Tíminn - 10.02.1990, Síða 9
Laugardagur 10. febrúar 1990
Tíminn 21
lllllllllllllllllllllllll MINNING llllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Ólafur Ingi Þórðarson
mjólkurfræðingur
Fæddur 9. júlí 1909
Dáinn 31. janúar 1990
Nú fjöll og byggðir blunda
á beð sinn allir skunda
og hljótt er orðið allt.
(H. Hátfdanarson)
Kvöldsett var orðið í lífi aldraðs
vinar míns og vinnufélaga og síðustu
mánuðina var líkaminn hnepptur í
fjötra illvígs sjúkdóms sem bæði
hann og aðrir vissu að myndi að
lokum bera sigur af hólmi. Nú er
stríðinu lokið en það er ekki tapað
fyrir því. Lífið sigrar alltaf dauðann
að lokum - og minningin um góðan
dreng og gegnan lifir æ í hugum
okkar sem eftir stöndum.
Óli var kominn á efri ár er við
kynntumst fyrir rúmum tíu árum. Pá
var ég nýliði í starfi hjá Mjólkursam-
lagi Borgfirðinga en hann átti þar þá
langan starfsdag að baki sem ég veit
að hann hefur skilað af sömu trú-
mennsku og annað það er hann lagði
hönd að. Hann átti stóra fjölskyldu
og ég held að fullyrða megi að allt Iíf
hans og atorka voru þeim helguð,
Guggu og börnunum, sem voru stolt
hans og gleði. Síðar bættust svo
barnabörnin í hópinn og' ekki skip-
uðu þau lægri sess í hug hans og
hjarta. Hann og þau hjón bæði voru
framúrskarandi dugleg að rækja
tengslin við hópinn sinn. Eftir að Óli
hætti störfum í samlaginu ferðaðist
hann töluvert og dvaldi þá oft lang-
dvölum hjá börnunum sínum sem
búa nú dreift um landið. Ekki þótti
honum verra að geta lagt hönd að
verki í þessum ferðum.
Bókamaður var hann og átti marg-
ar góðar stundir með bók í hönd
eftir að um tók að hægjast. Þá hafði
hann sjálfur mjög gott vald á ís-
lensku máli í ræðu og riti og mér
þótti mikill heiður að því að hann
sýndi mér oft ýmislegt sem hann
setti á blað. Sumt af því á ég enn í
fórum mínum, þar á meðal frásögn
sem hann sendi mér af broslegum
atvikum og kringumstæðum er hann
lenti í eitt sinn er hann lá á sjúkra-
húsi.
Sl. sumar var haldið upp á áttræð-
isafmælið hans af rausn og myndar-
skap, eins og þeirra hjóna var von
og vísa. Það var glæsilegur afkom-
endahópurinn þeirra sem þarna var
samankominn og þætti ýmsum yfrið
nóg ævistarf að koma þeim öllum vel
á legg og til manns. Daginn þann er
gott að muna og þá var hann Óli
minn kátur og hress, eins og ég man
hann oftast nær, enda þótt sá gestur,
sem nú hefur haft hann með sér á
burt úr þessum heimi, væri þá fyrir
allnokkru búinn að boða komu sína.
Ég bið þess að mér fyrirgefist sú
skuld að hafa ekki haft kjark til að
vitja sjúkrabeðs míns gamla vinar.
Á slíkum stundum verður manneskj-
an svo lítil í sér að hún veigrar sér
við að standa augliti til auglitis við
dauðann.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég þakka allar góðar stundir sem
'okkur gáfust og vináttu sem ég veit
að nær út yfir gröf og dauða.
„Síst vil ég tala um svefn við þig.
Þreyttum anda er þægt að blunda
og þannig bíða sælli funda -
það kemur ekki mál við mig.
Flýt þér, vinur, í fegri heim.
Krjúptu að fótum friðarboðans
ogfljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa Guðs um geim. “
(Jónas Hallgrímsson)
Við Guðmundur sendum Guggu
og fjölskyldunni innilegar samúðar-
kveðjur og biðjum þeim blessunar
og huggunar.
Kristín Halldórsdóttir
Miðvikudaginn 31. janúar sl.
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness
Ólafur I. Þórðarson, mjólkurfræð-
ingur í Borgarnesi, eftir lasleika
síðustu misseri og nokkuð erfiða
sjúkrahúslegu síðustu mánuði.
Með honum er genginn hugljúfur
dugnaðarmaður. Langar mig með
nokkrum orðum að minnast tengda-
föður míns, þótt ekki séu tök á að
ræða ítarlega um hans uppruna og
æviskeið.
Fæddur var hann í Hafnarfirði 9.
júí 1909, elstur í hópi tólf systkina.
Foreldrar hans voru Sólveig Bjama-
dóttir frá Sólmundarhöfða á Akra-
nesi og Þórður Einarsson frá Ný-
lendu í Garði, ljósavörður og síðar
bókhaldari, bjuggu þau lengst af í
Hafnarfirði.
