Tíminn - 03.03.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Laugardagur 3. mars 1990
Mótmælaaðgerðir sem koma ballgestum á höfuðborgarsvæðinu til góða í kvöld:
400 SENDIBÍLSTJÓRAR
A LEIGUBILAMARKAÐINN
Búist er við að um 400 sendibflstjórar í Reykjavík muni
taka þátt í mótmælaaðgerð sem Samstarfsnefnd sendibflstjóra
á Reykjavíkursvæðinu hefur boðað til í kvöld, laugardags-
kvöld. Mótmælin felast í því að bflstjóramir hyggjast mæta á
bflum sínum fyrir utan skemmtistaði og bjóða fólki ókeypis
keyrslu þangað sem það kýs að fara. Miða sendibflstjórarnir
við að vera á götunum fram undir morgun við að keyra fólk.
Slíku verður ekki tekið hljóðalaust af leigubflstjórum borgar-
innar og er jafnvel búist við einhverjum átökum.
Astæöa mótmælanna er sú að
sendibílstjórar í sendibifreiðastjóra-
félaginu Trausta hafa á undanförn-
um vikum og mánuðum reynt að fá
fjármála-, samgöngu-, og dóms-
málaráðuneytið til að breyta nokkr-
um reglugerðum í því skyni að
„forða stétt sendibílstjóra frá útrým-
ingu“ eins og þeir orða það. Regl-
urnar sem hér um ræðir varða aðal-
lega lög um virðisaukaskatt og lög
um leiguakstur með fólks-, sendi- ,
og vörubifreiðum. Telja sendibíl-
stjórar mjög óánægðir með viðbrögð
ráðuneytanna og segja þolinmæði
sína þrotna.
Þess vegna hafa sendibílstjórarnir
ákveðið að grípa til þeirra aðgerða
sem að ofan greinir sem sinna fyrstu
aðgerða, en verði ekki á þá hlustað
munu þeir ákveða áframhaldandi
aðgerðir eftir helgina.
Að sögn Alberts Ómars Guð-
brandssonar hjá Samstarfsnefnd
sendibílstjóranna eru það fjölmörg
atriði sem sendibílstjórar vilja gera
athugasemdir við, m.a. að fá leið-
réttingu á tvísköttun á sendibifreið-
um sínum, sem felist í því að hafi
þeir keypt bt'l fyrir áramót hafi þeir
borgað af honum söluskatt og síðan
ef þeir ætla að selja hann nú þurfi
þeir líka að greiða virðisaukaskatt.
Varðandi fólksflutninga sagði að
lögin væru svo sem nógu skýr varð-
andi það að sendibílstjórar mættu
ekki aka farþegum og leigubílar
mættu ekki aka varningi. Hins vegar
væru í reglugerð undanþágur fyrir
leigubílstjóra til að flytja varning og
vitað væri að þeir væru margir hverj-
ir á kafi í smávöruflutningum.
Albert Ómar sagði að allt í allt
væru um 600 sendibílstjórar í félag-
inu en hann ætti von á að um 400
myndu taka þátt í aðgerðunum í
kvöld. Aðspurður sagði hann að
fólk yrði ekki flutt í vörurými sendi-
bílanna en til væru bílar með nokkuð
mörgum sætum. Annars myndu
menn taka farþega í samræmi við
leyfðan farþegafjölda í skráningar-
skírteini bílanna. „Við ætlum okkur
ekki að fara að brjóta lög,“ sagði
Albert Ómar Guðbrandsson. - BG
Handboltahöllin í biðstöðu. Ríkisstjórnin frestaði ákvörðun:
Rís hún í Kópavogi?
Bygging handboltahallar í Laug-
ardal í Reykjavík kom til umræðu á
fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld.
Alfreð Þorsteinsson Framsóknar-
flokki minnti þar á tillögu sína í
borgarráði frá 20. febrúar þar sem
gert var ráð fyrir að borgin lýsti því
yfir að höllin risi og viðræður hæfust
við ríkisstjórnina um málið.
Afgreiðslu tillögunnar hefur verið
frestað en verður væntanlega lokið á
fundi borgarráðs n.k. þriðjudag. Al-
freð gagnrýndi harðlega sinnuleysi
borgarstjórnarmeirihlutans í málinu
sem óhjákvæmilega myndi leiða til
þess að Reykjavík missti af lestinni
og höllin risi annars staðar. „Ég
harma það því að ég tel, eins og
flestir sem þekkja til þessara mála,
að eðlilegast sé að þessi höll rísi í
Reykjavík," sagði Alfreð.
