Tíminn - 28.06.1990, Síða 10

Tíminn - 28.06.1990, Síða 10
10 Tíhiinn Fimmtudagur 28. júní 1990 Fimmtudagur 28Júní 1990 v • r.r * 'Tímihn Vl Ríkið gaf kennarafélögunum gamla Kennaraskólann við Laufásveg, en gleymdi að gefa lóð undir húsið. Málið hefur þvælst í kerfinu í eitt og hálft ár: SKILA KENNARASAMTOKIN KENNARA- SKOLANUM AFTUR TIL RIKISINS? Kennarasamband íslands og Hið íslenska kennarafélag hafa sent rikisstjóminni bréf þess efnis að álitamál sé hvort kennarasam- tökin sjái sér fært að þiggja gamla Kennara- skólann á Laufásvegi sem þau fengu að gjöf frá ríkisstjóminni í febrúar 1989. Síðan þá hefur hvorki gengið né rekið að fá afsal fyrir eigninni eða fá úr því skorið hvaða lóðaréttindi fylgja henni og hefur endurbygg- ing hússins tafist af þessum sökum en K1 og HÍK hafa þegar lagt vemlegan kostnað í teikn- ingar til lagfæringar á því. Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasam- bands íslands, sagði í samtali við Tímann í gær að kennarasamtökin hafi fengið Kennara- skólann að gjöf í febrúar á síðasta ári en það síðan verið samþykkt á fjárlögum nú í ár. Hún sagði að félögin hefðu frá því í nóvember 1989 reynt að fá úr því skorið hvaða lóðarétt- indi fylgdu húsinu svo hægt væri að ganga frá afsali. Erfitt aðfáríkiö til að losa sig við húsið! „í upphafi var óljóst um stærð lóðarinnar og eignarrétt á henni en það er nú orðið alveg ljóst og það fyrir þó nokkuð löngu,“ sagði Svanhildur. „Við höfum verið að reyna að ýta þessu máli áfram og menntamálaráðherra hefur sýnt okk- ur mikinn stuðning í því. En málið virðist síð- an hafa lent í einhveijum fiækingi milli menntamálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis sem bæði hafa með þetta að gera og þess vegna hefur málið dregist svona mikið.“ Eggert Lárusson, formaður Hins íslenska kennarafélags, sagði málið einfaldlega fjalla um það að einhverra hluta vegna gengi ekki neitt að fá ríkið til þess að losa sig við þetta hús. „Það þurfti náttúrulega að fá fjárlagaheimild þama um og hún kom bara með fjárlagafrum- varpinu. Við vorum byrjuð að undirbúa afsal en þá kemur í ljós að í níu eða tíu mánuði hafði gefandinn ekkert gert í þessu en hélt að fjár- lagaheimild væri nóg,“ sagði hann. Hver á lóðina? Ríkið, borgin eða ríkið? Eggert tók undir það með Svanhildi að síðan kennarasamtökin hefðu fært ríkinu uppkast að afsali í byijun desember á síðasta ári hefði ekkert gerst í málinu. „Það uppkast hefur síðan verið að velkjast á milli manna innan ráðuneyta, og síðan á milli ráðuneyta," sagði Eggert. Hann sagði þetta málavafstur sennilega vera út af lóðinni en lengi var óvíst hver ætti hana. „Þeirhéldu að ríkið ætti lóðina en svo var far- ið að skoða málið og þá leit það þannig út að borgin ætti hana. Þá var það skoðað ennþá bet- ur,og það tók margar vikur, og þá kom í ljós að ríkið átti hana. Svona er þetta búið að vera,“ sagði Eggert. Happdrætti að þiggja húsið Svanhildur sagði að kennarasamtökin væru farin að ókyrrast mjög því þau hefðu þegar lagt í mikinn kostnað vegna vinnu við teikn- ingar og undirbúnings að endurbyggingu hússins. Sagði hún húsið vera í mjög lélegu ástandi og því áríðandi að hægt yrði að vinna þá vinnu sem verður að gera utanhúss á þessu sumri. „Við getum ekki auglýst útboð, og við getum ekki haldið áfram. Við erum komin í klípu með þetta vegna þess að einungis sá sem á húsið getur auglýst útboð á því og við getum ekki litið á það sem okkar eign fyrr en við er- um búin að fá afsalið,“ sagði Svanhildur. „Þetta hangir svoleiðis saman.