Tíminn - 10.02.1990, Qupperneq 5
Laugardagur 10. febrúar 1990
Tíminn 5
Friörik Sophusson, bankaraðsmaður Sjálfstæðisflokksins i Landsbankanum,
gagnrynir afskipti stjornvalda af Samvinnubankamalinu. Steingrimur Hermannsson:
HJA BANKARADSMANNI
II
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, segist telja
framkomu Friðriks Sophussonar, fulltrúa í bankaráði Lands-
bankans, vegna kaupa bankans á hlut Sambandsins í
Samvinnubankanum, ámæUsverða. Hann kveðst jafnframt
telja að kaupsamningur Sambandsins og Landsbankans frá
því í september á síðasta ári sé bindandi.
„Mér finnst það furðulegt að
bankaráðsmaður skuli hlaupa svona
upp í fjölmiðlum,“ sagði forsætisráð-
herra í samtali við Tímann í gær.
„Ég hef hingað til staðið í þeirri
meiningu að bankaráðsfundir væru
lokaðir og trúnaðarmál það sem þar
gerðist. Eg tel þetta upphlaup alvar-
legt af hans hálfu.“
Skýrsla bankamálaráðherra um
sölu Sambandsins á hlutabréfum sín-
um í Samvinnubankanum var lögð
fram á Alþingi á fimmtudag. Stein-
grímur segir það sína skoðun, eftir
að hafa kynnt sér efni skýrslunnar,
að Landsbankinn hafi skuldbundið
sig til þess að kaupa hlut Sambands-
ins í Samvinnubankanum á 828 millj-
ónir með bréfi sínu frá 10. september
á síðasta ári.
Friðrik Sophusson, fyrrum vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins og
núverandi fulltrúi flokksins í banka-
ráði Landsbankans, hefur gagnrýnt
þá ákvörðun bankaráðsins að fallast
á að greiða Sambandinu vexti, frá
því að samningar voru undirritaðir í
september og þar til endanlega var
gengið frá sölunni þann 1. janúar
s.l.. Hann gagnrýnir jafnframt af-
skipti fj ármálaráðherra og viðskipta-
ráðherra af málinu. Þá neitar hann
því að um upphlaup sé að ræða af
sinni hálfu.
„Ég tek það skýrt fram að ég er
ekki að segja nein leyndarmál úr
bankaráði Landsbankans, því þetta
snertir hvorki trúnað við það né
trúnað gagnvart viðskiptamönnum
bankans, þetta eru upplýsingar sem
liggja fyrir og hafa komið fram,“
sagði Friðrik í samtali við Tímann í
gær.
Friðrik sagðist telja afskipti ríkis-
valdsins af Samvinnubankamálinu
óeðlileg og ekki Landsbankanum í
hag. Sá sem fyrstur hafi nefnt við
bankastjóra Landsbankans að
heppilegt kynni að vera fyrir bank-
ann að kaupa hlut Sambandsins í
Samvinnubankanum hefði verið
fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar
Grímsson. Það hafi verið strax
haustið 1988, eða um svipað leyti og
hann lýsti því yfir að Sambandið yrði
gjaldþrota á næstu 12-16 mánuðum,
ef áfram héldi sem horfði.
í annan stað telur Friðrik að
bankamálaráðherra, Jón Sigurðs-
son, hafí staðið óeðlilega að málum,
þegar hann lýsti því yfir við forystu-
menn Sambandsins í janúar s.l. að
hann myndi beita sér fyrir því að
gerð yrði vaxtaleiðrétting á tímabil-
inu frá því að skrifað var undir fyrri
samning SÍS og Landsbankans í
september, og þar til að skrifað var
undir seinni samninginn í janúar.
Friðrik segir að ekki sé til staðar
meirihluti í bankaráði Landsbank-
ans, fyrir þeirri ákvörðun.að greiða
Sambandinu vaxtabætur að upphæð
60 milljónir, vegna þess að Lúðvík
Jósefsson fulltrúi Alþýðubandalags-
ins í ráðinu hafi áður lýst því yfir á
opinberum vettvangi að hann væri á
móti því. Málið hafi hins vegar verið
keyrt í gegn á fundi bankaráðsins á
fimmtudag, eftir að Friðrik hafði
óskað eftir að endanlegri afgreiðslu
málsins væri frestað, vegna þess að
hann gat ekki setið fundinn til enda.
