Tíminn - 25.04.1990, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Miövikudagur 25. apríl 1990
AlexanderStefánsson Davíð Aðalsteinsson EgillHelðar
Framsóknarfélag Borgarness
Aðalfundur
Fundurinn veröur haldinn í Framsóknarhúsinu, Brákarbraut 1,
miðvikudaginn 25. apríl og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ávörp gesta.
3. Umræður.
Á fundinn mæta þingmaður og varaþingmaður kjördæmisins og
erindreki Framsóknarflokksins.
Framsóknarfélag Borgarness
Framsóknarfólk Húsavík
Umræðufundir um mótun stefnuskrár B-listans fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar á Húsavík verða haldnir í Garðari sem hér segir:
Fimmtudaginn 26. apríl kl. 20.30. íþrótta- og æskulýðsmál. Heilbrigð-
is- og félagsmál.
Mánudaginn 30. apríl kl. 20.30. Umhverfis- og skipulagsmál.
Hafnarmál.
Miðvikudaginn 2. maí kl. 20.30. Skólamál. Menningarmál.
Fimmtudaginn 3. maí kl. 20.30. Atvinnumál.
Fjölmennum.
Frambjóðendur.
Ráðstefnu um
sveitastjórnarmál
sem halda átti laugardaginn 28. apríl er aflýst vegna óviðráðanlegra
orsaka.
Framsóknarflokkurinn
Miðstjórnarfundur S.U.F.
Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald-
inn að Grensásvegi 44 Reykjavík föstudaginn 27. apríl 1990 og hefst
kl. 17.30.
Miðstjórnarmenn S.U.F. og frambjóðendur á S.U.F. aldri eru hvattir
til að mæta.
Framkvæmdastjórn S.U.F.
Hafnarfjörður - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið i fullum gangi.
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla virka daga milli kl. 17 og 19,
laugardaga frá kl. 10 til 13.00. Sími 51819.
Allir velkomnir, alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarfélögín
Akranes - Bæjarmál
Athugið breyttan fundartíma vegna stefnuskrárvinnu í Framsóknar-
húsinu, Sunnubraut 21.
Fundur um atvinnumál verður 3. maí kl. 20,30.
Fundur með eldri borgurum verður sunnud. 6. maí kl. 15.30.
Allir áhugamenn velkomnir.
Frambjóðendur.
Landsstjórn - Framkvæmdastjórn
Sameiginlegur fundur landsstjórnar og framkvæmdastjórnar LFK
verður haldinn föstudaginn 27. apríl n.k. í Lækjarbrekku kl. 19.30.
Aðalefni fundarins verður komandi sveitarstjórnarkosningar.
Framkvæmdastjórn LFK
Reykjavík - kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa B-listans í Reykjavík verður opin virka daga frá kl.
9-22 að Grensásvegi 44, sími 680962 og 680964.
Kosninganefndin.
Akranes - Framsóknarhúsið
Opið hús 1. maí. Kaffi og meðlæti. Létt spjall.
Frambjóðendur.
llllllllllllllllllllllllllll MINNING lllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllll
Gestur Björnsson
Akranesi
Fæddur 19. nóvember 1897
Dáinn 28. janúar 1990
Svo ver dauðinn velkominn,
vér vitum, Jesús, dauði þinn
frá dauóans valdi leysti lýð,
þér lof og dýrð sé fyrr og síð.
(Welsse, V.13)
Að morgni dags 5. febrúar sl. var
stillilogn, hlýja í lofti og föl aðeins á
jörð. Þann dag fór fram kveðjuat-
höfn frá Akraneskirkju um Gest
Björnsson sem borinn var til grafar
í Garðakirkjugarði, jarðsettur þar
við hlið konu sinnar.
Eins og sjá má af fæðingar- og
dánardegi var Gestur orðinn gamall
maður. Hann var búinn að dvelja á
sjúkrahúsi Akraness um 6 ára bil.
Lengst af sárþjáður maður, haldinn
erfiðum og ólæknandi sjúkdómi.
