Tíminn - 10.01.1990, Page 16

Tíminn - 10.01.1990, Page 16
 AUGLYSINGASIMAR: 680001 — 686300 - RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnorhúsinu v/Tryggvagötu. S 28822 SAMVINNUBANKINN L í BYGGÐUM LANDSINS ÍM PÓSTFAX TÍMANS 687691 ÞRttSTIIR 68 50 60 VANIR MENN Tímimi MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 Margrét Hjaltested kveðst ákveðin í að leita réttar síns: Vatnsendinn fyrir dómstóla að nýju? Verður Vatnsendalandið selt? Hver verða viðbrögð félagsmálaráðherra? Tímamynd Pjetur. Flest bendir til þess að framund- an séu ný málaferli um eignarrétt á jörðinni Vatnsenda. Margrét Hj áítested sem á sínum tíma var borin út af jörðinni, telur að Magnús Hjaltested, ábúandi á Vatnsenda hafi brotið ákvæði erfðaskrárinnar. Hún segist harð- ákveðin í að sækja rétt sinn fvrir dómstólum. Ef salan á Vatnsenda á að ganga eftir eins og Reykjavík- urborg og Magnús vilja, þarf fé- lagsmálaráðhcrra að fá samþykkt tvenn lög á Alþingi, um eignar- nám og um breytingu á lögsögu- mörkum. Mál þetta á sér langan aðdrag- anda eins og rakið hefur verið í fjölmiðlum undanfarna daga. Sig- urður Hjaltested, faðir Magnúsar Hjaltested, fékk Vatnsenda í arf á sínum tíma. í erfðaskránni segir orðrétt: „Hann (Sigurður) má ekki selja Vatnsenda né heldur veðsetja hana fyrir meiru en sem nemur 50 prósent af fasteignamati - þó aðeins til greiðslu erfðafjár- skatts er með þarf, eða nauðsyn- legra varanlcgra endurbóta á hús- um jarðarinnar eða henni sjálfri. Hann skal búa á eigninni sjálfur. Að Sigurði látnum gcngur jarð- eignin að erfðum til elsta sonar hans, og svo til niðja í beinan karllegg. Skyldi einhver erfingj- anna hætta búskap á Vatnsenda, missir hann rétt sinn samkvæmt erfðaskrá þessari. Sérhver erfingi er skyldugur til að halda öll skil- yrði sem Sigurði eru sett og gæta þeirra takmarkana er samningur- inn hefur inni að halda - vanræki einhver það verður það tafarlaust réttindamissir fyrir hlutaðeig- anda.“ Erfðaskráin setur þannig ábú- anda jarðarinnar afar ströng skil- yrði. Magnús Hjaltested sem nú situr jörðina hefur verið með fjár- búskap á Vatnsenda eins og erfða- skráin býður ábúanda að gera. Margrét Hjaltested, ekkja Sigurð- ar sem var borin út af jörðinni 1969, sagðist ætíð hafa haldið því fram að það væri brostin forsenda fyrir búskap á Vatnsenda, en á það sjónarmið hefði ekki verið fallist á sínum tíma. Nýgerður samningur milli Reykjavíkurborgar og Magnúsar Hjaltested gerir ráð fyrir að jörðin veröi ekki seld nema að Alþingi samþykki lög um að hún verði tekin eignarnámi. Þegar land er tekið eignarnámi er það oftast gert vegna þess að jarðeigandi og kaupandi ná ekki samkomulagi um verð eða að jarðeigandi vill hreinlega ekki selja jörðina. í þessu tilfelli er ekki um slíkt að ræða. Magnús er fús til að selja og þegar hefur verið samið um kaup- verð. Sú spurning hlýtur því að vakna hvort ekki sé verið að fara í kringum lögin í þeim tilgangi einum að hlunnfara Margréti Hjaltested. „Ég er alveg ákveðin í því að fara út í málarekstur," sagði Mar- grét í samtali við Tímann. „Mér finnst þetta svo mikið óréttlæti og makalaust að þetta skuli fá að þróast svona í ekki stærra landi.“ Margrét sagðist á næstunni mundu afla sér lögfræðiaðstoðar og undir- búa málssókn. Að dómi löglærðra manna sem Tíminn ræddi við er hugsanlegt að Magnús hafi með sölu jarðarinnar brotið ákvæði erfðaskrárinnar. Einnig er hugsanlegt að Magnús hafi brotið ákvæði hennar með því að gefa eigendum Stöðvar tvö tímabundið veð í jörðinni. í Morgunblaðinu sjötta janúar síð- ast liðinn neitar Magnús Hjalte- sted því að samningurinn um kaup á Vatnsenda sé á vegum Stöðvar tvö. Hins vegar segist Magnús, þegar hann er spurður hvort að hann hafi Iánað aðaleigendum Stöðvar tvö tímabundin veð í jörðinni, „að vísu hafa gefið munnlegar yfirlýsingar um eitt- hvað í þá átt, en ekki annað." Á þessari stundu er ekki vitað hvort að Magnús hefur veitt veð í jörðinni. Það verður hins vegar að teljast furðulegt ef viðskiptabanki Stöðvar tvö tekur slíkt veð gott og gilt, vitandi um ákvæði erfðaskrár- innar. Árið 1988 var spilda úr Vatns- endalandi tekin