Tíminn - 17.03.1990, Page 3

Tíminn - 17.03.1990, Page 3
Laugardagur 17. mars 1990 Tíminn 13 var. í skúrnum var steingólf, og var það nokkru hærra en básarnir í fjósinu og stóðu kýrnar þarna á þurru. - Það mun hafa verið í þessu sama flóði, sem flæddi í kindakofann hans Halldórs Kr. Friðrikssonar í Kirkjustræti 12, og voru ærnar flutt- ar inn í Alþingishúsið, er þá var í byggingu. Þótti það kynleg tilviljun að kindurnar voru 32, eða nákvæm- lega jafnmargar þingmönnum þeirra tíma. Til allrar hamingju stóð þetta flóð ekki lengi og ekki varð truflun á kennslunni í barnaskólanum nema einn dag. Með næsta útfalli sjatnaði sjórinn svo að gangfært varð milli húsa, en slabb var þó á götunum fyrst á eftir. Annars eru það engar ýkjur, þótt sagt sé að einlægur flaumur væri í miðbænum, áður en höfnin var byggð og uppfylling gerð framan við Hafnarstrætið. Féll sjór undir allan miðbæinn og mun þannig hafa haft fleiri leiðir að Tjörninni en sjálfan Lækinn. Þetta sást best þegar farið var að grafa fyrir ýmsum stórhýsum í Miðbænum, eins og t.d. Alþingis- húsinu, bönkunum, Austurstræti 16 og fleiri húsum. Þá fylltust grunnarn- ir stöðugt um stórstraumsflæði, en um fjöruna féll út úr þeim, og upp úr þeim kom fyrst leir og síðan hreinn sjávarsandur, þegar grafið hafði verið djúpt niður. Eftir því sem innar eða sunnar í bæinn dregur dýpkar svo jarðvegurinn, en þó ímynda ég mér að einnig sé neðan- jarðarfarvegur milli Tjamar og sjáv- ar suður í Skerjafjörðinn. Árin sem ég var í bamaskólanum voru mestu harðinda - og hallærisár. Veturinn, sem flóðið, er minnst var á, varð í bænum, var harðindavetur- inn mikli 1881, en árið þar á eftir gengu mannskæðir mislingar. Komu þeir upp árið 1882 og bárust til landsins með póstskipinu frá Dan- mörku, en einn af farþegunum hafði veikst af mislingum á leiðinni. Var heimili hans sett í sóttkvf og strangur vörður hafður við húsið dag og nótt, en ekkert dugði. Mislingarnir breiddust út og dó úr þeim og afleiðingum þeirra fjöldi manns, svo að um tíma mátti daglega og jafnvel oft á dag heyra líkhringingar frá Dómkirkjunni. Voru mislingarnir að sínu leyti engu minni blóðtaka fyrir bæjarfélagið en spanska veikin 1918, þegar tekið er tillit til fámennis í bænum á þessum árum. Um helm- ingur bæjarbúa mun hafa lagst í veikinni, enda höfðu mislingar þá Annað hús frá vinstri hér á mynd- inni er hið svonefnda „Bierings- hús“, en þar var barnaskóli Helge- sens til húsa, uns byggingin var rifin 1882. Horft er vestur Hafnar- stræti. ekki gengið hér í 30 - 40 ár, svo að fólk undir þeim aldri var næmt fyrir þeim. Heima lögðumst við bömin öll í mislingunum, og er mér minnisstæð- ur fyrsti dagurinn, sem ég fékk að fara út eftir leguna, en þá sat ég í garðinum sunnan megin við húsið. Allt í einu sá ég hvar reykjarmökkur mikill steig upp við apótekið við Kirkjustræti. Hafði kviknað þar í lyfjageymslunni og brann hún, svo að litlu eða engu varð bjargað af lyfjunum, en þetta var eina lyfjabúð bæjarins þá og má nærri geta hver áhrif lyfjabruninn hefur haft í þeim veikindum sem geisuðu í bænum. Þegar hér var komið hafði ég lokið námi í barnaskólanum og var tekinn til við lestur undir Lærða skólann. Ég var í síðasta árganginum sem nam í gamla barnaskólahúsinu við Hafnarstrætið, því að sumarið 1882 var það rifið og þá hafin bygging á nýju barnaskólahúsi úr steini, og er það nú hús Lögreglu- stöðvarinnar í Pósthússtræti. OSTA- 0G SMJÖRSALAN SF. BITRUHÁLS 2 • P0 BOX 10100 • 130 REYKJAVÍK • rt 691600 • FAX 673465 Viðskiptavinir, athugið Helgina 17.-18. mars verður skipt um símanúmer hjá fyrirtækinu. Nýja símanúmerið okkar verður 69 16 00. Beint innval á söludeild verður 69 16 20. Hópferðaleyfi Samkvæmt lögum og nýrri reglugerð nr. 90/1990 um fólksflutninga með langferðabifreiðum skal hver sá sem hyggst stunda hópferðir í atvinnuskyni sækja um leyfi til Skipulagsnefndarfólksflutninga. Athygli skal vakin á því að allar breytingar á bifreiðakosti og skráningarnúmerum frá síðustu leyfisveitingu skulu tilkynntar Skipulagsnefnd. Ennfremur skal bent á að við eigendaskipti á hópferðabifreið fellur hópferðaleyfi úr gildi. Umsækjandi um hópferðaleyfi skal útfylla þar til gerð umsóknareyðublöð er liggja frammi á skrif- stofu Skipulagsnefndar fólksflutninga í Umferðar- miðstöðinni í Reykjavík. Skipulagsnefnd mun senda umsóknareyðublöð sé þess óskað. Umsóknarfrestur er til 1. apríl n.k. Skipulagsnefnd fólksflutninga Umferðarmiðstöðinni Vatnsmýrarvegi 10 101 Reykjavík Sími 91-19220 Fax 91-29973 Hl HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR BARÓNSSTÍG 47 Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar að ráða eftirtalið starfsfólk: Hjúkrunarfræðinga m.a. við heilsugæslu í skól- um og til sumarafleysinga á barnadeild, húð- og kynsjúkdómadeild og við heimahjúkrun. Ljósmæður á mæðradeild til sumarafleysinga. Sjúkraliða við heimahjúkrun til sumarafleysinga. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400 (milli kl. 9-10 f.h.) Umsóknum skal skila til skrifstofu Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur fyrir kl. 16.00 mánudaginn 26. mars 1990. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur og í Starfs- mannahaldi Reykjavíkurborgar, Austurstræti 16, Reykjavík. Alþingi útboð ÍSLENDINGA Skrifstofa Alþingis óskar eftir tilboðum í tölvubún- að: þjónustustöð, netbúnað og einkatölvur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Vonarstræti 8, annari hæð. Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en þriðjudaginn 27. mars 1990 kl. 12.00. Þau verða þá opnuð að Vonarstræti 12 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Skrifstofa Alþingis - Tölvudeild Félagsmálstofnun Reykjavíkurborgar Síðumúla 39, sími 678500 Félagsráðgjafi óskast nú þegar í 50% starf á hverfaskrifstofu félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. Upplýs- ingar veitir Anni G. Haugen í síma 625500. Umsóknum skal skilatil starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 2. hæð á umsóknar- eyðublöðum sem þar fást. BÍLALEIGA meö útibú allt í kringum landið. gera þér mögulegt að leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum Reykjavík 91-686915 Akureyri 96-21715 Pöntum bíla erlendis interRent Europcar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.