Tíminn - 10.02.1990, Síða 13

Tíminn - 10.02.1990, Síða 13
Tíminn 25 Laugardagur 10. febrúar 1990 m, inrem WI\IVOv) 1 Fundur um bæjarmálefnin í Framsóknarhúsinu viö Sunnubraut laugardaginn ki. 10.30. Allir velkomnir. Bæjarfulltrúarnir Þingmálaráð Reykjavík Þingmálaráösfulltrúar í Reykjavík eru boðaðir til fundar laugardaginn 10. febrúar n.k. kl. 10.30 í Nóatún 21. Fundinn leiöir Guömundur G. Þórarinsson alþing- ismaður. Fulltrúaráðið. Hafnarfjörður Fulltrúaráðsfundur mánudaginn 12. febrúar kl. 20.30 aö Hverfisgötu 25. Forval til bæjarstjórnarkosninga fer fram á fundinum milli kl. 21.00 og 21.30. Stjórnin. Keflavík Fundur hjá fulltrúaráöi framsóknarfélaganna mánudaginn 12. febrúar n.k. kl. 20.30 aö Hafnargötu 62. Fundarefni: 1. Framboðsmál. 2. önnur mál. Félagar, fjölmennið. Stjórnin. Guðmundur G. Þórarinsson Sunnlendingar Jón Helgason Guðni Ágústsson Unnur Stefánsdóttir Árlegurstjómmálafundurog viötalstími veröur haldinn aö Brautarholti, Skeiöahreppi, mánudaginn 12. febrúar kl. 21.00. I Þjórsárveri, Villingaholtshreppi, miövikudaginn 14. febrúar kl. 21.00. Staðan tekin Stjórn SUF og stjórnir FUF félaganna efna tii skrafs og ráðagerða- funda á næstu vikum sem hér segir: Selfoss, fimmtud. 15. febrúar, kl. 20. Allir velkomnir. Stjórnin Viðtalstími L.F.K. Úlfhildur Björnsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri, verður til viötals á skrifstofu Framsóknarflokksins aö Hafnarstræti 90, Akureyri, miðvikudaginn 14. febrúar n.k. kl. 17-19. Sími 21180. Allir velkomnir. L.F.K. Framsóknarfólk Norðurlandi vestra Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suöurgötu 3 á Sauðár- króki, veröa fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga og miövikudaga kl. 9-12, sími 36757. Fiskveiða- sjóður íslands auglýsir til sölu fiskimjölsverksmiðju á Vatneyri, Patreksfirði (áður eign Svalbarða h.f.). Tilboð óskast send til Fiskveiðasjóðs íslands, Austurstræti 19, Reykjavík, fyrir 22. febrúar n.k., en þar eru einnig veittar nánari upplýsingar. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Reykjavík, 9. febrúar 1990 FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS lllllllllllll SPEGILL lllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllMllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Enn er verið að tattóvera Húöflúr liefur um langan aldur tíðkast víðs vegar í heiminum. Að- allega var það aö finna hjá frum- stœðum þjóðum, og t.d. á Nýja Sjá- landi, en þar höfðu Maoríar gert tattóveringu aö listgrein. Þeir skreyttu einkum andlit og handleggi og vöktu þessar skreytingar aðdáun sjómanna, þegar þeir fóru að sigla um þennan heimshluta. Margir sjómenn létu tattóvera á sig smámynd, svo sem ankeri og skipsnafn, eða hjarta og nafn unn- ustu sinnar. Þetta var ekki tekiö úl með sitjandi sœldinni, því að áhöld- in voru ekki merkileg í þá daga og lítið um sótthreinsun. Húðflúr fer þannig fram, að fyrst er ákveðin myndin eða áletrun sem á aö festa á kropp viöskiptamanns- ins, þá eru stungin göl á húðina og litur borinn í en liann festist undir húðinni þegar hún grœr. Aður voru það einkum sjómenn sem voru með tattóveringar, en það hefur alltaf verið eitthvað um það, að almenningur heillaðist af slíku. Um þessar mundir eru margir leikarar sem hafa látið taltóvera á sig myndir og áletranir, en þaö hlýt- ur að vera umhugsunarefni fyrir þá sem í það leggja, aö ekki er hœgt að fjarlœgja skreytingarnar nema með skurðaðgerð. Lorenzo Lamas, sem leikur í „Falcon Crest“ er með þrjár mjög skrautlegar myndir á líkama sínum. Hann hefur sjálfur gert frumdrög að myndunum, sem hann segir að hafi sérstaka þýðingu og eigi að minna á merkisatburði í lífi hans. Svo hafa sum pör látið tallóvera nöfn kœrustu/kœrasta á aðra rassa- kinn sína. Þar standa nöfnin síðan um aldur og œvi, en sjást auðvitað mjög sjaldan, skyldi maður œtla. I þeim hópi eru þau Gilte (sem var áður gift Sylvester Stallone) og núv. maður hennar, Mark Gastineau. Þau segjast hafa trúlofast með þessari aðferð! Eins fer sögum af henni Rose- anne, búslnu leikkonunni í sam- nefndum sjónvarpsþáttum. Hún skildi við manninn sinn og tók sam- an við annan og þá var ástin svo heit, að þau létu merkja sig á botn- inn. En þau eru frœg fyrir það að vilja sýna öllum skreytinguna! Reyndar eru síðustu sögur af joeim þannig, að Roseanne sé aö gefast upp á þessum kœrasta sínum, svo líklegt er að skurðlœknir verði aö koma lil skjalanna. Leikkonan Patti D’Arbanville hefur látið húðilúra á sig 6 inyndir. Hjarta með blárri rós í bakgrunni er uppáhaldsmyndin hennar. Hún segist mjög ánœgð með þessar skreytingar, því þœr séu vel gerðar og smckklegar Lorenzo Lamas er mjög skraut- legur með þrjár stórar rnyndir tattóveraðar á kroppinn Jolinny Depp heitir þessi ungi leikari. Það mœtti œtla að hann vœri mikill mömmu- strákur, því hann hefur skreytingu á upp- handlegg með nafni möminu sinnar, Betty Sue

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.