Tíminn - 10.01.1990, Side 14

Tíminn - 10.01.1990, Side 14
Miðvikudagur 10. janga^,19,90 14 Tíminn i - ^ * ruvr\i\ovi i Mnr Eftirtalin vinningsnúmer komu upp í jólaalmanaki S.U.F. 1989: 1. des. 1. vinningur nr. 5505. 2. vinningur nr. 579 2. des. 3. vinningur nr. 4348 4. vinningur nr. 2638 3. des. 5. vinningur nr. 2656 6. vinningur nr. 2536 4. des. 7. vinningur nr. 4947 8. vinningur nr. 1740 5. des. 9. vinningur nr. 1341 10. vinningur nr. 4997 6. des. 11. vinningur nr. 4635 12. vinningur nr. 5839 7. des. 13. vinningur nr. 1937 14. vinningur nr. 3035 8. des. 15. vinningur nr. 1996 16. vinningur nr. 3860 9. des. 17. vinningur nr. 1840 18. vinningur nr. 4217 10. des. 19. vinningur nr. 3935 20. vinningur nr. 5514 11. des. 21. vinningur nr. 546 22. vinningur nr. 1162 12. des. 23. vinningur nr. 5442 24. vinningur nr. 3569 13. des. 25. vinningur nr. 5943 26. vinningur nr. 4362 14. des. 27. vinningur nr. 1617 28. vinningur nr. 3647 15. des. 29. vinningur nr. 648 30. vinningur nr. 4822 16. des. 31. vinningur nr. 1136 32. vinningur nr. 3458 17. des. 33. vinningur nr. 3806 34. vinningur nr. 1981 18. des. 35. vinningur nr. 5960 36. vinningur nr. 1595 19. des. 37. vinningur nr. 568 38. vinningur nr. 5842 20. des. 39. vinningur nr. 1107 40. vinningur nr. 1353 21. des. 41. vinningur nr. 1817 42. vinningur nr. 3876 22. des. 43. vinningur nr. 1159 44. vinningur nr. 4030 23. des. 45. vinningur nr. 3430 46. vinningur nr. 3338 24. des. 47. vinningur nr. 3195 48. vinningur nr. 123 Velunnarar. Þeir sem hafa áhuga á aö styrkja samtökin, eru hvattir til aö greiða heimsenda gíróseöla og leggja á þann hátt baráttunni lið. Allar frekari upplýsingar í síma 91-24480 eöa 91-21379 og á skrifstofunni, Nóatúni 21, Reykjavík. Velunnarar, látið ekki happ úr hendi sleppa Samband ungra framsóknarmanna. Viðtalstími LFK Drífa Sigfúsdóttir, bæjarfulltrúi í Keflavík, veröur til viötals á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóa- túni 21, fimmtudaginn 18. jan. kl. 16-18. Sími 91-24480. Stjórn LFK Sigfúsdóttir Drífa Jólahappdrætti Framsóknarflokksins Dregiö var í Jólahappdrætti Framsóknarflokksins 23. desember s.l. en númerin eru í innsigli hjá Borgarfógeta til 10. janúar 1990. Velunnarar flokksins sem ekki hafa greitt heimsenda gíróseðla eru hvattir til að gera skil eigi síðar en 10. janúar. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eöa í síma 91-24480. Framsóknarflokkurinn. Framsóknarfólk Húsavík Almennur félagsfundur veröur haldinn laugardaginn 13. janúar kl. 10.30 í Garðari. Fundarefni: 1. Kosningaundirbúningurinn. 2. Önnur mál. Félagar, fjölmennið. Framsóknarfélag Húsavíkur. Rangæingar - Félagsvist Félagsvist aö Hvoli sunnudaginn 14. jan. Síðasta umferö í 3ja kvölda keppni. Kvöldverðlaun og heildarverðlaun helgarferð til Akureyrar fyrir 2 að verðmæti 25.000.-. Mætum vel. Framsóknarfélag Rangæinga Félagsvist Borgarnesi Spiluð verður félagsvist í Félagsbæ, húsi verkalýðsfélags Borgarness við Borgarbraut föstudaginn 12. jan. n.k. kl. 20.30. ATH.: Breyttan spilastað. Framsóknarfélag Borgarness Framsóknarfólk Norðurlandi vestra Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár- króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757. Beitingamaður Vanan beitingamann vantar á góðan línubát frá Vestfjörðum. Upplýsingar í síma 94-1477. IIIIIIIIIIM AÐUTAN llilllllllllllllllllllM Albaníukonungur við öllu búinn: Bíður eftir kalli heim Aðeins einn lífvörður gætir hans hátignar Leka I, sem gerir tilkall til hásætis Albaníu, Susan drottningar, sem fædd er í Ástralíu, og 7 ára gamla krónprinsins Leka. Þau hafa komið sér þægilega fyrir á bóndabæ í útjaðri Jóhannesarborgar. Kóngurinn kann að taka óþarfa áhættu með því að hafa ekki fleiri