“ Hún sagði þetta vera ástæðuna fyrir því að ákveðið var á fundi í fyrradag að skrifa ríkis- stjóminni, sem væri hinn eiginlegi gefandi, og ítreka við hana að nú þegar yrði gengið ffá lóðaleigusamningi og afsali þannig að sam- tökin gætu haldið áfram sínu verki. Eggert sagði að lausleg kostnaðaráætlun um endurbyggingu hússins hafi verið gerð í fyrra og þá hefði það verið talið svara kostnaði. Hann sagði það þó einungis vera ágiskun því ekki kæmi í ljós hvert ástand hússins er fyrr en búið er að rífa jámið utan af því. „Þannig að þetta er náttúrulega happdrætti fyrir okkur að þiggja þetta hús. Þetta er fyrsti skólinn sem byggður var sem kennaraskóli ár- ið 1908, og kennarar em voða veikir fyrir þessu húsi og það hefúr fengið að ráða svolít- ið í þessu máli,“ sagði hann. Húsnæðisvandi félaganna knýr á um skjóta lausn Að sögn Svanhildar geta félögin ekki haldið áffam að fjárfesta í húsinu, meðan þau sjá ekki fyrir endann í málinu. Hún sagði það vera al- gert frumskilyrði að nota sumarið sem nú færi í hönd til allrar útivinnu á húsinu. Ekki lægju fyrir neinar endanlegar kostnaðartölur en öll útboðsgögn væm tilbúin bæði að innra og ytra skipulagi. „Þetta er okkur mjög mikið kappsmál því við vorum mjög stolt og ánægð yfir því og fannst okkur mikill heiður sýndur að okkur skyldi treyst til þess að koma þessu húsi til vegs og virðingar. Okkur er mjög annt um að þetta gangi eflir þannig að við getum komist í þessa endurbyggingu," sagði Svanhildur. Að sögn Svanhildar höfðu KI og HIK þegar hafið leit að sameiginlegu húsnæði til þess að koma starfsemi þessara tveggja félaga í nánari samvinnu þegar Kennaraskólinn var færður þeim að gjöf. Þeirri leit hefði að sjálfsögðu verið hætt þegar þetta kom upp á. „Bæði félögin búa við feikilegan húsnæðis- vanda, hér situr bara bókstaflega hver ofan á öðrum, þannig að það er mjög áríðandi fyrir okkur að komast inn í húsið,“ sagði Svanhildur. Eggert sagði að það yrði að meta það hvort þau næðu þvi að gera við húsið að utan í sumar. „Ef við missum þetta sumar verður að meta það hvort okkar húsnæðisvandi sé ekki orðinn það brýnn að við verðum að leita annarra leiða,“ sagði Eggert. Tilfinningalegt gildi fyrir kennarastéttina Svanhildur sagði að það væri öllum ljóst að húsið væri mjög illa farið að mörgu leyti þar sem það hefði ekki fengið neitt viðhald í marga áratugi og að það yrði kostnaðarsamt Eftir Sólveigu Ólafsdóttur Gamli Kennaraskólinn við Laufásveg var að grotna niður í eigu ríkisins og því grípu stjómvöld tíl þess ráðs að gefa húsið. Ráðuneytismenn hafa hins vegar ekki enn komið því í verk að afhenda nýjum eigendum afsal af húsinu. að gera það upp. Svanhildur sagði að Kenn- arasambandið hefði hins vegar litið svo á að þama væri um að ræða verðmæti sem ekki mætti bara taka út í krónum og aurum. „Þetta hús er byggt árið 1908 yfir kennara sem kennaraskóli, þannig að það hefúr alveg óijúfanleg tengsl við kennarastéttina. Lang- flestir félagsmenn kennarasambandsins hafa t.d. fengið sína menntim í þessu húsi. Það hef- ur því tilfinningalegt og menningarlegt gildi fyrir okkur, sem ekki verður metið til fjár. Við teljum að með þessari gjöf hafi okkur verið mikill heiður sýndur og ég vona innilega að við fáaum farsæla lausn á þessu straxsagði Svanhildur. Lóóin Landsspítalan - máliö aö leysast Þórhallur Arason hjá fjármálaráðuneytinu sagði að kennarasamtökunum hefði verið gef- ið húsið í fyrra en lóðarlaust. „Það þarf því að setja undir það einhveija lóð. Það sem menn hafa verið að gera núna er að teikna einhveija hæfilega lóð í kringum húsið,“ sagði Þórhallur. Tímamynd PJetur Hann sagði að húsið væri inni á lóð Lands- spítalans og verið væri að leysa málið með því að sníða aðeins af henni en lóðin er í eigu rik- isins. Þórhallur gerði ráð fyrir því að lausn yrði fúndin einhveija næstu daga. —só

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.