Tíminn - 12.04.1990, Page 5
■yyr 'óqfi .<it »uí®tuömmr-:
Fimmtudagur 12. apríl 1990
iirirni i *'
Tíminn 5
Harðindi og jarðbönn í Skagafirði halda áfram að taka sinn toll:
Fylfullar hryssur
hrynja enn niður
Undanfarnar vikur hafa hross í Skagafirði, einkum fylfuliar
hryssur, drepist í hrönnum. Harðindum og jarðbönnum allt frá
byijun ársins er einkanlega um kennt
Það var engu líkara en skriða færi
af stað, þegar þrjár merkar merar
drápust að Hólum í Hjaltadal, allar
fylfullar eftir stóðhöfðingjann Ljóra
frá Kirkjubæ. Tvær þessara mera
drápust af meltingarsleni, sem dýra-
læknar telja að rekja megi beint til
harðindanna. Þrátt fyrir að hryssum-
ar hefðu verið í ágætum holdum þá,
hefðu efnaskipti þeirra ruglast. Þegar
slíkt gerist, sé of seint að bjarga
þeim, þegar einkenni loks koma í
Ijós.
Ein ofannefndra þriggja Hólamera
drapst að vísu úr hjartaslagi, að því
er talið er, en auk þeirra hefur stóð-
hesturinn Vökull og ónefnd hryssa
nýlega drepist úr gamaflækju. Síð-
asttalda merin var ekki fylfull.
En dauðsfoll á Hólum em ekkert
einsdæmi þessa dagana í Skagafirði,
því að á Svaðastöðum hafa þrjár fyl-
fúllar merar drepist og tvær í Smiðs-
gerði. Þá hafa merar drepist í Viðvík
og á fleiri bæjum. Eftir því sem næst
varð komist í gær, höfðu um eða yfir
20 hross drepist í héraðinu frá því
um miðjan janúar sl., að langmestu
leyti fylfullar merar.
Skagfirðingar gerast nú ærið lang-
eygir eftir vorinu, en svo virðist,
sem það ætli að láta á sér standa.
Spáð er kuldum og éljagangi yfir
páskana norðanlands og í gær var
stórhríð og ófærð víðast hvar norð-
anlands. -sá
Eignatjón
á Akureyri
Vemlegt eignatjón var á Akur-
eyri um miðjan dag í gær, þegar
fárviðri gekk yfir bæinn. Vind-
hraðinn fór upp í 81 hnúta um
tíma, en það samsvarar 14 vind-
stigum. Jámplötur fuku af mjög
mörgum húsum og ollu tjóni á
bílum og húsum. Af einu fjölbýl-
ishúsi fuku allar jámplötur. Lög-
reglumenn og björgunarsveitar-
menn höfðu í nógu að snúast við
að aðstoða fólk og elta uppi jám-
plötur. Ekki hefur enn tekist að
meta tjónið. Enginn meiddist í
óveðrinu. Hins vegar lenti
Bandaríkjamaður, sem var að
sigla á kajak úti á Eyjafirði í
vandræðum.Hann komst ómeidd-
ur í land. -EÓ
Vegna mikils hvassviðris á Reykjavíkurflugvelli í gaer, þurfti að gripa til þess ráös að binda tvær flugvélar niður og leggja fýrir
þær olíubii og stórri hjólaskóflu til að verja vélamar.
Flugvélamar tvær voru á leiðinni til Bretíands frá Bandaríkjunum með viðkomu hér á landi. Sú, sem hér sést á myndinni, er
af gerðinni Beechcraft, framieidd á fjóröa áratugnum, en hin er af gerðinni Cessna Skyvan. Vindhraðinn á flugbrautinni
komst í mestu hviðunum upp f 63 hnúta, eða um 100 km.
Vegna veðurhæöar í Reykjavík í gænuorgun og ókyrröar í lofti fram eftir degi, lá innanlandsflug niðri. Tímamynd Ami Bjama
Ingiríður sýnd
á Tálknafirði
Stóra kókaínmálið í sakadómi:
Einn átti aö eiga sökina
Yfirheyrslur í „stóra“ kókaínmál-
inu svokallaða eru hafnar fyrir
sakadómi í ávana- og fíkniefna-
málum. f framburði eins af þremur
forsprökkum í málinu höfðu þeir
gert með sér samkomulag um, aö
sá er handtekinn yrði, tæki á sig
alla sökina, en annar átti að flar-
lægja 437 grömm af kókaíni, sem
þeir höföu komið fyrir í bankahólfi
í Landsbankanum í Mjódd, áður
en lögreglan kæmist þangað. Það
var hins vegar ekki gerL
Þeir félagar höfðu ekki haft banka-
hólfið á leigu nema í um hálfan mán-
uð, þegar þeir voru handteknir. Engar
reglur gilda um, hvað megi geyma í
bankahólfúm. Það eina sem þarf, er
að greiða ákveðna leigu á ári fýrir
hólfið, auk tryggingar, ef lyklar týn-
ast. Að öðru leyti skiptir bankinn sér
ekki að hólfúnum.
