Tíminn - 28.06.1990, Blaðsíða 5

Tíminn - 28.06.1990, Blaðsíða 5
Fimfntudagui‘2&. júnM990 Tími’nn 5 Sú tískubylgja að flytja popptónllst í kirkjum veldur prestum áhyggjum: Sálmar að víkja fyrir poppi við hjónavígslur Kirkjunnar menn hafa þessa dagana töluverðar áhyggjur af þeirri tískubylgju sem nú rísfjöllum hærra að spila popp- tónlist við kirkjulegar athafnir. Vill þetta einkum brenna við í brúðkaupum og hafa brúðhjón jafnvel farið fram á upp- setningu fýrírférðamikilla hljómflutningstækja í þeim til- gangi að varpa poppinu yfir kirkjugesti. Það sem helst er þó amast við er að fjölda þessara óskalaga fýlgja textar á enskrí tungu sem mörgum finnst ekki viðeigandi í íslensk- um kirkjum. Þykir ástæða til að setja um tónlist- arflutninginn reglugerðir og mun það vera eitt af næstu verkefnum á dag- skrá. Um viðeigandi tónlist við kirkjuleg- ar athafnir eru, samkvæmt heimild- um Tímans, ekki ti! neinar reglur. Yf- irleitt hefur verið stuðst við hefðir og óskir hlutaðeigandi við val á tónlist. „Eg veit ekki hvers vegna en sá siður hefur verið tekinn upp mjög snögg- lega að flytja popptónlist við brúð- kaup. Þetta hefur viljað ganga út í al- gjörar öfgar og veldur það okkur töluverðum áhyggjum. Það hefúr jafnvel komið fyrir að hlutaðeigandi hafa viljað gera einskonar tónleika úr helgistundum. Þá er bara litið á kirkj- umar sem hvem annan sal og heilu hljómsveitimar hafa mætt með til- heyrandi tækniútbúnað" sagði Mar- teinn H. Friðriksson organleikari Dómkirkju Reykjavíkur í samtali við Tímann. Tíminn hafði jafnffamt samband við Bemharð Guðmundsson ffæðslu- stjóra kirkjunnar þar sem hann var staddur á prestastefnu. „Mönnum ber saman um það að þessi þróun hafi farið út fyrir öll mörk. Kirkjan mun taka þetta mál upp með söngmála- stjóra til þess að finna þessu eðlileg- an farveg" sagði Bemharður. Hann nefndi jafhffamt að skorta þætti létt- ari brúðkaupssálma. „Eitt af því sem þarf að gera er að finna og semja bæði lög og texta við slíkar gleði- stundir." Marteinn sagði ráð vera fyrir því gert að ef fólk leitaði inn í kirkjur á annað borð væri það í þeim tilgangi að finna ákveðna helgi. Því þætti til- hlýðilegt að meginuppistaða tónlistar við athafhir væri svokölluð kirkjuleg tónlist, svo sem sálmar. „Það hefúr viljað koma fyrir að bara væri tekið tillit til brúðhjóna og óska þeirra en ekki annarra kirkjugesta. Það er um- ræða i gangi um það hversu langt má ganga og hvað tilheyrir. Það þykir til að mynda mjög óviðeigandi að syngja lög á ensku. Undantekningin er ef erlent fólk er að gifta sig, þá þætti okkur sjálfsagt að koma ti! móts við viðkomandi með lagi á hans tungu“ sagði Marteinn. Bemharður tók undir að ekki færi vel á því að syngja á útlensku yfir íslenskum brúðhjónum og sagði að tekið yrði á þessu. Marteinn nefndi sömuleiðis að í Dómkirkjunni hefði verið eftir því óskað að textar væm í minnsta lagi á íslensku og vísað til þess að sam- kvæmt hefð bæri að syngja einhveija sálma einnig. Bemharður sagði mikið hafa verið um það rætt hvers konar tónlist mætti spila í kirkjum yfirleitt og jafnvel safnaðarheimilum einnig. Hann benti á að klassísk tónlist hefúr skipað góðan sess í kirkjum sem stundum hafa verið notaðar undir slika tón- leika. Bemharður ítrekaði að ekki væri um það að ræða að menn teldu eina tegund tónlistar göfugri en aðra. „Það er ffekar atferli flytjenda sem setur óhjákvæmilega ákveðinn blæ yfir tónlistarflutninginn. Þetta er at- riði sem rætt hefúr verið í sambandi við til að mynda flutning á þunga- rokki í kirkjum" sagði Bemharður. Hann nefndi að verið væri að endur- skoða reglur um notkun safhaðar- heimila og kirkna og hverskonar starfsemi þætti eðlileg að þar færi ffam. Myndu reglur um tónlistar- flutning vafalítið falla inn í þá um- ræðu. „Þetta verður eitt af næstu verkefnum og ég gæti jafnvel ímynd- að mér að eitthvað gæti verið komið varðandi þetta fyrir haustið" sagði Bemharður. jkb Kirkjunnar menn telja þörf á að setja einhverjar reglur um tónlistarflutning í kirkjum. Upp á síðkastið hafa sífellt fleiri brúöhjón óskað eftir að fá leikin út- lend rokklög við hjónavígslur. Á myndinni eru nokkrir meðlimir bresku hljóm- sveitarinnar Stranglers. