Tíminn - 09.01.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 9. janúar 1990
Trmirin 3
Andri BA, verkefnislaus í Dutch Harbor:
Hafa ekki fengið
leyfi til vinnslu
íslenska úthafsútgerðarfélagið, hefur ekki fengið endurnýj-
að vinnsluleyfi sitt til að vinna afla úr bandarískum fískveiði-
skipum um borð í Andra BA við strendur Alaska. Stjórnend-
ur íslenska úthafsútgerðarfélagsins vonuðust eftir að fá nýtt
vinnsluleyfí sem gilda ætti fyrir árið 1990 í desember, en það
hefur ekki enn fengist. Skipið er nú í Duch Harbor, á eyjunni
Unalaska.
Ragnar Halldórsson hjá ísl. út-
hafsútgerðarfélaginu sagði í samtali
við Tímann að farið hafi verið fram
á aðstoð Jóns Baldvins Hannibals-
sonar utanríkisráðherra og Halldórs
Ásgrímssonar sjávarútvegsráð-
herra, þegar ljóst var að þeir fengju
ekki endumýjað vinnsluleyfi. Ráð-
herrarnir hafa báðir verið að reyna
að leysa málið, en án árangurs til
þessa.
f gildi eru milliríkjasamningar um
að þessar heimildir skuli veittar og
hefur sjávarútvegsráðherra sent
bandaríska viðskiptaráðherranum
bréf vegna þessa og minnt á mikil-
vægi þess að samningarnir verði
haldnir.
Ragnar sagði að íslensk stjórnvöld
hlytu að leysa þetta mál, en yrðu
líklega að fylgja málinu betur eftir
en hingað til hefur verið gert.
Andri BA var kominn á miðinn
við Alaska þann 24. desember sl. Þá
var blind bylur á hafsvæðinu, auk
þess sem frystivél bilaði. Þann 30. og
31. var landað þremur slöttum í
skipið og voru unnin úr því 4041
tonn af þroskblokk. Þar sem skipið
hefur ekkert vinnsluleyfi nú, heldur
það til á Duch Harbor, á eyjunni
Unalaska. -ABÓ
Sigurður Antonssun (t.h.) afhcnda hér Hannesi Haukssyni framkvæmda-
stjóra RKÍ 120 þúsund króna framlag frá Nýborg í Rúmeniusöfnunina.
Landssöfnun RKÍ fyrir Rúmena:
KEA ætlar að auka hlutafé sitt í Dagsprenti hf:
Dagsprent hf. tekur
yfir rekstur Dags
Gerður hefur verið samningur um
að Dagsprent hf. taki yfir rekstur
Dags á Akureyri. Jafnframt er gert
ráð fyrir að hlutafé í Dagsprenti hf.
verði aukið verulega, en hlutafjár-
fundur verður haldinn í næstu viku.
Blaðið hefur haft heimild til greiðslu-
stöðvunar síðustu mánuði, en hún
rann út síðast liðinn sunnudag.
Stærsti hluthafinn í Dagsprenti hf.
er Kaupfélag Eyfirðinga og liggur
fyrir samþykki stjórnar KEA um að
leggja fram verulegt viðbótarhluta-
fé. Hluthafar í Dagsprenti hf. eru
alls á annað hundrað talsins og
verður þeim gefinn kostur á að auka
hlutafé sitt og loks verður nokkur
hluti boðinn til sölu á almennum
markaði. í drögum að samningi milli
Dags og Dagsprents hf. er gert ráð
fyrir að núverandi eigendur Dags,
Framsóknarfélags Akureyrar og
Framsóknarfélags Eyjafjarðar, fái
hlut sinn í blaðinu greiddan með
hlutabréfum í Dagsprenti hf. en
endanleg ákvörðun um þau mál er
háð samþykki félaganna.
Eins og kunnugt er fengu Dagur
og Dagsprent hf. þriggja mánaða
greiðslustöðvun í byrjun ágúst síðast
liðinn til að ráðrúm gæfist til að leysa
bráðan rekstrarvanda fyrirtækjanna.
Sá vandi fólst fyrst og fremst í erfiðri
lausafjárstöðu vegna mikilla fjár-
hagsskuldbindinga. Greiðslustöðv-
unin var síðan framlengd um tvo
mánuði í byrjun nóvember en henni
lauk sjöunda janúar. Á þessum tíma
hefur verið leitað allra leiða til að
tryggja áframhaldandi rekstur Dags
og Dagsprents hf. Meðal annars
voru gerðar ítrekaðar tilraunir til að
selja húseignir fyrirtækjanna við
Strandgötu, að hluta til eða í heild,
en án árangurs. Byggðastofnun hafði
um tíma áhuga á að kaupa húseignir,
með þeim skilyrðum að Akureyrar-
bær keypti síðan eða leigði af stofn-
uninni svo og að Dagsprent hf. og
Prentverk Odds Björnssonar sam-
einuðust í framhaldi af því. Forráða-
menn Akureyrarbæjar höfðu þegar
til kom ekki áhuga á þeirri lausn.