iífverði, hann heldur því fram að hann hafi sloppið frá 6 banatilræðum á nýliðnum árum. Yfirleitt eru líka fleiri lífverðir í fylgd Leka, en þessi sjálfskipaði konungur er bjartsýnismaður. í 50 ár hefur hann búið í útlegð frá heimalandi sínu, og beðið færis að snúa aftur til að stjórna landinu sem hann kvaddi í síðasta sinn þegar hann var tveggja daga gamall. Hann hefur trú á því að biðinni fari senn að ljúka. „Árið 1990 verður viðburðaríkt svo að ég gaf starfsfólki mínu leyfi nú um áramótin. Það fær ekki mörg tæki- færi til að taka frí á næstunni," segir hann. Yfirlýsing konungs til albönsku þjóðarinnar Það kann að virðast ólíklegt að konungdæmi verði endurreist í bráð í Albaníu, síðasta virki stalín- ismans í Evrópu. En Leka lætur ekki deigan síga í baráttu sinni og hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann fagnar falli kommúnismans. „Vér, Leka I., konungur Albana hvetjum þjóð vora innan og utan landamæra ríkisins um að færa sér í nyt þá atburði sem nú skekja lönd Austur-Evrópu og rísa upp, sam- einað og ósundrað gegn hinni guð- lausu harðstjórn sem hefur of lengi farið með óstjórn í hinu elskaða landi voru,“ segir í yfirlýsingunni. „Vér áköllum albönsku þjóðina og albanska herinn um að vinna í sameiningu að því að steypa af stóli hinni ógildu og ólöglegu stjórn sem heldur áfram að kúga og bæla niður elskaða bræður okkar og systur." Leka ætlar að smygla yfirlýsing- unni til Albaníu, m.a. með því móti að láta bæklinga falla úr loftbelg. Kóngurinn er velvopnaður Leka er sonur Zog konungs, sem var rekinn í útlegð frá Alb- Leka sem gerir tilkall til alb- önsku krúnunnar hefur ekki litið landið augum frá því hann yfir- gaf það tveggja daga gamall, fyrir 50 árum. aníu. Honunt er full alvara með að takast á hendur þá ábyrgð og hætturnar sem starfinu fylgja. Eini lífvörðurinn hans er vopnaður, þjálfaður sem atvinnumaður og fylgist grannt með sérhverri hreyf- ingu gesta sem að garði ber. Sex bolabítar eru alltaf viðstaddir. Leka sjálfur, 190 cm hár, hefur hlotið menntun í Sandhurst- skólanum og ber alla tíð skamm- byssu og hníf á mjöðminni. „Byssan sem ég ber er hluti af karlmennskueldskírn albönsku þjóðarinnar," segir hann. „Allt frá þeim degi sem litið er á Albana sem fullorðinn karlmann ber hann byssu. Það er gamall siður.“ Leka hefur þá trú að tilraunirnar sem hafa verið gerðar til að ráða hann af dögum séu undan rifjum Júgóslava runnar vegna þess að hann hefur krafist þess að Kosovo- hérað verði sameinað Albaníu, en þar búa því sem næst þrjár milljón- ir Albana. Hversu mikils stuðnings nýtur kóngurinn? Ekki er vitað hversu mikils stuðnings útlægi konungurinn nýt- ur þó að hann haldi því fram að til séu í Albaníu hópar „blundandi" uppreisnarmanna. Hrun kommúnismans í Austur- Evrópu og hikandi tilburðir til umbóta innan Albaníu hafa sann- fært hann um að kallið sem hann hefur beðið alla ævi kunni senn að koma. Hann segir að óeirðir í Shkodra og Kukesi, tveim bæjum í norður- hluta Albaníu hafi verið bældar niður af hörku í nóvember sl. Aðrar upplýsingar gefa til kynna að baráttuandi sé lélegur í hernum og „Sigurimi" (albanskt jafngildi hinnar rúmensku Sekuritate), og spilling tröllríði öllu innan valda- stéttarinnar. Maturerskammtaður og ferðafrelsi heft. Vilji þjóðarinnar ræður Rétt eins og Michael, fyrrver- andi konungur Rúmeníu, hefur Leka lagt framtíð sfna f hendur væntanlegra þegna sinna. „Auðvit- að, sé það vilji þjóðarinnar, myndi ég gefa eftir tilkall mitt til krúnunn- ar. Eftir það sem þjóðin hefur orðið að þola í 50 ár hef ég enga fyrirætlun um að koma á aftur harðstjórn sem fólkið getur ekki veitt stuðning sinn,“ segir hann. „Ef Albanir velja lýðræði væri mér sönn ánægja að þjóna þeim á hverja þá lund sem ég fæ leyfi til. Ef þeir velja konungsstjórn væri það mér sönn ánægja að þjóna þeim á þann hátt.