Tíminn - 24.05.1990, Qupperneq 7

Tíminn - 24.05.1990, Qupperneq 7
Fimmtudagur 24. maí 1990 Tíminn 7 Sigurður Geirdal í Kópavogi segir framsóknarmenn þar þreytta á óráðsíu í fjármálum: VILJUM TAKA TIL HENDINNI Sigurður Geirdal skipar efsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Kópavogi. Hann segir að kosningamar þar snúist um hvort meiri- hluti A- flokkanna haldi velli, en á þá hefur verið mikið deilt fýrír óráðsíu í Ijármálum. „Gagnrýni á meirihlutann er sú að skuldasöfnun hefúr verið mjög hröð síðustu árin; óhagstæð lán, öfugt veltufjárhlutfall, nettóskuldir komnar upp í um 60 þús. af sameiginlegum tekjum. Þetta eru allt áberandi hættu- merki og þegar svona er komið, er mjög alvarlegt þegar meirihlutinn neitar að staldra við og athuga sinn gang, heldur segir allt vera í lagi.“ Sigurður taldi verklegar framkvæmd- ir á vegum bæjarins ómarkvissar, gömlum götum hefúr verið illa sinnt og mikið er af hálfkláruðum bygging- um um allan bæ. „Við framsóknar- menn viljum taka til hendinni.“ Sigurður segir að það dugi ekki að bærinn sé aðili sem úthlutar eingöngu lóðum. „Allar sveitarstjómir verða að taka þátt í harðri samkeppni um að fá arðvænleg fyrirtæki til sín. Þá er ég að ýja að því, að slíkum fyrirtækjum verði veitt einhver fyrirgreiðsla.“ Þá benti hann á að ekki mætti gleyma þeim fjölmörgu góðu fyrirtækjum sem eru í Kópavogi, hugsanlegt er að bæjarstjóminni kynni þessi fyrirtæki og þá þjónustu sem þar er að fá. „Það er sjálfsagt að bærinn beini sínum viðskiptum til þessara fyrirtækja.“ Umhverfismál em alltaf ofarlega á baugi hjá Framsóknarflokknum, að mati Sigurður. Hann benti á ýmis um- hverfismál sem ffamsóknarmenn ætla að beita sér fyrir, svo sem að gera Fossvogsdalinn að útivistarsvæði og fleira. „Þá em fjömmar mikið vanda- mál á öllu höfúðborgarsvæðinu og framtíðarlausnin hlýtur að vera mikið ræsi sem liggur út í Faxaflóa. Við ætl- um að taka á umhverfismálum og ég hvet alla bæjarbúa til þess einnig, bæði fyrirtæki og einstaklinga.“ Sigurður sagði að meirihlutinn hafi staðið sig ágætlega hvað varðaði fé- lagsmál. „Það sem gleymist er að Kópavogur fór að verða fyrirmynd annarra bæjarfélaga hvað félagsmál snerti, upp úr 1970. Þá vom Fram- sóknarmenn og Sjálfstæðismenn í meirihluta. Við stofnuðum fyrsta fé- lagsmálaráðið og höfðum Kristján Guðmundsson sem félagsmálastjóra. Þannig vom það framsóknarmenn sem lögðu gmnninn að góðu skipu- lagi í dag. Hins vegar, og maður er að reyna að orða þetta kurteislega, ríkir að okkar mati óregla hvað yfirstjóm snertir og við höfúm lagt áherslu á að hver króna sem til félagsmála er var- ið, skili sér alla leið til þeirra sem eiga að njóta. Það þarf að stytta boðleiðir og einfalda stjóm.“ Framsóknarmenn í Kópavogi byij- uðu snemma undirbúning kosninga. Núna rekur flokkurinn 3 skrifstofur og Sigurður sagði að vel hafi gengið að manna þær. Hann sagði að mikið af ungu fólki starfaði fyrir Framsókn í Kópavogi, en ungt ffamsóknarfólk relcur eina skrifstofu. „Þegar við Framsóknarmenn vomm fylgjandi lækkun kosningaaldurs niður í 18 ár, þá litum við ekki eingöngu á rétt ein- hvers aldurshóps til að kjósa, heldur einnig réttinn til að hafa áhrif og vera með í allri ákvarðanatöku. Við sýnum Sigurður Geirdal. það í verki, því mikið af ungu fólki er ofarlega á listanum. Þetta hafa ungir kjósendur greinilega metið, enda bmgðist mjög vel við kalli.