Tíminn - 09.01.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 9. janúar 1990
Tíminn 5
Séð yfir salinn. Ráðherra flytur ræðu sína í upphafi fundar,
Tímamynd Árni Pjctur
Örlög Þjóðleikhússbyggingarinnar ráðast á næstu dögum:
Menntamálaráðherra styður
tillögu byggingarnefndar
Á opnum fundi í Þjóðleikhúsinu í gær sagði Svavar
Gestsson menntamálaráðherra að endanleg ákvörðun yrði
tekin í næstu viku um fyrirhugaðar lagfæringar og breytingar
á Þjóðleikhúsinu. Af máli ráðherrans mátti ráða að hann
styður tillögu byggingarnefndarinnar en sem kunnugt er
hefur húsfriðunarnefnd lagst gegn þeim breytingum sem
fyrirhugaðar eru á gólfl áhorfendasalarins og áhorfendasvöl-
um. Auk þess er húsfriðunamefnd mótfallin tillögu nefndar-
innar um breytingu á staðsetningu fatahengis.
Um tillögu bygginganefndarinnar
um breytingar á Þjóðleikhúsinu
sagði menntamálaráðherra að
samstaða væri um öll meginatriðin
sem hún legði til. „Það er hinsvegar
ágreiningur um það hvort að það er
nauðsynlegt, óhjákvæmilegt, að
breyta svalaskipan í húsinu. Þeir
sem fara yfir málið munu hinsvegar
fljótlega komast að því að út frá
listrænum og rekstarlegum rökum er
hér um að ræða breytingu sem er
Loðnutorfa
fundin fyrir
Austurlandi
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son fann loðnutorfu fyrir Austur-
landi á laugardagskvöld, um 90 míl-
um sunnar en loðnuskipin hafa verið
að veiðum að undanförnu. Þá kom
rannsóknaskipið Bjarni Sæmunds-
son á svæðið á sunnudag, en gat lítið
aðhafst vegna veðurs. Þegar lægði
með kvöldinu fannst töluvert af
loðnu nokkuð djúpt út af Austfjörð-
um.
Jakob Jakobsson forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar sagði í samtali
við Tímann að lítill tími hefði gefist
til að athuga loðnuna vegna veðurs
á miðunum. En loðnan er stór og
góð, en engin leið er að segja hvert
magnið er. Þá stendur hún nokkuð
grunnt. Tveir bátar köstuðu á hana
undir morgun og eftir því sem næst
verður komist leist þeim vel á út-
komuna.
Á sunnudag tilkynntu loðnubátar
um samtals 8000 tonna afla, sem
fengist höfðu á miðunum austnorð-
austur af Langanesi. í gær og í nótt
var búist við mjög slæmu veðri á
miðunum og því ólíklegt að nokkur
veiði yrði.
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son hélt til síldarrannsókna, þegar
Bjarni Sæmundsson kom á leitar-
svæðið, en skipið var til viðgerða
vegna vélarbilunar. -ABÓ
Bílstuldur reyndur:
Stýrislás hélt
Snemma á laugardagsmorgun var
Skodabifreið stolið, þar sem hann
stóð á bílastæði við Austurvöll. Þeir
sem þar voru að verki beintengdu til
að koma bifreiðinni í gang, en
athuguðu það ekki að stýrislásinn
var fastur fyrir. Bílnum var ekið í
tvo hringi á Pósthússtrætinu og inn á
Austurvöll, þar sem hann var yfir-
gefinn. Skemmdir urðu á bílnum.
Fjögur ungmenni voru handtekin og
gengust þrír ungir piltar við stuldin-
um. -ABÓ
skynsamleg og þýðir ekki byltingu
eða gjörbreytingu á þessum sal.“
Ráðherrann sagði jafnframt að um
ágreining á menningarsögulegum
grunni gæti verið að ræða og hann
teldi sér skylt að taka tillit til þess,
en hann ætlaðist til þess af fundar-
mönnum og þjóðinni í heild að
menn flytji rök sín að fullri sanngirni
og fullum heiðarleika.
Listamennimir deila
Stjóm Bandalags íslenskra lista-
manna sendi frá sér ályktun í síðustu
viku þar sem koma fram efasemdir
um að stór hluti þeirra breytinga
sem fyrirhugaðar em séu nauðsyn-
legar. Þessi afstaða stjórnarinnar
auk ummæla Brynju Benediktsdótt-
ur, formanns bandalagsins, í viðtali
á Rás 2 var ástæða þess að ráðherra,
ásamt fulltrúum byggingarnefndar,
boðaði til fundarins með starfs-
mönnum Þjóðleikhússins, forystu-
mönnum í leikhúslífinu og Banda-
lagi íslenskra listamanna. í fyrr-
nefndu viðtali gagnrýndi Brynja
harðlega vinnubrögð þeirra aðila
sem farið hafa með málið og hvernig
staðið hefði verið að því að gera
breytingamar á salnum að forgangs-
atriði. Varðandi ályktun bandalags-
ins og ummæli Brynju sagði mennta-
málaráðherra meðal annars að hann
hefði ekki órað fyrir því að ágrein-
ingur um einstök fyrirkomulags at-
riði gætu orðið til að stöðva fram-
gang málsins. Breytingamar væru
ekki forgangsatriði heldur væru það
öryggisástæður sem knýi menn til að
fara út í framkvæmdir við Þjóð-
leikhúsið.
