Tíminn - 12.04.1990, Qupperneq 30
30 Tíminn
Fimmtudagur 12. apríl 1990
Auglýsing
frá félagsmálaráðuneytinu
Félagsmálaráðuneytið hefur að ósk hlutaðeigandi sveitar-
stjórna heimilað að almennar sveitarstjórnarkosningar fari
fram 9. júní 1990 í eftirtöldum sveitarfélögum:
Skorradalshreppur, Lundarreykjadalshreppur, Norðurárdalshreppur,
Hvítársíðuhreppur, Stafholtstungnahreppur, Miklaholtshreppur, Skógar-
strandarhreppur, Hörðudalshreppur, Haukadalshreppur, Hvammshrepp-
ur, Fellsstrandarhreppur, Skarðshreppur, Dalasýslu, Saurbæjarhreppur,
Dalasýslu, Rauðasandshreppur, Mýrahreppur, Vestur-ísafjarðarsýslu,
ögurhreppur, Reykjarfjarðarhreppur, Nauteyrarhreppur, Árneshreppur,
Kaldrananeshreppur, Kirkjubólshreppur, Fellshreppur, Strandasýslu,
Óspakseyrarhreppur, Bæjarhreppur, Strandasýslu, Staðarhreppur, Vest-
ur-Húnavatnssýslu, Fremri-Torfustaðahreppur, Ytri-Torfustaðahreppur,
Kirkjuhvammshreppur, Þorkelshólshreppur, Sveinsstaðahreppur, Skaga-
hreppur, Skefilsstaðahreppur, Skarðshreppur, Skagafjarðarsýslu, Lýt-
ingsstaðahreppur, Skriðuhreppur, Öxnadalshreppur, Hálshreppur, Bárð-
dælahreppur, Reykdælahreppur, Öxarfjarðarhreppur, Presthólahreppur,
Svalbarðshreppur, Hlíðarhreppur, Jökuldalshreppur, Fljótsdalshreppur,
Tunguhreppur, Skriðdalshreppur, Mjóafjarðarhreppur, Fáskrúðsfjarðar-
hreppur, Geithellnahreppur.
í öðrum sveitarfélögum en ofantöldum skulu kosningar til sveitarstjórna
fara fram 26. maí 1990.
Dagsetningar vegna
sveitarstjórnarkosninga 9. júní 1990
Kjörskrá skal hafa verið lögð fram eigi síðar en...........8. apríl
Krafa um bundnar hlutfallskosningar í sveitarfélagi með 300 íbúa eða færri
berist oddvita (yfir)kjörstjórnar, bréflega, eigi síðar en.27. apríl
Sveitarstjórnarmaður, sem skorast undan endurkjöri, skal tilkynna (yf-
ir)kjörstjórn þá ákvörðun sína eigi síðar en ............5. maí
Kjörskrá skal liggja frammi til og með...................6. maí
Framboðsfrestur rennur út..................................11. maí
Framlengdur framboðsfrestur, ef aðeins kemur
fram einn listi, rennur út ................................13. maí
(Yfir)kjörstjórn auglýsir framboðslista þegar eftir að listar hafa verið
úrskurðaðir gildir og merktir.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur hafist.................14. apríl
Kærufrestur tii sveitarstjórnar vegna kjörskrár rennur út..25. maí
Afrit kæru sendist þeim sem kærður er út af kjörskrá eigi síðar en . 28. maí
Sveitarstjórn boðar fund til afgreiðslu á kærum fyrir......29. maí
Sveitarstjórn úrskurðar kærur og undirritar kjörskrá eigi síðar en . 1. júní
(Yfir)kjörstjórn auglýsir, hvenær kjörfundur hefst fyrir... 6. júní
Sveitarstjórn tilkynni hlutaðeigandi, svo og hreppsnefnd eða bæjarstjórn,
sem mál getur varðað, um breytingar á kjörskrá strax og úrskurður liggur
fyrir.
Kjörstjórn tilkynni (oddvita yfirkjörstjórnar, svo og) hreppsnefnd eða
bæjarstjórn, sem mál getur varðað, um breytingar á kjörskrá strax og
dómur er genginn.
(Yfir)kjörstjórn augiýsir hvar og hvenær atkvæðatalning verður með
nægum fyrirvara á undan kosningum.
Atkvæðatalning hefst svo fljótt sem unnt er að loknum kjörfundi.
(Yfir)kjörstjórn setur notaða kjörseðla undir innsigli að talningu lokinni,
þegar kosning er óbundin.
Kæra vegna kosninganna skal afhent hlutaðeigandi sýslumanni eða
bæjarfógeta innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga.
(Yfir)kjörstjórn eyðir innsigluðum kjörseðlum að kærufresti loknum eða
að fullnaðarúrskurði uppkveðnum hafi kosning verið kærð þegar kosning
er óbundin, sbr. 19.
