Tíminn - 28.03.1990, Page 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 28. mars 1990
UTLOND
Eistar hyggjast taka skref í átt til sjálfstæöis meö því að afnema sovésku stjómarskrána í Eistlandi, en þeir ganga þó ekki eins langt og Lithaugar
sem lýstu yfir fullu sjálfstæði með þeim afleiðingum að í Lithaugalandi er nú allt morandi af sovéskum hermönnum í viðbragðsstöðu.
Sovéskir hermenn handtaka Lithauga sem yfirgáfu sovéska herinn í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar:
Eistar hyggjast afnema
sovésku stjórnarskrána
Ekki sér fýrír endann á væríngum Eystrasaltsríkjanna og sov-
éskra stjórnvalda. Taugastríðið í Lithaugalandi fer stigvaxandi
og í gær bárust fréttir af því að Eistar hafi í hyggju að nema sov-
ésku stjómarskrána úr gildi í Eistlandi. Hið nýkjöma þing Eist-
lands, sem kemur nú saman í fýrsta sinn, mun greiða atkvæði
um afnám stjómarskrárinnar um helgina og er talið öruggt að
fulltrúar þjóðemissinna sem ráða yfir tilskildum tveimur þríðju
hlutum þingsins, muni samþykkja afnámið.
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA - Verkföll og pól-
itísk ólga hefur orðið til þess að
hægst hefur verulega á iðn-
framleiðslu í Sovétríkjunum og
bendir ekkert til þess að
ástandið muni batna.
BRASILÍA - Fernando
Collor de Mello hinn nýi forseti
Brasilíu sem gripið hefur til
mjög harkalegra aðgerða til að
bæta efnahagsástands lands-
ins dró til baka ákvæði í bráða-
birgðalögum sem heimilaði að
fangelsa fólk sem uppvíst yrði
að misnotkun efnahagslegs
valds.
LONDON - 27 manns féllu
og 22 særðust er afganskir
skæruliðar hófu eldflaugaárás-
ir á íbúahverfi Kabúl.
WINDHOEK - Sam Nu-
jomba forseti Namibíu veitti
fjölda fanga sakaruppgjöf.
BÚDAPEST - Allt bendir til
þess að samsteypustjórn
miðjuflokka verði ofaná í Ung-
verjalandi. Þeir tveir flokkar er
hlutu flest atkvæðin eru báðir
miðjuflokkar sem reyndar hafa
barist af mikilli hörku um hylli
ungverskra kjósenda í þessum
fyrstu frjálsu kosningum sem
haldnar eru í Ungverjalandi I
fjóra áratugi.
BEIRÚT - Sovétríkin hafa
fækkað verulega í starfsliði
sendiráðs síns i Beirút eftir að
öfgasamtök múslíma hótuðu
að ráðast á þau lönd sem
standa að fjöldaflutningum
Gyðinga frá Sovétríkjunum til
Israel.
AUSTUR-BERLÍN
Kosningabandalaa hægri-
manna sem sigraoi svo glæsi-
lega í kosningunum í Austur-
Þýskalandi vill að Volks-
kammer, austur-þýska þingið,
skuli hefja störf 3. apríl þrátt
fyrir að grunur leiki á að hluti
þingmanna hafi unnið fyrir hins
illræmdu Stasi öryggislög-
reglu.
LOS ANGELES - Kvik-
myndin „Driving Miss Daisy"
hlaut Oskarserðlaunin fyrir
bestu kvikmyndina árið 1989
og hin áttæða leikkona Jezzica
Tandy er leikur Miss Daisy
hlaut Óskarinn sem besti kven-
leikarinn í aðalhlutverki. írska
kvikmyndin „My Left Foot“
skaut kvikmyndum stóru kvik-
myndafyrirtækjanna ref fyrir
rass og hlaut tvenn óskar-
sverðlaun. Breski leikarinn
Daníel Day-Lewis hlaut verð-
laun fyrir besta karlhlutverkið
og Brenda Fricker hlaut verð-
launin fyrir besta leik í auka-
hlutverki.
Afnám sovésku stjómarskrárinnar
þýðir að sovésk lög munu ekkert
gildi hafa í Eistlandi, einungis lög er
eistneska þingið samþykkir. Hins
vegar ganga Eistar ekki eins langt og
Lithaugar sem lýstu yfir fullu sjálf-
stæði 11. mars.
Vytautas Landshergis, forseti Lit-
haugalands, itrekaði í gær ótta sinn
um að Sovétmenn hefðu ákveðið að
beita hervaldi í Lithaugalandi og
biðlaði til vestrænna ríkja um hjálp.
Landsbergis lýsti þessum ótta sínum
Glæpir Stalínstímans koma nú upp á
yfirborðið í Austur-Evrópu eftir því
sem lýðræðisþróunin gengur lengra.
Um helgina fúndu verkamenn á veg-
um austur-þýskra stjómvalda tvær
fjöldagrafir í Austur-Þýskalandi þar
sem talið er víst að fómarlömb ör-
yggislögreglu Stalíns sé að finna.