eignarnámi. Fé- lagsmálaráðherra flutti þá laga- frumvarp um að jarðarparturinn yrði tekinn eignarnámi. Það mun að öllu óbreyttu einnig koma í hlut félagsmálaráðherra að flytja frumvarp um eignarnám á Vatns- enda. Ekki náðist í Jóhönnu Sig- urðardóttur vegna þessa máls í dag. Félagsmálaráðherra mun að öll- um líkindum einnig þurfa að flytja frumvarp á Alþingi um breytingu á lögsögumörkum Reykjavíkur og Kópavogs. Samkvæmt sveitar- stjórnarlögum þurfa sveitarfélög að semjaumslíkabreytingu. Náist ekki samkomulag verður málið að fara fyrir Alþingi. Bæjarstjóri Kópavogs og formaður bæjarráðs Kópavogs hafa sagt að Kópavogur muni aldrei samþykkja breytingar á lögsögumörkum Kópavogs. Málið þarf því að fara fyrir Alþingi og ekki er hægt að telja sjálfgefið að það muni samþykkja breyting- una. -EÓ Félag símsmiöa hefur boöað verkfall: Símsmiðir til ráðherra Félag símsmiða hefur boðað verkfall frá og með 16. janúar nk. Með verklállsboðuninni vill nýstofnað Félag símsmiða þrýsta á gerð kjarasamnings en fjármálaráðuneytið hefur ekki viðurkennt félagið, sem á aðild að Rafíðnaðarsambandi íslands, sem 9amningsaðila. í dag munu fulltrúar símsmiða ganga á fund samgönguráðherra til að ræða hvort hann getur beitt sér í málinu. Með verkfallsboðuninni er deil- an komin á borð ríkissáttusemjara en hann hefur ekki boðað fund með deiluaðilum. Samninganefnd ríkisins segir verkfallsboðunina ólöglega mcð þeim rökum að sím- smiðirnir hafi sagt upp störfum og mun nefndin senda ríkissáttasemj- ara álitsgerö þess efnis. Páll Þorkelsson formaöur Félags símsmiða sagði í sumtali við Tím- ann í gær að fulltrúar símsmiða myndu ganga á fund samgönguráð- herra í dag til að ræða hvort ráðherrann gæti beitt sér fyrir lausn deilunnar. Framhald málsins yrði svo ákveðið eftir þann t'und. Um afstöðu samninganefndar ríkisins sagði Páll að hann liti svo á að með því að lýsa því yfir að verkfallsboö- unin væri ólögleg hefði nefndin samþykkt lögmæti Félags stma- manna, að öðrum kosti hefði nefndin einfaldlega hundsað verk- fallsboðunina. Sem kunnugt er hættu 70 sím- smiðir störfum hjá Pósti og síma um áramótin og síðan þá hafa 30 símsmiðir sagt upp störfum til viðbótar. Uppsagnir þeirra taka gildi á næstu þremur mánuðum. Eins og Tíminn hefur áður greint frá hefur deila símsmiða haft tölu- verð áhrif á þjónustu Póst- og símamálastofunarinnar. í Reykja- vík cru biðlistar eftir flutningi cða uppsetningu nýs stma óvenju langir. Einnig er ástandið erfitt víða út um land en á sumum stöðum eru engir símsmiðir starf- andi. Verkfallsboðunin þjónar einnig þeim tilgangi að koma í veg fyrir að utanfélagsmenn gangi t störf símsmiða en Félag símsmiða telur að nokkur brögð hafi verið að því á þeirn tíma sem deilan hefur staðið yfir. Þess má að iokurn geta að Rafiðnaðarsantbandið ákvað á mánudaginn að styrkja Félag stmamanna fjáthagslega meðan á kjaradeilunni stendur. SSH FLENSAN ER KOMIN „Við höfum vitneskju um að það kom fram jákvætt inflúensusýni á Rannsóknastofu Háskólans í veiru- fræði og það er því nokkurn veginn ljóst að þessi inflúensa er komin hingað. Það hefur þó ekki mikið frést af veikindum vegna hennar ennþá," sagði Skúli Johnsen borgar- læknir þegar hann var spurður að því hvort svokölluð Sjanghæ inflú- ensa hefði greinst nýlega hér á landi. Á undanförnum dögum hafa bor- ist fréttir af skæðum inflúensu- faraldri í Noregi. Aðspurður sagði Skúli að ekki væri hægt að spá neinu um það hve langur tími liði þangað til flensa af þessu tagi bærist hingað til lands frá nágrannalöndunum. „Það sem ákveður það er hversu móttækileg við erum. Ef við erum lítið móttækileg líður langur tími þar til fréttir berast af veikindum, en ef við erum mikið móttækileg geta liðið ein eða tvær vikur.“ Skúli bætti því við að veiran sem hefur verið í gangi í Englandi og Noregi að undanförnu hefði oft greinst hér á landi og þeir sem hafi veikst þá veiktust ekki aftur, þar að auki kæmu til miklar bólusetningar. Um 35 þúsund einstaklingar voru bólusettir gegn inflúensu í haust og er talið að bólusetningin hamli gegn veikindum í 80-90% tilfella. SSH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.