Tíminn - 12.07.1990, Blaðsíða 6

Tíminn - 12.07.1990, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 12. júlí 1990 Tímiim MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin (Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Glslason Aöstoðamtstjóri: Oddur Ólafsson Fréttasýóri: Birgir Guðmundsson Auglýsingasýóri: Steingrlmur Glslason Skrffstofur Lyngháls 9,110 Reykjavfk. Sfml: 686300. Auglýsingasíml: 680001. Kvöklsimar Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi h.f. Mánaðaráskrift kr. 1000,-, verð I lausasölu kr. 90,- og kr. 110,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Landsmót UMFÍ Tuttugasta landsmót Ungmennafélags íslands hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Mótið fer að þessu sinni fram í Mosfellsbæ við mjög góða aðstöðu á íþróttasvæðinu þar. Engum blöðum er um það að fletta að landsmót ungmennafélaganna, sem haldin eru reglulega á þriggja ára fresti, eru meðal glæsilegustu æsku- lýðshátíða hér á landi. Ungmennafélag íslands er samband ungmennafélaga um allt land, en í ung- mennafélagshreyfíngunni eru um 40 þúsund fé- lagsmenn og hefur farið síQölgandi ár af ári. Starfsemi ungmennafélaganna er fyrst og ffemst á sviði íþróttamála. Það er því eðlilegt að lands- mót UMFI einkennist mest af íþróttakeppni. Keppnisgreinum á landsmótum hefur ijölgað á síðari árum. Að þessu sinni verður keppt í 75 íþróttagreinum, fleiri en nokkru sinni áður. Kepp- endur munu vera á fjórða þúsundinu og hafa aldr- ei verið fleiri, enda gert ráð fyrir að 10-15 þúsund gestir muni sækja landsmótið. Ungmennafélögin hafa vissulega lagt mikið í undirbúning landsmótsins. Forráðamenn þeirra sýna mikinn metnað fyrir hönd ungmennafélags- hreyfíngarinnar. Við upphaf mótsins vill Tíminn láta þá von í ljós að æskulýðshátíðin í Mosfellsbæ gangi að óskum, verði UMFI til sæmdar og gest- um til ánægju, uppbyggingar og heilbrigðrar af- þreyingar. Til þess er leikurinn gerður. Sólheimar Vistheimilið að Sólheimum í Grímsnesi hélt ný- lega hátíðlegt 60 ára afmæli sitt. A Sólheimum er nærri 40 þroskaheftum einstak- lingum búin vist á reisulegum stað í fallegu, sunnlensku sveitaumhverfi og ekki annað að sjá en þar sé vel að verki staðið í anda mannúðar og viljans til þess að hver maður fái að njóta sín og þroskast eins og hann er borinn til. Það kom skýrt fram á afmæli Sólheima að marg- ir láta sér annt um þennan stað og treysta því að þar sé gott starf unnið. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Sólheimum undanfarin ár og að verulegu leyti kostuð af fégjöfum, sem velunnar- ar heimilisins hafa látið af hendi rakna. Sagt er að kennslu- og uppeldisfræðingar og ýmsir aðrir sérfræðingar hafi á því ýmsar skoðan- ir hvemig best verður búið að þroskahefitu fólki og þroskamótun þess. Ekkert er við því að segja, þótt sitt sýnist hveijum í því efni, og skylt er að leita ævinlega þess sem best er í hveiju máli. Kynni af Sólheimum í Grímsnesi fyrirskipa að vísu ekki að þannig skuli öll vistheimili vera. Hitt segja þau, að Sólheimastaður stendur vel fyrir sínu. I’arlianicnl