Tíminn - 28.06.1990, Blaðsíða 8

Tíminn - 28.06.1990, Blaðsíða 8
9 iinirr 8 Tíminn il 009 i' ».vi .01 Fimmtudagur 28. júní 1990 1 AÐ UTAN Hryðjuverkakon- urnar Silke Maier- Witt, Inge Viett og Sigrid Sterne- beck létu mikið að sér kveða á blómaárum RAF í Vestur-Þýska- landi. Þær tvær síöarnefndu hafa nú verið hand- teknar í Austur- Þýskalandi. Vestur-þýskir hermdar- verkamenn í skjóli Stasi í Austur-Þýskalandi Örín bendir á Susanne Albrecht í hópi skoðanasystkina, sem krefjast betrí meðferðar á RAF-föngum áríð 1974. í mörg ár var vestur- þýska hermdarverkakon- an Susanne Albrecht eft- irlýst en leitarmönnum hennar datt helst í hug að hún hefði falið sig sem lengst í burtu, í Austurlöndum. Um tíma álitu yfirvöld í Vestur- Þýskalandi að þessi fýrrum félagi í innsta hring Rauðu her- deildanna (RAF), ynni á skrifstofu einhverra frels- issamtaka Palestínu- manna í Damaskus, höf- uðborg Sýrlands. Eða hefði tekið sinnaskiptum og ynni hjálparstarf í flóttamannabúðum í Beirút. En nú hcfúr komið í ljós að allar þessar vangaveltur voru fjarri sanni því að í stað þess að flýja út í víða veröld hafði eftirlýsta konan fúndið fylgsni í næsta nágrenni. Embættismenn í austur-þýsku rann- sóknarlögreglunni handtóku Sus- anne Albrecht, 39 ára gamla, mið- vikudaginn 6. júní sl. kl. 15 í íbúð hennar í Marzahn, ömurlegu hverfi í Austur-Berlín. Þar hafði þessi fyrr- um RAF-liði búið undir dulnefni síðan 1980. Þessi óvænta handtaka á frú Al- brecht, sem var óvopnuð og veitti ekki minnsta viðnám, virðist stað- festa langlífan grun vestur- þýsku leyniþjónustunnar um að gamla kommúnistastjómin hans Erichs Honecker vílaði ekki einu sinni fyrir sér að veita RAF- hryðjuverkamönn- um í felum aðstoð í viðleitni sinni við að koma vestur- þýskum stjóm- völdum á kné. Það var austur-þýski innanríkisráð- herrann Peter-Michael Diestel sem tilkynnti um handtökuna. Frá Bonn sendi vestur-þýski innanríkisráð- herrann Wolfgang Schauble ham- ingjuóskir og lét hugann reika til ánægjulegrar samvinnu í framtíð- inni. Embættismönnum austur-þýska innanríkisráðherrans Diestel hafði tekist það sem vestur-þýskir RAF- leitarmenn hafa enn bara látið sig dreyma um, þ.e. að taka höndum einn af æðstu hryðjuverkamönnum RAF. Þrátt fyrir að verðlaunum svo millj- ónum marka skipti hafi verið heitið íyrir upplýsingar og þó að reglugerð hafi verið sett í júní 1989 þar sem heitið er mildari refsingum þeim til handa sem gangast inn á að verða vitni saksóknara, jafnvel þó að þeir hafi játað á sig ólöglegar aðgerðir og jafnvel morð, hefúr vestur-þýskum rannsóknarlögreglumönnum ekki tekist að hafa hendur í hári eins ein- asta meðlims RAF síðan 1982. Óupplýst morö RAF Ekki hefúr enn tekist að hafa hendur í hári morðingja vopnaframleiðand- ans Emsts Zimmermann (1985), Sie- mensforstjórans Karls Heinz Beck- urts (1986), háttsetta stjómarerind- rekandans Gerolds von Braunmúhl (1986) og fómarlambs síðustu blóði drifnu aðgarðarinnar, sprengjuárás- arinnar