Tíminn - 10.01.1990, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 10. janúar 1990
Miðvikudagur 10. janúar 1990
Tíminn 9
—
& A
.
- I|P
. ■
ú\r-‘
W;
'
Skilyrði veðurguðanna til ad gera grídarlegan óskunda voru heppileg í fyrrinótt med suðvesturströnd landsins í gær. Stórstreymt var og eftir langvinna sud-austan átt brast á stormur að suð-vestan og eyðileggingin lét ekki á sér standa. Það var hins vegar tilkomumikið að líta brimið í skerjagarðinum utan við Stokkseyrarfjörur þegar birti af degi í gær.
Tímamynd Ámi Bjarna.
Farviðri og brim
rústuðu þorp við
suðurströndina
Eftir Stefán Ásgrímsson
Hrikalegar náttúruhamfarir gengu yfir
Suðurland s.l. nótt. Bæði var veðurhæð
mikil og stórstraumsflóð en svo var
einnig um svipað leyti árs 1977 þegar
svipaðar hamfarir gengu yfir og ollu
skemmdum við suðvestanvert landið. Þá
tók báta upp í höfninni á Eyrarbakka og
bar þá langt upp á land.
Að þessu sinni voru engir bátar í
höfninni enda eins gott. Veðurhæð var í
óveðrinu að þessu sinni mun meiri en
árið 1977 og stormur stóð einnig miklu
lengur. En að þessu sinni er höfnin ónýt.
Sjálfur hafnargarðurinn hefur tæst upp
og brimgarðarnir hafa meira og minna
trosnað í sundur og gengið á land upp og
er illfært um nágrennið vegna stórgrýtis.
Þá var og mikill sjór á mörgum götum
Eyrarbakka og Stokkseyrar í gærdag.
í fyrrinótt mældist meðalölduhæð í
nágrenni Surtseyjar 16,7 metrar og suð-
vestanrok og stórstraumsflóð var. Allt
þetta hjálpaðist við að leggja að verulegu
leyti í rúst atvinnufyrirtæki, hús og
garða, vegi og götur Eyrarbakka og
Stokkseyrar.
Dapurleg aðkoma
Aðkoman var dapurleg í gær. Allstað-
ar var sjógangur, húsarústir, aur, grjót,
þari og dauðir fiskar.
Hjálparsveitir voru kallaðar út um kl.
Stefán Ásgrímsson
Árni Bjarnason
002 í nótt og þær voru enn að störfum
síðla dags í gær. Þá var löngu búið var
að bjarga fólki úr húsum sem næst
standa sjávarkambinum. Hins vegar
voru hjálparsveitir önnum kafnar við að
dæla úr kjöllurum húsa, negla fyrir
brotna glugga og hemja lausar járnplötur
og drasl sem fauk um og olli enn frekari
skemmdum.
Að Búðarstíg 5 á Eyrarbakka var
Sigurður Ingólfsson húseigandi ásamt
hjálparsveitarmönnum að dæla sjó og
auri úr kjallara hússins. Húsið er nýlega
endurbyggt og kjallarahurðin þétt og vel
frá henni gengið. Sigurður vakti alla
stormnóttina og byrgði fyrir kjallara-
gluggana og kom í veg fyrir að kjallarinn
fylltist.
Að sögn Sigurðar var stöðugur sjó-
gangur yfir húsið og grjót gekk á því
látlaust alla nóttina. Svo furðulega
heppilega vildi þó til að rúðurnar sluppu
og héldu. Járnklæðningin á húsinu er
hins vegar öll skröpuð og beygluð eftir
áganginn.
Þakiðaf
Þakið á fiskverkunarhúsi Bakkafisks á
Eyrarbakka fór af í heilu lagi að einum
þriðja hluta og auk þess lamdi sjórinn og
vindurinn útvegginn til suðurs niður á
þeim kafla sem þakið fór af. Þakið tókst
á loft og lenti á hvolfi inni í porti við
norðanvert húsið fast upp við vegg húss
sem þar stendur, án þess þó að snerta
það.
Að undanförnu hefur verið unnið við
að lagfæra frystihúsið og þakið sem fauk
var nýtt og höfðu smiðir unnið við að
einangra það og klæða í fyrradag, rétt
áður en óveðrið dundi yfir. Auk þess var
verið að setja upp nýja vinnslulínu fyrir
kola í húsinu og var ætlunin að hefja
vinnslu í því í febrúar n.k. Af því getur
nú ekki oröið.