fyrir mmmm aftfa tem ' i : í. ' :: $em $ett voru i Bretlandi árift 1988 og breyta reglum unt skráuingu irok^aft þcir h^Dcyöst tO^aft Jata^til »ó draga skýrt fnun^ta. bji öftru. W^mioái/ra^ni é, að í lands, neitaði aft émerkja ákvðrft- aft hinui sameiginlegu fiskveiftilög- ^ ^ ið vteri ákvörðunar dómstóls Evr* ur bafa þeir með Icppmennsku og ópubandalagsins á þeim grund- iagabrclium látið skrá skip sín í vift fsland úr ttenði sér, honum velli aft delldin befði ekki vald til Bretlaudi til þcss að geta ftskað yrðu þeir að deiia meö öðrumeftír sbks.“ En eins og fram kemur í innan 12 mflna einkalögsögu Brcta reglom sem Alþtogí íengi engu um þessmn síóustu orftum bafa en þar eru frá náttúruuuar hendi ráftlft. bá myadu Brefar, Þjóðverj- spænsku úfgerðarraennlrnir ktert afargóð fiskimið og fjölbreyttir ar, Frakkar og Spánvcrjar og allar, bresk stjómvöld fyrir dómstóli vciðistofnar, þótt þessar frægu Wnar flskveiðiþjóðimar sem áður F.vrópubandategsins á þeirri fnr- veHMsióðir séu stórskemmdar af gerðu út á lslandsmið, endur- sendn að lögin setn takmarka ofveiði og mengun. heimta fiskveiðiréttindin á ís- skráningu skipa í BreBandi, séu Breska þingið hugðist stöðva landsmiðum. Þessi staðreynd er andstæð mcginreglum Evrópu- framferði Spánverja með iögum, einn skýrasfi drátturinn i þeirri bandalagsins og þar með ógild þá háttsemi að skrá spainsk skip framtiðarmynd scin við biasir, ef gagnvart Spánverjum. Evrópu- scm bresk með lagakrókum og íslendingar ganga Evrópubanda- dómstóflinn befur aó visu ekki svindlLÍ stað þess aó fyrirvcróa sig laginuáhönd. Garri gengju i/ÍTT nr DDCITT VITT OG BREITT Samhentur glundroði Oft hafa sjálfstæðismenn spilað plöt- una um ágæti eins flokks stjómar og brýnt kjósendur til að veita flokknum brautargengi til að ráða og ráðskast einn. Hæst lætur í Sjálfstæðisflokkn- um og málgagni hans, Moigunblað- inu, fyrir boigarstjómarkosningar þegar sýnt er og sannað að enginn ráði við að halda í stjómartaumana i Reykjavík nema Davið einn og at- kvæði hans í borgarstjóminni. Þetta stef er endurtekið enn og aftur með eintóna tilbrigðum svo aldrei fymist yfir boðskapinn. í gær skrifar t.d. Halldór forstjóri Jónsson, sem varla er minna en ritstjóraígildi í Mál- gagninu: „Velgengni Reylgavikur- borgar undir röggsamri stjóm Davíðs og hans manna sýnir og sannar...“ Til að koma einhveijum skikk á landsstjómina stinga Sjálfstæðismenn upp á að þeim verði veittur þingmeiri- hluti til að sýna hvemig á að sigla þjóðarskútunrú eftir leiðarljósum fijálshyggju og óhefts markaðsbú- skapar. Aldrei er þó minnst á hver eigi að stýra því fleyi þótt enginn Sjálf- stæðismaður velkist í vafa um hver er hinn virti og elskaði leiðtogi höfiið- borgarinnar. Þvögur Lítum svo ögn nánar á hvað eindreg- inn málsvari einsflokksræðis í höfuð- borginni, Halldór forstjóri, hefiir fiam að færa, skoðunum sínum til staðfest- ingar: „... fámennur og samhentur hópur, lýðræðislega kjörinn, er miklu hæfari og ábyigari til stjómunar en þvaga af ósamstilltu en sjálfsánægðu fólki...