Tíminn - 27.03.1990, Síða 4
4 Tíminn
FRÉTTAYFIRLIT
BEIRÚT - Stríðandi fylking-
ar kristinna manna í Líbanon
börðust af mikilli hörku í Beirút.
Eldflaugum var óspart beitt í
atganginum og stöðvaðist allt
athafnalíf á meðan.
AUSTUR-BERLÍN-lbra
him Böhme leiðtogi austur-
þýskra jafnaðarmanna lét
tímabundið af embætti sínu til
þess að mótmæla ásökunum,
sem á hann hafa verið bornar,
um að hann hafi njósnað fyrir
Stasi, hina illræmdu öryggis-
lögreglu. Þá lét ríkissaksóknari
niðurfalla landráðsákærur á
Erich Honecker og þrjá sam-
starfsmenn hans. Einn þeirra
fékk að fara frjáls ferða sinna,
en hinir þrír verða að svara til
saka fyrir spillingu.
JERÚSALEM - Pólverjar
hafa boðið sovéskum Gyðing-
um hjálp til að komast til ísrael,
eftir að Ungverjar hættu að
fljúqa með þá vegna hótanna
hryðjuverkamanna.
NÝJA JÓRVÍK - Land-
flótta Kúbumaður hefur verið
sakaður um að hafa myrt 87
manns með því að kveikja í
ólöglegum næturklúbbi í Nýju
Jórvík. Lögreglan segir að
Kúbumaðurinn hafi kveikt í
næturklúbbnum eftir að kær-
astan sagði honum upp.
WASHINGTON -Þríraðil-
ar er starfa að geimferðaáætl-
un Bandaríkjamanna hafa
dregið í efa tæknilega getu
Bandaríkjamanna til þess að
gegna fyrirhuguðum rann-
sóknum á sólkerfinu.
PRISTINA - Jusuf Kara-
kashi innanríkisráðherra í Kos-
ovo hefur sagt af sér, eftir að
að Serbía tók yfir lögreglumál-
in í Kosovo í kjölfar ólgu, sem
varð, er Albanar í héraðinu
sökuðu Serba um að eitra fyrir
albönskum börnum.
KABÚL - Zahir Shah, hinn
útlægi konunaur Afgana, hefur
nú fengið boo frá Kabúlstjórn-
inni um að koma til Kabúl á
ráðstefnu, sem ræða á um
stofnun „friðarfylkingar".
BOGÓTA - Innanríkisráð-
herra Kólumbíu hefur sagt af
sér vegna óánægju með stefnu
ríkisstjórnarinnar í baráttunni
gegn eiturlyfjahringunum í
landinu. Ráðherrann er einn
harðasti baráttumaðurinn
gegn eiturlyfjabarónunum í
Kólumbíu.
IIIIIIIIII UTLOND ..................
Vytautas Landsbergis forseti Litháen, annar frá vinstri, fagnar sjálfstæðisyfirlýsingu Litháa 11. mars ásamt félögum sínum á þingi Litháa. Síðan þá hefur
taugastríð sovéskra stjórnvalda við Litháa aukist og harðnað, en sovéskar hersvcitir spranga nú um Litháen gráar fyrír járnum.
Sovéski herinn heyr
taugastríð í Litháen
Mikhaíl Gorbatsjof forseti Sovét-
ríkjanna hefur hafnað þeim kröfum
Litháa að hann skipi sovéskum
hermönnum að yfirgefa opinberar
stofnanir og hefur Gorbatsjof gefið
í skyn að hervaldi kynni að vera beitt
ef mannslífum verði stofnað í hættu.
Hins vegar lagði hann áherslu á að
friðsamleg lausn fyndist á deilumál-
um Litháa og stjórnvalda Sovétríkj-
anna. Það var bandaríski öldunga-
deildarþingmaðurinn Edward
Kennedy sem skýrði frá þessu á
blaðamannafundi eftir að hann hafði
rætt við Gorbatsjof í Moskvu í gær.
- Gorbatsjof forseti upplýsti mig
um þá afstöðu Sovétríkjanna að
valdi yrðu ekki beitt nema mannslíf-
um væri ógnað. Gorbatsjof ítrekaði
þá yfirlýsingu sína, að unnið yrði að
friðsamlegri lausn á málinu sem ógni
einingu Sovétríkjanna, sagði
Kennedy á blaðamannafundinum.
Bandaríkjastjórn hefur lýst yfir
harmi sínum með þróun mála í
Litháen undanfarna daga og segir að
atburðir þessir gætu skaðað sam-
skipti Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna, sem verið hafa ótrúlega góð
að undanförnu.
Þá hafa ýmis ríki mótmælt hernað-
arbrölti sovéskra stjórnvalda í Lit-
háen og hvatt til þess að sovéska
ríkisstjórnin hefji friðsamlegar við-
ræður við Litháa um sjálfstæði
þeirra. Til að mynda kallaði Kjell
Magne Bondevik utanríkisráðherra
Noregs sendiherra Sovétríkjanna á
sinn fund og mótmælti aðgerðum
þeirra í Litháen. Það sama gerðu
Frakkar og Hollendingar.
Þá lýsti Sten Anderson utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar yfir stuðningi
við sjálfstæðishreyfingu Litháa, en í
Svíþjóð voru víða um land haldnir
fjölmennir mótmælafundir gegn að-
gerðum Sovétríkjanna í Litháen.