Þremenningamir em allir ákærðir
fyrir að hafa haustið 1988 flutt kóka-
ín til landsins í ágóðaskyni, skipulagt
kaupin og íjármagnað. Tveir þeirra
hafa játað brot sitt, en sá þriðji neitar
öllum sakargiftum.
Jón fær aðstoð
Guðmundur Einarsson hefúr verið
ráðinn aðstoðarmaður Jóns Sigurðs-
sonar, viðskipta- og iðnaðarráðherra.
Guðmundur er lífeðlisfræðingur og
hefiir starfað við kennslu og rannsókn-
ir við Háskóla íslands. Hann sat á Al-
þingi árin 1983-1987 og varð síðan
ffamkvæmdastjóri Alþýðuflokksins.
Frá ársbyijun 1989 hefur Guðmundur
stundað kennslu við Háskólann. -EÓ
Síðast liðið laugardagskvöld ffum-
sýndi Leiklistardeild U.M.F Tálkna-
fjarðar gamanleikritið „Ingiríður Ósk-
arsdóttir, eða Geiri djók snýr aftur",
eftir Trausta Jónsson veðurfræðing.
Leikstjóri er Þorsteinn Eggertsson,
en með hlutverk Geira djók fer Guð-
jón Jónsson. Með önnur hlutverk fara
Örn Arnarson, Heiðar Jóhannsson,
Helga Karlsdóttir, Gestrún Sveins-
dóttir, Finnur Pétursson, Stefán Jó-
hann Sigurðsson, Lilja Magnúsdóttir,
og Snæbjörn Geir Viggósson. Brian
Roger Bacon, leikur undir á flygil, en
í sýningunni eru sungnir nokkrir
helstu söngvamir sem fylgja gaman-
leiknum, en þegar hann var frumflutt-
ur í Borgarnesi fyrir fimm árum
fylgdu söngvamir ekki með.
Leikurinn gerist á eyjunni Flæði-
skeri, sem er fyrir Vesturlandi, og
fjallar um fjárhagsvandræði Magnús-
ar Jónssonar, forstjóra Sameinaða
gúmmíkompanísins. Inn í söguna
fléttast ástarmál Sigríðar mágkonu
Magnúsar, sem era vægast sagt flók-
in.
Það var i vetur, sem leikfélag var
stofnað í tengslum við Ungmennafé-
lagið á Tálknafirði.
Atlantsál
Atlantal-aðilarnir sóttu í gær um
firmaheitið Atlantsál (á ensku: Atl-
antal) til firmaskrár, en það heiti á
að nota hérlendis vegna fyrirhugaðs
reksturs á álveri.
I síðustu viku áttu fulltrúar Atlan-
tal-hópsins fund með fulltrúum ís-
lenskra stjómvalda og var þar farið
yfir þau atriði, sem aðilamir hafa áð-
ur haft til umræðu, þ.e. orkuverð,
skatta, umhverfismál, og staðsetn-
ingu nýs álvers. Þá var einnig
ákveðin dagskrá næstu funda.
Búist við erfíðri færð
um hátíðarnar:
Mokað í dag,
laugardag
og á annan
j dag, skírdag, verða helstu
vegir mokaðir, þar sem þörf kref-
ur að sögn Hjörleifs Ólafssonar
hjá Vegagerð ríkisins. Allur
mokstur liggur hins vegar niðri á
morgun - á föstudeginum langa -
þótt veður gerist válynd og leiðir
lokist.
Aftur verður mokað á laugar-
dag, þar sem þörf krefúr, á aðal-
leiðum um land allt. Mokstur
liggur síðan niðri á páskadag, en
verður tekinn upp aftur á öðram í
páskum. Fólki er því ráðlagt að
vera ekki á ferðinni á fjallvegum
föstudaginn langa og páskadag,
enda er spáð rysjóttu veðri um
páskana um mest allt land.
í gær var þokkaleg færð sunnan-
lands utan það að rok og hálka
var á Hellisheiði og illfært um
hana fram yfir hádcgi. Greiðfært
var í gærmorgun írá Reykjavík til
Skagafjaröar, cn Öxnadalshciöi
var ófær vegna hríðar. Um há-
degið snerist veðrið þannig, að
hægt var að opna Öxnadalsheiði
Um tíma, en stórhríð gerði á
Holtavörðuheiði.