Magnús Karel Hannesson oddviti á
Eyrarbakka sagði að skemmdir hefðu
orðið verulegar og mestar þar sem
sjóvarnargarðar gáfu sig. í haust var
talsvert unnið við að endurbæta garðana,
einkum í vestasta hluta þorpsins og sagði
hann að hinir endurbættu garðar hefðu
staðist fullkomlega. Hins vegar hefðu
þeir hlutar garðsins sem ekki var búið að
laga að fullu, eyðilagst og borist upp á
land. „Þetta sýnir og sannar þörfina á
öflugum sjóvarnargörðum hér,“ sagði
Magnús Karel.
Veginn milli Stokkseyrar og Eyrar-
bakka tók af á stórum kafla við Gamla-
Hraun. Þá rofnaði sjóvarnargarður við
bæinn á nokkrum stöðum og sjór og
túnin kring um bæinn eru að mestu þakin
grjóti og því ónýt. Þá braut sjórinn sér
leið inn í hesthús þar á bænum, fyllti það
og sprengdi sér leið út um vegginn á móti
og tók vegginn með sér í leiðinni.
Nokkrir hestar sem voru í húsinu sluppu
með skrekkinn og voru furðu rólegir í
gær, en þá var bóndinn, Einar Magnús-
son og heimilisfólk hans búið að tjasla
veggjum hússins saman þannig að hross-
in höfðu sæmilegt skjól fyrir storminum.
Kjallara íbúðarhússins fyllti af sjó og
þar eyðilagðist frystikista full af mat auk
ýmissa innanstokksmuna og bókasafns
sem þar var geymt meðan unnið var að
þvf að innrétta tvær hæðir íbúðarhússins.
Sjórinn tók einnig dráttarvél, mykju-
dreifara og stóra hestakerru sem stóð á
hlaðinu og bar út á tún þar sem nú er
djúpur sjór. Þá gekk sjór yfir bæjarhlað
við gafl íbúðarhússins og gróf hann
hlaðið niður undan bíl sem þar stóð og
lá hann í gær á hliðinni í skurði sem
sjórinn hefur grafið.
Gífurlegt tjón
Margrét Frímannsdóttir oddviti á
Stokkseyri sagði að tjón af óveðrinu
skipti sennilega tugum milljóna. Hún
sagði að tjón væri augljóslega miklu
meira en var í óveðrinu 1977 og vart
hægt að líkja þessum veðrum og af-
leiðingum þeirra saman.
Hús Margrétar stendur upp við sjó-
varnargarð sem endurbyggður var eftir
óveðrið 1977. Hún sagði að hann hefði
staðið sig fullkomlega en aðrir hlutar
garðsins beggja vegna húss hennar hins
vegar gefið sig og stórkostlegar skemmd-
ir orðið á húsum vestan við hennar hús.
Fjöldi húsa á eru stórskemmd eða
ónýt. Þetta á einkum við hús á sjávar-
kambinum þar sem sjór og grjót hefur
lamið rúður og veggi og vaðið inn í
húsin. Um er að ræða bæði íbúðar- og
atvinnuhúsnæði.
Eyrarfiskur; Harðfiskverkun og fryst-
ing Jóns Haraldssonar og konu hans var
í húsi á Stokkseyri sem þau höfðu nýlega
endurbyggt og bætt við. Það var ágætlega
búið tækjum þangað til í nótt. Nú er það
gersamlega ónýtt. Brimið hefur barið
niður veggina þannig að húsið stendur
varla uppi lengur. Þá hefur grjót og aur
borist inn á gólfin.
í fyrrakvöld höfðu eigendurnir keypt
inn verulegt magn af fiski sem ætlunin
var að hefja vinnslu á í gærmorgun. Sá
fiskur er nú grafinn undir stórgrýti og
auri þar sem áður var vinnslusalur.
Frystigeymsla þar sem talsvert var af
unnum fiski brotnaði niður og lagðist
saman. Það sem þar var inni eyðilagðist
ailt. Þá var einnig umtalsvert magn af
unnum og pökkuðum harðfiski í kæli-
geymslu. Hann er líka allur ónýtur.
-sá