Tíminn - 12.07.1990, Qupperneq 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 12. júlí 1990
Þróunarsamvinnustofnun hefur samstarf við Namibíu:
134 sjómenn sóttu um,
fimm valdir til starfa
Samstarfsverkefni Þróunarsamvinnustofnunar ís-
lands og Namibíustjómar um fiskirannsóknir við
strönd Namibíu er í þann mund að fara í gang og
munu um átta íslendingar taka þátt í verkefninu að
sögn Vilhjálms Ólafssonar skrífstofumanns Þróunar-
samvinnustofnunar. Áhugi íslendinga á störfum sem
þessum er gífuríegur og sóttu 134 um störf skipstjóm-
armanna við þetta verkefni.
Vilhjálmur sagði að meiningin væri
að Namibíumenn yfirtækju skip sem
þeir eiga en Suður-Afríkustjóm hefur
ekki látið af hendi og verðurþað not-
að til rannsóknarstarfanna. Islenskir
yfirmenn verða á skipinu - þrir stýri-
menn og tveir vélstjórar - einn ís-
lenskur verkefnastjóri og tveir fiski-
ffæðingar munu stjóma rannsóknun-
um og sjá um vinnslu gagna.
Vilhjálmur sagði Namibíumenn
hafa nýlega hlotið stjómmálalegt
sjálfstæði frá Suður-Afriku. Svo til
engin stjóm hefði verið á fiskveiðum
hjá þeim frarn að þessu og því væru
sumir stofnar hjá þeim stórskemmdir
eða jafhvel ónýtir.
, j»eir hafa svo til engar upplýsingar
um þessa fiskistofna svo þetta er al-
ger frumheijavinna sem farin er að
vinna þama,“ sagði hann.
Vilhjálmur sagði að það væri gert
ráð fyrir því þegar líða tæki á verk-
efhið að setja upp námskeið í sjó-
mannaffæðum og að íslensku skip-
stjómarmennimir kenndu innfædd-
um jafhóðum um stjóm skipsins þvi
liður í verkefninu væri að gera þá
færa um að taka við skipinu.
Namibíumenn koma til með að taka
þátt í kostnaði verkefnisins og rekstri
skipsins en Þróunarsamvinnustofh-
unin greiðir kaup og uppihald íslend-
inganna auk tilraunaveiðafæra og
annars búnaðar.
Að sögn Vilhjálms er gert ráð fyrir
því að fjölskyldur þeirra sem fara til
Namibíu dveljist með þeim þar. Þeg-
ar hafa verið valdir menn til þessa
verkefnis.
„Þeir bíða bara í startholunum.
Þessa dagana er verið að þrýsta á
Suður-Afrikumenn að láta skipið af
hendi en þetta virðist allt vera mjög
seinvirkt,“ sagði Vilhjálmur.
Kostnaður Þróunarsamvinnustofn-
unar vegna þessa verkefhisins er enn-
þá ekki mjög mikill, aðeins um 1 1/2
milljón, en gert er ráð fyrir þvi að
kostnaður yfir allt árið nái um 15
milljónum takist að setja verkefnið i
fullan gang í ágústbyijun. —só
ráöherra
Saraband ungra framsóknar-
marma telur félagsmálaráðherra
hafa „gengið á $veig“ við það
samkomulag sem gert var mílli
stjómarflokkanna vorið 1989
með því aö „draga svo úr útlána-
getu Byggingarsjóðs ríkisins scm
raun ber vitni með þvi að vísa
18% af ráðstöfunarfé lifcyris-
sjóðanna frá alraennura útlánura
til húsbréfakaupa. Með þessari
ákvörðun er bæði almenna og fé-
lagslega húsbréfakerfið sett í
mikla hættu“ segir orðrétt í álykt-
un sem sambandið hefur sent frá
sér. Minnt er á áiyktun síðasta
flokksþings framsóknarmanna
og fyrri ályktanir SUF þess efnis
að standa skuli við húsnæðislána-
kerft frá órinu 1986. Telur fram-
kvæmdastjóm SUF það fráleita
ætlun að stöðva móttöku lánaum-
sókna til almenna húsnæðislána-
kerftsins og „visa firá þeim ein-
staklingum sem þegar hafa sótt
ura lán og sett allt sitt traust á
lánafyrirgreiðslu Byggingarsjóðs
rikisras."
