Tíminn - 29.03.1990, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 29. mars 1990
Tíminn 17
Félagsmálaskóli
Framsóknarflokksins
Sigrun Guömundur
Magnúsdóttir Bjarnason
Dagskrá:
Fimmtudagur 29. mars
Kl. 20.00 Heilbrigðiskerfíð óbreytanlegt?
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra.
Kl. 21.30 Sveitastjórnarmál - nánasta umhverfíð
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi
Sunnudagur 1. apríl
Kl. 14.00 Skoðunarferð um Alþingi
starf þess og uppbygging
Jón Kristjánsson, alþingismaður
Kl. 16.00 Stjórnmál framtíðarinnar
Ísland framtíðarinnar
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra
Kl. 18.00 Afhending skírteina - skólaslit
Skráning þátttakenda fer fram í síma 91-24480 hjá
Agli Heiðari eða Þórunni Guðmundsdóttur.
Námskeiðsstaður: Nóatún 21, Reykjavík
Kópavogur - Kópavogur
Fundur um atvinnumál, hafnarmál, skipulagsmál og umhverfismál,
verður haldinn fimmtudaginn 29. mars kl. 20.30, að Hamraborg 5,
Kópavogi. Fjölmennið og takið þátt í stefnumótun.
Framsóknarfélögin
Framsóknarvist
verður spiluð sunnudaginn 1. apríl n.k. í
Danshöllinni (Þórscafé) kl. 14.00.
Þrenn verðlaun karla og kvenna. Guðmundur
Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra flytur stutt ávarp í kaffihléi.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Kópavogur - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið er í fullum gangi.
Opið hús alla virka daga frá kl. 13.00-19.00 laugardaga frá kl.
10.00-13.00. Sími 41590.
Framsóknarfélögin í Kópavogi
REYKJANES
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17-19, sími 43222.
KFR.
Norðurland eystra
Skrifstofa Framsóknarflokksins Hafnarstræti 90, Akureyri er opin alla
virka dagafrákl. 16-19, sími 96-21180.
Framsóknarmenn í Borgarfirði
Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarfjaðarsýslu verður haldinn á
Hvanneyri (Nýja skóla) sunnudaginn 1. apríl kl. 15.00.
Á fundin mæta formaður og varaformaður kjördæmasambandsins.
Stjórnin
SPEGILL
Hér sjáum við myndimar: tv. er Oprah, þ.e.a.s. höfuð hennar, — en við hlið hennar er upprunalega myndin af Ann-
Margret — fyrir 10 ámm — í módelkjólnum frá Bob Mackie
Sama myndin — en skipt um höfuö!
— Mynd á bandarísku sjónvarpsblaði sögð af Oprah Winfrey,
en er í raun 10 ára gömul mynd af leikkonunni Ann-Margret
„Þeir hafa stolið mínum kroppi!“
hrópaði Ann-Margret öskuvond
þegar hún sá forsíðu tímaritsins
„TV Guide“ en þar var mjög glæsi-
leg mynd, sem sögð var vera af
sjónvarps-konunni Oprah Winfrey.
Oprah er fræg fyrir viðtalsþætti
sína, þar sem hún rekur gamimar úr
viðmælendum sínum miskunnar-
laust.
Oprah var nokkuð feitlagin og fór
því í hörkumikinn megrunarkúr,
sem sjónvarpsáhorfendur fylgdust
með. Hún gerir ekkert með hálf-
velgju, hún Oprah, og þetta varð
eins og spennandi framhaldssaga í
sjónvarpinu hvemig henni tókst að
leggja af og grenna sig svo hún
komst í sífellt lægri kjólanúmer.
Þegar best lét notaði hún kjóla nr. 8,
— en um það leyti sem myndin birt-
ist á forsíðu TV-ritsins, sem var 26.
ágúst sl., þá hafði hún bætt á sig
mörgum kílóum, svo ráðamenn
tímaritsins gripu til þess ráðs, að
láta ljósmyndara falsa þessa mynd.
Það var Bob Mackie tískuhönnuð-
ur, sem hafði teiknað kjólinn á
myndinni fyrir leikkonuna Ann-
Margret fyrir 10 árum, sem þekkti
kjólinn á myndinni, uppstillinguna á
fyrirsætunni og m.a.s. hring Ann-
Margretar. En hörund fyrirsætunnar
hafði verið dekkt í samræmi við húð
Oprah og síðast en ekki síst: Það
hafði verið skipt um höfúð á fyrir-
sætu myndarinnar!
A forsíðu blaðsins er spurt hvort
Oprah sé ekki ríkasta kona í sjón-
varps-bransanum, og hún er látin
sitja á peningabunka, sem greini-
lega er teiknaður inn á myndina.
I fyrstu var Ann-Margret reið og
sár út í Oprah, en þá frétti hún að
Oprah sjálf væri ekki síður móðguð
við útgefendur TV-Guide, og hún
hefði ekkert vitað um folsunina á
forsíðunni.
Oprah segist vera miður sín út af
þessu máli. „Blaðaútgefendur hafa
niðurlægt mig fyrir alþjóð og gefa í
skyn að ég sé ekki það glæsileg að
hægt sé að birta af mér forsíðu-
mynd. Þetta er leiðindamái bæði
fyrir Ann- Margret og mig.
Þeir hafa móðgað okkur, þessir
karlar! Aldrei dytti þeim í hug að
gera annað eins og þetta við karl-
Oprah segist hafa bætt á sig 10-15
pundum, „en þaö er vel hægt aö taka
góða mynd af mér,“ sagöi hún móöguð
skemmtikrafta. Mér er sem ég sjái
þá setja haus af Phil Donahue
(bandarískur sjónvarpsmaður) á
kropp Amolds Schwarzeneggers!
Þeir hafa ekkert leyfi til að koma
svona fram við okkur konur," sagði
Oprah með þunga þegar hún ræddi
málið í sjónvarpsþætti sínum.