Tíminn - 17.01.1990, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 17. janúar 1990
Tíminn 13
Árnesingar
Þorrablót framsóknarfélaganna
í Reykjavík
Hið árlega þorrablót framsóknarfélaganna í Reykjavík verður haldið
laugardaginn 27. janúar n.k. í Norðurljósasal Danshallarinnar (Þórs-
Heiðursgestir verða frú Edda Guðmundsdóttir og Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra, sem jafnframt flytur ræðu kvöldsins.
Aðgöngumiða- og borðapantanir eru í síma 24480 (Þórunn).
Verð aðgöngumiða kr. 2.500,-. (Greiðslukortaþjónusta)
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Guðni
Ágústsson
Jón
Helgason
Unnur
Stefánsdóttir
Árlegur stjórnmálafundur og viðtalstími verða á eftirtöldum stöðum:
Aratungu fimmtudaginn 18. janúar kl. 14.00.
Laugarvatni í barnaskólanum 18. janúar kl. 21.00.
Þorrablót
Þorrablót Framsóknarfélags Hveragerðis verður haldið í Verka-
lýðssalnum, Austurmörk 2, föstudaginn 19. janúar.
Húsið opnað kl. 19.00.
Miðaverð kr. 1500.-
Upplýsingar og miðapantanir hjá eftirtöldum aðilum:
Gísli Garðarsson s: 34707.
Sturla Þórðarson s: 34636.
Garðar Hannesson s: 34223/34395.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Alexander Stefánsson
alþingismaöur
Davíð Aðalsteinsson
varaþingmaður
Vesturlandskjördæmi
Alexander Stefánsson alþingismaður og Davíð Stefánsson varaþing-
maður verða til viðtals og ræða stjórnmálaviðhorfið og héraðsmál á
eftirtöldum stöðum sem hér segir:
Stykkishólmur
Miðvikudaginn 17. janúar kl. 20.30 í Lionshúsinu.
Borgarnes
Fimmtudaginn 18. janúar kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu.
Allir velkomnir.
Framsóknarflokkurinn á Vesturlandi.
REYKJAVÍK
Létt spjall á laugardegi
Laugardaginn 20. janúar kynnir Sigrún Magnúsdóttir borgarfulitrúi,
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1990 á léttspjallsfundi í
Nóatúni 21 kl. 10.30.
Fulltrúaráðið
llllllllllllllllllllllllllll SPEGILL lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Stelpurnar hans Muhammads Ali
Miya Ali er 16 ára fyrir-
sæta. Hún þykir mjög
efnileg og hefur gaman
af að stilla sér upp, -
eins og hér með box-
hanskana.
- Önnur syngur en hin er módel
Hinn heimsfrægi hnefaleika-
kappi Muhammad Ali er nú ekki
eins mikið í fréttum og hér áður,
þegar hann var á hátindi frægðar
sinnar. En nú eru dætur hans tvær
að komast í sviðsljósið.
Maryum, 19 ára dóttir Ali, er
söngkona og hefur nýlega gefið út
plötu, þar sem hún tileinkar pabba
sínum eitt lagið.
Svo er það Miya, sem er 16 ára.
Hún er módel, og byrjaði frama-
braut sína hjá Eileen Ford-fyrir-
tækinu.
í 12 ár var því haldið leyndu, að
Miya væri dóttir Ali, því að hann
átti hana utan hjónabands, en
hann hafði alltaf samband við móð-
ur hennar, Pat Harwell. Pat var
aðeins 18 ára þegar hún eignaðist
dótturina. Samband Pat og Ali
stóð í nokkur ár, þrátt fyrir það að
hann væri þá kvæntur eiginkonu
sinni nr. 2 (móður Maryum söng-
konu).
Þegar farið var að stríða Miya
með því í skólanum að hún væri að
skrökva því upp, að Muhammad
Ali væri pabbi hennar, þá þoldu
þær mæðgur, Pat og Miya, ekki
lengur við. Þær báðu Ali að koma
og gera heyrinkunnugt að Miya
væri dóttir hans.
Ali kom í skólann og hélt ræðu
á sérstökum hátíðisdegi í „Benja-
min Franklin High School". Þar
kynnti hann sig sem föður Miya,
sem hann sagðist vera stoltur af og
þykja mjög vænt um. Þetta þótti
Miya mikill og góður dagur. Nú
rengdi hana enginn þó hún talaði
um pabba sinn.
„Pabba var um og ó, þegar hann
heyrði að ég væri að fara í fyrir-
Muhammad Ali þakkar Maryum, 19 ára dóttur sinni, fyrir lagið sem hún
tileinkaði honum.
sætu-bransann, en nú hefur hann
sætt sig við það, af því að ég ætla
að halda áfram í skólanum. Módel-
störfin geta orðið endaslepp, og ég
hef hugsað mér að fara í lögfræði-
nám. Pabbi er indæll og er alltaf
svo góður við mig þó ég sjái hann
ekki nema einstöku sinnum,“ segir
Miya, en hún býr hjá Pat, mömmu
sinni.
Eileen Boden þvær og þurrkar sitt síða hár er það meiri háttar mál. Hér á myndinni er dóttir
hennar að aðstoða hana við að þurrka nýþvegið hárið með hárblásara. En til að það gangi fljótar, þá hefur hún
tekið sig til og hengt hina síðu lokka móður sinnar með tauklemmum upp á snúru!
Eileen Boden á heima í London. Hún hefur ekki látið klippa hár sitt í 30 ár og hér sjáið þið gurinn, -
hárið er tæpir 2 metrar á sídd!