Bygging handboltahallar er nú á
borði ríkisstjórnarinnar og var tekið
fyrir á fundi hennar síðla dags í gær.
Þess var vænst að tekin yrði ákvörð-
un á fundinum um að taka upp
Búnaðarþing verður
sett á mánudaginn
Búnaðarþing Búnaðarfélags ís-
lands verður sett næstkomandi
mánudag. Fjöldi mála liggur fyrir
þinginu sem búist er við að standi í
tíu daga. Við setningarathöfnina,
sem hefst kl. 10, flytja ávörp Hjörtur
E. Þórarinsson formaður Búnaðar-
félags íslands, Álfhildur Ólafsdóttir
aðstoðarmaður landbúnaðarráð-
herra og Haukur Halldórsson for-
maður Stéttarsambands bænda.
Meðal mála sem rædd verða á
þinginu er frumvarp um búfjárhald
en í því er fjallað um meðferð og
aðbúnað búfjár og um forðagæslu.
Einnig verður rætt um skýrslu nefnd-
ar um búfé á vegum, skýrslu nefndar
um konur í landbúnaði, stefnumörk-
un í gróðurvernd, breytingar á lög-
um um forfalla- og afleysingaþjón-
ustu í sveitum, þingsályktunartillögu
um landgræðslu, frumvarp um inn-
flutning dýra og fleira.
Á Búnaðarþingi sitja 25 kjörnir
fulltrúar, en auk þess eiga málfrelsi
og tillögurétt á þinginu ráðunautar
Búnaðarfélags íslands og stjórn fé-
lagsins. - EÓ
viðræður við Kópavogskaupstað
sem boðist hefur til að láta land af
hendi til hallarinnar og greiða götu
hennar. Handboltahöllin hefur verið
á borði ríkisstjórnarinnar um skeið
en á borgarstjórnarfundinum í fyrra-
dag kvaðst Alfreð Þorsteinsson hafa
beitt sér fyrir því við Steingrím
Hermannsson forsætisráðherra að
ákvörðun ríkisstjórnarinnar yrði
frestað þar til afstaða borgarráðs
Reykjavíkur lægi ljós fyrir. Ríkis-
stjórnin frestaði í gær að taka
ákvörðun um málið.
Á borgarstjórnarfundinum í fyrra-
kvöld kom til harðra orðaskipta
milli Alfreðs Þorsteinssonar Davíðs
Oddssonar borgarstjóra vegna fyrir-
spurnar þess fyrrnefnda um launa-
kjör og bifreiðahlunnindi borgar-
stjóra.
Alfreð sagði að hann teldi alls
ekki óeðlilegt að borgarstjóri hefði
aðgang að góðri embættisbifreið.
Hins vegar hlyti það að teljast of-
rausn að hann hefði tvær slíkar
bifreiðar. Þetta væri bruðl og hégómi
sem bæri að afnema. - sá
Samflot bæjarstarfsmanna styður félaga
sína á Selfossi:
Drengskapur
verðisýndur
Viðræðunefnd Samflots for-
dæmir þær hækkanir á vöru- og
þjónustugjaldskrám ýmissa opin-
berra stofnana og fyrirtækja; þar
með talinna sameignarfyrirtækja
ríkis og sveitarfélaga, sem átt hafa
sér stað þvert ofan í umsamin
markmið og algjörar forsendur
þjóðarsáttar.
Samflot er viðræðunefnd bæjar-
starfsmannafélaga sem starfað hef-
ur um árabil að gerð kjarasamn-
inga og kemur fram sem ein heild
gagnvart launanefnd sveitarfélaga.
I Samfloti eru öll bæjastarfsmanna-
félög nema á Akranesi, Siglufirði
og í Reykjavík.
í yfirlýsingu sem Samflot sendi
frá sér í gær segir ennfremur að
forsvarsmenn aðildarfélaga að
þjóðarsátt um nýgerða kjarasamn-
inga hafi lagt sig fram um að
sannfæra félaga sína um nauðsyn
þess að taka ábyrgan þátt í þeirri
tilraun sem samningarnir eru.