“ Sigurður sagði að allur áróður fram- sóknarmanna hafi verið lítið ffekur og kurteis, alla kosningabaráttuna hafa þeir neitað að blanda sér í skít- kastið milli annarra flokka. „Áróður- inn er búinn að vera mjög grófúr síð- ustu dagana og t.d. eyddu kommamir helmingnum af síðasta blaði sínu í persónulegt skítkast á Gunnar Birgis- son. Svona gengur þetta á víxl og þegar menn em famir að eyða meiri tíma í að ófrægja andstæðinginn í stað þess að kynna sín mál, þá er kosn- ingabaráttan á villigötum." Sigurður sagðist vera 'bjartsýnn og skoðanakannanir síðusm daga benda til þess að meirihluti A- flokkanna sé fallin. „Moldviðrið sem A- flokkamir annars vegar og Sjálfstæðisflokkur hins vegar hafa þyrlað upp, sýnir að það er Kópavogi fyrir bestu að efla eitthvert hógvært afl í bæjarstjóm Kópavogs næsta kjörtímabil og því er ömggast að setja X við B.“ -hs. Kristinn Jón Jónsson. Kristinn Jón Jónsson á ísafirði: FJÁRMÁLIN í BRENNIDEPLI „Þaö er kosið meira á milli manna en málefna, sýnist mér, en stefriu- skrár flokka eru mjög keimlíkar," sagöi Kristinn Jón Jónsson á ísa- firöi. Kristinn leiðir lista Framsókn- arflokksins, sem hefurveriö í meiri- hluta þetta kjörtímabil ásamt A- flokkunum. Hann taldi þó að mest væri deilt um flármálin. „Við teljum að tjárhagur bæjarins standi ekki illa að vígi, þrátt fyrir skuldir. Við getum greitt okkar skuldir á eðlilega hátt og þess vegna er ekki þörf á neinni leiftursókn." Framsókn- armenn vilja halda áffam með þær framkvæmdir sem hafa verið í gangi á vegum bæjarins, svo sem við íþrótta- hús, sjúkrahús, grunnskóla og dvalar- heimili aldraðra. Kristinn sagði að þetta væru allt mjög fjárfrekar fram- kvæmdir en nauðsynlegar, síðan biðu fleiri verkefni, t.d. snjóflóðavamir og hreinsun á neysluvatni. Framsóknarmenn leggja áherslu á áframhaldandi uppbyggingu hefð- bundins atvinnuvegar, ekki síst sjávar- útvegs sem allt byggist á að mati Krist- ins. „Síðan viljum við að fleiri þjón- ustustofnanir á vegum ríkisins verði fluttar út á land, og auka almenna þjónustu á þessu svæði. Einnig viljum við beita okkur fyrir jöfnun búsetuskil- yrða, t.d. jöfnun símkostnaðar og orkuverðs." Kristinn benti á að með bættum samgöngum milli sveitarfé- laga á Vestfjörðum, opnist möguleikar fyrir margskonar atvinnugreinar, t.d. fiskmarkað, ferðaþjónustu og fleira. Kristinn sagði að samstarfið í meiri- hlutanum hafi verið gott og minnihlut- inn haft sig lítt í frammi. Að þessu sinni býður núverandi bæjarstjóri á Isafirði sig ffam gegn meirihlutanum. „Eg er undrandi á ummælum hans sem fylgdu, er hann ákvað að bjóða sig ffam fyrir klofhingsbrot Sjálfstæðis- flokksins, á þá leið að hann hafi engu fengið að ráða. Sé það rétt er hann ekki trausts verður, að mínu mati.