Tíminn - 09.01.1990, Qupperneq 1
Er friðun hafanna
að komast á skrið?
Fyrrum formaður herráðs Bandaríkjanna tekur undir
sjónarmið forsætisráðherra um afvopnun í höfunum:
Fyrrverandi formaður herráðs Bandaríkjanna hefur lýst þeirri skoðun sinni
að stórveldin tvö eigi að ganga til viðræðna um afvopnun á höfunum. Fram
til þessa hefur umræða um gagnkvæma afvopnun á höfunum ekki verið til
umræðu af hálfu Bandaríkjastjórnar.
íslendingar hafa lagt hvað mesta áherslu á þetta atriði á alþjóðavettvangi,
undir forystu Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra. Steingrímur
segist sannfærður um að þessi yfirlýsing Crowe muni hafa áhrif á ráðamenn
í BNA. Ýmsar blikur eru því á lofti að loksins sé að komast skriður á umræðu
um friðun hafanna. 0 Baksíða
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherTa
Menntamálaráðherra segir örlög Þjóðleikhússbyggingar ráðast á næstu dögum:
Húsfriðunamefnd
gegn ráðherra í
„svalamáli“
íeikhússins
Svavar Gestsson
menntamálaráðherra
Menntamálaráðherra, Svavar Gests-
son, stóð fyrir opnum fundi í Þjóð-
leikhúsinu í gær um fyrirhugaðar
breytingar og lagfæringar á bygging-
unni. Mátti ráða af máli ráðherrans
að hann er hlynntur tillögum er bygg-
inganefndar, um að breyta svala-
skipan. Húsfriðunarnefnd er þessari
breytingu mótfallin, en málið verður
rætt í ríkisstjórn fljótlega.
• Blaðsíða 5
LeiKarar, starfsfólk Þjóðleikhússins og aðrir áhugamenn sóttu fundinn.
Timamyndir: Árni Bjarna