Fjöldi leikara og annarra lista-
manna mætti á fundinn og var ekki
laust við að taugatitrings gætti.
Deildu menn hart um ummæli
Brynju Benediktsdóttur og sýndist
sitt hverjum. Þó er Ijóst að meirihluti
leikara styður tillögu byggingar-
nefndarinnar. Góður rómur var
gerður að ræðu Herdísar Þorvalds-
dóttur leikkonu en hún sagðist aldrei
áður hafa orðið vör við þessa miklu
aðdáun á salnum sem nú kæmi fram.
Sagði Herdís jafnframt að búið væri
að samþykkja breytingarnar og
starfsfólkið ætti að vera þakklátt
fyrir að vera álitið þess virði að fá
dýrt og gott leikhús sem uppfylli
kröfur tímans.
540 milljónir í 1. áfanga
Byggingarnefnd leggur til að í
fyrsta áfanga verði ráðist í endurbæt-
ur á sal, þ.e. suðurhúsi, frásviðsbrún
að anddyri, frá grunni upp í þak.
Áætlaður heildarkostnaður við
þennan áfanga er 540 milljónir, þar
af er kostnaður við fyrstu lotu fram-
kvæmdanna 310 milljónir. Ef af
verður hefjast framkvæmdir í febrú-
ar og fyrstu lotu lokið í nóvember-
mánuði á þessu ári og húsið þá
opnað að nýju. Mestur kostnaður er
til kominn vegna breytinga á lögnum
en þar næst kemur hönnunarkostn-
aður sem er áætlaður 90 milljónir
króna í fyrsta áfanga.
Þess má að lokum geta að í þessari
viku mun menntamálaráðherra
leggja fyrir ríkisstjórnina fyrirhug-
aðar breytingar á lögum um Þjóð-
leikhúsið og sagði ráðherrann á
fundinum að í lögunum væri gert ráð
fyrir auknu listrænu og fjárhagslegu
sjálfstæði Þjóðleikhússins.
SSH
Skógræktarátaki hleypt af stokkunum sem á að valda straumhvörfum í gróðursögu landsins:
Gróðursetja á 1,5
milljónir plantna
Næsta vor er ætlunin að gróður-
setja um eina og hálfa milljón
trjáplantna á 73 stöðum úti um allt
land. Þetta er mesta átak í land-
græðslu og skógrækt hérlendis frá
upphafí vegar. Það er Skógræktar-
félag íslands, sem er sambandsfé-
lag allra félaga áhugamanna um
skógrækt á lslandi, sem gengst
fyrir átakinu í samstarfí við Skóg-
rækt ríkisins, Landgræðslu ríkisins
og landbúnaðarráðuneytið.
Átakið, sem er kallað „Land-
græðsluskógar-átak 1990“, er ætlað
að valda straumhvörfum í gróður-
sögu landsins. Frá landnámi er
talið að yfir 80% af þeim landgæð-
um sem fólust í gróðri og jarðvegi
hafi glatast. Áætlað er að gróður-
setja um eina og hálfa milljón
trjáplantna næsta vor í gróður-
snautt en friðað land auk annarra
gróðurbætandi aðgerða, s.s. sán-
ingu birki-, lúpínu- og grasfræs.
Til að tryggja árangur átaksins
er starfandi sérstök fagnefnd, skip-
uð vísindamönnum, sem hafa valið
landsvæði í samráði við heima-
menn á hverju stað og leggja á
ráðin, hvernig unnið skal að upp-
græðslu landgræðsluskóganna.
Valin hafa verið 73 svæði um land
allt, þar sem nýir skógar munu
vaxa upp í gróðursnauðu og blásnu
landi. Vonir standa til að þeir muni
breiðast út þegar tímar líða.
Lögð verður höfuðáhersla á að
virkja sem flesta við plöntunina
næsta vor. Markmiðið verður ekki
síður að auka skilning á skógrækt
og landgræðslu og því hversu mikl-
ir möguleikar okkar eru til að snúa
við óheillaþróun liðinna alda.
Óvíst er hver kostnaðurinn við
átakið verður m.a. vegna þess að
gert er ráð fyrir að stór hluti
gróðursetningarinnar verði unnin í
sjálfboðaliðsvinnu. Þó er ljóst að
ekki verði komist af með minna en
50 milljónir króna. Dagana 19.-22.
apríl verður efnt til söfnunar meðal
allrar þjóðarinnar. Fólki gefst þar
kostur á að kaupa græna grein.
Ákveðið hefur verið að stofna til
svonefnds „Vinarskógar“ í tengsl-
um við átakið. Öllu fé, sem erlend-
ir ferðamenn hafa þegar látið af
hendi rakna og mun væntanlega
safnast í söfnunarbauka, sem
standa víða á ferðamannastöðum,
verður varið til að rækta upp
sérstakan skóg. Þangað verður
einnig beint öðru framlagi, sem
hugsanlega fengist erlendis frá.
Gæti hér verið lagður grunnurinn
að öflugu skóglendi, sem mun
dafna og þróast og gefa erlendum
vinum þjóðarinnar tækifæri til að
skilja hér eftir tré eða skógarlund.
Verndari átaksins er forseti
fslands, frú Vigdís Finnbogadóttir.
-EÓ