“ Framsóknarmenn telja það vanti að- eins herslu muninn að koma inn öðrum manni. „Við stefnum að því auðvitað og mikil samheldni rikir í okkar röð- um,“ sagði Kristinn að lokum. -hs. Við höfum áhyggjur af æskulýðsmálum segir Guðmundur Kr. Jónsson á Selfossi: Viljum ráða íþrótta- og tóm- stundafulltrúa í fullt starf „Ekki slegist um nein stórmál, en bless- uð fjármálin eru þó aðallega á dagskrá," sagði Guðmundur Kr. Jónsson, efsti maður á lista Framsóknarflokksins á Sel- fossi jregar hann var spurður um kosn- ingabaráttuna þar. Framsóknarflokkur- inn er einn flokka í minnihluta í bæjar- stjóminni. Framsóknarmenn hafa áhyggjur af fjár- málum bæjarins. „Þó að skuldimar hafi ekki náð neinum stórhættulegum stærð- um, þarf samt að gera átak til að lækka þær.“ Að mati Guðmundar þarf að setja peninga í að greiða niður skuldir, svo þær vaxi ekki bænum yfir höfúð og Sel- foss lendi á gjörgæslu hjá Jóhönnu. Framsóknarmenn á Selfossi hafa áhyggjur af æskulýðsmálum. „Það þarf að endurskipuleggja þann málaflokk all- an frá grunni. Þau mál em í mjög mikilli lægð eftir valdatíð meirihlutans, sem á að hafa stjómað hér í fjögur ár. Við viljum ráða íþrótta- og tómstundarfúlltrúa í fúllt starf," sagði Guðmundur. „Óttaleg deyfð er í málefnum ungs fólks hér á Selfossi og bæjarstjómin þarf að gera meira í því sambandi en að tala.“ Varðandi atvinnumálin sagði Guð- mundur að brýnt væri að bæjarfélagið gangi á undan og tengi saman aðila at- vinnulífsins, þannig að þeir vinni saman sem ein heild. „Bærinn getur t.d. stofnað hlutafélög um rekstur, en við vilju ekki að hann gerist beinn rekstraraðili." Hann taldi mögulegt að ná ffekari árangri í tré- iðnaði með t.d. markaðssókn á Reykja- víkursvæðinu. „Þess vegna er brýnt að tengja fyrirtækin saman, svo þau standi sterkar að vígi út á við.“ Framsóknarmenn vilja stuðla að því að ná niður rafmagnsverðinu með beinum samningum við Landsvirkjun. Guð- mundur taldi að það gæti verið spuming um 20% lægra raforkuverð. „Við viljum láta gera göngubrú yfir Ölf- usárbrúnna, sem er orðið mjög brýnt og margsinnis búið að lofa að gera. Því er alltaf slegið á ffest og við vcrðum að þrýsta á Vegagerðina að standa við sín loforð. Við viljum finna nýjan stað fyrir sorpurðun og bæta umgengni í því sam- bandi. Þá þarf að byggja hreinsunar- stöðvar við skolpútrennslið í Ölfúsá" sagði Guðmundur. Framsóknarmenn á Selfossi vilja jafnffamt byggja upp úti- vistarsvæði í og við bæinn og bæta að- gang að opinberum stofnunum, svo fatl- aðir komist óhindraðir ferða sinna. „Við höfúm náð upp góðum anda og samstöðu við gerð stefnuskrár. „Staðan er hins vegar óljós, um það eru allir sam- mála, sérstaklega með tilkomu nýs ffam- boðs og samruna A- flokkanna og Kvennalista. Framsóknarmenn hafa reynt að stunda ábyrg vinnubrögð, við tókum ábyrga afstöðu er meirihlutinn sprakk og komum þar inn í. Því teljum við ekki fysilegt að treysta meirihlutan- um fyrir stjómuninni í fjögur ár í viðbót, því fólki sem ekki gat ldárað síðast kjör- tímabil." -hs. Guðmundur Kr. Jónsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.