SUF skorar á ráðherra og þing-
menn firamsóknamianna að
„stöðva félagsmálaráðherra í
þeirri ósvinnu að eyðileggja það
húsnæðislánakerfi sem komið
var á í góðu samkomulagi við
verkalýðshreyfinguna og sem
tiyggir stöðu ungra Qölskyldna
og láglaunafólks. Undansláttur i
þessu raáli em vanvirðing við
flokksþing, ungliöahreyfmguna
og foiystumenn fiokksins í hús-
næðismálum.“ jkb
20. Landsmót UMFÍ er hafið í Mosfellsbæ. Fjölbreyttar keppnisgreinar:
TVaktoraakstur og
pönnukökubakstur
Tuttugasta Landsmót Ungmennafélags íslands I Mosfells-
bæ hefst I dag og lýkur á sunnudag. Klukkan 8:45 hefst há-
tíðardagskrá á Varmárvelli. Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir sem er vemdarl landsmótsins, mun fiytja þar
ávarp og gróðursetja birkiplöntur á mótssvæðinu. Hin eigln-
lega setningarathöfn hefst á föstudagskvöld um kl.20:00,
þegar um 3000 íþróttamenn munu ganga inn á mótssvæðið.
Landsmótinu var í raun þjófstart-
að f gær með keppni I knattspymu
kvenna og körfuknattleik karla,
Þetta var talið nauðsynlegt þar sem
útilokað er að Ijúka keppni i þess-
um greinum á þeim dögum sem
landsmótið fcr fram.
Mikið undirbúningsstarf hcfur
verið inntafhendi fyrirþetta lands-
mót og tekur það til siðustu þriggja
ára. Um 1000 starfsmenn munu
vinna við mótið á meðan á því
stendur.
Keppt verður í öllum helstu
keppnisíþróttum, en einnig í ýms-
um óhcfðbundnum. Þar má nefna
jurtagreiningu, sem nú fer fram ut-
andyra, pönnukökubakstur, dráttar-
vélakstur og keppni í að lcggja á
borð. Kynning á íþróttum for-
manna er einnig forvitnileg og fer
hún fram laugardag kl. 17:15.
Einn merkilegasti (þróttaviðburð-
urinn er án efa boðmót VISA 1
spjótkasti kl. þrjú á sunnudag. Þar
munu ctja kappi þcir Einar Vil-
hjálmsson, Sigurður Einarsson,
Sigurður Matthíasson og Sviamir
Peter Borglund og Dan Wannlund.
Landsmót UMFI er fyrst og fremst
ljölskylduhátíð og verður þar alltaf
eitthvað um aö vera fyrir alla ald-
urshópa. Búist cr við að um 3000
manns gisti í tjöldum á mótssvæð-
inu og annað eins af keppnisfólki
sem mun hafa búðir sfnar á afmörk-
uðu svæði. Ráðstafanir hafa verið
gerðar til að þess að nóg verði af
bílastæðum en einnig verður boðið
upp á sætaferðir frá Grensási og
Reykjalundi. Frá Grensási er farið
Aögönguverð er sem hér seglr:
kl. 12:00 og síðan á tveggja klst.
fresti. Frá Reykjalundi er farið hálf-
tíma áður.
