Tíminn - 03.07.1990, Blaðsíða 13

Tíminn - 03.07.1990, Blaðsíða 13
Þriðjudagur.3. júlí 1990 Tírfiinn 13 vr\i\u«J i «nr Vorhappdrætti Framsóknarflokksins 1990 Dregið var í vorhappdraetti Framsóknarflokksins 15. júní. Vinnings- númer eru sem hér segir: 1. vinningur nr. 29352 2. vinningur nr. 14359 3. vinningur nr. 38822 4. vinningur nr. 8039 5. vinningur nr. 13391 6. vinningur nr. 33369 7. vinningur nr. 14360 8. vinningur nr. 14874 9. vinningur nr. 127 10. vinningur nr. 33064 11. vinningur nr. 2606 12. vinningur nr. 6749 13. vinningur nr. 17642 14. vinningur nr. 29032 15. vinningur nr. 13417 Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá úrdrætti. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-21379. Framsóknarflokkurinn Lokað vegna sumarleyfa Skrifstofur Framsóknarflokksins að Nóatúni 21 verða lokaðar frá og með 2. júnf 1990, vegna sumarleyfis starfsfólks. Framsóknarflokkurinn. Frá SUF Hannes Karlsson hefur verið ráðinn starfsmaður SUF vegna þings þess sem haldið verður í lok ágúst. Hægt verður að ná í Hannes í síma 686300 alla virka daga milli kl. 9-13. SUF Þórshöfn - Raufarhöfn - Nærsveitir Guðmundur Valgerður Bjarnason Sverrisdóttir ráðherra alþingismaður verða til viðtals sem hér segir: Félagsheimilinu Þórshöfn fimmtudaginn 5. júlí kl. 20.30. Félagsheimilinu Raufarhöfn föstud. 6. júlí kl. 20.30. Framsóknarflokkurinn. Útsala Útsala Britains landbúnaðarleikföng. Indíánatjöld. Fjarstýrðir bfl- ar. Barbie leikföng. Fisher Price. Sandgröfur. Hjólaskaut- ar. Sparkboltar. Legokubbar. Talstöðvar áður kr. 6.500 nú kr. 4.500. Sundlaugan Stærð 152x25 183x38 224x46 Áður kr. 1550 kr. 2489 kr. 3400 Nú kr. 1200 kr. 1990 kr. 2700 Rafhlöðun Stór, áður kr. 59.- nú 12. stk. kr. 350.- Mið, áður kr. 43.- nú 24 stk. kr. 480.- Lítil, áður kr. 34.- nú 24 stk. kr. 350.- 10 — 20 — 50% afsláttur Póstsendum LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustíg 8. Sími14806 Fólk hafði ekki mikla trú á Schwarzenegger í byrjun en hann trúði á sig og það gerði gæfumuninn. KRAFTAJÖTUNNiNN SCHWARZENEGGER — draumur hans rættist Nýjasta mynd hans heitirTotal Recall. Amold Schwarzenegger er nú 42 ára gamall og gerir það gott í kvik- myndaheiminum. Hann fæddist í Austurríki og þau voru fjögur í fjölskyldunni. Faðir hans var lögreglumaður. Eini bróðir hans dó í bílslysi ungur. Schwarze- negger er gangandi dæmi um amer- íska drauminn sem rættist. Er hann var tíu ára gamall dreymdi hann um ffægð og ffama í Ameríku. Fimm- tán ára gamall byijaði hann að æfa líkamsrækt. Aðeins fimm árum seinna vann hann heimsmeistaratit- ilinn í vaxtarrækt. Eftir það stóðu dymar opnar fyrir honum. Hann flutti til Kálifomíu og fór í skóla þar sem hann lagði stund á ensku og viðskipti þess á milli sem hann æfði líkamsrækt. Hann sat fyrir hjá ljós- myndurum sem hin sterka karl- ímynd og fékk svo seinna aðalhlut- verkið í myndinni Conan the Bar- barian sem færði honum heims- ffægð. Eitt sinn var hann spurður að því í sjónvarpsþætti hvort hann hefði byijað að æfa líkamsrækt vegna minnimáttarkenndar. „Ég hef alltaf haft áhuga á réttu hlutfalli og full- komleika og er ég var fimmtán ára klæddi ég mig úr öllum fotunum og stóð fyrir framan spegil og sá þá að líkami minn var ekki í samræmi við ... ýmislegt annað, svo ég ákvað að byija að æfa þannig að ég hefði rétt hlutfall allsstaðar," sagði Schwarzenegger. í dag á Schwarzenegger margar myndir að baki og hann er enn á fullu. Hans nýjasta mynd heitir Tot- al Recall. Hann er það vinsæll að geta leyft sér að hafna hlutverkum. Ekki voru allar myndimar hans toppmyndir því myndin Red Sonja, þar sem hann lék á móti Brigitte Ni- elsen, mistókst. Schwarzenegger segist ekki hafa tekið það alvarlega því hann lærði bara á mistökunum. „Maður lærir alltaf á mistökum og stendur sig þá bara betur næst,“ segir hann. En það að vera leikari er ekki hans eina starf því hann starfar einnig við fasteignaviðskipti og á eignir í Denver og Suður-Kalifom- íu. Hann er giftur Maríu Shriver sem starfar á bandarísku sjónvarps- stöðinni NBC sem fféttakona. Þau hjónin eignuðust nýlega sitt fyrsta bam. Það er lítil stúlka sem skírð var Katherine Eunice. Schwarze- negger elskar að vera innan um fólk og sérstakt dálæti hefúr hann á bömum. Hann segir það dásamlegt að hafa eignast litla dóttur. A hveij- um morgni kl. sex fer hann á fætur og gerir eitthvað uppbyggilegt. Hann æfir líkamsrækt hvem einasta dag. Schwarzenegger og konan hans, María Shríver, ásamt nýju dóttur sinni, Katheríne Eunice.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.