Á því heimili var ekki auður í búi,
fremur en víðast annars staðar á
þeirri tíð. Ólafur mun því snemma
hafa farið að taka til hendi og níu ára
var hann sendur til sumardvalar til
skyldmenna í Þverárhlíð í Borgar-
firði og gekk svo til mörg næstu
sumur. Komst hann því fljótt í kynni
við það hérað sem síðar átti eftir að
verða hans heimabyggð og vettvang-
ur á langri starfsævi. Fór svo að hann
unni mjög þessu stórbrotna og fagra
héraði, þótt alltaf bæri hann hlýjan
hug til Hafnarfjarðar.
Eftir að barnaskólanámi lauk í
Hafnarfirði fékkst Ólafur þar við
ýmis störf á vetrum, einkum af-
greiðslu og verslunarstörf. Á sumrin
gerðist hann kaupamaður á ýmsum
stöðum til sveita.
Á þessum árum var hann eitt
sumar aðstoðarmaður við plægingar
með hestum á vegum Búnaðarsam-
bands Suðurlands. Sagði hann mér
eitt sinn að það hefði verið það
dýrlegasta sumar sem hann hefði
lifað.
Veturinn 1926-1927 var hann við
nám í Hvítárbakkaskóla í Borgar-
firði og veturinn eftir barnakennari
í Ölfusi.
Næstu árin vann Ólafur við land-
búnaðarstörf og var m.a. þrjú og
hálft ár vinnumaður í Gufunesi sem
þá var stórbýli.
Á þeim tíma sótti hann um skóla-
vist á búnaðarskóla, enda held ég að
hugur hans hafi alltaf staðið til
búsýslu og sveitastarfa. Ekki varð
þó úr því, fast var haldið í hann í
Gufunesi.
Það var svo 1. maí 1933 sem
Ólafur réðst til náms í mjólkurfræði
til Búa Þorvaldssonar í Mjólkurbúi
ölfusinga. Lauk hann þar námi árið
1937 og hélt þá til frekara mjólkur-
fræðináms í Danmörku.
Að afloknu námi réðst hann verk-
stjóri til Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík og var stöðvarstjóri í
forföllum. Árið 1940 var hann ráð-
inn ostagerðarmaður hjá Mjólkur-
samlaginu í Borgarnesi en fór aftur
til Samsölunnar haustið 1942 og tók
við fyrri störfum. Vorið 1943 réðst
hann svo verkstjóri hjá Mjólkursam-
lagi Borgfirðinga og starfaði þar allt
til 1. júlí 1984. Hans meistarabréf í
mjólkuriðn var gefið úr 1953.
Ólafur var því búinn að vinna
samfellt við mjólkuriðnað í meira en
hálfa öld þegar hann hætti störfum.
Um störfin hans Ólafs í Samlaginu
gætu þeir sem til þekkja sagt langt
mál. Ékki mun ofmælt að segja að
þar hafi farið saman dugnaður og
samviskusemi. Var hann sannarlega
hægri hönd Sigurðar Guðbrandsson-
ar mjólkurbússtjóra og oft hans
staðgengill.
Ýmsir kynnu að halda að meistar-
inn hefði það náðugt á rannsóknar-
stofu sem hann hafði þó lengi um-
sjón með. Svo var ekki, því Ólafur
gekk nánast í öll störf af miklu kappi
eftir því sem til þurfti. Þá hafði hann
umsjón með innfærslu mjólkur og sá
lengi um afgreiðslu til bænda og
viðskiptamanna í héraði. Algengt
var að farið væri á fætur kl. 4 að
nóttu til að setja á bíla til Reykjavík-
urferða.
Þá ferðaðist hann mikið um hérað
vegna mjólkureftirlits og málefna
nautgriparæktar. Einnig fór hann
nokkuð um hér að á vegum Kaupfé-
lags Borgfirðinga vegna trygginga-
mála hin síðari ár.
Ólafur var gæfumaður í sínu
einkalífi. 21. maí 1935 kvæntist hann
hinni mætustu konu, Aðalheiði
Knudsen úr Reykjavík. Eignuðust
þau eina dóttur, Hólmfríði Sólveigu,
hjúkrunarforstjóra í Vestmannaeyj-
um, sem gift er Guðjóni Ólafssyni
og eiga þau tvo syni. Þau Aðalheiður
slitu samvistum eftir nokkurra ára
sambúð.
Hinn 20. október 1946 kvæntist
Ólafur Guðbjörgu Ásmundsdóttur
frá Dal í Borgarnesi og hefur hún
verið honum styrkur förunautur.
Þeirra börn urðu tíu en tveir
drengir dóu í frumbemsku, auk þess
ólu þau upp systurson Ólafs frá
fimm mánaða aldri.
