Tíminn - 24.05.1990, Qupperneq 19

Tíminn - 24.05.1990, Qupperneq 19
'.(Xi i o i Fimmtudagur 24. maí 1990 Tíminn 19 IÞROTTIR i r~----------------\ Knattgpyma — lanfoliðifr Gunnar meiddur, övíst með Sigurð Nokkrar breytingar verða hugsanlega á landsliðshópnum í knattspyrnu sem leika mun gegn Albaníu á miðvikudag. Gunnar Gíslason á við meiðsl að stríða og getur ekld lcikið með og Sigurður Grétarsson er i eldlinunni með liði sínu Luzern i úrslitakeppni sviss- nesku knattspyrnunnar. Það ræöst nokkuð af úrslitum í næsta leik Luzern hvort Sig- urður kemur í leikinn gegn Al- bðnum eða ekki. Á föstudagskvöld verður væntanlega bætt við leik- mönnum í hópinn i stað þeirra sem áður voru nefndir og hugsanlega í stað þeirra leik- manna sem gætu meiðst í 2. umferð íslandsmótsins. sem leikin verður i dag og á morg- un. Landsliðið kemur saman á laugardagsmorgun og æfir tvisvar þann dag og á mánu- dag kemur liðið saman á ný og dvelur á Holyday Inn hótelinu fram yfir leik. BL íslandsmótið—Hörpudeild: Þrír leikir í dag og tveir á morgun í dag Ieika Fram og IA í 1. deild Islandsmótsins í knatt- spyrnu, Hörpudeildinni, kl. 16.00. Leikurinn verður vænt- anlega á Valbjarnarvelli í Laugardal. KL 20 mætast síðan Stjarnan og KR í Garðabæ og í Eyjum leikÍBVogÞór ásamatima. Á morgun kl. 20.00 verða tveir leikir. Vikingar taka á móti FH- ingum á Víkingsvelli og Valsmenn mæta íslands- meisturum KA á Hlíðarenda. Sá leikur átti upphaflega að vera á Akureyri, en heima- leikjum félaganna var vixlað vegna hagstæðari vallarskil- yrða í Reykjavík. BL Landsbankahlaupið 1990: Hlaupiðá 27 stöðum víðsvegar um land Fimmta Landsbankahlaupið verður á laugardaginn 26. maí og fer hlaupið fram á 27 stöð- um viðs vegar um land, eða þar sem Landsbankinn starf- rækir útibú. Hlaupið er ætlað krökkum fæddum 1077-1980 og þeim skipt í riðla eftir kynjum og aldri. í Reykjavík herst hlaup- ið kl. 11.00 í Laugardal. en annars staðar cr upplýsingar að fá í útibúuin Landsbank- ans, þar sem skráning fer einn- ig fram. BL Körfuknattieikur-NBA-deildin: Detroit enn á beinu brautinni Meistarar Detroit Pistons hafa náð 2-0 forystu í viður- eign sinni gegn Chicago Bulls í úrslitum austurdeildar NBA- körfuknattleiksins. í fyrrinótt vann Detroit 102-93 sigur á Chicago liðinu. Portland hefur sem kunnugt er 1-0 yfir gegn Phoenix Suns í vesturdeiidinni. BL íshokkv: Góð staða Edmonton Edmonton Öilers er nú kom- ið með aðra höndina á Stanley- bikarinn, sigurlaunin í n-am- erísku íshokký- deildinni, eftir 5-1 sigur á Boston Bruins í íyrrinótt Oilers hafa 3-1 ylir í viðureigninni og þurfa aðeins einn sigur enn til þess að hljóta þennan eftirsótta bikar. BL Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu: AC Mílan varði titilinn AC Mílan varði Evrópu- bikarínn í knattspymu í keppni meistaraliða er liðið lagði Benfica að velli í Vínarborg í gærkvöld 1- 0. Eins og í úrslitaleikn- um gegn Steaua Búkar- est í keppninni í fýrra voru það Hollendingamir þrír í liði AC sem voru mennimir á bak við sigur- inn. Eina mark leiksins kom á 68. mín. Marco Van