Félagsmálaráðuneytið, 10. apríl 1990.
r
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fYrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
/---------------------\
Gói rái eru til ai
fara eftir þeim!
Eftireinn
-ei aki neinn
Drengjalandslið islands
Evrópumeistaramót drengja
í körfuknattleik:
sigur á
Belgum
íslenska drengjalandsliðið í körfu-
knattleik byrjaði glæsilega á Evrópu-
meistaramóti drengjalandsliða með
glæsilegum sigri í hörkuspennandi
leik, 91-89 eftir að staðan í halfleik
hafði verið 59-45 okkar mönnum í
vil.
Islenska liðið var mun betri aðilinn í
leiknum og leit lengi út fyrir ömggan
Islandssigur, eða allt fram í miðjan
síðari hálfleik. Þá höfðu Belgar náð að
saxa verulega á forskot islenska liðsins
og komast einu stigi yfir 68-69. Belgar
voru yfir allt þar til um þijár mínútur
vom eftir en þá náði ffostpinnamir að
jafna metinn og þegar um fimm sek-
úndur vora eftir náði Nökkvi Jónsson
að skora sigurkörfúna.
Þessi íslenski sigur verður að teljast
góð frétt fyrir íslenskan körfubolta,
þar sem Belgar hafa góðu körfubolta-
liði á skipa. Meðalhæð Belgíska liðs-
ins er um 1,98, en þess íslenska að-
eins 1,88. Þá hafa Belgamir þijá leik-
menn yfir tvo metra og er sá stærsti
2,07. Það skemmir ekki fyrir strákun-
um okkar að Belgamir hafa undanfar-
ið verið að ná ágætis árangri, unnu
m.a. Svía og V-Þjóðverja með 30
stiga mun, en þetta gerir aðeins okkar
sigur mun sætari.
Stig íslenska liðsins: Jón Amar Ing-
varsson 28, Nökkvi Már Jónsson 17,
Hjörtur Harðarsson 12, Birgir Guð-
finnsson 7 og Aðalsteinn Jóhannsson
7.
Orgelhátíð í
Hallgrímskirkju
Um þessar mundir er að hefjast
fjársöfnun fyrir konsertorgeli í
Hallgrímskirkju en kaup hafa verið
gerð á því í KJaiserverksmiðjunum
f Bonn. Ef vel gengur gæti orgelið
verið uppsett um mitt ár 1992.
Orgelið hefur 72 raddir og verður
stærsta og fullkomnasta orgel hér á
landi.
Margir hafa lagt hönd á plóginn
og gefið góðar gjafir í orgelsjóð,
m.a. hefur borgarstjóm Reykjavík-
ur ákveðið að veita ffamlag til org-
elkaupanna, kr. 15 millj., á næstu
þremur ámm. Allar gjafir og ffam-
lög skal þakkað fyrir af heilum
hug.
Séra Hallgrímur Pétursson er í
vitund þjóðarinnar í fremstu röð,
bæði sem skáld, trúmaður og and-
ans jöfur, og frá Passíusálmum
hans hafa þeir hljómar borist sem
vermt hafa íslenska þjóð í aldanna
rás og tónar þeirra hafa fyllt allar
kirkjur þessa lands og borist inn á
hvert heimili.
Það er rétt, sem séra Matthías
segir: „Hér er guðlegt skáld, sem
svo vel söng, að sólin skein í gegn-
um dauðans göng.“ Það er því full
ástæða til að sú kirkja sem ber nafn
Hallgríms eignist þá hljóma og
tóna, þann söng sem honum ber,
það orgel sem hæfir kirkjunni hans
og þeim Drottni sem hann kvað
um. Þá er það og víst að orgelið
verður mikil lyftistöng fyrir kirkju-
tónlist í landinu og allt tónlistarlíf.
I orgelinu verða 5200 hljómpípur.
Sú hugmynd kom fram að fólki
yrði gefinn kostur á að kaupa org-
elpípu og gefa kirkjunni, þannig að
margir ættu sinn tón í orgelinu.
Fjársöfnunin hefst formlega laug-
ardaginn fyrir páska, en þann dag
verður orgelhátíð í Hallgríms-
kirkju, m.ö.o. samfelldur tónlistar-
flutningur frá morgni til kvölds.
Þar koma ffam margir orgelleikar-
ar, kirkjukórar, einsöngvarar og
tónlistarmenn. Þessi dagskrá verð-
ur kynnt í fjölmiðlum. Veitingar
verða á boðstólum o.m.fl.
Við, sem stöndum að Hallgríms-
kirkju, vonum að fólk fjölmenni og
njóti hátíðarinnar og styrki málefn-
ið, m.ö.o. gefi orgelpípu.
Gleðilega páskahátíð.