Öll kvöldin verður boðið upp á
dansleiki sem haldnir verða í
skemmu Álafoss fyrir ofan móts-
svæðið. í kvöld verður þar rokkhá-
tíð þar sem fimm hljórasvcitir
munu leika fyrir dansi. Þær eru
Stuðmenn, Stjómin, Sfðan skein
sól, Ný dönsk og Sálin hans Jóns
míns. Á föstudagskvöid skemmta
síðan Stjómín og Sálin hans Jóns
míns og á laugardags- og sunnu-
dagskvöld Stjómin. Á laugardag
verður einnig boðið upp á dansleik
i Hlégarði fyrir eldra fólkið þar sem
hljómsveitin Styrming sér ura stuð-
ið. Þá verður einnig kvöldvaka á
laugardagskvöld.
Boðið verður upp á sætaferðir til
og frá dansstað. Á fimratudags-
kvöld: Frá Kópavogshálsi kl. 19:00,
frá Hlemmi kl. 19:20 og frá BSl kl.
sjö, átta og níu. Á föstudagskvöld
og laugardagskvöld: kl.niu frá
Kópavogshálsi, 21:20 írá Hlemmi
og átta, niu og tfu frá BSÍ. GS.
Aldur
l.dagur
Lau.og sun.
Fös.tfl sun.
Fim.til sun.
6-12
400.-
13-16
500.-
900.-
1200.-
1500.-
eldri
1000.-
1800.-
2500,-
3000,-
Rokkhátíð flmmtudag
Dansleikur föstudag
Dansleikur laugardag
Dansleikur sunnudag
Opinn miðifgíldir á allt)
1200.-
1400.-
1400.-
1000.-
5000.-
Stjómarformaður Stöðvar 2 segir að íslandsbanki
væri ekki til ef stöðin hefði orðið gjaldþrota:
Að sögn Höskuldar Ólafssonar,
fyrrverandi bankastjóra Verslunar-
bankans, hefði gjaldþrot Stöðvar 2,
ef af hefði orðið, ekki hafl þau áhrif
að Verslunarbankinn hefði farið á
hausinn. Þar með vísar hann ummæl-
um Jóhanns J. Ólafssonar, stjómar-
formanns Stöðvar 2, á bug. Höskuld-
ur segir einnig að stofnun íslands-
banka hafi aldrei verið í neinni hættu.
Jóhann var spurður að því í DV í
gær hvort ekki hefði verið eðlilegra
að Stöð 2 hefði verið látin fara á
hausinn um áramót. Því svarar Jó-
hann: „Þá hefði Verslunarbankinn
einnig farið á hausinn og ekkert orð-
ið af sameiningu íslandsbanka."
Þetta segir Höskuldur ekki vera rétt.
„Málið liggur ekki svona fyrir. Við
vomm búnir að gera samning um
endurskipulagningu stöðvarinnar
fyrir áramót. Síðan var þeim boðið að
kaupa hlutafé í stöðinni og það var
gerður sérstakur samningur um það
fyrripartinn í janúar. Sameining ís-
landsbanka varð virk l.janúar. Þann-
ig að það er ekki samband þama á
milli,“ segir Höskuldur.
Ásmundur Stcfánsson, stjómarmað-
ur í íslandsbanka, vildi ekki tjá sig
um málefhi Verslunarbankans en
sagðist þó ekki geta séð að gjaldþrot
Stöðvar 2 hefði haft úrslitaþýðingu
um stofhun íslandsbanka. GS.
Vísindaráð
úthlutar
styrkjum
Vísindaráð hefúr úthlutað tvö-
hundmð og tveimur styrkjum
samtals að upphæð 121 milljón
króna úr vísindasjóði. Alls bámst
290 umsóknir til ráðsins en hlut-
verk þess er að efla íslenskar vís-
indarannsóknir auk þess að gera
tillögur um stefhumörkun fyrir
vísindastarfsemi í landinu. Er
ráðinu skipt í þijár deildir nátt-
úmvísinda-, líf- og læknisffæði-
og hug- og félagsvísindadeild. í
stjóm þess sitja: Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri, Magnús Magn-
ússon prófessor, Sigfús A.
Schopka fiskifræðingur, Gunnar
Guðmundsson prófessor og Þórir
Kr. Þórðarson prófessor. jkb