Basten sendi knöttinn inn fyrir vöm Benfíca á Frank Rijkaard sem lék áfram og sendi knöttinn framhjá Silvino markverði Benfica. AC Mílan er annað liðið í sögu Evrópukeppninnar til að sigra tvö ár í röð, síðan Nottingham Forest lék það afrek 1980. Ruud Gullit lék allan leikinn Knattspvma-U-21 árs landsliðið: Rúnar í hópnum hjá Marteini — fsland mætir Albaníu á þriðjudag Island mætir Albaniu sem kunnugt er næsta miðvikudag í forkeppni Evr- ópumóts landsliða í knattspymu. Á þriðjudaginn leika hins vegar landslið þjóðanna skipuð leikmönnum 21 árs og yngri í forkeppni Olympíuleik- anna. Marteinn Geirsson þjálfari íslenska 21 árs Olympíulandsliðsins hefur valið þá leikmenn sem taka þátt í leiknum fyrir íslands hönd. Hópinn skipa eftirtaldir leikmenn: Markverðir: Kristján Finnbogason KR Ólafúr Pétursson ÍBK Aðrir leikmenn: Anton Markússon Fram Bjarki Pétursson IA Bjami Benediktsson Stjömunni Grétar Steindórsson UBK Haraldur Ingólfsson ÍA Helgi Björgvinsson Víkingi Ingólfúr Ingólfsson Stjömunni Kristján Halldórsson ÍR Ríkharður Daðason Fram Rúnar Kristinsson KR Steinar Adolfsson Val Steinar Guðgeirsson Fram Valdimar Kristóferss. Stjömunni Þormóður Egilsson KR Framarinn Steinar Guðgeirsson meiddist í leik Fram í Eyjum um síð- ustu helgi og getur hann ekki tekið þátt í leiknum gegn Albönum. Enn hefúr ekki verið valinn leikmaður í hans stað. Leikurinn verður á þriðjudagskvöld nk. kl. 20.00 að öllum líkindum.BL HM ? knattspvmu: Englendingar töpuðu heima Fyrsta tap Englendinga í knatt- spymulandsleik á heimavelli í háa herrans tíð leit dagsins ljós í íyrra- kvöld þegar lið Uruguay sigraði heimamenn 2-1 á Wembley. John Barnes skoraði mark Englendinga. Úrslit í upphitunarleikjum HM landsliðanna í vikunni hafa verið þessi: England-Uruguay.............1-2 Lech Poznan-Kólombía........1-1 Israel-Argentína............1-2 N-írland-Uruguay............1-0 Wales-Costa Rica............1-0 Skotland-Pólland ...........1-1 Bandaríkin-Partizan Belgrad ....1-0 Úrvalslið Spánar-Brasilía..0-1 BL ■Frank Rijkaard hélt merki hollenska með AC en á greinilega nokkuð í land með að ná fyrra formi. Ekki var þó að sjá á leik hans að hné- meiðslin háðu honum. 57.500 áhorfendur fylltu leik- vanginn í Vín í gær, þar af voru um 30 þúsund stuðningsmenn AC Mílan liðsins. Með þessum sigri AC Mílan fóru allir þrír Evróputitlamir til Ítalíu, því Sampdoria vann keppni bikarhafa og Juventus keppni félagsliða. BL Hollendingamir þrír í liði AC Mfian, Frank Rijkaard, lengst til vinstri, skoraði sigurmark AC í leiknum í gær. BÆNDUR: Nú eru síðustu forvöð á að staðfesta pantanir í NEW HOLLAND bindivélar og rúllubindivélar á tilboðsverði. Tilboðsverð Réttverð NEW HOLLAND 570 heybindivél kr. 600,000 kr. 6^,000 NEW HOLLAND 575 heybindivél kr. 640,000 kr. 7/^000 NEW HOLLAND 835 rúllubindivél kr. 740,000 kr. 8^,000 Frestur til aö staðfesta pantanir á þessu hagstæða tilboðsverði rennur út 31. maí.k. Vinsamlegast staðfestið pantanir hið fyrsta þar sem um takmarkað magn véla er að ræða.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.