Með þessum breytingum telja
stjómir fyrirtækjanna sig treysta
rekstur þeirra mjög verulega. Sam-
kvæmt níu mánaða uppgjöri beggja
fyrirtækja hefur afkoma og rekstur
batnað mjög mikið frá fyrra ári. Þær
ráðstafanir sem gripið var til í lok árs
1988 og á síðasta ári eru farnar að
skila árangri og sjá forráðamenn
fyrirtækjanna fram á bjartari
framtíð. Áfram verður reynt að
selja hluta af húseigninni við Strand-
götu.
Sigurður Jóhannesson stjórnar-
formaður Dagsprents hf. segir mikil-
vægt að áfram verði höfð full aðgæsla
á rekstrinum, þrátt fyrir þessar ráð-
stafanir, því að skuldir fyrirtækjanna
eru ennþá mjög miklar. Sigurður
sagði að Norðlendingar hefðu staðið
dyggilega við bakið á blaðinu í
erfiðleikum þess. Þetta hafa þeir
m.a. sýnt í verki á þann hátt að
áskrifendum blaðsins hefur fjölgað á
greiðslustöðvunartímabilinu. -EÓ
Peningamir renna
til munaðarlausra
Rauði kross íslands hefur ákveð- krossins og fjöldi ríkisstjórna sent
ið að hrinda af stað söfnun til
hjálpar bágstöddum í Rúmeníu.
„Féð sem safnast hér á landi á að
nota til að veita munaðarlausum
börnum í Rúmeníu aðstoð og vona
ég að almenningur bregðist skjótt
og vel við þessu kalli," segir Hann-
es Hauksson framkvæmdastjóri
Rauða kross íslands, en RKÍ hefur
þegar sent tvær miljónir til Rúmen-
íu.
Þegar hafa 23 landsfélög Rauða
fé, hjálpargögn og fólk til hjálpar-
starfa í Rúmeníu. Þannig eru yfir
60 erlendir sendifulltrúar þar við
störf á vegum Alþjóðaráðs Rauða
krossins og borist hafa yfir eitt
þúsund tonn af hjálpargögnum frá
landsfélögum Rauða krossins.
Hannes Hauksson segir að hjálp-
argögn séu einkum send til sjúkra-
húsa og barnaheimila og sé skortur
mikill á lyfjum og lækningatækjum.
Viðræður við Alumax um álframleiðslu á íslandi:
Rís nýtt álver
fyrir norðan?
„Það hafa í dag staðið yfir viðræð-
ur við menn frá fyrirtækinu Alumax
og þeim verður haldið áfram í kvöld
þar sem ég mun hitta þá að máli,“
sagði Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra í gær.
Fulltrúar Alumax hafa áður átt
viðræður við íslendinga um álfram-
leiðslu á íslandi og í gær áttu þeir
viðræður við fulltrúa Landsvirkjun-
ar, ráðgjafarnefnd iðnaðarráðuneyt-
isins um álframleiðslu og síðan iðn-
aðarráðherra.
Á dagskrá fundar iðnaðarráð-
herra með Alumaxmönnum í gær-
kvöldi var tvennt: Hugsanleg þátt-
taka Alumax í Atlantalhópnum
svonefnda og hugsanleg þátttaka
þeirra eða aðild að frekari aukningu
álframleiðslu á íslandi á öðrum stað
en þeim sem til greina kemur í
viðræðum við Atlantalhópinn, -
Straumsvík.
Iðnaðarráðherra sagðist ekki vilja
svara því hvar nákvæmlega sá, eða
þeir aðrir staðir sem til greina koma
fyrir hugsanlegt nýtt álver Alumax
væru. -sá
faBHSWf
BÓKMENNÐHQifiUUNIN
Tilgangur íslensku bókmenntaverðlaunanna er að styrkja
stöðu frumsaminna íslenskra bóka, efla vandaða bókaút-
gófu, auka umfjöllun um bókmenntir og hvetja almenna les-
endur til umræðna um bókmenntir.
Dómnefnd valdi tíu eftirtaldar bækur sem athyalisverðustu
bækur órsins 1989 og úr þeim verður valin ein bóK sem verð-
launin hlýtur:
• Ég heiti ísbjörg, ég er Ijón. HÖF. VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR.
• Fransí biskví höf. elIn pálmadóttir.
• Fyrirheitnn Inndið höf. einar kárason.
• Götuvísn gyðingsins höf: einar heimisson.
• íslensk orðsifjnbók höf. ásgeir bl. magnússon.
• Nnttvíg HÖF. THOR VILHJÁLMSSON.
• Nú eru oðrir tímnr höf. ingibjörg haraldsdóttir.
• Snorri á Húsofelli HÖF. ÞÓRUNN VALDIMARSDÓTTIR.
• Undir eldfjnlli HÖF. SVAVA JAKOBSDÓTTIR.
• Yfir heiðon morgun höf. stefán hörður grímsson.
Almenningi gefst kostur ó að hafa óhrif ó úthlutun verðlaun-
anna með því að útfylla atkvæðaseðil sem birtist í íslenskum
bókntíðindum 1989, en einnig mó skrifa upp nafn þeirrar bókar
sem menn telja best að verðlaununum komna, undirrita með
nafni og kennitölu og senda til Félogs íslenskro bókoútgefendo,
Suðurlondsbrout 4A, 108 Reykjovík. Frestur til að póstleggja
atkvæðaseðla rennur út 10. jonúor. Dagsetning póststimpils
gildir. Nónari grein er gerð fyrir verðlaununum í íslenskum
bókotíðindum.
FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA