Tíminn - 03.03.1990, Blaðsíða 13
Laugardagur 3. mars 1990
Tíminn 25
73
rLvixixtJðiHnr
Utl
Reykjavík
Létt spjall á laugardegi
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi mun ræöa um borgarstjórnarkosn-
ingarnar og framboðsmál laugardaginn 3. mars n.k. kl. 10.30 í
Nóatúni 21.
Allir velkomnir.
Fulltrúaráðið
JónHelgason Guðni Ágústsson Unnur Stefánsdóttir
Stokkseyri - Eyrarbakki
Árlegur stjórnmálafundur og viðtalstími þingmanna Framsóknar-
flokksins verður á eftirtöldum stöðum.
Gimli, Stokkseyri, mánudaginn 5. mars kl. 21.00.
Stað, Eyrarbakka, þriðjudaginn 6. mars kl. 21.00.
GuðmundurG. ÓlafurÞ.
Þórarinsson Þórðarson
Strandamenn athugið
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Hólmavík laugardaginn
3. mars kl. 14.00. Guðmundur G. Þórarinsson og Ólafur Þ. Þórðarson
hafa framsögu.
Allir velkomnir.
Reykjavík
Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Reykjavík
gengst fyrir fundi með Guðmundi G. Þórarinssyni
alþingismanni um álmálið fimmtudaginn 8. mars
n.k. kl. 20.30 að Nóatúni 21. Allir velkomnir.
Fulltrúaráðið.
Virðum líf verndum jörð
Umhverfismái í brennidepli
Landssamband framsóknarkvenna og Samband ungra framsóknar-
nna verða með fund um umhverfismál fimmtudaginn 15. mars n.k. kl.
20.00 í Nóatúni 21 þar sem fyrirlesarar munu kynna hina ýmsu þætti
umhverfismála. Nánar auglýst síðar. Allir velkomnir.
L.F.K. og S.U.F.
Viðtalstími L.F.K.
Guðrún Jóhannsdóttir, varaformaður
Landssambands Framsóknarkvenna,
verður til viðtals á skrifstofu
Framsóknarflokksins að Nóatúni 21,
þriðjudaginn 6. mars n.k. kl. 15.17.
Allir velkomnir.
L.F.K.
Framsóknarfélag Seltjarnarness
Félagsfundur verður haldinn n.k. þriðjudag 6. mars kl. 20.30 í
húsakynnum félagsins að Eiðistorgi. Dagskrá: Framboðsmál.
Stjórnin.
REYKJANES
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17-19, sími 43222.
KFR.
Guðrún Jóh.
SPEGILL
Nýi dansfélaginn hennar Diönu
- Prinsessan fær tilsögn í gömlu dönsunum
Díana prinsessa þykir standa sig
vel í því að sinna opinberum
störfum, svo sem að vera við
opnun á listsýningum, vígslu nýrra
mannvirkja, heimsækja sjúkrahús,
barnaheimili og dvalarheimili aldr-
aðra.
Nýlega kom hún í heimsókn til
Toynbee Hall, í Stepney, í East
End í London. Þar tók á móti
henni John Profumo, fyrrum ráð-
herra, sem hér um árið lenti í
hneykslismálinu með Christinu
Keeler og fleira fólki. John Prof-
umo hrökklaðist úr ráðherrasæt-
inu, en gerði iðrun og yfirbót og
hefur helgað sig líknarmálum og
félagsstörfum. Profumo er nú for-
stjóri Toynbee Hall.
Þegar Diana kom í heimsókn á
staðinn, sem er félagsmiðstöð fyrir
eldri borgara, þá var að byrja þar
eftirmiðdags-dansleikur.
Mark Collins, 69 ára fyrrv.
bankamaður, gekk til prinsessunn-
ar og bauð henni upp. Spilað var
„kvikk-step“ og Diana sagðist ekki
kunna að dansa það, en sló samt
til. Sjónvarpsmenn voru fljótir
með vélar sf nar að elta dansparið.
Eftir dansinn hældi Mark Collins
Díönu prinsessu á hvert reipi.
„Hún er alveg frábær dansdama og
við komumst strax í takt,“ sagði
hann.
Díana virtist skemmta sér vel og
gamla fólkið var mjög ánægt yfir
heimsókninni.
Díana ræðir við eldri konu sem
færði henni blómvönd.
John Profumo, fyrrum ráðherra
(annar f.h. á myndinni), tekur
hér á móti Díönu prinsessu þeg-
ar hún heimsótti Toynbee Hall
Um
snjó
Það er ekki úr vegi, eins og
veðráttan hefur verið hérlendis
undanfarið, að birta nokkra fróð-
leiksmola um snjó og snjókomu.
Stærsti snjókall sem nokkurn
tíma hefur verið búinn til var 48 fet
á iiæð og mesti snjór sem hefur
fallið á einum mánuði var 775 sm í
Tamarack í Kaliforníu.
Þau tóku sig vel út sem danspar, Mark Collins og Díana
Það snjóar í hvert skipti sem verður jarðskjálfti.
Eskimóar eiga 70 orð yfir snjó.
„Ganik" er snjókoma og snjór á
jörðu er „sput“.
Jöklar hylja um 12% af yfirborði
jarðar. Grænlandsjökull dugir til
að hvert mannsbarn í heiminum
geti fengið tveggja tonna ísklump
á hverri mínútu í heilt ár.
Nancy Knignht, sem vinnur á
rannsóknarstofu í Colorado, fann
tvö nákvæmlega eins snjókorn
1986 og afsannaði þar með kenn-
inguna um að engin tvö snjókorn
væru eins.
Snjór vegur frá 50 kílóum hver
rúmmetri og upp í 300 kíió.
Það hefur aðeins snjóað 17 sinn-
um í Flórída frá árinu 1774. Þegar
snjóstormur skall þar á árið 1774
kölluð indíánarir hann „hvítt
regn“.
Mesta snjókoma sem mælst hef-
ur á einum degi var 19 metrar, en
það var í Colorado 14. apríl 1921.