Tíminn - 28.06.1990, Blaðsíða 6

Tíminn - 28.06.1990, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 28. júní 1990 Tfminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriöi G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Oddur Ólafsson Birgir Guðmundsson Steingrlmur Gíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, 110 Reykjavík. Síml: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi h.f. Mánaðaráskrift kr. 1000,-, verð I lausasölu kr. 90,- og kr. 110,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Evrópuveldið í nánd Leiðtogar Evrópubandalagsins héldu fund á írlandi á mánudag og þriðjudag þar sem rædd voru mikilvæg mál sem ástæða er til að veita athygli. Ekki fer milli mála að Evrópubandalagið finnur mjög til máttar síns og stefnir að því að auka veldi sitt á næstu árum langt umfram það sem tekur til þess að koma á innri markaði 1992. Leiðtogafundurinn sýndi að stefnan er tekin á að gera Evrópubandalagið að raunverulegum Bandaríkjum Evrópu, ekki aðeins efnahags- og tollabandalagi, heldur stjómarfarslegu stórríki, með sterkri miðstjóm í alríkismálum. I sjálfu sér þarf þetta ekki að koma á óvart. Það sem um þetta var sagt á íundi leiðtoganna nú er ekki ann- að en endurtekning á því sem er framtíðarmarkmið Evrópubandalagsins. En úr því að þetta grundvallar- stefnumál Evrópubandalagsins er svo rækilega undir- strikað við þetta tækifæri og í ljósi þeirrar umræðu sem á sér stað hér á landi um Evrópumál og afstöðu Islendinga til þeirra, er nauðsynlegt að íslenskir áhrifamenn gefi hinum pólitísku markmiðum Evr- ópubandalagsins meiri gaum en oft virðist vera. Þótt það sé að vísu hin yfírlýsta stefna núverandi rík- isstjómar að aðild að Evrópubandalaginu sé ekki á döfínni, þá er öllum vitanlegt, að til em áhrifaöfl hér á landi sem ekki útiloka íslenska aðild að bandalag- inu, þegar til lengri tíma er litið. Þess er einnig að geta að viðræður þær sem brátt fara að heljast fyrir alvöru milli EB og EFTA munu fjalla um stofnun alhliða efnahagsbandalags á vegum þessara samtaka, sem ætlað er að koma í staðinn íyrir EFTA sem fríverslun- arsamtök og kann að vera eins og fordyri að sjálfu Evrópubandalaginu. Er mikil nauðsyn að íslenskir stjómmálamenn fari að gefa þessum málum fullar gætur og átti sig á þróunarlíkum þeirra og pólitískum afleiðingum. EB og Gorbatsjov Á leiðtogafundi Evrópubandalagsins var ekki látið við það sitja að ræða innbyrðis stefnumál bandalags- ins sjálfs, heldur urðu allmerkilegar umræður um efnahagsaðstoð við Sovétríkin í þeim tilgangi að styrkja umbótastefnu Gorbatsjovs og þá ekki síður að styrkja Sovétforsetann persónulega í þeirri valdabar- áttu sem komin er upp í Sovétríkjunum. Leiðtogar Evrópubandalagsins sjá það fyrir sér, að efnahagsumbætur í Sovétríkjunum eiga erfítt upp- dráttar og vandinn við að koma þeim á er meiri en það eitt að gefa yfírlýsingar um að breyta þurfi fram- leiðslukerfinu úr miðstýrðum áætlunarbúskap í mark- aðshagkerfi. Hitt er svo annað mál hvort útlend efna- hagsaðstoð megnar að sætta þær pólitísku andstæður sem komnar eru upp í Sovétríkjunum. Þrátt