Þessi orð hafði hann um veikindi
sín: „Þegar ég fæ verstu köstin ræð
ég hvorki við líkama minn né sál.“
Honum var vel ljóst og viðurkenndi
að hann var á slíkum stundum
erfiður sjúklingur. Auk líkamlegra
þjáninga var hann til margra ára
blindur maður, sá hvorki ljós né
sólargeisla á glugga.
Um þjáninguna sagði Kahlil Gibr-
an í Spámanninum, þýð. G. Dal:
„Eins og kjarni verdur að sprengja
utan af sér skelina til þess að blóm
hans vaki upp í Ijósið, eins hljótið
þið að kynnast þjáningunni. “
En Gestur hafði góða heyrn og
frábært minni, hélt hann því þar til
2 vikur voru eftir í hans lokadægur.
Þau voru fyrstu kynni mín af Gesti
að ég var öðru hverju að líta inn á
sjúkrastofu þar sem ég þekkti mann ■
kvæntan frænku minni. Hann hafði
í sínum veikindum misst möguleika
á að tjá sig, en skildi það sem við
hann var talað. Ég heilsaði auðvitað
ætíð blinda manninum í hinu rúm-
inu. Svo fór að ég talaði meira og
meira við Gest, en heilsu hins fór
hnignandi, sem ég var í raun og veru
að heimsækja. Eftir að Gestur flutt-
ist á fjölbýlisstofu sáu margir hve
koma mín til hans var honum mikils
virði. Stundum eða alltaf fannst
Gesti langt á milii komu minnar til
hans. Þá suðaði hann án afláts í
starfsfólkinu að síma til mín. Hér
með þakka ég þeim fyrir hans hönd
þá tímatöf og fyrirhöfn sem þessar
hringingar ollu þeim, bæði til mín og
hans nánustu.
Gestur fæddist í Ólafsvík. Hann
átti 3 bræður, þar af er einn á lífi í
Hafnarfirði. Ekki var hann nema
frumbernsku sína í Ólafsvík, þó bar
hann hlýtt þel til staðarins. Ekki er
ætlun mín að rekja ættir eða æviferil
Gests í þessum línum. Enda dvaldi
hann víða á langri ævi en lengst mun
hann hafa átt heima í Reykjavík og
unnið þar við ýmis störf. Samferða-
menn hans sögðu hann duglegan,
vel verki farinn og áreiðanlegan í
viðskiptum.
Gestur reyndi mikið í lífinu. Hann
var tvíkvæntur. Fyrri konu sína,
Vigdísi Pétursdóttur, missti hann frá
ungri dóttur þeirra, Gunnhildi að
nafni. Hún ber móðurnafn hans.
Gunnhildur vinnur og hefur unnið
til fjölda ára á Landakotsspítala.
Hennar sonur er Páll Björnsson á
Krókatúni 11, Akranesi.
Árið 1981 fluttu gestur og kona
hans, Ingveldur Þórarinsdóttir, til
Páls og konu hans, þá bæði orðin
aldurhnigin. Ekki auðnaðist þeim
að eiga þar heimili nema í þrjú ár.
Þá voru þau farin að heilsu og
kröftum, því var sjúkrahús Akraness
þeim eina og besta skjólið. Þaðan
áttu þau hvorugt afturkvæmt í lif-
anda lífi. Eftir 2 ár eða nálægt því dó
kona hans og mun sjónin hafa horfið
með öllu um líkt leyti.
Gestur var aðfluttur maður og átti
af þeirri ástæðu enga samferða-
menn. Eftir konumissinn hlaut hann
að verða mikill einstæðingur. Ekkert
gerði ég fyrir þennan sjúka og gamla
mann nema hlusta á frásagnir hans.
Kannski var ég góður hlustandi?
Hann þuldi mér af sinni frábæru
framsögulist ættfræði, frásagnir af
samferðafólki, mundi fæðingar- og
dánardægur þess og ártöl. Ég tók
eftir því sem oft kom fyrir að hann
sagði mér sömu atburðina að aldrei
skeikaði orði eða tölu til eða frá.
Allraf sagði hann meira frá björtu
minningunum en þeim döpru og því
sem var honum að skapi. En þær
snerust mest um fátækt og allsleysi
fólks fyrr á árum, en ég ætla að
minnast á tvær góðar minningar
hans.