Vegir á Snæfellsnesi og um
Strandir til Hólmavíkur voru ill-
eða ófærir i gær nema um norð-
anvert nesið, en helstu leiðir
verða ruddar I dag eins og allar
helstu aðalleiðir um landiö. -sá
Svona mikill
iandbúnaöur?
Ferðalag Júlíusar Sólnes um kjördæmi
sitt, Reykj aneskjördæmi, hefttr nokkuð
verið milli tannanna á fólki, einkumþó
fundut; sem hann hélt um atvinnumál i
Grindavík á dögunum. Þar sýndi ráð-
herrann glærur, sem sýndu atvinnu-
vegaskiptmgu í Reykjaneskjördæmi.
Þótti mönnum tíðindum sæta ummæli
ráðherrans, þegar hann rekur augum í
eina línúna á línuriti, sem stóð fyrir
landbúnaðarffamleiðslu, en þá á Július
að hafa orðið að orði: „Hva, er svona
mikiil landbúnaður á Suðumesjum."
Einhver benti honum þá á, að Gull-
bringu- og Kjósarsýsla heyrði til
Reykjajaneskjördtemi. Þessa sögu sel-
ur dropateljari þó ekki dýrar, en hann
keypti hana.
Spakmæli úr Valhöll
Dropateljari heyrði á skotspónum
nýja útgáfú gamals spakmætis og fýlg-
ir sögunni, að þessi nýja útgáfa hafi
otðið til í Valhöll, felagsheimili Sjálf-
stæðismanna. Spakmælið er svona;
Davíð er dropi sem holar Steina.
Vísindi efla alia dáö?
Fjölmargir eru nú famir að velta fyrir
sér vinnubrögðum hjá skoðanakönnun-
arfýrirfækiinu SKÁÍS, eflir aö nýjasta
könnunin þaðan biitist Pressunni í gær.
Almennt er viðúikennt að kannanir Fó-
lagsvísindastofnunar beri höfuð og
herðar yfir skoðanakannanir á íslandi
og virðist SKÁÍS nú hafa viðutkennt
forystu Félagsvfsindastofhunar, þvi nú
feta þeir i fótspor hennar og reyna að
grennslast fyrir um, hvað hinir
óákveðmt kjósa. Gallinn er bara sá, að
þegar Félagsvísindastofnun spyr um,
hvort menn muni heldur kjósa Sjálf-
stæðisflokk en einhvem annan, sem
byggist á áralangri reynslu af því að
fylgi Sjálfstæðisflokks skilar sér betur í
könnunum en fylgi annarra flokka, þá
spyr SKÁÍS hvort menn muni heldur
kjósa Sjálfstæðisflokk, Nýjan vettling
eða eitlhvað annað. Engin sérstök rök
era fyrir því, að spyija um Nýjan vett-
ling scrstaklega (ekki síst á sama tíma
og þar stendur yfir prófkjör), enda era á
ferðinni ný samtök, sem nær ekkcrt er
vitað um. Trú þeirra, sem fylgjast með
skoðanakönnunum hefur nú minnkað
enn frekar á SkÁIS við þetta.
Vesturgötuframboðið
Gífúrleg illindi eru nú komin upp
meðal alþýðuflokksmanna vegna út-
komunnar í prófkjöri Nýs vettlings, en
manna á meðal gengur það framboð nú
undir naíninu Vcsturgötuframboðið. Er
sú nafhgift til komin vegna afskipta
þeirra Bryndísar Schram og Jóns B.
Hannibalssonar af prófkjörinu, en sem
kunnugt er búa þau á Vesturgötunni i
Reykjavík. Stuðningur þeirra hjóna við
utanflokksmanneskjuna Ólínu Þor-
varðardóttur er talinn vitni um að for-
maður Alþýðuflokksins og kona hans
hafi bcitt sér gegn samílokksmanni sin-
um, Bjama P. Tengsl formannshjón-
anna við Ólinu liggja hins vegar í
gegnum ísafjörð, en Jón B. er sem
kunnugt er faxldur í Alþýðuhúsinu þar.
Ólína var í M.L þegar Bryndís og Jón
voru þar skölameistarar, og maður
Ólínu Sigurður Pétursson er sonur stór-
kratans og alþýðuforingjans Péturs
Sigurðssonar. Þess utan skrifaði Ólína
bók um Bryndisi og er það mál manna,
að tengingamar vestur á firði séu sterk-
ari i hugum formannshjónanna en
tengingar við einhvem krata úr Reykja-
vík.
Birting vill
Nýjan vettling
Dropateljari heyrir nú úr hetbúðum
Birtingarmanna, að þeir muni fylkja
sér um Nýjan vettling, þegar að kjör-
borði komi, og ætli sér að láta G-list-
ann sigla sinn sjó....