sem varð Alfred Hermhaus- en, yfirmanni Deutsche Bank, að bana á árinu sem leið. Nú gera rannsóknarmennimir sér vonir um að geta senn bætt úr þess- um rýra árangri. Þegar þeim tókst að klófesta Susanne Albrecht gerðu þeir sér vonir um að þar væri bara fyrsta handtakan á hryðjuverkamönnum af mörgum á ferðinni. Vestrænir örygg- issérfræðingar álíta að fleiri gmnaðir hryðjuverkamenn RAF búi enn í Austur-Þýskalandi undir folskum nöfnum. Þar em álitnar hafa hreiðrað um sig * Silke Maier-Witt, fertug, sem er eftirlýst vegna hlutdeildar sinnar að ráninu og morðinu á forseta vinnu- veitendasambandsins, Hanns Martin Schleyer 1977. *Sigrid Stemebeck, sömuleiðis fer- tug að aldri, sem er á lista rannsókn- arlögreglunnar yfir eftirlýsta vegna tilraunar til eldflaugaárásar á skrif- stofúr saksóknara í Karlsmhe 1977. * Inge Viett, 46 ára, sem.kölluð er „RAF-amma“ og er álitin hafa tekið þátt í morðinu á Berlínardómaranum Gúnter von Drenkmann 1974 svo og ráninu á þáverandi foringja kristi- legra demókrata í Vestur-Berlín, Pet- er Lorenz, 1975. Ekki þykir ólíklegt að þau hafi farið sömu leið og Sus- anne Albrecht — leitað hælis í Aust- ur-Þýskalandi, ásamt fleirum úr gömlum liðskjama RAF. Hlutverk Stasi Allir þræðir þessara samskipta vom saman komnir í hinu almáttuga ör- yggisráðuneyti undir stjóm hers- höfðingjans Erich Mielke. Það er tæplega hægt að ímynda sér að Honecker og aðrir foringjar SED- flokksins hafi ekki verið upplýstir um leynimakkið. Starfsfólk austur- þýsku öryggislögreglunnar, Stasi, út- vegaði ný persónuskilriki, íbúðir og vinnustaði fyrir þetta eftirlýsta fólk sem myndir héngu af á öllum lög- reglustöðvum Vestur-Þýskalands. Susanne Albrecht var 29 ára þegar henni var lóssað frá Austurlöndum nær 1980 um Tékkóslóvakíu og komið fyrir í venjulegu fjölbýlishúsi á nyrsta jaðri ffamleiðsluhverfis Tra- bantsins, Marzahn í Austur- Berlín. Nú hét hún Ingrid Jager og vann á efnafræðistofu. Dulargervið virtist lýtalaust. Þama byggði Susanne Albrecht, sem átti uppmna sinn i góðborgaraumhverfi í Hamborg, upp ósköp venjulega smá- borgaralega tilvem. Ekki leið á löngu þar til hún giftist eðlisfræðingnum Claus Becker og árið 1983 fæddist þeim dóttir. Maður hennar hefúr vottað að hann hafi lengi vel ekki haft hugmynd um hryðjuverkafortíð konu sinnar. Hann segir ekki langt um liðið síðan hún trúði honum fyrir henni. Jafnffamt því sem gamla SED- stjómkerfið hefúr hmnið í Austur- Þýskalandi fóm líka að koma brestir í dulargervið. Yfirmenn rannsóknar- lögreglunnar vestur-þýsku segja að alltaf öðm hverju hafi komið vís- bendingar frá austur-þýskum al- menningi um eftirlýsta RAF- hryðju- verkamenn. Þannig segja þeir að komist hafi upp um Susanne Al- brecht þegar austur-þýskir embættis- menn fóm að kynna sér nánar hóp innflytjenda til Austur- Þýskalands. Hins vegar er sennilegra að einhver liðhlaupi hafi orðið henni að falli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.