.12.1989, Side 10

Tíminn - 09.12.1989, Side 10
Bágt á Beysi borgarstjóri Bágt á Beysi borgarstjóri. Hann skrapp í frí til Flórída og á meðan gátu borgarfulltrúarnir hans í Sjálf- stæðisflokknum komið málunum í erfiðan hnút. Þeirra vegna þarf Beysi nú að hamast af sinni al- kunnu orðsnilld til að bjarga því sem bjargað verður. Þetta þarf nánari útskýringa við. Síðast þegar ég stakk niður penna og ritaði í TÍMANS RÁS, þá skýrði ég frá því hvemig Beysi borgarstjóri og lið hans notaði vígslu Borgarleikhússins til að upp- hefja persónu hins fyrrverandi leik- húsrítara á kostnað þeirra fjölda- mörgu sem lagt höfðu gjörva hönd á verkið. Þá benti ég á þá tilviljun að Beysi skyldi reglubundið vera við- staddur opnunarhátíðir ýmiss konar, svona rétt fyrir kosningar. Ljóst er að borgarstjórinn mun vera í sviðsljósinu við álíka margar vígsluathafnir í vetur og hann hefur verið allt kjörtímabilið. Það er ekki skrítið því peningaausturinn í byggingar hefur verið gegndarlaus og miðast við að Ijóminn yfir vígsluathöfnum Beysa verði hvað mestur rétt undir borgarstjórnar- kosningar. Reyndar verður að játast að margar framkvæmdirnar eru virð- ingarverðar og góðar, en því miður þá leggur svo stóran skugga af minnismerkjabyggingum Beysa, að nauðsynlegu framkvæmdirnar vega ekki þungt. Auðkúlan á Öskjuhlíð, þó falleg sé að margra dómi, Ráðhúsið í Tjörninni, sem gengið hefur alltof nærri lífríki þessarar perlu Reykjavíkur eins og ungadauðinn í sumar sannar, þess- ar framkvæmdir kosta þvílíkar fúlgur að Beysi ætti að skammast sín. í stað þess stendur hann gleið- brosandi og hrokafullur yfir nytja- lítilli framkvæmdagleði sinni á sama tíma sem neyð hundruða aldraðra borgara er slík, vegna skorts á æskilegu húsnæði og nauð- synlegri hjálp sem borginni ber skylda til að veita þeim, að heiðvirt fólk fær sting í hjartað við tilhugs- unina. Svo ekki sé minnst á at- hafnaleysið í dagvistarmálunum. En það var ekki þetta framferði borgarstjórans sem ég ætlaði að minna á, heldur þær vangaveltur um það hver verði eftirmaður hans. Það er nefnilega ljóst að Beysi borgarstjóri er nú varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ætlar bráð- um að verða formaður. Sem slíkur mun hann storma inn á þing og skilja eftir borgarstjórastólinn. Reyndar ekki fyrr en eftir komandi borgarstjómarkosningar, enda væri voðinn vís ef einhver af núver- andi borgarfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins ætti að leiða hjörðina í kosningum. Þar kemur að því hve bágt Beysi borgarstjóri á. Á meðan hann sólaði sig á Flórída gátu tvö efnileg- ustu borgarstjóraefni Sjálfstæðis- flokksins komið sér í slík vandræði að Beysi á fullt í fangi með að bjarga við málunum. Fyrst var það hann Júlli, sem langaði svo ógnarmikið að verða borgarstjóri, ef marka má heilsíðu- viðtal með heilsíðu mynd sem birtist fyrir tilviljun í því gagn- merka blaði DV. Upp hefur komist um alvarlegt lóðabrask þessa ann- ars gagnmerka borgarfulltrúa. Hann fékk úthlutaðlóðundirsím- svarann sinn, lóð sem hann hugðist síðan selja, ef hann er þá ekki búinn að því þó ekki hafi pappírum verið þinglýst. Beysi borgarstjóri brást við hreystilega, studdi sinn mann og hefur sagst ætla að berjast áfram fyrir lóðabraski Sjálfstæð- ismanna. En allar líkur eru á að Júlíus hafi beðið slíkan hnekki stóllinn sé honum eilíflega glatað- ur. Hitt borgarstjóraefnið varð al- menningsálitinu ekki eins mikil hneykslunarhella, en kom Beysa í því meiri klípu. Það var Villi í skipulaginu. Á meðan borgarstjór- inn var erlendis gekk Vilhjálmur fram á völlinn, stóryrtur og örugg- ur með sjálfan sig þegar helsti keppinauturinn var fallinn. Hann hugðist sanna kosti sína sem borg- arstjóraefni með því að standa uppi í hárinu á ríkisvaldinu, sem Vilhjálmur taldi vera að ganga á hagsmuni Reykjavíkurborgar í Borgarspítalanum. Framganga Vilhjálms kemur Beysa nú illa. Heilbrigðisráðherra vildi breyta skipulagi Borgarspítal- ans á þann hátt að stjórnarformað- ur sjúkrahússins yrði skipaður af ríkinu, enda greiðir ríkið allan rekstrarkostnað við spítalann. Þannig færi saman fjárhagsleg ábyrgð og stjórn spítalans. Þessu mótmælti Vilhjálmur harkalega og sagði að Borgin ætti að skipa stjórnarformanninn, nú sem hing- að til. Þar kom hann Beysa á kaldan klaka. Ef fara á saman fjárhagsleg ábyrgð og stjórnun, eins og sjálf- stæðismenn hafa reyndar tekið undir með vísum mönnum, þá verður Borgarsjóður að taka á sig hugsanlegan hallarekstur Borgar- spítalans ef Reykjavíkurborg skip- ar stjórnarformanninn. Það vill Beysi ekki, enda kæmi það illilega við pyngjuna og er hann því kom- inn í slæma klípu í samningunum við ríkisvaldið. Allt vegna einarðr- ar afstöðu borgarstjóraefnisins ákafa. Svo er nú það. Það verður gaman að sjá hvernig Beysi borgarstjóri ætlar að snúa sér út úr þessari klípu sinni, en hann hefur svo sem kom- ist í hann krappann áður í þau fáu skipti sem hinir átta borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa losnað undan járnaganum og tekið upp sjálfstæðan málflutning. Reyndar gengur það þannig fyrir sig á borgarstjómarfundum að Beysi talar fyrir hönd sjálfstæðis- manna í nær öllum málum, en aðrir borgarfulltrúar flokksins sitja án þess að leggja orð í belg, bíða merkis frá leiðtoganum og greiða atkvæði eftir hans höfði. Því hefur vísa Káins oft komið mér í hug þegar ég hef fylgst með borgar- stjórnarfundum og aðgerðarleysi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins: Þeir hafa ekki neinar húfur, en hitt geta allir séð, aðguð hefirgefið þeim hausinn til að kinka kolli með Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins eru níu að Beysa með- töldum. En þó það komi þessu máli ekkert við, þá vil ég endilega láta aðra skemmtilega vísu Káins fylgja með, lesendum til skemmtunar: Heimskingjarmargir hópast saman, hefur þar hver af öðrum gaman. Eftir því sem þeir eru fleiri, eftir því verður heimskan meiri. Hallur Magnússon Laugardagur 9. desember 1989 i GETTU NÚ Það var drangurinn Þumall í Vatnajökli, sem mynd birtist af hér sein- ast, en þangað hafa fjall- göngumenn löngum lagt leið sína að spreyta sig. Þrautin er ekki sérlega þung að leysa að þessu sinni, en við spyrjum hvert fjall það sé, sem á myndinni sést? KROSSGÁTA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.