Besta húsmóðir sem hann taldi sig
hafa eignast í lífinu var frú Sigríður
Björnsdóttir frá Miklabæ í Skaga-
firði. Síðar prestsfrú að Hesti. Þar
var hann eitt sinn kaupamaður.
Kvöld nokkurt eftir mikinn heyhirð-
ingadag og þreytt fólk gengið til
náða leit frú Sigríður út að hlöðu til
þess eins að sjá árangur dagsins. Var
þá mikill heyslæðingur úti fyrir
hlöðudyrum, nokkrar sátur komnar
úr böndum sem látnar voru mæta
afgangi í önnum dagsins. Þetta sárn-
aði Sigríði að sjá og sér í lagi vegna
þess að veðurútlit var rigningarlegt.
Gestur var ekki háttaður og komst
að þessu. Hann bauðst til að laga
þetta allt saman. „Þetta kvöld dró ég
ekki af mér,“ sagði Gestur. Hann
hreinrakaði allt um kring og kom
hverju strái undir þak. Þakkarorðum
Sigríðar sagðist hann aldrei gleyma
og þeim góðgerðum sem hún launaði
honum með.
Gestur bjó í Brúnvallakoti á
Skeiðum í 4 ár. Þá hann var nýfluttur
þangað, heimsótti hann fullorðinn
mektarbóndi úr sveitinni þeirra
einna erinda að bjóða hann innilega
velkominn og óska honum allra
heilla. Þessi vinsemd yljaði honum
alla ævi.
Gestur sagðist bera nafn Gests
Pálssonar, skálds og rithöfundar
(1852-1891). Ef ég man rétt var faðir
Gests alinn upp hjá Páli, föður Gests
Pálssonar. Auðheyrt var að nafngift-
in var mesta stolt hans.
Gestur var ættrækinn maður.
Dáði mjög móður sína og unni heitt
dótturinni. Langafadætur hans á
Króktúni voru allar stundir samvafð-
ar hans bænum og heillaóskum um
bjarta framtíð.
Gestur var eftir að ég kynntist
honum orðinn trúaður maður. Hann
var fyrir löngu tilbúinn umskiptun-
um og þráði hvíldina. Enginn efi var
í huga hans um líf eftir dauðann og
þá mundi hann mæta horfnum ást-
vinum. í hvert sinn er ég kvaddi
hann eftir heimsókn bað hann mér
allrar Guðs blessunar. Ég er sann-
færð um að bænir hans fylgdu mér út
á götu. Ég átti langt heim frá sjúkra-
húsinu og var ekki manneskja að
ganga alla leið heim til mín. Annað-
hvort var einhver niðja minna á ferð
skammt frá, kunningjafólk eða bráð-
ókunnugt fólk keyrði mig heim að
dyrum. Alltaf var einhver sendur á
götu mína og þakka ég öllum sem
hjálpuðu mér heim.
Að lokum þakka ég hinum látna
alla kynningu og kveð hann með
sömu orðum og hann var vanur að
kveðja mig og segja af alhug. Guð
blessi hann.
Ólína I. Þorvarðardóttir
Leiðrétting
í ljóði, sem Jón Þórisson vitn-
aði í og birtist með minningar-
grein um Gunnar Jónsson frá
Breiðabólstað, varð prentvilla
sem breytti inntaki kvæðisins.
Rétt er erindið svona:
„Félagsbróðir, granninn góði,
greiði ég þér í smáum óði
hlýja kveðju hinsta sinn.
Lít ég yfir iíf til baka
iítið meir en næturvaka
sýnist farni feriiiinn. “
BILALEIGA
með útibú allt í kringum
landið. gera þér mögulegt
að leigja bíl áeinum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bfla erlendis
ínterRent
Europcar
Afmælis* og minningargreinar
Peim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minning-
argreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að
berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Pær
þurfa að vera vélritaðar.
TOMSTARSKOLim A AKUREW
Tónlistarkennarar
Tvo píanókennara, fiðlukennara og básúnu-
kennara vantar til starfa næsta vetur. Einnig eru
lausar til umsóknar stööur í klarinett, flautu og
píanó. Umsóknarfrestur ertil 10. maí.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma (91) 2
17 88.