Tíminn - 17.01.1990, Síða 3

Tíminn - 17.01.1990, Síða 3
. Miðvikudagur 1.7. janúar,1990 Tfminn '3 Samið um fiskverð Samningar náðust í fyrradag í fiskverðsdeilu sjómanna og útgerð- arinnar á Fáskrúðsfirði og var samið um 7,5% hærra verð en fiskverð Verðlagsráðs. Áður höfðu náðst samningar á Eskifirði og Vopnafirði á svipuðum grunni. Hinn 1. febrúar mun taka til starfa nefnd sem mun meta meðalverð á fiski frá mismunandi landshlutum. Þrítugasta og áttunda þing Norðurlandaráðs verður haldið í Reykjavík innan skamms: Þúsund manna þing í febrúar Þrítugasta og áttunda þing Norðurlandaráðs verður haldið í Reykjavík dagana 27. - 30. febrúar næstkomandi. Áætlað er að fulltrúar á þinginu og starfsfólk þeirra verði á bilinu 800 - 1000 manns, þar af 600 - 700 frá öðrum Norðurlöndum. Þingið verður hálfum degi styttra en venjulega, vegna þess að á síðasta ári voru haldin tvö aukaþing Norður- landaráðs. Mánudaginn 26. febrúar verða fundir í öllum fastanefndum ráðsins. Sjálft þingið verður haldið í aðalsal Háskólabíós, en auk þess verða nefndafundir í nýju sýningarsölun- um þremur sem verða orðnir tilbúnir og í fundarsölum Hótel Sögu. - ÁG Fundað um gróður- húsaáhrif í dag gengst fslenska vatnafræði- nefndin fyrir námstefnu um gróður- húsaáhrif og veðurfarsbreytingar af mannavöldum. Samstarfsaðilar eru aðstandendur nefndarinnar: Háskóli íslands, íslenska vatnafræðafélagið, Orkustofnun, Landsvirkjun, Vatn- sveita Reykjavíkur og Veðurstofa íslands. Aðalfyrirlesari verður þekktur bandarískur vísindamaður á sviði veðurfarslíkana, dr. Warren Was- hington frá National Center for Atmospheric Research í Boulder Colorado. Hann hefurstaðið í farar- broddi fyrir þróun og tölvukeyrslu veðurfarslíkana til að líkja eftir áhrifum af aukningu koltvísýrings í umhverfinu, þar sem tekið er tillit til samspils hafsins og andrúmsloftsins, og eru fyrstu niðurstöður eins og þær birtast í nýlegum vísindatímaritum mjög áhugaverðar. Einkum má þar nefna vísbendingar um tímabundna kólnun á N-Atlantshafssvæðinu. Jóhann er sterkastur Gefinn hefur verið út listi yfir sterkustu skákmenn á íslandi í dag. Tíu efstu eru: Jóhann Hjartarson 2605 stig Margeir Pétursson 2580 stig Jón L. Árnason 2565 stig Helgi Ólafsson 2540 stig Friðrik Ólafsson 2530 stig Karl Þorsteins 2505 stig Guðmundur Sigurjónsson 2460 stig Hannes H. Stefánsson 2460 stig Þröstur Þórhallsson 2415 stig Björgvin Jónsson 2385 stig. STRÖNDIN HREINSUD Framkvæmdir eru hafnar við endurbætur á skolplagnakerfinu á suðurströnd Reykjavíkur. Fram- kvæmdir við norðurströndina eru á lokastigi og var ákveðið að bíða með frekari framkvæmdir þar og taka fyrir suðurströndina. Byrjað er á að leggja lögn sem liggur frá svokölluðu Háskólaræsi við enda flugbrautarinnar og eftir strandlengjunni út undir Faxaskjól og á hún að vera tilbúin í árslok. Önnur lögn verður svo lögð frá enda Fossvogsræsis og að Háskóla- ræsinu. Dælustöðvar eru tvær á þessu svæði, önnur við stöð Skelj- ungs í Skerjafirði en hin við Faxa- skjól. Að lokum verður lögn lögð yfir nesið, yfir á Eiðisgranda, þar sem verður hreinsistöð og dælistöð sem dælir vatninu 4-5 kílómetra á haf út. SSH STAÐGREÐSLA 1990 SKATTHLUTfALL OG PERSÓNUAFSLÁTTUR ÁRÐ1990 ALMENNT SKATTHLUTFALL ER39,79% SKATTHLUTFALL BARNA UNDIR 16 ÁRA ALDRIER 6% PERSÓNUAFSLÁTTUR ER20.850 KR. Á MÁNUÐI SJÓMANNAAFSLÁTTUR ER 575 KR. Á DAG LAUNAGREÐANDA ER ÓHEIMILT AÐ FÆRA ÓNÝTTAN PERSÓNUAFSLÁTT MILLIÁRA (Þ.E.FRÁ 1989 VL 1990) Breyting á almennu skatthlutfalli og persónuafslætti hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Launagreiðanda ber hins vegar að nota ofangreint skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar við útreikning staðgreiðslu. Veita skal launamanni persónuafslátt í samræmi við það hlutfall persónuafsláttar sem fram kemur á skattkorti hans. RSK RlKISSKATTSTJÓRI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.