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson afhendir forsætisráðherra undirskriftalista og yfiriýsingu í gær. Landsmót hestamanna hefst í næstu viku: Undirbúningur á lokastigi Landsmótssvæði hestamanna á Vind- heimamelum verður opnað á morgun. Að sögn Þórarins Sólmundssonar starfsmanns framkvæmdastjómar er undirbúningur fyrir mótið á lokastigi og þegar er fólk farið á láta sjá sig og kanna aðstæður. Sjálft mótið hefst ekki fyrr en á þriðjudag. Þórarinn átti von á fyrstu hópum ríð- andi manna á morgun og um helgina. Hann átti von á kynbótahrossum í kvöld og keppnishrossum um helgina. „Eg held að flest öll keppnisfu-oss verði kominn ekki seinna en á sunnu- dag. Hópar ríðandi manna dreifast meira og ég á von á þeim alveg ffam á miðvikudag." Hann sagði að móts- svæðið verði í stómm dráttum tilbúið á morgun en helgin notuð í að taka til og snyrta svæðið. „Annars emm við lausir við skrekk- inn“ sagði Þórarinn um undirbúning ffamkvæmdarstjómar. „Þetta em líka vanir menn sem hafa langa reynslu í slíku mótahaldi. Einnig höfúm við haft góða tíð undanfarið sem hefur gert okkur auðveldara fyrir" sagði Þórarinn að lokum. -hs. PRESTAR MÓTMÆLA Prestar af prestastefnunni, sem nú er haldin í Reykjavík, komu saman fyr- ir utan forsætisráðuneytið i gær og mótmæltu ákvörðun ríkisstjómarinn- ar um að slá á frest ákvæðum í kjara- samningi við BHMR um nýtt launa- kerfi. Kaup og kjör presta hafa töluvert verið og verða áfram meðal umræðu- efna yfirstandandi prestastefnu. Þyk- ir prestum þeim vera nokkuð mis- skipt milli prestakalla. Sumir prestar búa að sögn við töluverð sjálfvirk hlunnindi á meðan aðrir hafa það litla þjónustu að þeir sækja í önnur störf með prestsþjónustunni. En meðal annars vegna þessa mun prestum, samkvæmt heimildum Tímans, hafa þótt erfitt að sækja almennar kjara- hækkanir. Að auki hafa prestar einnig í sumum tilfellum þurft að innheimta sjálfir allt að þriðjung tekna sinna, eftir fjölda aukaverka. Hefur sr. Þorvaldur Karl Helgason í Njarðvík reiknað út meðal brauðið út ffá meðaltali allra prestsverka á landinu. Jafnframt hef- ur hann lagt fram tillögur varðandi það hvemig hægt væri að taka inn ákveðið þjónustu gjald með sóknar- gjöldum í stað greiðslna fýrir auka- verk og greiða síðan prestum í hlut- falli við mannfjölda. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson afhenti Steingrími Hermannssyni forsætis- ráðherra yfirlýsingu sem samþykkt var á aðalfúndi Prestafélags íslands og undirskriftalista þar sem þorri presta i landinu hefúr skrifað undir. I yfirlýsingunni er fúllri ábyrgð lýst á hendur ríkisstjóminni „vegna þessar- ar valdníðslu og aðfarar að fijálsum samningsrétti háskólamanna," eins og segir í yfirlýsingunni. Þess er krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi tafarlaust. Við sama tækifæri afhentu einnig undirskriftalista og mótmæli; fulltrú- ar Kjarafélags arkitekta, Félags ís- lenskra fræða og Kennarafélags Kennaraháskóla Islands. í máli forsætisráðherra kom fram að rikisstjómin á í viðræðum við for- ystumenn BHMR um að finna lausn á málinu og þá einnig koma í veg fyr- ir verðbólgu. „Og ég vona að með ykkar hjálp, og ég leyfi mér að segja Guðs hjálp einnig, megi það takast," sagði Steingrímur. GS./jkb Nýtt ábúendatal Undirbúningur vegna nýrrar út- bókunum ásamt litmyndum af gáfu á bókunum „Byggðir Eyja- býlum og núverandi ábúendum fjarðar“ er nú kominn á fullan auk fjölda eldri mynda. Einnig skrið. Stefnt er að því að bækurn- verður lögð áhersla á að gcra ar komi út árið 1992 en þær voru cyðibýlum góð skil en í fyrri út- fyrst gefnar út árið 1972. Um gáfu féll það nánast niður. Gerð næstu mánaðamót munu Ijós- verður grein fyrir búskapar- myndararleggjaland undirfótog brcytingum siðustu áratuga og mynda býli og búalið og verður * rakin saga búnaðarfélaganna. lögð áhersla á að ljúka myndatök- Saga ýmissa félagasamtaka svo um i sumar. Allar upplýsingar í og béraös- og sveitaíýsingum bókinni miðast við árið 1990. sem gerð voru góð skil í fyrri út- Að sögn Guðmundar Steindórs- gáfunni verður sleppt nú. sonar sem sæti á í ritnefnd bók- Guðmundur sagði að gffurlega anna er efnisval og uppsetning mikil vinna væri við upplýsinga- bókanna ekki fastmótað ennþá. öflun og úrvinnslu gagna og þvi Þóerljóstaðlögð verður áhersla veitti ekki af tveimur árum tíl á jarðalýsingar. Nákvæmt ábú- undirbúnings útgáfúnnar. endatal frá aldamótum verður í hiá-akureyri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.