Þetta sé gert í trausti þess að allir
taki á sig þá frystingu óréttlætis
sem í sáttinni felst, þrátt fyrir að
launamenn geti fært gild rök fyrir
því að laun skuli leiðrétta. Síðan
segir:
„Því er það skýlaus krafa að
þessar hækkanir verði þegar í stað
dregnar til baka og aðilar sýni þann
drengskap að standa við gefin fyrir-
heit. Verði það ekki gert er ljóst að
forsendur samkomulagsins eru
brostnar og hlýtur að verða tekið
mið af því við fyrsta rauða strikið
í maí n.k.“
í framhaldi af ofanskráðu lýsir
Samflot yfir fullum stuðningi við
afstöðu starfsmannafélags Selfoss
sem fellt hefur nýgerða samninga
vegna hækkana á þjónustu bæjar-
félagsins. - sá
Listi Framsóknarmanna á Akranesi:
Ingibjörg Pálma
í fyrsta sætinu
Framboðslisti framsóknarm-
anna fyrir bæjarstjómarkosn-
ingarnar í vor, var lagður fram í
gær. Frambjóðendur í fyrstu áttg
sætum listans eru:
1. Ingibjörg Pálmadóttir, hjúkr-
unarfræðingur.
2. Steinun Sigurðardóttir, hjúkr-
unarfræðingur.
3. Jón Hálfdánarson, eðlis-
fræðingur.
4. Gissur Þ. Ágústsson, pípulagn-
ingamaður.
5. Oddný Valgeirsdóttir, skrif-
stofumaður.
6. Soffía Magnúsdóttir, skrifstofu-
maður.
7. Leifur Þorvaldsson, húsgagna-
smiður.
8. Guðrún Jóhannsdóttir, skrif-
stofumaður.
- ÁG
Níu ára telpuhnokki áreittur af karlmanni í Reykjavík:
Lögregan leitar nú
manns er elti barn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
leitar nú karhnanns, sem sýndi níu
ára gamalli stúlku áreiti í gærdag.
Stúlkan var á leið heim til sín um
miðjan dag í gær er atburðurinn átti
sér stað. Fyrir einskæra heppni náði
maðurinn ekki til stúlkunnar og má
þakka það þvf að móðir stúlkunnar
kom óvenju snemma heim úr vinnu.
Atburðurinn átti sér stað í blokk í
Ljósheimunum.
Maðurinn beið í bíl fyrir utan
blokkina. Þegar stúlkan kom gang-
andi og opnaði dyrnar inn í húsið,
sætti hann lagi og hljóp á eftir henni
og komst inn um leið og hún. Þegar
inn var komið gekk maðurinn að
lyftunni, en þá var barnið orðið
hrætt og tók sprettinn upp stigann í
stað þess að nota lyftuna. Maðurinn
hljóp á eftir stúlkunni upp stigann og
alla leið inn í íbúðina þar sem hún
bjó. Svo vel vildi hins vegar til að
móðir stúlkunnar var fyrir tilviljun
komin óvanalega snemma heim. Að
sögn móðurinnar, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, sneri maðurinn
snarlega við þegar hann áttaði sig á
því að hann var ekki einn með
barninu í íbúðinni og hraðaði sér til
baka. Móðirin hljóp á eftir mannin-
um, en náði aldrei að sjá framan í
hann. Maðurinn komst óhindraður
upp í bílinn fyrir utan blokkina og
ók í burtu. Móðirin náði hins niður
númeri bílsins og gat lýst útliti hans
þegar lögreglan kom á staðinn.
Maðurinn náði ekki að gera stúlk-
unni níu ára gömlu neitt mein, en að
sögn móðurinnar var stúlkan skelk-
uð eftir atburðinn. Aðspurð um
hvort hún hefði sjálf ekki verið
hrædd við manninn, kvaðst hún ekki
hafa leitt hugann að neinu öðru
heldur en að ná manninum.
Allir lögreglubílar á höfuðborgar-
svæðinu hafa fengið lýsingu á
bílnum, ásamt númeri, en í gær-
kveldi var maðurinn enn ófundinn.
Að sögn lögreglunnar eru þó mjög
miklar líkur á að hægt verði að hafa
upp á manninum, en málið var sett
í hendur rannsóknarlögreglunnar
strax í gær. - ÁG