Það var hin opinbera fréttastofa
Austur-Þýskalands sem í gær skýrði
ffá því að verkamenn hefðu eftir
nokkra leit fúndið jarðneskar leifar
fólks í skógunum nærri bænum Or-
anienburg. Bærinn er ekki langt ffá
útrýmingarbúðum nasista í Sachsen-
yfir eftir að sovéskir fallhlífaher-
menn höfðu mðst inn á sjúkrahús í
Vilnius og Kaunus tekið höndum Lit-
hauga er gerst höfðu liðhlaupar úr
sovéska hemum í kjölfar sjálfstæðis-
yfirlýsingar þings Lithaugalands.
Um sama leyti hertóku fallhlífaher-
menn aðalstöðvar kommúnista-
flokksins í Vilnius.
Landsbergis sagði að greinileg
stefnubreyting hefði orðið hjá sov-
éskum stjómvöldum á mánudaginn
og vitnaði í orð Mikhaíls Gorbat-
hausen, en þeim búðum var breytt í
fangabúðir öryggislögreglu Stalíns
eftir að sigur hafði unnist á Þjóðveij-
um í síðari heimsstyijöldinni. Er talið
ömggt að fómarlömb sovésku örygg-
islögreglunnar hvíli í gröfúnum.
Grafimar fúndust eftir ábendingum
Þjóðveija er sovéska öryggislögregl-
an hafði í haldi í Sachsenhausen á ár-
unum 1945 til 1948.
A laugardaginn hafði fréttastofan
skýrt ffá því að fjöldagröf hefði fund-
ist í bænum Neubrandenburg þar sem
fjölda líka fómarlamba sovésku ör-
yggislögreglunnar væri að finna.
sjofs, forseta Sovétríkjanna, en hann
sagði hervaldi ekki verða beitt í Lit-
haugalandi nema að lífi manna yrði
stefnt í voða. Áður höfðu sovésk yfir-
völd algerlega hafnað hervaldi.
Lithaugar hafa krafist þess að sov-
ésk yfirvöld sleppi Lithaugunum sem
yfirgefið höfðu sovéska herinn og
sakað Sovétmenn um mannrán.
Eistar og Lettar hafa fordæmt að-
gerðir sovéskra stjómvalda í Lit-
haugalandi, en em þó ekki reiðubún-
ir að taka eins stórt skref og
Lithaugar gerðu með sjálfstæðisyfir-
lýsingu sinni þótt afnám sovésku
stjómarskrárinnar í Eistlandi sé ótví-
rætt spor í þá átt.
Eistar hafa hins vegar lýst áhuga
sínum fýrir viðræðum við sovésk
stjómvöld um sjálfstæði landsins og
vilja greinilega ná því marki með
samningum, enda þurfa þeir að taka
Fjöldagrafimar í Neubrandenburg
fúndust eftir vísbendingu sagnfræð-
ingsins Dieters Krúgers, sem rann-
sakað hefúr örlög hinna fjölmörgu
fanga sem hurfú sporlaust í höndun-
um á sovésku öryggislögreglunni.
Annar sagnfræðingur Gerhard Finn
hefúr leitt getur að því með rökum
eftir ítarlegar rannsóknir að um það
bil 70 þúsund Þjóðveijar hafi látist af
harðræði eða hreinlega verið drepnir í
fangabúðum sovésku öryggislögregl-
unnar.
tillit til hinna íjölmörgu Rússa er búa
í Eistlandi. í Eistlandi og Lettlandi
em Eistar og Lettar ekki nema rétt
rúmlega helmingur íbúa, en í Lit-
haugalandi em 80% íbúa Lithaugar.
Þess má geta að kommúnistaflokk-
urinn i Eistlandi sagði skilið við sov-
éska kommúnistaflokkinn um síð-
ustu helgi og fetaði þannig í fótspor
kommúnistaflokksins í Lithauga-
landi er tók slíkt skref í desember. Þá
mun kommúnistaflokkurinn í Lett-
landi ræða hugsanlegan aðskilnað á
þingi sínu 6. april.
Mjakast í
friðarátt
Javier de Cuellar, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, segir að mál
séu að mjakast í friðarátt i Vest-
ur- Sahara. De Cuellar hefur að
undanfomu rætt við stjómvöld i
Marokkó og leiðtoga Polasaríó
skæmliðahreyfingarinnar í Vest-
ur- Sahara, en þessir aðilar hafa
háð styrjöld um þessa fýrrum ný-
lendu Spánveija þau fimmtán ár
sem liðin em ffá því spænsk
stjómvöld yfirgáfú svæðið.
— Við höfúm náð nokkrum ár-
angri. En það em enn ýmis
vandamál í veginum sem við
verðum að reyna að leysa svo
fljótt sem auðið er. Þetta er hæg
þróun, sagði De Cuellar á blaða-
mannafundi í gær.
Báðir aðilar hafa samþykkt að
haldin verði þjóðaratkvæða-
greiðsla undir stjóm Sameinuðu
þjóðanna um það hvort Vestur-
Sahara skuli hljóta sjálfstæði eða
hvort landsvæðið skuli sameinast
Marokkó. Hins vegar em menn
ekki á eitt sáttir um það hvemig
að því verði staðið.
Glæpir Stalínstímans koma upp á yfirborðið:
Fjöldagrafir finnast
í Austur-Þýskalandi