Taugastríð sovéskra stjórnvalda gegn Litháen er enn í
fullum gangi og er ekki loku fyrir það skotið að Sovétmenn
muni að endingu beita hervaldi við að brjóta sjálfstæðishreyf-
ingu Litháa á bak aftur. Nú um helgina hefur sovéska
ríkisstjórnin ógnað litháum með því að senda mikið herlið til
landsins og hefur það tekið sér stöðu í ýmsum opinberum
byggingum í lýðveldinu. Þá fer mikið fyrir hermönnum gráum
fyrir járnum á götum Vilnu, höfuðstaðs Litháen en um
helgina sendu sovésk stjórnvöld skriðdreka inn fyrir borgar-
mörkin undir því yfirskyni að um heræfingu væri að ræða.
Suður-afríska lögreglan
drepur átta blökkumenn
Suður-afríska lögreglan drap átta
blökkumenn er hún hóf skothríð á
ólöglega mótmælagöngu í blökku-
mannahverfinu Sabokeng suður af
Jóhanncsarborg í gær. Er talið að
yfir hundrað manns hafí særst í
skothríðinni. Eru viðbrögð þessi
mjög á skjön við stefnu suður-
afrískra stjórnvalda að undanfömu
sem linað hafa á aðskilnaðarstefn-
unni.
Talsmaður sjúkrahússins í hverf-
inu segir að straumur særðra
blökkumanna hafi legið til sjúkra-
hússins eftir átökin og skýrði frá því
að komið hafi verið með átta manns
sem ýmist hafi látist á sjúkrahúsinu
eða verið látnir af skotsárum þegar
þangáð var komið. Taldi hann
möguleika á að fleiri myndu látast af
skotsárum sínunt.
Lögreglan í Sabokeng vildi ekki
'staðfesta að einhverjir hefðu fallið í
átökunum.
Þúsundir blökkumanna höfðu
safnast saman á götum Sabokeng til
að mótmæla hárri leigu og kynþátta-
aðskilnaðarstefnunni í Suður-
Afríku.
- Ástandið er mjög óljóst og halda
menn uppi stanslausum árásum á
lögreglumenn, aðallega með grjót-
kasti, sagði í yfirlýsingu lögreglunn-
ar.
Sjónarvottar segja að lögreglan
hafi byrjað skothríð með gúmmíkúl-
um og haglabyssum eftir að mótmæl-
in voru úrskurðuð ólögmæt. Blökku-
menn hafi komið sér upp götuvígum
og þá hafi óeinkennisklæddir hvítir
menn ekið um hverfið og skotið á
fólk af handahófi.
Þá féllu átta manns í innbyrðis
Vegna hægagangs, bilana í tölvum
og banns við skoðanakönnunum á
kjördag gekk talning hægt í fyrri
umferð ungversku þingkosninganna
sem haldnar voru á sunnudag. Þó
virðist ljóst að hægri miðflokkurinn
Lýðræðislegur vettvangur hafi hlotið
mest fylgi um það bil 24% atkvæða,
en fast á hæla hans kemur Bandalag
frjálsa lýðræðissinna, sem eru frjáls-
lynd jafnaðarmannasamtök með rétt
rúmlega 20%.
Sósíalistaflokkurinn sem stofnað-
ur var í rústum gamla kommúnista-
flokksins eftir að umbótahreyfingin
gekk af honunt dauðum og farið
hefur með völdin í landinu hlaut
aðeins um 10%. Er það 3% minna
en Bændaflokkurinn og aðeins meira
en Flokkur ungra jafnaðarmanna
átökum blökkumanna í Natalhéraði
í gær. Því hafa um 220 manns fallið
í óeirðum frá því Nelson Mandela
leiðtogi Afríska þjóðarráðsins var
leystur úr haldi í síðasta mánuði.
sem eingöngu bauð fram ungt fólk
35 ára og yngra.
Talið er að í fyrri umferð kosning-
anna verði einungis skorið úr um 100
til 120 þingsæti af þeim 386 sem
kosið er um, því samkvæmt kosn-
ingareglum verður frambjóðandi að
hljóta 50% atkvæða til að ná kjöri.
Einn af fáum frambjóðendum sem
vitað er að náði því marki er Miklos
Nemeth fráfarandi forsætisráðherra
Ungverjalands.
Það stefnir því í harða baráttu
Lýðræðislegs vettvangs og Banda-
lags frjálsra lýðræðissinna í síðari
umferð kosninganna sem fram fer
8.apríl. Hins vegar er ljóst að valda-
tími kommúnista og arftaka þeirra í
Ungverjalandi er liðinn.
Sovétríkin:
Armenar
myrða
þrettán
Azera
Öfgafullir Armenar réðust á
hóp Azera er voru á ferð um
Nagorno-Karabakh hérað á lang-
ferðabíl, drápu einn og særðu
fjóra. Frá þessu skýrði Tass, hin
opinbera sovéska fréttastofa í
gær. Þá hafa þrettán mann fallið
í þjóðernisátökum í Kákasuslýð-
veldum Sovétríkjanna undan-
farna fimm daga.
Armenskir öfgamenn virðast
vera að færa sig upp á skaftið
einmitt þegar vonir stóðu til, að
úr átökum færi að draga á þessum
slóðum, en undanfarnar vikur
hafði mjög sljákkað í deiluaðil-
um. Vopnaðar sveitir Armena
brenndu inni níu Azera, þar af
var fimm manna fjölskylda, í
þremur þorpum í Azerbajdzhan
um helgina.
Kosningaúrslitin í
Ungverjalandi óljós