“ Þetta er úr pistli gærdagsins um Davið. Engin ástæða er til að gera lítið úr hæihi Daviðs Oddssonar til að stjóma einn eða spilla þeirri draumsýn að flokkur hans nái þingstyrk til að mynda meirihlutastjóm. Hins vegar hlýtur að vera leyfilegt að draga i efa að pólitískt einlitur hópur í stjómarráðinu sé hótinu skárri og lík- legri til skynsamlegrar samvinnu en þótt ráðherrar komi úr fleiri flokkum. Þessa dagana eru Sjálfstæðismenn nefnilega að afsanna eins rækilega og þeim er unnt, að þeirra ráð eru ekki hætis hót skárri þótt fleiri komi sam- an. í Vestmannaeyjum varrn listi Sjálf- stæðismanna glæsilegan sigur i sveit- arstj ómarkosningunum i vor. Fékk sú einlita hjörð ríflegan meirihluta og sat uppi með 6 bæjarfulltrúa af 9 þegar búið var að telja, og þurfti að endur- taka þrisvar sinnum þar til trúað var, eins og fyrirNjál forðum. Og svo var farið að stjóma. Hinir fyrstu veröa í Eyjum fór stjómarflokkur íhaldsins öfúgt að, miðað við Reykvikinga. í höfúðboiginni ræður fyrsti maður á sigurlistanum öllu og er gerður að boigarstjóra, en í Eyjum ræður fyrsti maður engu og fær ekki að vera neitt, en hinir fimm ráða öllu. Það er nefiúlega ekki á vísan að róa að kjósa fhaldið, þvi það sem snýr upp á því í einu sveitarfélagi eða kjördæmi snýr niður í hinu og meirihluti sjálf- stæðismanna getur allt eins verið hæf- ur og ábyrgur til stjómunar eins og þvaga af ósamstilltu en sjálfsánægðu fólki, eins og steypuforetjórinn orðaði það svo ágætlega í þúsundustu og.eitt- hvað Moggagrein sinni. Leiðtogi íhaldsmeirihlutans í Eyjum sækir nú um að verða bæjarstjóri í Njarðvík og gangi það eftir kemur upp sú athyglisverða staða, að sjálf- stæðismenn í Vestmannaeyjum hafa kosið Njarðvíkingum bæjarstjóra. Þau fim em að gerast að sigurvegari kosninganna í Eyjum er brottrekinn af þeim sem neðar voru á listanum og vilja hvorki heyra né sjá manninn sem leiddi kosningabaráttuna. Því verður hann að gerast bæjarstjóri uppi á land- inu og má með nokkrum sanni segja að vegir íhaldsins em órannsakanleg- ir. Hins vegar stendur rannsókn sem hæst í kostulegu og ábatavænlegu smyglmáli sem einn af bæjarfiilltrú- um meirihlutans lagði lið. Hann sann- aði hug sinn til rfldsafskipta og brennivínseinokunar með þvi að taka sjálfúr að sér flutning á bílfarmi af smygluðu áfengj og er það fagurt dæmi um þegar fijálshyggjumaður lætur verkin tala. Þetta þykir sumum flokksfélaga hans ekki gott. Þegar nú búið er að losna við leið- toga sigurlistans í Eyjum er komið upp vandamál og þarf að fara að losna við annan til og er nú Eyjasjálfstæðið allt í uppnámi. Brennivínssalinn stór- tæki neitar auðvitað að víkja úr bæjar- stjóminni, enda ekki mfldli munur á hvort áfengi er flutt gjaldfritt úr Bakkafossi eða úr lagerum ÁTVR. Sem betur fer standa Vestmannaeyj- ar ekki eða falla með einsflokksmeiri- hluta eða fjölflokkasjóm, jafnvel ekki þótt þeir kjósi Njarðvfldngum ágætan bæjarstjóra af mfldu göfúglyndi. En hitt er sýnt, að íhaldsmeirihluti er hvergi nærri nein trygging fyrir sam- stilltri stjóm, nema síður sé. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.