íyrir þau miklu völd sem Gorbatsjov hefúr að formi til, er hann bersýnilega ekki sá einvaldur sem hin fonnlega staða hans í stjómkerfi og kommúnistaflokknum gæti bent til. Hann hefur ekki við það eitt að glíma að koma á efnahagsumbótum, heldur stendur hann í hreinrækt- aðri stjómmálabaráttu, þar sem tekist er á um völd og stefnumál um hin ólíkustu efni. GARRI Forvarnir og líknarstörf Fyrir mörgum árum hcyröi Garri það eftir starfandi lækni I stórum útgerðarbæ á íslandi aft eitt aftalheilbrigftisvandamál síaðarins væri olneysia áfengis og alleiðingar af drykkjuskap á heilsufar manna. Ekki eru mjög rnörg ár síðan fundur Líeknafé- lags Islands ályktaði, að eitthvert nauðsynlegasta heilsubótarátak sem íslendingar gætu gert væri að draga úr áfengisneyslu. Sú ályktun er reyndar í samræmi við áfengismálastefnu Alþjóðlegu hcilbrigðisstofnunarinnar, scm starfar á vegum Sameinuðu þjóð- anna. Þrátt fyrir þetta fer drykkju- skapur sivaxandi i landiou og dyggilega stefnt að þvi að alkó- hólisera íslendlnga gegnum sí- drykkju öls og léttra vína til við- bótar brennivínsdrykkjunni, því að ekki dregur neitt úr henni. Tii er félagsskapur sem kaliast Sam- tök áhugafólks um áfengisvanda- máiið, skammstafað SÁA, og hef- ur mikla starfsemi í Rcykjavik, Sarotök þessi hufa nú víkkað úf sfarfsemi sina og tekið upp „Iandsbyggðarþjónuslu“, sem svo er nefnd, og mun ekki af veita. Um það vitnar frásögn yfir- læknis á sjúkrahúsí á iands- byggðinni, Magnúsar Asmunds- sonar i Neskaupstað, sem scgir svo i frásögn t tímaritinu Sveifar- sfjúrnarmálutn: Orð yfirlækmsins „Þegar minn hópur útskrifaðist úr iæknadeiidinni fyrir rúmum 30 árum, vorum við mjög fá- kunnandi um aikóhólisma, bæði um einkenni hans og meðferð og einnig um það, hversu útbreiddur hann er. Það kom okkur því mjög á óvart, að jafnvel í liflum friðstel- um bæjarféiögum væru margir tugir fðlks, sem ættu í mjög al« varlegu stríði við úfengisvand- ann, og að mörg heimiii væru sundruð af þessum ástasðum. Ég komst í kynni við AA-sam- tökin og samtök aðstandenda aikóhóiista (AFAnon) fyrir rúm- um árafug og kynntist þá hinu geysilega mikla starli, sera þar er unnið. Mér varð þá Ijóst, að fag- raenn — læknar, sálfræðingar og félagsráðgjafar — eru ekki lík- legir tíl þess að lcysa áfengis- vanda fólks í vinnutimanum tnilli kl. 8 og 17.00, hversu hæfir og duglegir sem þeir eru. Það verkefni vlnnst ekki nema með fórnfúsu sfarfi þeirra, sem sjálfir hafa stritt við áfengisvand- ann og ttáð tökum á honutn. Þéir þekkja þessi mál úf og Inn og vita hvar skórinn kreppir, AA-samtökin hafa starfað af miklum krafti um alit land í meira en tvo áratugi. Og það er sannast sagna, að tökin á áfengis- vandanum hafa gjörbrevtzt. Sú mikla skömmustukcnnd og laumuspii, sem fylgdi alkóhóiism- anum, hefur minnkað; margir eru farnir að viðurkenna áfcngis- vanda siun og fala opinskátt um hann eins og hvem annan sjúk- dóm. Öflug meðferðarheimili hafa ris- ið og menn hafa gert sér grein fyr- ir, hvcrsu gríðarlegt gildi fræðsi- an um eðii og eiukenni áfengis- sýkinnar hefur, jafnf fyrir alkó- hólistana sjálfa