Börn þeirra eru: Jóna Sólveig
Ólafsdóttir, búsett á Flúðum. Henn-
ar maður er Sigurgeir Sigmundsson.
Þórður, bóndi á Efra-Lóni, N.-
Þing., kvæntur Grétu Maríu Dag-
bjartsdóttur. Ásmundur, málara-
. meistari í Borgarnesi, hans kona er
Ósk Ólafsdóttir. Brynja skólastjóri,
býr að Þorbjarnarstöðum í Skaga-
firði, gift Þorleifi Ingólfssyni. Einar,
framkvæmdastjóri á Akureyri,
kvæntur Svanhildi Skúladóttur,
Ólafur Ingi, framkvæmdastjóri í
Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu
Bragadóttur. Ragnheiður, kennari á
Akranesi, gift Gyrði Elxassyni og
Guðmundur, bankastarfsmaður á
Akranesi, kvæntur Rannveigu Sig-
urjónsdóttur.
Fóstursonur Ólafs og Guðbjargar
er Jón Rósant, búsettur í Bandaríkj-
unum. Barnabörn eru tuttugu og sjö
og bamabarnabörnin þrjú.
Ólafur var fróður maður og víða
heima og gaman við hann að ræða
um menn og málefni. Hafði hann
mikið yndi af lestri góðra bóka, enda
safnaði hann bókum af áhuga og átti
heilmikið bókasafn.
Hann var maður hlýr í viðmóti og
prúðmenni til orðs og æðis, þó
grunnt væri á glettni og gamansemi.
Oft var glatt á hjalla á hans fjöl-
menna heimili og ekki dró þar úr
glaðværð húsmóðurinnar og hennar
stóra fjölskylda í Borgarnesi sem
kunn er fyrir söng og lífsgleði. Mikil
var gestrisni á því heimili og vina-
hópurinn stór, ekki síst í sveitum
Borgarfjarðar og víðar um Vestur-
land.
Veit ég að margir munu nú minn-
ast Ólafs með hlýjum huga og þakk-
læti. Vil ég nú færa honum hugheilar
þakkir fyrir trausta vináttu og marg-
ar ljúfar samverustundir sem dýr-
mætar eru í minningunni.
Fyrir hönd hans nánustu flyt ég
starfsfólki sjúkrahúss Akraness
bestu þakkir fyrir góða umönnun og
öðrum þeim er léttu hans sjúkdóms-
legu. Stærstu þakkir á þó eiginkona
hans Guðbjörg fyrir frábæra um-
hyggju og þrek sem kom þó ekki á
óvart þeim er til þekkja.
Henni eru færðar sérstakar bless-
unaróskir og samúðarkveðjur.
Sigurgeir Sigmundsson
2 g Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
r Vonarstræti 4 - sími 25500
Dvalarheimili
aldraðra Seljahlíð
Laus er staða hjúkrunardeildarstjóra við vist-
deild Seljahlíðar. Um er að ræða 100% starf sem
fólgið er í daglegum rekstri og stjórnun vistdeildar.
Einnig er laus staða sjúkraþjálfara, starfshlutfall
eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur María Gísla-
dóttir forstöðumaður í síma 73633 frá kl. 11.00-
12.00 daglega. Umsóknum ber að skila til starfs-
mannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,
5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 23. febrúar næstkomandi.
Laus staða
Staða markaðsstjóra hjá Ferðamálaráði íslands er
laus til umsóknar. Starfið felst m.a. í að sinna
landkynningar- og markaðsmálum innanlands og
erlendis, erlendum ferðasýningum og almennri
ráðgjöf á sviði ferðamála. Markaðsstjóri er stað-
gengill ferðamálastjóra.
Víðtæk þekking ásviði landkynningarog markaðs-
mála áskilin svo og reynsla af stjórnunarstörfum.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf, sendist samgönguráðuneytinu fyrir
23. febrúar n.k.
Samgönguráðuneytið
ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
iivvvr
Næringarráðgjafi
Staða næringarráðgjafa í 1/2 starf er laus til
umsóknar.
Um er að ræða nýja stöðu, sem krefst uppbygging-
ar og skipulagningar.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 1990.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Marteinsson
hjúkrunarforstjóri í síma 604311.
Sóknarfélagar
Starfsmannafélagið Sókn heldur almennan fé-
lagsfund mánudaginn 12. febrúar kl. 17.00 í
Sóknarsalnum, Skipholti 50A.
Fundarefni:
1. Nýgerðir kjarasamningar.
2. Önnur mál.
Sýnið skírteini.
Stjórn Sóknar
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borgar-
verkfræöings, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við I. áfanga
Skautasvells í Laugardal, þ.e. byggingu þjónustuhúss og svellplötu
ásamt lögnum fyrir frystikerfi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
frá og með þriðjudeginum 13. febrúar, gegn kr. 15.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaq v 1. mars 1990, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJA
Frikirkjuvegi 3 -- Simi
m
m
URBORGAR
WM