- En hvert verður framhald máls-
ins af hálfu Friðriks?
„Ég hef skrifað formanni banka-
ráðs Eyjólfi K. Sigurjónssyni bréf,
þar sem ég fer fram á að hann boði
til fundar í bankaráðinu sem allra
fyrst, eða í síðasta lagi fyrir næst-
komandi fimmtudag þegar umræða
fer fram urn málið á Alþingi," sagði
Friðrik. „í fyrsta lagi til þess að hann
geti gert grein fyrir því hvers vegna
svona var farið að og í öðru lagi mun
ég leggja fram þá tillögu í ráðinu að
þessar 60 milljónir verði ekki greidd-
ar.“
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri
Sambandsins, sagðist aðspurður sem
minnst vilja segja um framkomu
einstakra manna í Samvinnubanka-
málinu, nú loks þegar það væri
komið í höfn.
„Mér finnst eiginlega nóg á undan
gengið. Ég hef sagt það allan þennan
tíma að það sé engum til sóma
hvernig að þessu máli hefur verið
staðið,“ sagði Guðjón í gær. „Þessir
samningar hafa verið á milli tann-
anna á fjölmiðlafólki nánast í heilt
ár, ég held að þar sé nóg komið og
kýs helst að horfa á loka niðurstöð-
una.“
Guðjón segir viðræður um sölu
hlutabréfanna hafa byrjað óform-
lega haustið 1988 og síðan fyrir
alvöru s.l. vor. Salan á hlut Sam-
bandsins í Samvinnubankanum til
Landsbankans hafi verið hagkvæm
fyrir báða aðila. Annars vegar vegna
nauðsynjar Sambandsins á að
minnka skuldir með afsetningu eigna
sem hafi vissulega verið Sambandinu
mikils virði, en samt sem áður ekki
gefið því mikinn arð. Hins vegar hafi
það verið ljóst strax og farið var
skoða þessi mál, að Samvinnubank-
inn gat orðið Landsbankanum mun
meira virði en fyrri eigendum, vegna
þeirrar hagræðingar er gat átt sér
stað með samruna þessara banka.
„í byrjun september á síðasta ári
náðist samkomulag á milli okkar og
Landsbankans, og það samkomulag
var staðfest af bankaráði Lands-
bankans og stjórn Sambandsins
skömmu seinna," sagði Guðjón.
„Bankaráðið fól þá bankastjórum
sínum að ganga frá ýmsum atriðum
sem ekki voru að fullu út kljáð og
um þau náðist síðan fullt santkomu-
lag. Bankaráð Landsbankans ákvað
engu að síður að gera Sambandinu
nýtt tilboð 29. desember s.l.. Þá
hafði áður verið gengið frá því, og
staðfest af bankaráðinu, að yfirtaka
þess á Samvinnubankanum miðaðist
við 1. september. Miðað við alla
málavöxtu var það sjálfsögð rétt-
lætiskrafa af Sambandsins hálfu, að
vaxtauppbót yrði greidd vegna þess-
arar þróunar." - ÁG
Bjargaöist naumlega við Hornafjarðarós:
Smeygði sér í
bjarghring og
stökk f rá borði
Sigfús Harðarson hafnsögumaður
á Höfn var hætt kominn um tiu
leytið í fyrrakvöld, þegar lóðsbátur-
inn fékk tóg í skrúfuna og rak
vélarvana upp í fjöru. Áhöfninni á
loðnuskipinu Keflvíking KE sem
verið var að fylgja út, tókst að kasta
bjarghring um borð tii Sigfúsar,
skömmu áður en lóðsinn var kominn
upp í fjöru. Ekki mátti heldur tæpara
standa með Keflvíking, þar sem
hann var kominn mjög nálægt landi
við að bjarga Sigfúsi. í gær sáu menn
lóðsbátinn, þar sem hann var að
brotna niður við Stokksnes.
Sigfús sagði að hart útfall hafi
Ríki opnað
í Miklagarði
Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins opnar um næstu mánaða-
mót nýja áfengisútsölu í verslun
Miklagarðs við Sund. Verslunin
verður í 250 fermetra húsnæði
sem ÁTVR tók á leigu og nú er
verið að innrétta í austurenda
Miklagarðs.