og ættingja og venzlamenn þeirra. öflugar AA- deildlr tii stuðnings og samhjálp- ar hafa verið stofnaðar um land ailt og jafnframt sterk samtök ætiuð fyrir fjölskyldur þeirra og vini. Fræðslustarf og námskeiðahaid hefur verið mjög öflugt á höfuð- borgarsvæðinu. En vandinn er sá, að þessi starfsemi hefur ekki náð út til landsbyggðarinnar. Fðlk úr strjálbýlinu hefur orðið að leggja í tniklnn kostnað vegna ferðalaga og dvalar í Reykjavík. Og það, sem verra er: flestir hafa orðið að fara á mis við þessa fræðsiu, sem þó er grundvailaratriði í baráttu gegn misnotkun á áfengi. SÁÁ hefur viljað bæta úr þessu og síð- ustu máuuði hefur veriö hafin landsbyggðarþjónusta. Tveir ágætir menn hafa ferðazt uro Austuriand, fiutt erindi og veitt persónuiega ráðgjöf alkðhói- isfum, fjölskyidum þeirra og vinnuveitendum. Ljóst cr, aö þörfin er geysilega niikil, og hafa þessir menn þurft að vinna myrkranna á millí. Og þvi er ckki vafi á, að slík landsbyggðarþjón- usta cr það, sera koma skal. Mikiii árangur er þegar orðinn af starfiou, sem sést meðai annars á því, að þeim, sem hafa farið i meðferð, hefur fjölgað stórlega. Starfsemin kostar auðvitað töiu- vert fé, en við, sem vinnum að þessum málum, fínnum, að þörfin er mikil. Við treystum því, að sveitar- stjórnarmenn og forstöðumenn fyrirtækja geri sér líka grein fyrir þvi og veiti starfseminni allan þann stuðning. sem þeir megna, svo að þetta framtak þurfi ekki að fjara út vegna fjárskorts. Það fé, sem fer tii þessara máia, inun ör- ugglega skila sér í bættri heilsu og minni fjarvistum frá vinnu.“ Hinnskýri boöskapur Fuli ástæða er til að gera sér grein fyrir ágæti þess starfs sem unnið er á vcgum líknarféiaga af því tagi sem SÁÁ er. Slik félög koma tii hjáipar þeim setn orðið hafa sjúkdómum og slysuni að bráð, í þessu tilfeiii þeim sem failið hafa fyrir ofdrykkj u áfcng- is með alvariegum afleiöingum fyrir þá sjáifa, fjölskyldu og heimiiislif. Það n»á ráða af orð* um yfirlœknisins hér að franian, að starfsemi AA-samtaka og SÁÁ fyllir nánast upp í tóma- rúm, sem er i heilsugæslunni hvað varðar Tagmanniega þjón- ustu við ofdrykkjufólk og vanda- mean þess. ;;v En spurningin er cigi að siður: Er ekki jafnbrýnt að efla féiags- skap sem vinnur gegn áfengis- oeysiu með skýrum boðskap og fœst ekki eiugöngu við iiknar- störf, svo göfug sem þau ero? Fé- lög sem hafa bindindi á áfengi á stefnuskrá sinni eru sannarlega tii í þessu landi. Góðtemplara- reglan á t.d. meira en 100 ára sögu að baki. Hún lifði sift blóma- skeið fyrir löngu, en nú virðisf það iiðið, og kcmur þar áreiðan- lega margt fU, sent Garri kann ekki að skýra nema að litlu leyti. Hitt er eins vist að bindindisboð- skapur góðtemplararegiunnar á fuilan rétt á sér. Það er engu óeðlilegra og síst öfgafyllra að setja sér þaft niark aft útrýma ófengi en töbaksreykingum, sem nú cr mjög haft á orði og er ágæt bugmynd. Virkasta forvarnar- starf í áfengismólum er að drekka aidrci áfenga drykki. Svo einfait er það. Garri w MALGAGNIÐ Leiðari Morgunblaðsins var í gær skrifaður með koddaversletri eins og Jónas stýrimaður og rithöfundur kallaði