“ En þar til sá tími rennur upp ætlar maðurinn sem vill helst að gestir hans ávarpi hann annað hvort „Yðar hátign" eða „Herra“ að halda áfram að lifa lífi sínu eins og hver annar útlægur þjóðhöfð- ingi í Suður-Afríku. Þegar allt kemur til alls er Suður- Afríka eitt af fáum löndum þar sem maður með byssu á mjöðm gefur ekki tilefni til athugasemda. Illllllllllllllllllllllll VIÐSKIPTALlFIÐ llllllllllllllllllllllllllllllllllllíllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllilllllllMllllllillllllllllllllllllllllllBlllllllllllllllllllllllllllllllH^ Afsögn breska fjármálaráðherrans Afsögn breska fjármálaráðherr- ans, Nigels Lawson, 26. október 1989, kom á óvart þótt vitað væri að hann liti evrópska efnahagslega sam- vinnu öðrum augum en forsætisráð- herrann Margaret Thatcher, einkum fyrirhugaða skipan evrópskra gjald- miðilsmála (EMS). Fyrr um daginn hafði „þingflokkur" íhaldsmanna (The „1922 Committee“) samþykkt að ágreining þennan bæri að setja niður og formaður hans, Cranley Onslow, tjáði frú Thatcher um fjögurleytið að Sir Alan Watkins efnahagsráðunaut bæri að víkja. Daginn áður hafði Thatcher for- sætisráðherra komið heim af fundi breska samveldisins í Kuala Lumpur og höfðu þau Lawson þá ræðst við. Fyrir hinn reglulega ráðuneytisfund á fimmtudögum höfðu helstu ráð- herrar óformlega ræðst við að morgni 26. október og mun Lawson við það tækifæri hafa lýst yfir van- þóknun sinni á grein eftir Sir Alan Watkins um EMS í bandarísku tíma- riti. Að ráðuneytisfundinum loknum, um kl. 2.25, afhentiLawson afsagnarbréf sitt. Að beiðni Thatch- ers féllst Lawson á að tilkynna hana ekki fyrr en um kvöldið. Um afsögn Lawsons sagði í Sun- day Times 29. október 1989: „Öðr- um fjármálaráðherrum á fundi Al- þjóðlega gjaldeyrissjóðsins fyrir tveimur árum fannst mikið koma til þess þegar Lawson boðaði skipan hagrædds gengis gjaldmiðla um heim allan. En Thatcher áttaði sig brátt á að af því leiddi að gengi sterlings- punds hlyti að fylgja á eftir gengi vestur-þýsks marks. til að Bretland væri búið undir aðild að Skipan evrópskra gjaldmiðilsmála (EMS). Hún lítur svo á, og nýtur í þeim efnum stuðnings Walters, að best fari á að gengi sterlingspundsins ráðist á gjaldeyrismörkuðum og að höfuðmál varði að þau lúti breskri stjórn en falli ekki undir EMS. Og þegar Lawson fól Englandsbanka að selja nokkra milljarða sterlings- punda á útlendum gjaldeyrismörk- uðum til að halda gengi sterlings- punds undir 3 DM nokkru áður en hann sigri hrósandi lagði fram fjár- Iagafrumvarp með skattalækkunum í mars 1988 greip Thatcher inn í gang mála.“ í maí sl. var Lawson öðru sinni kominn að því að segja af sér, eftir að Walters varð efnahagsráðunautur að nýju. Ríkisstjórnin var þá að gera upp við sig afstöðu sína gagnvart samfellingu evrópskra gjaldmiðla fyrir leiðtogafund EBE í Madrid í júní. Thatcher hallaðist helst að því að hafna öllunt hugmyndum um fulla efnahagslega og peningalega samfellingu. Lawson sagði að af því hlytist einangrun Bretlands og lagði til nánara samstarf við Vestur-Evr- ópu og þá jafnframt fulla aðild Bretlands að EMS, þótt það féllist ekki á hugmyndir sem lengra gengju um fullan samruna gjaldmiðla (EBE-landa). Jörð óskast 55 ára karlmaður, sem er öryrki, óskar eftir lítilli jörð til leigu í vor. íbúðarhúsnæði þarf að vera gott, en önnur hús mega vera léleg eða engin. Æskilegt er að staðsetning sé í nálægð læknisþjónustu. Vinsamlegast sendið tilboð með upplýsingum um staðsetningu og leiguupphæð ásamt lauslegri lýsingu á íbúð til auglýsingadeildar Tímans merkt „Eyðijörð" sem fyrst.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.