Vegna þessa hafa að undan-
förnu staðið yfir miklar breyting-
ar á anddyri og kassalínu Mikla-
garðs og er áætlað að þeim fram-
kvæmdum verði lokið fyrir 1.
mars nk. Með þessum breyting-
um á að skapast betri aðstaða og
þjónusta á greiðslukössum, í
þjónustumiðstöð og veitinga-
stofu, auk þess sem aðkoma og
brottför úr versluninni verður
mun þægilegri.
verið og því fyrirfram ákveðið að
sigla lengra út á kyrrari sjó til að taka
hafnsögumanninn sem var um borð
í Keflvíkingi um borð í lóðsbátinn.
„Við vorum á ferðinni þarna fjórum
tímum fyrr, en þá var allt í góðu
lagi,“ sagði Sigfús. Hann sagðist
hafa reynt að vera í skjóli við
Keflvíking á útleiðinni. „Lóðsinn
lagðist og þá hefur farið frá borði tóg
og keðja, sem síðar fór í skrúfuna.
Ég þurfti að bakka einu sinni frá
Keflvíking, en þá var hann að lenda
ofan á mér, slíkur var gangurinn og
hvert brotið á fætur öðru reið yfir,“
sagði Sigfús. Þegar þetta gerðist
festust bönd í skrúfunni og vélin
gekk laus, því varð ekkert við bátinn
ráðið. „Þá var égorðinn bjargarlaus.
Þeir ætluðu fyrst að reyna að koma
tógi á milli, en það gekk illa að
komast að mér fyrir látum og þeir
réðu illa við Keflvíking. Þegar við
vorum að verða komnir upp í fjöru,
eftir að hafa rétt sloppið við sker,
var ekki hægt að hugsa meira um
lóðsbátinn og síðasti séns á að hirða
mig upp og forða Keflvíking," sagði
Sigfús.
Þegar hér var komið var kastað
bjarghring yfir í bátinn til Sigfúsar,
þar sem hann smeygði sér í hann og
stökk frá borði. „Þetta gekk mjög
vel. Þeir voru fljótir að kippa mér
upp,“ sagði Sigfús. Hann sagði að
sér hafi ekkert orðið kalt við að
lenda í sjónum, enda hafi hann verið
í flotbúning, eins og þeir væru vanir.
»Ég var að mestu leyti þurr að
ofan,“ sagði Sigfús. Að björgun
lokinni var haldið til Hafnar á ný og
gekk sú ferð vel. -ABO
Ægisíða með hlykknum þar sem Davið á að hafa ruglast á merkjum.
Tímamyndir Áma Bjarna
Davíð búinn að aka um götuna og hlykkurinn
er
Óvinsæl hraðahindrun við Ægisíðu:
Hlykkur fjarlægður að
skipun borgarstjóra?
Fyrir eigi alls löngu var settur
svokallaður hlykkur á Ægisíðu, en
þar hafa umferðarslys verið tíð sér-
staklega á gangandi vegfarendum.
Tillaga um að setja þarna öldu var
hafnað í umferðarnefnd borgarinn-
ar. Hins vegar hefur skapast ný hætt
eftir að hlykkurinn var settur á
götuna. Menn hafa m.a. ekið öfug-
um megin við eyjuna og upp á hana.
Ekkert hefur verið hlustað á ítrekað-
ar kvartanir vegfarenda vegna þess-
arar slysagildru.
Fullyrt hefur verið við Tímann, af
aðilum sem málið er skylt, að Davíð
Oddsson borgarstjóri hafi átt leið
um Ægisíðu og svo óheppilega hafi
viljað til að hann ók öfugum megin
við eyjuna vegna þess að hann
ruglaðist á merkjum. Hvort sem það
er rétt eða ekki þá hefur kerfið nú
skyndilega tekið við sér. Lögð var
fram tillaga í umferðarnefnd um að
fjarlægja hlykkinn. Hún var sam-
þykkt samhljóða og hlykkurinn var
fjarlægður daginn eftir. Nú liggur
fýrir umferðarnefnd tillaga um að
setja öldu á götuna, en það mun vera
í samræmi við óskir íbúa við götuna.
Hún hefur ekki verið afgreidd enn
sem komið er.
Kostnaður við að setja upp hlykk-
inn var 1,1 milljón króna, en fyrir þá
upphæð mætti setja upp einar tíu
öldur. -EÓ