stóra og læsilega leturgerð sem er þægileg fyrir böm að stauta sig fram úr. Þessi viðhöfn var höfð til hátíðarbrigða vegna stórafmælis þeirrar deildar Sjálfstæðisflokksins sem gengur undir heitinu Heimdall- ur. Nú er ekki um að sakast þótt Moggi skrifi fallega um Heimdall og Flokkinn og stæri sig af að standa yfir höfúðsvörðum sósíal- isma og samvinnuhreyfingar. Það er í rauninni ekkert sjálfsagð- ara en að málgagnið geri veg Flokksins sem mestan og taki svari hans í hvívetna. Maður talar nú ekki um þegar hægt er að lyfta stærsta hluthafa í Árvakri í upphæðir í leið- inni og fer þá saman vegsemd Flokksins, Árvakurs og Morgun- blaðsins og er hið dægilegasta harmóní. En galli er það á málgagninu að þar veit vinstri höndin ekki hvað sú hægri gjörir nema kannski er engin vinstri hönd í herbúðunum og fer þá að vandast málið. Á sunnudögum helgar Moggi fjöl- Frelsiein hafíð til \ ¥T m helgina var þess minnst að 60 ár eru lið- in frá því að Samband ungra sjálfstæðismanna var stofn- að. Af þvf tilefni heiðruðu ungir sjálfstæðismenn Geir Hallgrímsson, seðlabanka- stjóra og fyrrum formann Sjálfstaeðisflokksins, í þakk- lætis- og virðingarskyni fyrtr störf hans í þágu sjálfstæðis- stpfnnnnar ntr RÁrstpklpcm staklinga drðingar margir eins og þau séu $já! sögð og eðlileg, það lig einfaldlega ( hlutarins o að menn hafni ekki frut kvæði cinstaklingsins e« takmarki ekki svigrúm ha: í atvinnulifi eða svipti hat eignarrétti. Þeim, sem a hylltust önnur viðhorf en þ: sem nú eru í sigurfor u heiminn, er að gjálfsögi mocto •*' ** miðlun tvær dýrmætar síður. Þar skrifar einatt maður sem veit allt um fjölmiðlun, gott ef hann er ekki fjölmiðlafræðingur með próf upp á vasann. Sá hefur uppi mörg og ljót orð um „flokksblöðin" og kann skil á því að í þau skrifa eingöngu flokksþrælar undir eftirliti flokk- anna og ráðleggur þessi leigupenni Morgunblaðsins fólki frá að líta nokkru sinni í „litlu flokksblöðin“, enda les þau enginn, segir sá fróði fjölmiðlungur. Ekkert er að marka neitt af því sem þar stendur á prenti. Mogunblaðið er fritt og frjálst og engu háð fremur en ljósvakamiðl- arnir sem að vísu væla eftir opin- berum tryggingum og tollafrelsi sér til handa en eru annars öllu óháðir, líka eigendum sínum, segja þeir fjölmiðlafróðu og leigupenni Moggans sem étið hefur af skiln- ingstrénu er fúndvís á flokks- stimpla allra málgagna nema Morg- unblaðsins. Nú ætti sá vísi maður að fara yfir efhistök Morgunblaðsins fýrir borgarstjómarkosningamar síðustu og svo t.d. koddaversieiðarann í gær og skrifa síðan lærða grein um hlutleysi málgagnsins. Subbuskapur Hausavíxl vom höfð á hugtaki í þessum dálki í gær. Þar var urgað í íslensku dómskerfí og skal ekkert tekið aftur af því sem þar stendur, nema að undir lok pistilsins er hrap- að að því að setja skuldunautar í stað lánardrottnar. Rétt á setningin að vera svona: Hún skal á götuna og allir lánar- drottnar fá sitt og gott betur. Athugulir lesendur hafa séð hver rökleysa var þama á ferð en leið- rétting og skömmustuleg yfirbót sakar samt ekki. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.